Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1999, Page 1

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1999, Page 1
19 Eins og að horfa á lið íslands - sungu stuðningsmenn Stoke City Stuðningsmenn enska knattspymufélagsins Stoke City eru að vonum hæstánægðir með fyrsta leik liðsins eftir yfirtöku íslendinganna en sem kunnugt er vann Stoke glæsilegan úti- sigur á Wycombe, 0-4, í fyrrakvöld. Guðjón Þórðarson stjórnaði þar Stoke í fyrsta skipti í deildaleik og Stoke vann sinn stærsta útisigur í sjö ár. Þegar leiö á leikinn og Stoke var komið með yfirburðastöðu sungu áhorfendur, sem fylgdu Stoke á leikinn: „Þetta er eins og að horfa á landslið íslands." Staðarblaðið Sentinel talaði í gær um draumabyrjun Guðjóns í fyrirsögn og fór lof- samlegum orðum um frammistöðu liðsins. Guðjón segir sjálfur í viðtali við blaðið að lið- ið hafi spilað betur en hann hefði getað vænst 'og hann hafi i hreinskilni sagt verið undrandi á hve vel gekk. Sagt er í greininni að þessi sannfærandi sigur hljóti að stórauka virðingu og trú leikmanna og stuðningsmanna á nýja þjálfaranum og stjórn hans. -VS Ríkharður bíður svara Ríkharður Daðason, landsliðsmaðm- í knattspyrnu, bíður enn eftir svöram frá forráða- mönnum þýska A-deildarliðsins Hamburger. Sem kunnugt er hitti Ríkharður menn frá félaginu i síðustu viku en þeir eru á höttunum eftir framlínumanni til að fylla skarð Ant- hony Yeboah. „Ég reikna með að heyra frá félaginu í þessari viku. Þetta er það eina sem er í gangi hjá mér enda setti ég Hamburger í forgang og ýtti öðru tU hliðar," sagði Ríkharður við DV í gær. Rikharður á eitt ár eftir af samningi sínum við Viking Stavanger en hann hefur staðið sig mjög vel hjá norska liðinu og skorað mikið af mörkum. Æfingar liðsins hefjast á mánudaginn. Ríkharður segist reikna með að halda utan á mánudaginn en það geti þó breyst ef Þjóðverjarnir vUji kaupa sig. -GH Geir Sveinsson, þjáif- ari Valsmanna, þefaði aðeins af sóknarleik liðsins í gærkvöld og náði þá að skora sitt fyrsta mark fyrir Val auk þess að fiska vítakast. Það dugði Valsmönnum skammt því Haukar fóru með sigur af hólmi og unnu örugg- an sigur í mikilvæg- um leik liðanna. DV-mynd E.ÓI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.