Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.1999, Side 2
20
jólaundirbúningurinn í rgpa desember.
FÖSTUDAGUR 10. DESEMBER 1999
Plötudómur
Six Pack Latino
- Björt mey og Mambó ★★★
Fínt fyrir þá
sem kjósa
rólegt yfirbragð
Það er mlkill áhugi á salsatón-
list um þessar mundir víða um
heim. Fréttir berast af fjölda
hljómsveita sem flytja slika mús-
ik og sprottið hafa upp í Banda-
ríkjunum og venjulegar dans-
hijómsveitir eru famar að taka
mið af því og leggja útjöskuð
popp- og rokklög á hilluna og
spila mambó, rúmbu og cha cha
cha af miklum móð.
„Listamennirnir sleppa
bara allvel frá tiltsekinu."
Guðjón Harðarson í Múlakaffi sér ásamt öörum starfsmönnum um að útbúa jólamatinn í fangelsinu í Kópavogi og Hegningarhúsinu.
DV-MYND HILMAR
.Þeirfá líka hangikjöt, hamborgarhrygg, lambalæri og nýja svínasteik umjólin
Það er reyndar ekki heiglum
hent að gera sér dælt við
salsatónlist og skyldar greinar.
En listamennimir sem skipa Six
Pack Latino eru alls ódeigir og
sleppa bara allvel frá tiltækinu.
Á diskinum em nokkur prýðilega
framsamin lög eftir gítarleikar-
ann Pál Torfa Önundarson og
bassaleikarann Tómas R. Einars-
son en aðallega era þetta lög frá
Rómönsku Ameríku. Eitt af
þekktari lögunum á diskinum er
þó eftir Bandaríkjamanninn
Henry Mancini. Víða kom hann
við, sá maður. Sumir erlendu
textamir era þýddir eða endur-
samdir á íslensku af þeim Páli
Torfa, Tómasi, Ólafi Gauk (hið
kunna lag Manhá De Camaval
eftir Bonfá) og Þorsteini Sveins-
syni og hæfa vel efninu. Ekki er
farið offari í ásláttargeiranum og
meðal annars af þeim sökum er
músíkin laus við þann æsing sem
stundum fylgir músík sem á ætt-
ir sínar að rekja til þessa heims-
hluta. Fínt fyrir þá sem kjósa ró-
legt yfirbragð. Hinir haldi sig við
Milljónamæringana. Salsahefð-
inni er oftast fylgt nokkuð ná-
kvæmlega, t.d. í píanóleiknum
sem Aðallieiður Þorsteinsdóttir
leysir ákafiega smekklega af
hendi. Jóhanna V. Þórhalisdóttir
leiðir sönginn og kemst aldeilis
vel frá þvi og miklu betur en á
síðasta diski sínum. Aðrir
hljómsveitarmeðlimir era
Þorbjöm Magnússon
bongóleikari og Þórdis
Claessen slagverkskona.
Lngvi Þór Kormáksson'
Stórsteikur og hlaðborð
- í fangelsum landsins um jólin
Ekki eru allir svo lánsamir að
geta um frjálst höfuð strokið um jól
og áramót i bókstaflegum skilningi.
Nokkur fjöldi ógæfusamra manna
gistir þessa hátíðisdaga á bak við
lás og slá í fangelsum landsins. Þar
er samt meira við haft í mat eins og
hjá þorra íslendinga.
Fangelsiö í Kópavogi og
Hegningarhúsið
I fangelsinu í Kópavogi og eins í
Hegningarhúsinu er jólamaturinn
að þessu sinni fenginn frá Múla-
kaffi í Reykjavík eins og mörg und-
anfarin ár.
Guðjón Harðarson matreiðslu-
maður segir að þegar sé búið að
leggja drög að matseðlinum í fang-
elsunum um jólin. „Ég held að við
séum búnir að sjá um þetta í 20 eða
30 ár og það er komin nokkuð góð
hefð fyrir þessu. Það verður kalt
hlaðborð á aðfangadagskvöld. í því
er blanda af kjöt- og fiskréttum. Að
vísu er ekki standandi kalt borð
fyrir fangana eins og flestir þekkja
það heldur fá þeir hver sinn bakka
með því sem á boðstólum er.
Þá fá þeir lika hangikjöt, ham-
l borgarhrygg, lambalæri og nýja
svínasteik um jólin. Þetta skipt-
-ist á þessa hátíðisdaga og það
er veislumatur bæði í hádegis- og
Kvíabryggja þar sem Rósa
Geirmundsdóttir hefur staðið
ein vaktina í 18 ár.
„Þetta er þó ósköp hátíðlegt og gott
og viö reynum að hafa þetta
sem heimilislegast."
kvöldmat. Á gamlárskvöld er lika
kalt borð, annars er það svipað um
áramótin og jóladagana. Fangarnir
verða þvi ekki sviknir af jólamatn-
um.
Auk þess að sinna fangelsunum
þá sendum við mat til þeirra sem
eru á vakt á slökkvistöð, Veður-
stofu, Securitas og fleiri vinnustöð-
um þar sem unnið er á vöktum all-
an sólarhringinn."
Litla-Hraun
„Við verðum með hefðbundinn
jólamat á Litla-Hrauni um jólin,“
sagði Andrés Terry Nielsen mat-
reiðslumaður sem hefur umsjón
með matseldinni þar á bæ hátíðis-
dagana.
dv-mynu nh Gullið tilið í hrímþokunni
DV, Suðurlandi: Hengibrýr eru formfögur mannvirki og setja sannarlega svip sinn á umhverfið og veröa tákn þess. Yfir Hvítá
við löu í Biskupstungum er hengibrú sem Tungnamenn hafa á undanförnum árum skreytt fyrir jólin meö því að setja á hana
jólaljós. í hrímþokunni sem var yfir Hvítá á laugardag sló gullnum bjarma yfr brúna af jólaljósunum og í skini þeirra varö brú-
in eins og gullið hlið fýrir þá sem yfir hana fóru.
„Við verðum með
lambasteik núna á
sunnudag og þann næsta
líka. Það verður ham-
borgarhryggur á að-
fangadag eins og alltaf
þann dag. Þá er hangi-
kjöt á jóladag. Annan í
jólum verð ég trúlega
með hamborgara og
franskar. Á gamlárs-
kvöld verð ég með
nautafille í roast beef en
það er líka fastur liður
hjá mér. Fyrsta daginn á
nýju ári hef ég oft verið
með kalkúnabringur og
það getur verið að ég hafi
þær líka núna. Síðan fá
þeir inn á hverja deild
klementinukassa og ým-
islegt annað, eins og
ístertur. Þeir fá líka app-
elsín og malt sem þeir
geta blandað sér sjálfir.
Maður reynir að hafa
þetta eins gott og hægt er
en það er misjafnt eins
og gengur hvemig mönn-
um líkar maturinn. Ég elda þetta í
fangelsinu og er með ágæta kokka
með mér. Svo notum við bara gott
hráefni frá SS, Kjötvinnslunni
Esju, Kjamafæði og þessum þekktu
stöðum þannig að það á ekki að
vera neitt að þessu,“ sagði Andrés
Terry Nielsen sem einnig rekur
veisluþjónustu á Selfossi.
Kvíabryggja
Rósa Geirmundsdóttir hefur
staðið ein vaktina í eldhúsinu á
Kviabryggju í 18 ár en er nú loks
komin með aðra manneskju sér til
aðstoðar. „Þetta hefur verið mikil
vinna en hér em 14 vistmenn og
þrír starfsmenn í mat. Ég hef
oftastnær haft hamborgarhrygg á
aðfangadag, með brúnuðum kart-
Andrés Terry Nielsen hefur umsjón með
jólamatnum í fangelsinu á Litla-Hrauni.
„Á gamlárskvöld verð ég meö nautafille
í roast beef."
öflum og öllu tilheyrandi. Það er
reynt að gera eins vel og hægt er
um jólin og bakaðar kökur, tertur
og allt mögulegt. I hádeginu á jóla-
dag er hangikjöt eins og á flestum
heimilum. Siðan er steik um kvöld-
ið en annars er þetta svona hefð-
bundinn jólamatur.
Á gamlárskvöld er svo byrjað aft-
ur en þá reynum við að hafa eitt-
hvað annað í matinn. Þá er t.d.
kalkúnn. Á nýársdag er áframhald-
andi veisla og þá verður steik en
það er þó ekki búið að ákveða end-
anlega hvað það verður. Ég held að
þetta sé ósköp svipað og á venjuleg-
um heimilum, nema þetta er held-
ur meira. Þetta er þó ósköp hátíð-
legt og gott og við reynum að hafa
þetta sem heimilislegast." -HKr.
í'