Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2000, Qupperneq 12
m
30
MÁNUDAGUR 17. JANÚAR 2000
Bræðurnir til Stoke?
Enska blaðið The
Sentinel sem gefið er út í
Stoke útilokar ekki þann
möguleika að synir Guð-
jóns Þórðarsonar, knatt-
spyrnustjóra Stoke, gangi
til liðs við félagið eftir
þetta tímabil. Vitað er að
Stoke ætlar að styrkja
leikmannahópinn fyrir
næstu sparktíð. Þrír syn-
ir Guðjóns leika á megin-
landinu. Þórður Guöjóns-
son og Bjami Guðjónsson
eru á mála hjá belgíska
liðinú Genk og Jóhannes
Karl Guðjónsson, sem
einnig er samningsbund-
inn sama iiði, er í láni hjá
hollenska liðinu
Maastricht til vorsins.
Haft er eftir Guðjóni að
það henti knattspyrnu-
mönnum frá Norðurlönd-
unum að leika i breska
boltanum.
-JKS
Frestað á Akureyri
íslenska landsliðið í hand-
knattleik komst ekki til Akur-
eyrar í gær en þar átti liðið að
leika gegn KA til undirbúnings
fyrir Evrópukeppnina. Flug til
Akureyrar lá niðri í gær vegna
veðurs. Landsliðið tók þess I
stað æfingu í gærkvöld. Ekki er
talið útilokað að reynt verði að
leika á Akureyri í kvöld.
Landsliðið lék æfmgarleik við
1. deildar lið ÍBV á fóstudags-
kvöldið og sigraði með 28 mörk-
um gegn 20.
Bjarki ekki með
Um helgina varð ljóst aö
Bjarki Sigurðsson leikur ekki
með íslenska landsliðinu í Evr-
ópukeppninni í Króatíu. Bjarki
hefur ekki náð sér af meiðslum í
hné og er ljóst að hann þarf
meiri hvíld. Með þessari niður-
stöðu verður skarð fyrir skildi
þvi Bjarki er einn besti hand-
boltamaður landsins.
Tap og sigur
Þjóðverjar og Spánverjar átt-
ust við í tveimur landsleikjum í
Hannover og Minden um helg-
ina. Spánverjar unnu fyrri leik-
inn, 25-23, en Þjóðverjar þann
síðari, 27-24, Þar skoruðu þeir
Volker Zerbe og Florian
Kehrmann fimm mörk hvor fyr-
ir Þjóðverja.
Welsh setti met
Ástralski sundmaöurinn Matt
Welsh setti nýtt heimsmet í 50
metra baksundi á heimsbikar-
móti í 25 metra lag i Ástralíu.
Hann synti á 24,11 sekúndum en
gamla metið átti Neil Walker og
var það sett í nóvember sl.
í eina sæng?
Allt stefnir í að þýsku hand-
boltafélögin Wuppertal og
Gummersbach veröi sameinuð
eftir þetta tímabil og er ástæða
þess fjárhagsstaða liðanna. Ekki
er allir á eitt sáttir um þessi
áform.
AEK vann sigur
Arnar Grétarsson og samherj-
ar hans i gríska liðinu AEK sigr-
uðu Kavala, 3-0, í deildarkeppn-
inni i gærkvöld. Helgi Sigurðs-
son og félagar í Panathinaikos
leika í kvöld á heimavelli gegn
Panionios.
Blackburn vill Reid
Enska liðið Blackbum er að
leita að knattspymustjóra til
framtíðar og er honum ætlað að
koma liðinu í fremstu röð á nýj-
an leik. Efstur á óskalistanum er
Peter Reid sem nú er við stjórn-
völinn hjá Sunderland.
Di Matteo óánægður
Roberto Di Matteo, sem leikið
hefur með Chelsea sl. fjögur ár,
lýsti því í gær að svo gæti farið
að hann væri á fórum frá liðinu.
Matteo, sem verður 30 ára í sum-
ar, er ekki ánægður með stöðu
sína hjá Chelsea.
Albertz á förum
Þjóðverjinn Jörg Albertz
segist vera á forum frá Glasgow
Rangers eftir fjögur ár hjá liðinu
en hann skoraði 19 mörk á
síðasta tímabili. -JKS
Corinthians „heimsmeistarar
Brasilísku meistararnir í Corinthians tryggðu sér heimsmeistaratitil félagsiiða í knattspyrnu með því að sigra landa sína í Vasco da Gama í úrslitaleik eftir
vítaspyrnukeppni. Staðan eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var markalaus og var leikur iiðanna afspyrnulélegur og leiðinlegur. Var engu líkara en
bæði iið væru staðráöin í að fara meö leikinn í vítakeppni. Heimsmeistarakeppnin í Brasilíu hefur veriö harðlega gagnrýnd og á sú gagnrýni allan rétt á
sér. Snautieg framganga ensku meistaranna í Manchester United kom af stað umræðu í Englandi og margir eru á þeirri skoöun aö United hefði verið nær
að halda sig heima og taka þar þátt í ensku bikarkeppninni. Ljóst er að fyrirkomulag keppninnar er út úr kortinu og aö lið Corinthians er fjarri því aö vera
besta félagsliö heims um þessar mundir. Á myndinni fagna leikmenn Corinthians „heimsmeistaratitlinum". Reuter
- dulbúinn sem læknir reyndi dópsali að
smygla kókaíni til Maradona
Ekkert virðist geta
bjargað argentínska
knattspymumanninum
Diego Armando Mara-
dona.
Maradona dvelur
þessa dagana á sjúkra-
húsi í Argentínu eftir að
hafa verið fluttur á
sjúkrahús nær dauða en
lífi eftir ofneyslu kóka-
ins.
Nú er svo komið að
aöeins 38% hjartavöðv-
ans starfa eðlilega en
þrátt fyrir það er fiknin
enn til staðar og ljóst að
Maradona á erfiða bar-
áttu fram undan sem þó
virðist vera töpuð.
Um helgina kom
starfsfólk sjúkrahússins
auga á grunsamlegan
mann sem var að snigl-
ast í nágrenni sjúkrastof-
unnar þar sem Mara-
dona dvelur. Þegar farið
var að athuga málið bet-
ur kom í ljós að hér var
um dulbúinn eiturlyfja-
sala að ræða og var hann
i gervi læknis, í hvítum
slopp og með hlustunar-
græjurnar á maganum.
Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir tókst ekki að hafa
hendur í hári „læknis-
ins“ sem lagði á flótta.
Læknir Maradona
fullyrti í viðtölum viö
fjölmiðla að hér hefði
verið um eiturlyfjasala
að ræða. Og þá verður að
telja afar líklegt að
Maradona hafi sjálfur
reynt að útvega sér eit-
urlyf. Lýsir þetta vel
veikindum kappans sem
á árum áður heillaöi all-
an heiminn upp úr skón-
um með snilldartöktum
á knattspyrnuvellinum.
Læknar hafa skipað
Maradona í langa með-
ferð og er talið líklegast
að hann fari til Kanada.
Einnig hefur honum ver-
ið boðið á meðferðar-
stofnun á Kúbu en talið
er líklegra að hann fari
til Toronto í Kanada.
-SK
Svíar lögðu Dani í
Svíar sigruðu Dani, 27-25, í úr-
slitaleik á fjögurra landa
handknattleiksmóti sem lauk í
Malmö í gær. í leik um þriðja sæt-
ið sigruðu Frakkar Egypta, 28-23.
Leikur Svía og Dana var spenn-
andi og jafn allan tímann en í
hálfleik leiddu Danir með tveim-
ur mörkum, 13-11. Magnus Wis-
lander skoraði 7 mörk fyrir Svía.
Svíar eru mjög bjartsýnir á gott
gengi liðsins í Evrópukeppninni í
Króatíu. Þeir segja mjög gott aö
byrja á íslendingum þar og ganga
út frá því sem vísu að Svíar
virnii.
í fyrstu umferð mótsins sigr-
uðu Svíar liö Frakka, 27-22, og
úrslitum
Danir unnu stórsigur á Egyptum,
33^19.
í annari umferð lögðu Danir lið
Frakka, 20-17, og Svíar sigruðu
Egypta, 31-25.
Norðmenn voru í Portúgal um
helgina og sigruðu heimamenn,
25-23.
-JKS
Diego Armando Maradona veifar til
stuðningsmanna á svölum sjúkrahússins
i Argentínu. Nú er líklegt að hann verði
sendur til Kúbu eða Kanada í meðferö við
gríðarlegri kókaínfíkn.
Reuter