Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Page 3
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000
21
Heimsbikarinn á skíöum í Wengen:
Skíðin krosslögðust
og Kristinn var úr leik
- var með góða stoðu þegar hann datt í síðari umferðinni
Kristinn Bjömsson, skíðagarpur
frá Ólafsfirði, datt neðarlega í
brekkunni í síðari umferð svigsins í
Wengen í gær.
Kristinn var í 19. sæti eftir fyrri
umferðina en aðstæður voru ekki
sem bestar, brautin erfið og þoka.
Tók Kristinn enga áhættu og komst
nokkuð auðveldlega í markið.
Alls hófu 62 skíðamenn keppni en
20 þeirra urðu úr leik í fyrri umferð
sem segir meira en mörg orð um
það hversu brautin í Wengen var
erfið.
Kristinn skiðaði vel framan af í
síðari umferð og var með góðan
millitima. Það stefndi því allt í
góðan lokatíma en þegar hann var
kominn neðarlega í brekkuna
krosslögðust skíðin og Kristinn var
úr leik. Má telja fullvíst að ef
Kristni hefði tekist að komast í
mark hefði hann orðið meðal efstu
manna i sviginu.
Þrátt fyrir óhappið sýndi
Kristinn og sannaði að hann er
meðal bestu svigmanna heims og
aðeins er tímaspursmál hvenær
hann kemst á verðlaunapallinn
eftirsótta.
Hann sýndi engu að síður að
hann er í góðu formi og einungis
spuming hvenær honum tekst að
fikra sig ofar.
Langþráður draumur
Aamodt rættist loksins
Það var norskur sigur í sviginu í
Wengen í gær og hann kærkominn
fyrir Kjetil Andre Aamodt sem ekki
hafði unnið sigur á heimsbikarmóti
Kjetil Andre Aamodt á fleygiferð í brautinni í Wengen í gær. Aamodt vann þar fyrsta sigur sinn i svigkeppm i
heimsbikarnum og þar meö hefur hann sigrað í öiium alpagreinunum á heimsbikarmóti. Reuter
í tvö ár.
Þetta var hins vegar fyrsti sigur
hans í svigi keppninnar og náði
hann þar með þeim merka áfanga
að hafa sigrað í öllum alpagreinum
á heimsbikarmóti.
Norðmenn mega vel við una því
þeir áttu einnig mann í öðru sæti en
það var Ole Christian Furuseth.
Slóveninn Drago Grubelnik hreppti
þriðja sætið og voru þetta fyrstu
verðlaun hans i heimsbikamum.
Athygli vakti að Thomas
Stangassinger gerði mikil mistök í
brautinni og varð mjög aftarlega.
áé
Phills ók svarta Porsche-bílnum og eins og sést á
myndinni, sem tekin var skömmu eftir áreksturinn, eru
báðir bílarnir ónýtir. Reuter
Sárt saknað
Bobby Phills í síðasta leik sínum
með Charlotte Hornets.
Reuter
Bakvarðarins Bobbys Phiils er sárt saknað í NBA-
liði Charlotte Hornets. Hann lést samstundis í þriggja
bíla árekstri skammt frá heimavelli Charlotte á leið
heim til sín eftir morgunæfíngu.
Lögreglan í Charlotte telur að Phills hafi verið í
kappakstri við félaga sinn í liði Charlotte, bakvörðinn
David Wesley, en þeir óku báðir Porsche-bilum. Phills,
sem var þrítugur og hafði leikið í NBA-deildinni í 9 ár,
missti stjórn á bíl sínum. Hann lætur eftir sig
eiginkonu og tvö börn.
-SK
Elden Campbell og Eddie Robinson komu að
slysinu sem varð skammt frá heimavelli Charlotte.
Phills lést samstundis. Reuter
Sport
Bland i poka
Franski landsliðsmaðurinn Sylvain
Wiltord hjá Bordeaux sagði um helg-
ina að hann ætlaði að hætta hjá félag-
inu í vor og stefndi að því aö leika á
Englandi. Wiltord er 25 ára gamall og
var markahæstur í deildinni í fyrra.
Fulham keypti um helgina danska
landsliðsmanninn Bjarne Goldbœk
frá Chelsea og greiddi fyrir hann um
70 milljónir króna. Goldbæk gekk til
liðs við Chelsea í nóvember 1998 og
gerði þá við félagið þriggja og hálfs
árs samning.
Nú gœtifarió svo að ekkert verði af
því að Lothar Mattháus fari til
bandaríska liðsins MetroStars frá
Bayern Munchen. Þjálfara- og fram-
kvæmdastjóraskipti urðu í vikunni
og virðist sem andrúmsloftið innan
herbúöa liðsins sé ekki gott. Lothar
verður 39 ára í mars.
Austurríkismaðurinn Josef Strobl
kom sannarlega á óvart þegar hann
sigraði í bruni í heimsbikarnum 1
Wengen í Sviss. Annar varð Her-
mann Maier frá Austurríki og þriðji
varð Ed Podivinsky frá Kanada.
í stórsvigi kvenna, sem fram fór í
Altenmarkt í Austurríki, sigraði
Renate Götschl. Landa hennar
Tanja Schneider varð önnur og 1
þriðja sæti Regina Haeusl frá Þýska-
landi.
Hátt settur tnadur innan
íþróttahreyflngarinnar í Suður-
Afríku sagðist í gær vera sann-
færður um stuðning Sepp Blatt-
ers, forseta Alþjóða knattspyrnu-
sambandsins, þegar kæmi að því
að velja heimsmeistarakeppn-
inni í knattspyrnu árið 2006 stað.
Suður-Afríkumenn eru mjög
reiðir út í Sir Bobby Charlton
sem er í bresku nefndinni sem
reynir að fá HM til Englands.
Charlton sagði um helgina að ör-
yggi keppenda væri ekki tryggt
ef keppnin ætti að fara fram í
Suður-Afríku.
Angelo Pagotto, markvörður
ítalska knattspyrnuliðsins
Perugia, hefur verið dæmdur í
keppnisbann vegna þess að hann
féll á lyfjaprófi sem framkvæmt
var eftir leik Perugia og Fiorent-
ina í nóvember sl. í ljós kom að
markvörðurinn hafði neytt
kókaíns en hann hefur neitað
því eins og þeirra er háttur sem
falla á lyfjaprófum.
Danski hlauparinn Wilson
Kipketer hefur sagt að hann
hyggist reyna við nýtt heimsmet
í 800 metra hlaupi innanhúss á
móti í Sviþjóð í næsta mánuði.
Hann á núgildandi heimsmet.
Einnig hefur Maria Mutola
frá Mósambík lýst því >Tir að
hún muni reyna við nýtt heims-
met í 800 metra hlaupi kvenna á
sama móti.
Franz Beckenbauer hefur
farið fram á óskoraðan stuðning
frá Suður-Afríku við umsókn
Þjóðverja um að halda HM í
knattspyrnu árið 2006. í staðinn
ætla Þjóðverjar að styðja Suður-
Afríku varðandi umsókn um
keppnina 2010. Suður-Afríka og
Marokkó eru meðal umsækjenda
um keppnina 2006.
Svo gæti farið að Jenson
Button, 19 ára Breti, verði ann-
ar af tveimur ökumönnum
BMW-Williams-liðsins í Formula
1 kappakstrinum sem hefst í
mars. Hann yrði þá yngsti
Bretinn sem náð hefur því að
verða ökumaður í Formula 1.
-SK/-JKS
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
•^INTER
WSPORT
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is