Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1999, Page 26
ÞRIÐJUDAGUR 9. NÓVEMBER 1999
Afmæli
DV
Sigurður Þórir Jónsson
Sigurður Þórir Jóns-
son hafnarvörður, Há-
steinsvegi 47, Vest-
mannaeyjum, varð fimm-
tugur í gær.
Starfsferill
Sigurður fæddist í
Vestmannaeyjum og ólst
þar upp. Hann lauk gagn-
^ fræðaprófi, stundaði nám
* við enskuskóla í Englandi
og stundaði nám við iðn-
skóía.
Sigurður stundaði ýmis verka-
mannastörf á sínum yngri árum,
var við störf á Jersey á Englandi,
var fulltrúi hafnarstjóra i Vest-
Sigurður Þórir
Jónsson.
mannaeyjum í átta ár og
hefur verið hafnarvörður
í Vestmannaeyjum frá
því í ársbyrjun 1985.
Sigurður hefur setið í
stjórn Hjálparsveitar
skáta í Vestmannaeyjum
í tuttugu og fimm ár, er
nú gjaldkeri Björgunarfé-
lags Vestmannaeyja,
varaformaður Starfs-
mannafélags Vestmanna-
eyjabæjar, var formaður
Brunavarðafélags Vest-
mannaeyja i tíu ár, sat í
stjóm Eyverja, félags ungra sjálf-
stæðismanna í Vestmannaeyjum, í
mörg ár, starfaði í mörg ár í skáta-
félaginu Faxa í Vestmannaeyjum og
hefur auk þess setið í ýmsum ráð-
um og nefndum.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Elín Haf-
dís Egilsdóttir, f. 16.1.1951, húsmóð-
ir. Þau hófu sambúð sumarið 1987
en giftu sig 27.7. 1996. Hún er dóttir
Egils Þorsteinssonar, f. 1.8. 1921, d.
15.7. 1964, á Kirkjuhvoli á Eyrar-
bakka, og Aðalheiðar Ólafsdóttur, f.
22.9. 1914, d. 19.11. 1995, húsmóður.
Dóttir Sigurðar og Elinar Hafdís-
ar er Þórunn Sigurðardóttir, f. 15.2.
1988.
Stjúpdætur Sigurðar eru Ragna
Berg Gunnarsdóttir, f. 8.6. 1971, bú-
sett í Kópavogi, í sambúð með Knúti
Kjartanssyni, f. 2.10. 1961; Aðalheið-
ur Margrét Gunnarsdóttir, f. 19.7.
1975, búsett í Svíþjóð, í sambúð með
Ingþóri Stefánssyni, f. 12.6. 1973.
Foreldrar Sigurðar voru Jón
ólafsson, f. 20.3. 1909, d. 9.3. 1960,
bankagjaldkeri í Vestmannaeyjum,
og Þórunn Sigurðardóttir, f. 6.8.
1911, d. 17.1. 1996, húsmóðir.
Ætt
Jón var sonur Ólafs Jónssonar og
Önnu Vigfúsdóttur, í Garðhúsum í
Eyjum. Þórunn var dóttir Sigurðar
Hermannssonar og Sigrúnar Jóns-
dóttur á Melstað í Eyjum.
Þormar Jónsson
1 Þormar Jónsson, fjármála- og
tryggingaráðgjafi, Ægissíðu 117,
Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Þormar fæddist á Patreksfírði og
ólst þar upp. Hann lauk landsprófi
og stundaði nám við MA í tvo vetur,
stundaði síðan nám við Fisk-
vinnsluskólann í Hafnarflrði og út-
skrifaðist þaðan sem fiskiðnaðar-
maður 1979, hóf síðar nám i sölu- og
markaðsfræði við Viðskipta- og
*tölvuskólann og úskrifaðist þaðan
fyrir skömmu.
Þormar starfaði um tíma hjá fisk-
vinnslufyrirtæki í Massachussets í
Bandaríkjunum við hönnun á
bónuskerfi, var matsmaður í skreið
og saltfiski, síðan matsmaður á
frystitogara og sjómaður á netaver-
tíðum og djúprækju. Þá stundaði
hann trilluútgerð í fjögur
sumur.
Kaflaskipti urðu í lífi
Þormars er hann flutti til
Englands haustið 1989 og
hóf að kynna sérstaka guð-
fræði, Lögmál Guðs - The
Divine Principles. Hann
lærði síðan og kenndi Lög-
mál Guðs í Englandi og
Tékklandi 1989-96. Þá
flutti hann aftur til íslands
og hefur starfað hér við
kynnis- og sölustörf en er
nú íjármála- og trygging-
arráðgjafi.
Þormar var forstöðumaður Sam-
taka heimsfriðar og sameiningar
1996-98 og hefur verið að kynna síð-
ustu tvö árin alþjóðleg fjölskyldu-
samtök hér á landi. Þau samtök
heita Heimsfriðarsamtök fjöl-
skyldna. Aðaláhersla samtakanna
er að vinna að viðgangi
fjölskyldunnar og út-
skýra hugsjón Guðs um
fjölskylduna.
Þormar var formaður
taflfélags MA í tvo vetur
og síðar forseti Skák-
sambands Vestfjarða um
skeið.
Fjölskylda
Þormar kvæntist 25.8.
1992 Lenku Lipková, f.
28.1. 1965, leikskóla-
starfsmanni. Hún er dóttir Tranta
Lipka og Evu Lipková frá Tékk-
landi.
Böm Þormars og Lenku eru
Tómas Lipka Þormarsson, f. 12.3.
1996; Tamar Lipka Þormarsdóttir, f.
4.6. 1997.
Systkini Þormars eru Magnús
Jónsson, f. 15.10. 1957, útgerðarmað-
ur á Patreksfirði; Arnheiður Jóns-
dóttir, f. 6.4.1961, þroskaþjálfi á Pat-
reksflrði; Hafþór G. Jónsson, f.
22.12. 1967, útgerðarmaður á Pat-
reksfirði; Lilja Valgerður Jónsdótt-
ir, f. 29.4. 1969, búsett í Reykjavík;
Bergþóra Jónsdóttir, f. 16.8. 1971,
talmeinafræðingur í Reykjavík.
Fóstursystkini Þormars eru
Kristín Pálsdóttir, f. 7.12. 1948, dag-
skrárstjóri innlends efnis hjá ríkis-
sjónvarpinu, búsett í Mosfellsbæ;
Sigurður F.V. Viggósson, f. 4.5.1953,
framkvæmdastjóri Odda hf., búsett-
ur á Patreksflrði.
Foreldrar Þormars eru Jón Magn-
ússon, f. 3.3. 1930, útgerðarmaður á
Patreksfirði, og Lilja Jónsdóttir, f.
14.3. 1931, umsjónarmaður eldri
borgara á Patreksfirði.
Fréttir
Efra-Breiðholt:
Bankinn varð kaffihús
„Þetta er vínlaust kafflhús og
við vonumst til þess að fólk taki
okkur opnum örrnurn," segir Geir
Ómar Kristinsson, sem opnaði
ásamt eiginkonu sinni, Fanneyju
Ósk Ingvaldsdóttur, kaffihúsið
Café Ósk að Drafnarfelli 18 á dög-
unum. Café Ósk er í húsnæði þar
sem íslandsbanki var áður. Alls
komast 40 manns í sæti en leyfl er
fyrir fyrir allt að 60 manns.
„Við reiknum með að þama
verði málverkasýningar. Þá er til
skoðunar að fá trúbadora til að
'lroða uppi auk þess að bjóða upp
á skemmtiatriði," segir Geir
Ómar.
Fjöimargir gestir mættu við
opnun Café Óskar f Breiðholti.
Unga kynslóðin var áberandi.
staðgreiðslu- og greiðslu-
kortaafsláttur og stighœkkandi
birtingarafsláttur
aW milff hirry/
« ^ ó Of> ..
*JÍ
Smáauglýsingar
DVj
550 5000
Til hamingju með afmælið 9. nóvember
90 ára
Ólöf Pálsdóttir, Kirkjuvegi lf, Keflavík.
85 ára
Guðleif Þorsteinsdóttir, frá Litlabotni, Dvalarheimilinu Höföa, Akra- nesi.
80 ára
Óskar Guðmundsson, Geirastöðum, Egilsstöðum.
70 ára
Björgvin E. Guðmundsson, Faxabraut 27g, Keflavík. Elín Vilmundardóttir, Bugðulæk 12, Reykjavik. Jóhann Jóliannsson, Hellubraut 7, Hafnarfirði. Sigrún Guðný Jóhannesdóttir, Leiðólfsstöðum, Búðardal. Sigurbjartiu- Jóhannesson, Víghólastíg 24, Kópavogi.
60 ára
Ólafur E. Eggertsson, Hamrahlíö 17, Reykjavík. Selma Jóhannesdóttir, Óðinsvöllum 3, Keflavík.
50 ára
Andrea Þórdís Sigurðardóttir, Flókagötu 5, Reykjavík. Finnbogi G. H. Finnbogason, Dalseli 13, Reykjavík. Guðríður Hauksdóttir, Holtsgötu 44, Njarðvfk. Magnea Jóhannsdóttir, Kambsvegi 2, Reykjavík. Margrét Karlsdóttir, Glaðheimum 18, Reykjavík. Óli Einarsson, Súlunesi 27, Garðabæ. Sigurður Vilbergsson, Tjarnarstíg 13, Seltjarnarnesi. Sigurlaug Jóna Guðmundsdóttir, Brunnum 5, Patreksfirði. Svava Jakobsdóttir, Hólmgarði 50, Reykjavík. Vilborg Alda Jónsdóttir, Hvítanesi, Hvolsvelli.
40 ára
Egill Þór Magnússon, Fannafold 188, Reykjavík. Elínborg Ragnarsdóttir, Akurgerði 7a, Akureyri. Enok Ragnar Eðvarðsson, Blómsturvöllum 7, Grindavík. Phra Kasem Khemajitto, Amarhrauni 2, Hafnarfirði. Sigurlaug Halldórsdóttir, Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík. Tómas Guðmarsson, Rauðhömrum 14, Reykjavík. Þorsteinn G. Guðnason, Lundarbrekku 6, Kópavogi.
---7---------
IJrval
- gott í hægindastólinn