Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2000, Síða 9
MÁNUDAGUR 31. JANÚAR 2000
27
DV
Sport
Guömunda
Kristjansdóttir
skorar eitt 4
marka sinna fyrir
Víking i sjö
marka sigri á Val
um helgina
DV-mynd E.OL
Blatter styöur Afríku
Sepp Blatter, forseti Alþjóða knattspymusambandsins, virðist vera
orðinn ákafur stuðningsmaður þess að heimsmeistarakeppnin í knatt-
spymu fari fram í Afríku árið 2006.
Blatter hefur sagt að rétt sé að borgir eða lönd sem halda heimsmeist-
arakeppni verði sem víöast um jarðarkringluna. Það gæti því farið svo
að Englendingar og Þjóðverjar, sem eru á meðal ríkja sem sent hafa inn
umsókn um keppnina 2006, ættu erfitt uppdráttar þegar keppnislandið
verður tilkynnt síðar á þessu ári. Hingað til hafa Þjóðverjar talið sig eiga
mikla möguleika en þeir gætu farið minnkandi ef afstaða Blatters breyt-
ist ekki. -SK
Góður sigur Campbells
Michael Campbell frá Nýja-Sjálandi gerði sér lítið fyrir og sigraði á
Heimeken Classic, golfmóti atvinnumanna, sem lauk í Ástralíu um helg-
ina.
Campbell, sem er nær óþekktur kylfingur, lék holumar 72 á 268 högg-
um en annar varð Daninn Thomas Bjöm sem lék á 274 höggum. Margir
af sterkustu kylfingum heims léku á mótinu og sigur Campbells er at-
hyglisverðari fyrir vikið. „Sterkur kylfingur leikur vel undir miklu
álagi. Mér tókst þetta á þessu móti og ég er ánægður með það. Það var
gaman að sigra á þessu móti,“ sagði Campbell sem fékk um 28 milljónir
króna fyrir sigurinn. -SK
1. deild kvenna í handbolta um helgina:
íslandsmet hjá Einari:
2,24 m
- einum sm frá OL
Einar Karl Hjartarson, ÍR, setti
á fóstudagskvöld íslandsmet í há-
stökki karla á móti úrvalshóps
unglinga í Laugardalshöllinni er
hann stökk 2,24 m. Eldra metið
var 2,20 m og í eigu Einars sjálfs,
frá því í mars á síðasta ári. Einar
náði þar með lágmarki fyrir Evr-
ópumeistaramótið innahúss í
Belgíu 25 til 27. febrúar
Lágmarkið, sem sett er af FRÍ,
er 2,24 m. Einar Karl vantar þar
. DEILS KViNHA
\ Grótta/KR 17 12 1 4 400-320 25
Víkingur R. 16 10 5 1 344-283 25
FH 16 10 3 3 401-308 23
Stjarnan 17 10 0 7 397-350 20
Haukar 16 8 3 5 378-315 19
Valur 17 8 3 6 377-318 19
ÍBV 15 7 3 5 351-326 17
Fram 16 7 1 8 369-374 15
ÍR 16 5 0 11 269-329 10
KA 17 2 1 14 289-396
Afturelding 15 0 0 15 252-508 )
Hliðarendaskellur
- Víkingsstúlkur burstuðu Val og Grótta KR vann Hauka
Hraði, spenna og kraftur í sókn og
vöm einkenndu fyrri hálfleik Hauka
og Gróttu KR i gærkvöldi. Haukar
höfðu undirtökin í upphafi leiks og
skoruðu fyrstu þrjú mörkin. En
Grótta KR sótti í sig veðrið er leið á
hálfleikinn, jafnaði 9-9, og í hálfleik
var jafnt, 11-11.
Búast mátti við spennandi síðari
hálfleik en ráðaleysi og
vandræðagangur I leik Hauka, ásamt
frábærri markvörslu Fanneyjar
Rúnarsdóttur í marki Gróttu KR,
kom í veg fyrir það. Grótta KR lék
leik sinn af skynsemi og þrátt fyrir
að hafa þrívegis orðið einum manni
færri á fyrstu 20 mínútum síðari
háifleiks náðu þær þriggja marka
forskoti, 17-20, og þegar Haukar
misstu út mann jók Grótta KR
forystuna í 17-22 og gerði út um
leikinn.
Bæði þessi lið eru meðal þeirra
bestu í deildinni í vetur en einhvern
veginn hefur þjálfurum Hauka ekki
tekist að ná því út úr liðinu sem í því
býr á meðan Grótta KR nýtir sér
styrk sinn til fulls. Til dæmis breyttu
Haukar um varnartaktík fjórum
sinnum í síðari hálfleiknum án þess
að ná neinum teljandi árangri.
Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir 5,
Auður Hermannsdóttir 5, Inga Friða
Tryggvadóttir 5/2, Harpa Melsted 4,
Ragnheiður Guðmundsdóttir 2, Tinna
Halldórsdóttir 1, Sandra Anolyte 1, Hekla
Daðadóttir 1. Varin skot: Hjördís
Guömundsdóttir 15/1, Berglind
Hafliðadóttir 1.
Mörk Gróttu KR: Jóna Björg Pálmadóttir
8/2, Alla Gorkorian 5, Kristín Þórðardóttir
4, Ágústa Edda Bjömsdóttir 4, Eva
Þórðardóttir 4, Edda Hrönn Kristinsdóttir
1. Varin skot: Fanney Rúnarsdóttir 23/1.
Víkingssigur gegn Val
Á laugardag mættust Valur og
Víkingur á Hlíðarenda. Leikurinn
var mikilvægur fyrir bæði lið því
með sigri tryggðu Víkingar stööu
sína í fyrstu þremur sætunum en
Valur gat með sigri blandað sér í þá
baráttu.
Frábær markvarsla Helgu Torfa-
dóttur tryggði Víkingi öðru fremur
sigur gegn Val sem þrátt fyrir ágæta
baráttu átti ekkert svar gegn sterku
Víkingsliði og mátti sætta sig við 7
marka tap, 16-23. Hjá Val munaði
mikið um að Brynja Steinsen fann
sig engan veginn i leiknum og skor-
aði ekki mark. Sjö marka sigur er
Víkingi mikilvægur í toppbaráttunni
því ef deildin spilast áfram eins og
verið hefur kemur markatalan til
með að skipta sköpum þegar upp er
staðið.
Mörk Vals: Sigurlaug R. Rúnarsdóttir
5/4, Helga S. Ormsdóttir 3, Anna Steinsson
2, Eivor Pála Blcndal 2, Gerður Beta Jó-
hannsdóttir 2/1, Eygló Jónsdóttir 1, Sonja
Jónsdóttir 1. Varin skot: Berglind I. Hans-
dóttir 8/2, Alda H. Jóhannsdóttir 3.
Mörk Víkings: Kristín Guðmundsdótt-
ir 7/2, Helga B. Brynjólfsdóttir 5/2, Guð-
munda Kristjánsdóttir 4, Svava Sigurðar-
dóttir 3, Margrét Egilsdóttir 2, Eva Hall-
dórsdóttir 1, Heiðrún Guðmundsdóttir 1.
Varin skot: Helga Torfadóttir 26.
Marta meö sigurmarkið á
Akureyri
KA vann ÍR, 16-15, í hörkuleik á
Akureyri þar sem Marta Hermanns-
dóttir skoraði sigurmark heima-
stúlkna 10 sekúndum fyrir leikslok
en gestimir úr Breiðholtinu höfðu
gert 3 síðustu mörkin þar á undan.
Jafnt var í hálfleik. ÍR var ávallt á
undan í fyrri hálfleik en KA í seinni
hálfleik en Jenný Ásmundsdóttir,
markvörður ÍR, varöi mjög vel, með-
al annars bæði víti KA í leiknum.
Mörk KA: Marta Hermannsdóttir 4, Ás-
dls Sigurðardóttir 3, Inga Huld Pálsdóttir
3, Heiða Valgeirsdóttir 3, Inga Dís Sigurð-
ardóttir 2, Hulda Sif Ásmundsdóttir 1.
Mörk ÍR: Ingibjörg Jóhannsdóttir 5,
Heiða Guðmundsdóttir 4, Inga Jóna Ingi-
mundardóttir 2, Björg Fenger 2, María
Másdóttir 2.
Afturlelding stóö í Stjörnunni
Eftir tvö tuttugu marka töp í röð
náðu Mosfellsstúlkur góðum leik
gegn Stjömunni á Varmá á laugar-
dag og Stjarnan náði að lokum fjög-
urra marka sigri, 24-28, eftir að Aft-
urelding hafði verið 6 mörkum undir
i hálfleik, 10-16.
Mörk Aftureldingar: Ebba Eggerts-
dóttir 7, Ásthildur Haraldsdóttir 5, Vigdís
Brandsdóttir 5, Inga María Ottósdóttir 3,
Sigurbjörg Kristjánsdóttir 2, Ingibjörg
Magnúsdóttir 1, Aníta Pálsdóttir 1.
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður
Stephensen 7, Inga Steinunn Björgvins-
dóttir 5, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir 3, Nína K. Bjömsdótt-
ir 2, Hrund Grétarsdóttir 2, Rut Steinsen 2,
Þorbjörg Þórhallsdóttir 1, Sigrún Másdótt-
ir 1, Svava Björk Jónsdóttir 1.
Sjötti heimasigurinn í Eyjum
Eyjastúlkur em sterkar heima og
á laugardag unnu þær sjötta heima-
sigur sinn í 8 leikjum á Fram, 28-25.
Fram byrjaði leikinn betur en um
miðjan fyrri hálfleik komust
Eyjastelpur yfir og staðan í hálfleik
var 14-12. Seinni hálfleikur var jafn
og spennandi en markvörður ÍBV,
Luckrecia Bokan, varði tvö vítaköst
Framara í lokin.
Mörk ÍBV: Anita Andreassen 7,
Amela Hegic 6/4, Andrea Atladóttir 5,
Hind Hannesdóttir 4, Ingibjörg
Jónsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir
2, Mette Einarsen 1. Varin skot: Vigdís
Sigurðadóttir 11, Luckrecia Bokan 6/2.
Mörk Fram: Marina Zoeva 10/5,
Hafdís Guðjónsdóttir 5, Svanhildur
Þengilsdóttir 3, Björk Tómasdóttir 2,
Katrín Tómasdóttir 2, Díana
Guðjónsdóttir 1, Olga Prokhorova 1,
Bjarney Bjarnadóttir 1. Varin skot:
Hugrún Þorsteinsdóttir 11, Ema María
Hið árlega
Þorrablót
Fram verður haldið
föstudaginn 4. febrúar
fp, í félagsheimili Fram Safamýri
I Húsið opnar kl. 20:00 með fordrykk
Veislustjóri Þorsteinn J. Vilhjálmsson
nœstum því Seðlabankastjóri!
Heiðursgestur Friðrik Þór Friðriksson
kvikmyndagcrðarmaður
Verður Helgi Björns með "Framlag"?
Óvcentar uppákomur
Happdrœtti