Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Page 3
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000
21
—
I
Þorbjorn Jensson lands-
liösþjálfari hefur ekki átt
sjö dagana sæla í Króatíu
frekar en aörir sem í för
voru meö íslenska lands-
liöinu.
Fram undan er tími breyt-
inga en ekkert fararsniö
er á Þorbirni úr starfi
landsliösþjálfara. Með
honum á myndinni er Ró-
bert Sighvatsson, lang-
besti leikmaður íslands í
keppninni og Ólafur Stef-
ánsson sem náöi sér ekki
á strik.
ÉLs*
B3
Mánudagsviftta'ig
Þýsk lið
aeftir
Róbert
DV, Króatíu:
Nokkur af sterkustu liðum þýsku
Bundeslígunnar í handknattleik líta hýru
auga til línumannsins sterka, Róberts Sig-
hvatssonar, sem leikur með Bayer Dormagen.
Eitt tilboð hefur borist í hann en forseti fé-
lagsins hefur sagt að ekki komi til greina að
selja Róbert sem enn á tvö ár eftir af samn-
ingi sínum við þýska félagið.
Róbert varðist allra frétta af málinu og
vildi ekki gefa upp hvaða iið sýndu sér
áhuga. Ekki ætti framganga hans á EM að
hafa skemmt fyrir honum en hann var besti
maður íslendinga i keppninni.
Skuldum þjóðinni góða keppni
„Niðurstaðan er ekki sú allra besta en við
náðum að sýna rétt andlit í lokin og vinna
síðasta leikinn. Það er samt alveg ljóst að við
þurfum að bæta leik liðsins verulega. Það
þarf greinilega að vinna mikið með liðið fyr-
ir útsláttarkeppnina í júní, einnig innan HSÍ
og innan hópsins að sjálfsögðu. Menn verða
hver og einn að koma sér í gott líkamlegt
ástand þannig að menn mæti frískir í næsta
verkefni. Við skuldum íslensku þjóðinni góða
keppni og ég ætla að vona að við getum
skemmt þjóðinni í næstu heimsmeistara-
keppni í Frakklandi sem haldin verður í byrj-
un næsta árs,“ sagði Róbert Sighvatsson.
Sport
i>v
Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir EM í Króatíu:
Ekki minn stíll að
stökkva frá borði
Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari
í handknattleik, hefur mátt þola
nokkra gagnrýni vegna frammistöðu
liðsins i handknattleik sem lauk í Za-
greb í Króatíu í gær.
Þorbjöm hefur verið með liðið í
tæp fimm ár en hann tók við því eftir
heimsmeistarakeppnina á íslandi í
byrjun júní 1995. Fyrir Evrópumótið
var árangur Þorbjöms nokkuð góður
og ber hæst fimmta sætið á HM í
Kumomoto 1997 þar sem liðið lenti í
fimmta sæti. 11. sætið á EM i Króatíu
skyggir því nokkuð á störf hans með
liðið og hefur hann ekki farið var
hluta af því. Hvemig ætli Þorbjöm líti
á niðurstöðuna þegar mótið er afstað-
ið?
- Af hverju var liðið ekki betra á
mótinu en raun bar vitni?
„Það er vegna þess að alit of mikið
var búið að ganga á fyrir keppnina.
Undirbúningurinn var ekki eins og
best varð á kosið og leikmenn, sem
eru i lykilstöðum, spila ekki nóg með
liðum sínum í Þýskalandi og þá sér-
staklega hvað sóknarleikinn áhrærir.
Einnig hafa menn verið meiddir og
það er þannig með okkur að ef ailt er
ekki í lagi þá eigum erfitt með að ná
góðum árangri."
- Þú telur þig þá ekki hafa valið
rangt lið til þátttöku? Hefðu yngri
leikmenn kannski máttfá tœkifœri?
„Staðreyndin er sú að við höfum
ekki úr stórum hópi að velja. Ég var
kannski að taka nokkra áhættu og
maður getur alveg spurt sig eftir á
hvort það hafi verið rangt og ég hafi
átt að velja einhverja aðra í ákveðnar
stöður. Ég held nú samt sem áður að
ef ég hefði valið einhverja aðra hefði
árangurinn ekki orðið neitt betri,
kannski verri. Þá hefði maður verið
gagnrýndur fyrir það að hafa ekki
tekið hina og látið reyna á þá. Það
gerði ég ekki og það getur vel verið að
það hafi verið rangur kostur.“
- Berð þú ábyrgð á frammistöðu
liðsins hér í Króatiu?
„Það er ekki spuming að ég ber
ábyrgð á henni og hef aldrei reynt að
skorast undan því. Auðvitað á þjálfar-
inn einhverja sök á þessu, hann ræð-
ur, velur liðið hverju sinni og reynir
að koma því í sem best form og undir-
búa það á allan hátt fyrir keppnina."
- Hvernig starfsumhverfi er þér
skapað af hálfu HSÍ sem þjálfara
landsliðsins?
„Auðvitað reynir HSÍ og formaður
þess að skapa mér sem best umhverfi.
Eins kannski ailir vita hefur það ver-
ið þannig að eftir HM heima 1995 hef-
ur sambandið verið í stórum mínus
fjárhagslega. Þar af leiðandi er starfs-
umhverfið ekki akkúrat eins og það
þyrfti að vera. Við verðum bara að
sníða okkur stakk eftir vexti hvað
varðar peningamáiin og þess vegna er
þetta svona fátæklegt hjá okkur hvað
varðar undirbúning og annað því sam-
fara. Við verðum að skera við nögl
ýmislegt sem við kannski hefðum
þurft að gera og væri æskilegt. Eins og
ég hef sagt, ef við gerum hrikalegar
væntingar til liðsins, viljum hafa það
gott er alveg ljóst að það þarf að koma
til meira fjármagn. Við verðum að búa
við svipað ástand á næstum árum því
peningaflæðið er bara ekki meira.
Þrátt fyrir allt erum við oft að gera
vel, eins og á HM i Kumomoto, en þess
á milli ekki. Starfsumhverfið er eins
og best verður á kosið miðað við þær
aðstæður sem við þurfum að búa við.“
- Hefur það komið upp í huga
þinn að pakka saman og láta af
störfum?
„Nei, því mér finnst það eins og að
vera að flýja af hólmi. íþróttirnar eru
þannig að maður á stundum góðar og
líka slæmar stundir og sem betur fer
eru góðu stundimar fleiri. Mér finnst
það í sjálfu sér engin lausn að flýja úr
starfinu. Auðvitað væri það skemmti-
legt að flýja af hólmi, segja bless og
reynið að gera eitthvað betur. Mér
finnst sá kostur aumingjalegur, ég er
bara ekki þannig gerður. Ég vil frekar
reyna að stokka upp spilin og sjá hvað
við getum bætt.
Það er alveg ljóst að liðið tekur ein-
hverjum breytingum í framhaldinu og
síðan þarf að reyna af öllum mætti að
vinna niður skuldimar."
- Hvað verður að gera til að búa
til gott landslið?
„Það verður í fyrsta lagi hiklaust að
koma til meira fjármagn til þess að
við getum framkvæmt þá hluti sem
við þurfum að gera. Einnig þurfum
við að taka meira þátt i mótum en
það hefur ekki verið gert sem skyldi af
því að við eram alltaf á síðustu krón-
unni.
Oftar en ekki setur maður niður
fyrir sig hvað þarf að gera og þá er
það i minni kantinum vegna peninga-
skorts. Það þýðir ekki, eins og menn
segja, að berja bara hnefanum í borð-
ið. Það fást ekki meiri peningar fyrir
það. Þeir sem halda að þaö dugi lifa
bara í einhverjum öðru heimi en við.“
- Áður fyrr var landslióið að
leika 15-20 landsleiki á ári. Er það
ekki slœm þróun núna að leikirnir
eru í dag taldir á fingrum ann-
arrar handar?
„Jú, þessi þróun er mjög slæm. Það
var mjög gott að komast á mótið í
Hollandi fyrir síðustu jól og ekki hvað
síst fyrir ungu strákana en að sama
skapi var það líka slæmt að strákarn-
ir i Þýskalandi fengu sig ekki lausa á
mótið. Við eram alltaf að nýta okkur
eyður í þýsku deildinni sem landslið
þeirra era að búa tO. Þýska landsliðið
beið afhroð í keppninni alveg eins og
við. Fyrir vikið horfir maður til betri
tíma því meira svigrúm fæst því ég er
viss um að þýska liðið krefst meiri
tíma en áður. Undirbúningurinn hjá
okkur verður þá betri en þá komum
við erm og aftur að peningahliðinni.
Allur undirbúningur kostar peninga."
- Hver er i raun ástœðanfyrir þvi
að við erum að dragast aftur úr?
„Við höfum ekki úr stórum hópi að
velja. Af þeim sökum verður allt að
smella saman, allir verða að vera í
toppformi og engin meiðsl mega
verða.
Ef menn skoða söguna sjá þeir
fljótt að okkur gengur best þegar und-
irbúningur er bestur. Fyrir HM í Jap-
an fékk liðið fimm vikur til að undir-
búa sig og enginn í hópnum var
meiddur. Þá var umhverfið rétt og þá
gerðum við hluti sem við náðum þar.
Ef umhverfið er þannig eins og það
var fyrir keppnina hér í Króatíu er
ekki hægt að ætlast til betri árangurs.
Við voram ekki að fá neina útreið í
leikjunum og í sumum töpuðum við
naumt. Það munar bara samt því að ef
allt hefði verið í lagi í umgjörðinni
hefði okkur gengið mun betur."
- Veróur uppstokkun á liðinu i
kjölfar keppninnar i Króatíu?
„Já, það verða örugglega einhverjar
breytingar. Við verðum að fá inn eitt-
hvað af nýjum leikmönnum og síðan
hef ég sagt að eftir 2-3 ár fáum við
nokkuð stóran hóp af efnilegum strák-
um. Þá getum horft fram á veginn aft-
ur.“
- Þú œtlar þá að halda ótrauður
áfram og koma liðinu inn á réttar
brautir aftur?
„Samningur minn rennur út um
mitt næsta ár og það hefur ekki verið
rætt um neitt annað en að ég haldi
áfram. Ef menn vilja að ég haldi áfram
held ég áfram. Ég ætla ekki að
stökkva fyrir borð. Það er ekki minn
stíll," sagði Þorbjörn Jensson.
-JKS
ÞÍN FRÍSTUND
-OKKAR FAG
Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020
• www.intersport.is
IINTER
SPORT