Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Side 5
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000
23
Sjöþrautarmót í Tallinn í Eistlandi um helgina:
Jón Arnar annar
- skaut Erki Nool aftur fyrir sig en Roman Sebrle sigraði
Jón Arnar Magnússon varð í öðru
sæti á sterku sjöþrautarmóti innan-
húss í Tallinn sem er kennt við Eist-
ann Erki Nool og fór fram í heima-
landi hans um helgina.
Jón Arnar fékk samtals 6149 stig
en sigurvegari varð Roman Sebrle,
Tékklandi, með 6358 stig, og setti
hann um leið tékkneskt met í grein-
inni.
Þriðji varð síðan heimamaðurinn
Erki Nool, með 6137 stig. íslands- og
Norðurlandamet Jóns Arnars er 6293
stig, frá HM í Maebashi á síðasta ári.
Þessi árangur Jóns er sá þriðji besti
hjá honum frá upphafi og tryggir hon-
um rétt til að keppa á Evrópumeist-
aramótinu í Gent, 25. til 27. febrúar.
Jón Amar hljóp 60 metrana á 6,90
sekúndum, stökk 7,76 metra í lang-
stökkinu og setti þar nýtt íslandsmet
innanhúss. Gamla metið, sem hann
átti sjálfur, var 7,71 metri, frá 1996.
Jón kastaði kúlunni 16,10 metra,
stökk 2,01 metra í hástökkinu og var
hann með 3588 stig eftir fyrri dag og í
öðru sæti.
Á síðari keppnisdeginum, í gær,
hljóp hann 60 metra grindahlaup á
8,13 sekúndum, stökk 4,75 metra í
stangarstökki og hljóp 1000 metrana á
2:48,78 mínútum. Er ljóst að ef Jón
Amar hefði náð betri árangri í stang-
arstökkinu hefði hann höggvið nærri
íslandsmeti sínu.
Lofar góðu fyrir framhaldið
Árangur Jóns Arnars á þessu móti
sýnir vel að hann er á réttri leið og
framganga hans í Eistlandi lofar svo
sannarlega góðu fyrir framhaldið.
Hann hefur æft mjög vel að undan-
förnu og það sem er mikilvægast er að
Jón Arnar hefur alveg verið laus við
meiðsl. Vonandi verður svo áfram og
þá gæti allt gerst.
-SK/-ÓÓJ
Röð 6 efstu manna:
1. Roman Sebrle, Tékklandi 6358 stig
2. Jón Arnar...........6149 stig
3. Erki Nool, Eistlandi .... 6137 stig
4. Michaelenko, Úkraníu . . 5984 stig
5. Kaseorg, Eistlandi... 5830 stig
6. Korkizoglou, Grikklandi . 5817stig
Jón Arnar meö félaga sínum, Erki Nool, frá Eistlandi.
Valdimar á heimleið?
DV, Króatíu:
Svo gæti farið að Valdimar Grímsson sé á heimleið
úr atvinnumennskunni en samningur hans við þýska
félagið Wuppertal rennur út í vor. Valdimar hefur
undanfarin tvö ár leikið með þýska liðinu og það mun
skýrast endanlega síðar í þessum mánuði hvað hann
tekur sér fyrir hendur í vor.
„Eins og staðan er í dag hefur stefnan verið tekin
heim til Islands. Ég er þessa dagana að skoða mín mál
og á næstu vikum ætla ég að taka endanlega ákvörðun.
Ég er bara einfaldlega kominn á þann aldur að maður
verður að hugsa sinn gang. Ef ég kem heim í vor er
allar líkur á þvi að ég haldi áfram að leika handbolta,"
sagði Valdimar Grímsson í samtali við DV í Zagreb í
gær en hann var þá á heimleið til Þýskalands.
Valdimar hefur gengið í gegnum erfiða tíma í vetur
hjá Wuppertal vegna meiðsla. Hann náði sér af þeim
skömmu fyrir Evrópumótið og tókst að leika vel í
keppninni. Hann var í hópi markahæstu leikmanna ,
skoraði 41 mark i sex leikjum og var nýting hans í
skotum ein sú besta í mótinu.
Valdimar Grímsson.
Mike Tyson gekk hraustlega til verks og sigraöi andstæöing sinn eftir aðeins fjórar mínútur um helgina en
þá mætti hann breska meistaranum Julius Francis í hringnum í Manchester. Tyson lamdi Francis sundur og
saman og Bretinn, sem virkaði ákaflega lélegur andstæöingur, sá aldrei til sólar í þessum bardaga. Tyson
lýsti því yfir eftir bardagann að hann gæti vel hugsaö sér aö berjast aftur í Evrópu og jafnvel aö flytja til
Evrópu. Hann sagöi aö vel heföi veriö fariö meö sig í Bretlandi, mun betur en í Bandaríkjunum. -SK/Reuter
Sport
Agassi fagnar sigrinum á opna
ástralska mótinu um helgina.
Agassi er
sá besti
Bandarikjamaðurinn Andre
Agassi sýndi það og sannaði um
helgina að haann er besti tennis-
leikari heims í karlaflokki um
þessar myndir.
Agassi lék til úrslita á opna
ástralska stórmótinu gegn Jev-
geni Kafelnikov frá Rússlandi og
sigraði í löngum og ströngum
leik, 3-6, 6-3, 6-2 og 6-4. Agassi
sagði eftir mótið að það væri
erfitt að verja titil á þessu móti
og það hefði andstæðingur hans
fengið að reyna að þessu sinni.
„Þetta er búið að vera
skemmtilegt mót og vitanlega er
ég sáttur við mína spila-
mennsku," sagði Agassi eftir að
sigurinn var í höfn.
Kafelnikov var ekki sérlega
ósáttur við sinn hlut og hafði
haft orð á því í nokkuð langan
tima að hann gæti ef til vill ekki
sigrað á þessu móti. „Mér gekk
vel til að byrja með í úrslita-
leiknum og vann fyrsta settið.
Eftir það tókst mér ekki að hafa
stjóm á leiknum og eftir því sem
á leikinn leið fór mér aftur,“
sagði Kafelnikov.
Steffi Graf, ný unnusta Andre
Agassi, fylgdist glöö meö
sínum manni í úrslitunum.
Davenport best í
kvennaflokki
Lindsay Davenport frá Banda-
ríkjunum er sterkust
tenniskvenna sem stendur í
heiminum. Hún lék gegn Mart-
inu Hingis frá Sviss í úrslitum í
kvennaflokki og sigraði 6-3 og
7-5.
-SK
Staffan þjálf-
ar kylfinga
Sviinn Staífan Jonannsson
hefur verið ráðinn landsliðsþjálf-
ari í golfi og einnig til að hafa yf-
irumsjón með og skipuleggja
landsliðsmál Golfsambands ís-
lands.
Johannsson hefur aðstoðað
sænska atvinnumenn á evr-
ópsku mótaröðinni síðustu 10-15
árin og er talinn mjög fær þjálf-
ari. -SK