Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Blaðsíða 9
Robbi rapp segir að kynlíf með kærustunni og 30
sjónvarpsstöðvar séu ekki slæmur kostur þegar
þynnkan sækir að á sunnudegi.
„Pepperoni
og kynlíf redda
deginum“
Róbert Aron Magnússon
plötusnúður
Daginn eftir aö Robbi rapp hefur verið á djamminu fer hann
aldrei á fætur fyrr en á hádegi. Þá smeygir hann sér í eitthvað
þægilegt og síðan er pöntuð pitsa, annaðhvort með pepper-
oni eða skinku.
„Ég verð aldrei alveg handðnýtur daginn eftir - ekki iengur.
Maöur er oröinn dannaðri í drykkjunni en auðvitað verður
maður slappur," segir Robbi sem segist ekki orka mikið þeg-
ar hann er þunnur. í mesta lagi skríður hann inn í stofu með
sængina og liggur á fjarstýringunni en hann nær allt að 30
stöðvum. „Það ervoða notalegt að liggia uppi í sófa með kon-
unni," segir Robbi og bætir við að kynlíf sé ekki heldur slæm-
ur kostur á svona degi. „Ef við höfum verið með gesti kvöld-
ið áður þá er ekki sjéns að við nennum að laga til. Pitsukass-
arnir fá þara að liggja og glösin eru ekki vöskuð upp fyrr en á
mánudeginum í fyrsta lagi.“
„Gömul videomynd
klikkar ekki“
Regína Ósk Óskarsdóttir söngkona
Þegar Regína er með timburmenn sendir hún kærastann á
Kentucky Fried eftir Hot Wings en horfir sjálf á videospólu
á meðan.
Regína er ein af þeim sem nenna giörsam-
lega engu daginn eftir djamm. Hún nennir
hvorki að klæða sig né laga til og vill helst
ekki fara út úr húsi. „Ég er á náttfötunum og
náttsloppnum allan daginn og nenni ekki
einu sinni í sturtu fyrr en um kvöldiö," segir
Regína og bætir við að það eina sem virki fyr-
ir hana á svona dögum sé góð videomynd.
„Ég nenni náttúrlega ekki út á videoleigu
heldurfinn égfram einhvern góðan klassíker
og horfi á hann í hundraðasta sinn,“ segir
Regfna og á þokkalegt safn af gömlum video-
myndum. Með videoinu drekkur Regína kók
eða sódavatn og vill fá eitthvað feitt að
borða. „Ég sendi oft kærastann minn út eft-
ir Hot Wings á Kentucky Fried. Þeir eru æðis-
legir," segir Regína og fær vatn í munninn.
„Ef ég veit að það er djamm í vændum þá
birgi ég mig upp af alkazeltser sem ég bryð
óspart þegar þynnkan sækir á.“
„Bfltúr á Selfoss með miklu majonesi11
Þórir Viðar Þorgeirsson, barþjónn á Kaffibarnum
„Eg sef nánast út f eitt nema ég þurfi
að sinna einhveijum skyldum,' segir
Þórir um það hvernig hann eyðir degi
eftir djamm. „Ef ég get ekki sofið fyrir
kvölum þá kfki ég f pilluskápinn. Best
er að finna þar exidrín-pillur en þær eru
ólöglegar hér á landi og þvf sjaldan að
finna f skápnum hjá mér. Aftur á móti á
égyfirleitt parkodin forte og þó svo það
sé ekki það besta við timburmönnum
þá læt ég mér það nægja,“ segir Þórir
og bætir við að annars sé gamla góða
húsráðið að fresta þynnkunni um einn
dag einstaka sinnum notað. Þar sem
Þórir er mikil félagsvera byrjar hann
daginn á þvf að hlaupa í sfmann og
hringja f þá vini sína sem hugsanlega
er eins ástatt með. Ef honum tekst að
hafa uppi á einhverjum er deginum eytt
í einhvern slæping, kaffihúsaferð, gufu-
bað eða jafnvel í bfltúr til Selfoss. „Ef
meltingarfærin eru f lagi þá er upplagt
að fara á Kentucky Fried á Selfossi.
Það er nefnilega mun fljótlegra heldur
en að fara upp í Skeifu því þar er alltaf
svo mikil ös um helgar," segir Þórir
sem borðar allt á matseðlinum, bara
að það sé með miklu majonesi. Þar
sem Þórir á ekki bíl eru þessir sunnu-
dagsbfltúrar til Selfoss undir því komn-
ir að einhverjir vinir hans sem eiga bíl
séu einnig þunnir og til í einhverja vit-
leysu. Og það eru þeir yfirleitt.
Rauðarárstígur, kl. 12.09
Eitt þaö versta sem Þórir Viðar getur ------------- ---------------
þynnkudegi. Því byrjar han daginn á því aö hringja í vini sína sem hugs-
anlega eru í sama ástandi og hann og fær þá meö sér á kaffthús...
Vinsælasti morgunþáttur landsins
(samkvæmd Gallup des'99 72-34 ára landið allt)
f ó k u s
4. febrúar 2000
9