Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Side 26
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999 Afmæli DV Sigurður Þórir Jónsson Sigurður Þórir Jóns- son hafnarvörður, Há- steinsvegi 47, Vest- mannaeyjum, varð fimm- tugur í gær. Starfsferill Sigurður fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Hann lauk gagn- ^ fræðaprófi, stundaði nám * við enskuskóla í Englandi og stundaði nám við iðn- skóía. Sigurður stundaði ýmis verka- mannastörf á sínum yngri árum, var við störf á Jersey á Englandi, var fulltrúi hafnarstjóra i Vest- Sigurður Þórir Jónsson. mannaeyjum í átta ár og hefur verið hafnarvörður í Vestmannaeyjum frá því í ársbyrjun 1985. Sigurður hefur setið í stjórn Hjálparsveitar skáta í Vestmannaeyjum í tuttugu og fimm ár, er nú gjaldkeri Björgunarfé- lags Vestmannaeyja, varaformaður Starfs- mannafélags Vestmanna- eyjabæjar, var formaður Brunavarðafélags Vest- mannaeyja i tíu ár, sat í stjóm Eyverja, félags ungra sjálf- stæðismanna í Vestmannaeyjum, í mörg ár, starfaði í mörg ár í skáta- félaginu Faxa í Vestmannaeyjum og hefur auk þess setið í ýmsum ráð- um og nefndum. Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Elín Haf- dís Egilsdóttir, f. 16.1.1951, húsmóð- ir. Þau hófu sambúð sumarið 1987 en giftu sig 27.7. 1996. Hún er dóttir Egils Þorsteinssonar, f. 1.8. 1921, d. 15.7. 1964, á Kirkjuhvoli á Eyrar- bakka, og Aðalheiðar Ólafsdóttur, f. 22.9. 1914, d. 19.11. 1995, húsmóður. Dóttir Sigurðar og Elinar Hafdís- ar er Þórunn Sigurðardóttir, f. 15.2. 1988. Stjúpdætur Sigurðar eru Ragna Berg Gunnarsdóttir, f. 8.6. 1971, bú- sett í Kópavogi, í sambúð með Knúti Kjartanssyni, f. 2.10. 1961; Aðalheið- ur Margrét Gunnarsdóttir, f. 19.7. 1975, búsett í Svíþjóð, í sambúð með Ingþóri Stefánssyni, f. 12.6. 1973. Foreldrar Sigurðar voru Jón ólafsson, f. 20.3. 1909, d. 9.3. 1960, bankagjaldkeri í Vestmannaeyjum, og Þórunn Sigurðardóttir, f. 6.8. 1911, d. 17.1. 1996, húsmóðir. Ætt Jón var sonur Ólafs Jónssonar og Önnu Vigfúsdóttur, í Garðhúsum í Eyjum. Þórunn var dóttir Sigurðar Hermannssonar og Sigrúnar Jóns- dóttur á Melstað í Eyjum. Þormar Jónsson 1 Þormar Jónsson, fjármála- og tryggingaráðgjafi, Ægissíðu 117, Reykjavík, er fertugur í dag. Starfsferill Þormar fæddist á Patreksfírði og ólst þar upp. Hann lauk landsprófi og stundaði nám við MA í tvo vetur, stundaði síðan nám við Fisk- vinnsluskólann í Hafnarflrði og út- skrifaðist þaðan sem fiskiðnaðar- maður 1979, hóf síðar nám i sölu- og markaðsfræði við Viðskipta- og *tölvuskólann og úskrifaðist þaðan fyrir skömmu. Þormar starfaði um tíma hjá fisk- vinnslufyrirtæki í Massachussets í Bandaríkjunum við hönnun á bónuskerfi, var matsmaður í skreið og saltfiski, síðan matsmaður á frystitogara og sjómaður á netaver- tíðum og djúprækju. Þá stundaði hann trilluútgerð í fjögur sumur. Kaflaskipti urðu í lífi Þormars er hann flutti til Englands haustið 1989 og hóf að kynna sérstaka guð- fræði, Lögmál Guðs - The Divine Principles. Hann lærði síðan og kenndi Lög- mál Guðs í Englandi og Tékklandi 1989-96. Þá flutti hann aftur til íslands og hefur starfað hér við kynnis- og sölustörf en er nú íjármála- og trygging- arráðgjafi. Þormar var forstöðumaður Sam- taka heimsfriðar og sameiningar 1996-98 og hefur verið að kynna síð- ustu tvö árin alþjóðleg fjölskyldu- samtök hér á landi. Þau samtök heita Heimsfriðarsamtök fjöl- skyldna. Aðaláhersla samtakanna er að vinna að viðgangi fjölskyldunnar og út- skýra hugsjón Guðs um fjölskylduna. Þormar var formaður taflfélags MA í tvo vetur og síðar forseti Skák- sambands Vestfjarða um skeið. Fjölskylda Þormar kvæntist 25.8. 1992 Lenku Lipková, f. 28.1. 1965, leikskóla- starfsmanni. Hún er dóttir Tranta Lipka og Evu Lipková frá Tékk- landi. Böm Þormars og Lenku eru Tómas Lipka Þormarsson, f. 12.3. 1996; Tamar Lipka Þormarsdóttir, f. 4.6. 1997. Systkini Þormars eru Magnús Jónsson, f. 15.10. 1957, útgerðarmað- ur á Patreksfirði; Arnheiður Jóns- dóttir, f. 6.4.1961, þroskaþjálfi á Pat- reksflrði; Hafþór G. Jónsson, f. 22.12. 1967, útgerðarmaður á Pat- reksfirði; Lilja Valgerður Jónsdótt- ir, f. 29.4. 1969, búsett í Reykjavík; Bergþóra Jónsdóttir, f. 16.8. 1971, talmeinafræðingur í Reykjavík. Fóstursystkini Þormars eru Kristín Pálsdóttir, f. 7.12. 1948, dag- skrárstjóri innlends efnis hjá ríkis- sjónvarpinu, búsett í Mosfellsbæ; Sigurður F.V. Viggósson, f. 4.5.1953, framkvæmdastjóri Odda hf., búsett- ur á Patreksflrði. Foreldrar Þormars eru Jón Magn- ússon, f. 3.3. 1930, útgerðarmaður á Patreksfirði, og Lilja Jónsdóttir, f. 14.3. 1931, umsjónarmaður eldri borgara á Patreksfirði. Fréttir Efra-Breiðholt: Bankinn varð kaffihús „Þetta er vínlaust kafflhús og við vonumst til þess að fólk taki okkur opnum örrnurn," segir Geir Ómar Kristinsson, sem opnaði ásamt eiginkonu sinni, Fanneyju Ósk Ingvaldsdóttur, kaffihúsið Café Ósk að Drafnarfelli 18 á dög- unum. Café Ósk er í húsnæði þar sem íslandsbanki var áður. Alls komast 40 manns í sæti en leyfl er fyrir fyrir allt að 60 manns. „Við reiknum með að þama verði málverkasýningar. Þá er til skoðunar að fá trúbadora til að 'lroða uppi auk þess að bjóða upp á skemmtiatriði," segir Geir Ómar. Fjöimargir gestir mættu við opnun Café Óskar f Breiðholti. Unga kynslóðin var áberandi. staðgreiðslu- og greiðslu- kortaafsláttur og stighœkkandi birtingarafsláttur aW milff hirry/ « ^ ó Of> .. *JÍ Smáauglýsingar DVj 550 5000 Til hamingju með afmælið 9. nóvember 90 ára Ólöf Pálsdóttir, Kirkjuvegi lf, Keflavík. 85 ára Guðleif Þorsteinsdóttir, frá Litlabotni, Dvalarheimilinu Höföa, Akra- nesi. 80 ára Óskar Guðmundsson, Geirastöðum, Egilsstöðum. 70 ára Björgvin E. Guðmundsson, Faxabraut 27g, Keflavík. Elín Vilmundardóttir, Bugðulæk 12, Reykjavik. Jóhann Jóliannsson, Hellubraut 7, Hafnarfirði. Sigrún Guðný Jóhannesdóttir, Leiðólfsstöðum, Búðardal. Sigurbjartiu- Jóhannesson, Víghólastíg 24, Kópavogi. 60 ára Ólafur E. Eggertsson, Hamrahlíö 17, Reykjavík. Selma Jóhannesdóttir, Óðinsvöllum 3, Keflavík. 50 ára Andrea Þórdís Sigurðardóttir, Flókagötu 5, Reykjavík. Finnbogi G. H. Finnbogason, Dalseli 13, Reykjavík. Guðríður Hauksdóttir, Holtsgötu 44, Njarðvfk. Magnea Jóhannsdóttir, Kambsvegi 2, Reykjavík. Margrét Karlsdóttir, Glaðheimum 18, Reykjavík. Óli Einarsson, Súlunesi 27, Garðabæ. Sigurður Vilbergsson, Tjarnarstíg 13, Seltjarnarnesi. Sigurlaug Jóna Guðmundsdóttir, Brunnum 5, Patreksfirði. Svava Jakobsdóttir, Hólmgarði 50, Reykjavík. Vilborg Alda Jónsdóttir, Hvítanesi, Hvolsvelli. 40 ára Egill Þór Magnússon, Fannafold 188, Reykjavík. Elínborg Ragnarsdóttir, Akurgerði 7a, Akureyri. Enok Ragnar Eðvarðsson, Blómsturvöllum 7, Grindavík. Phra Kasem Khemajitto, Amarhrauni 2, Hafnarfirði. Sigurlaug Halldórsdóttir, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík. Tómas Guðmarsson, Rauðhömrum 14, Reykjavík. Þorsteinn G. Guðnason, Lundarbrekku 6, Kópavogi. ---7--------- IJrval - gott í hægindastólinn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.