Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Blaðsíða 16
Kristófer Dignus er ungur kvikmyndagerðarmaður
sem tókst það ómögulega. Hann fékk Ríkis-
sjónvarpið ti! að fjármagna sjónvarpsmynd eftir
sínu handriti. Þetta er með dýrari myndum sem
Ríkissjónvarpið hefur fjármagnað í langan tíma
og unnin eftir öðruvísi formúlu en venjan er í
sjónvarpsmyndagerð á íslandi. í stuttu máli
dregur sagan dám af undirheimum Reykjavíkur,
útfararstofu sem stundar myrkraverk og anda
Hauks heitins Mortheins. Kristófer var tekinn
tali ásamt Óskari Jónassyni leikstjóra og
aðalleikurunum Nönnu Kristínu og Ólafi Darra.
er snilld
Þegar Kristófer Dignus er spurður
út í efni handritsins og aðdraganda
hugmyndarinnar svarar hann: „Ég
var að labba heim af næturbrölti á
sumarnóttu og heyrði vélarhljóð á
Vesturgötunni. Hljóðið kom frá app-
elsínugulum götusóp sem keyrði á
eftir mér og inni i þessu farartæki
var stórvaxinn maður. Ég byrjaði
ósjálfrátt að fantasera um hvernig
maður þetta væri og gat mér til að
hann væri með stórt hjarta en gengi
kannski ekki heill til skógar. í fram-
haldi af því deleraði ég um hvað
gerðist ef hann finndi meðvitundar-
lausa og forkunnarfagra stúlku í
portinu og kæmi henni til bjargar.
Og þannig hefst sagan.“
Kýldur kaldur
Það er meira en að segja það að
fjármagna kvikmynd og gera handrit
að mynd. Kristófer er vitanlega
spurður hvernig sá draumur varð að
veruleika.
„Ríkissjónvarpið valdi handritið
mitt úr innsendum handritum í
áframhaldandi keppni sem ríkis-
reknu sjónvarpsstöðvarnar í Evrópu
standa fyrir á tveggja ára fresti. Ég
veit ekkert hvað varð um það ... en
þarna var hugmyndin komin. Og ég
lét ekki deigan síga heldur herjaði á
Sigurð Valgeirsson, fráfarandi dag-
skrárgerðarstjóra hjá Ríkissjónvarp-
inu, og taldi honum trú um að hand-
ritið væri snUld.“
Kvikmyndatökur eru sjaldnast
slysalausar á Fróni. Geróist eitthvaö
sniðugt eða ósnióugt í tökunum?
Þau jánka, hugsi, þar til Óskar seg-
ir: „Tja, já. Gissur Sigurðsson, frétta-
maður á Bylgjunni, neyddist til að
leika Hauk Mortheins því hann er
svo sláandi líkur honum. í einu atrið-
inu átti hann svo að kýla Þorstein
Kristófer Dignus handritshöfundur, Óskar Jónasson leikstjóri og leikaraparið Nanna Kristín Magnúsdóttir og Ólafur Darri
Ólafsson hafa veg og vanda af sjónvarpsmyndinni Úr öskunni í eldinn.
Bachman leikara. Hins vegar hefur
Gissur hvorki fengið leiklistarmennt-
un né menntun í platslagsmálum - og
höggið tókst bara nokkuð vel. Ég fæ
enn hroll þegar ég heyri hljóðið en
við notuðum þá töku i myndina."
Öðruvísi sjónvarpsmynd
Kristófer hafði leikaraparið Darra
og Nönnu í huga frá fyrstu handrits-
drögum svo þau fylgdust með ferlinu
frá A til Ö. Nönnu fannst sérstaklega
gaman að hafa lesið fyrstu drög að
handritinu og fylgjast svo með þróun-
inni. Það kryddaði einnig verkefnið
að þau Darri höfðu áður verið undir
leikstjórn Óskars. „Við Darri vorum
bæði í Herranótt í MR og lékum þar
undir stjórn Óskars. Þess vegna er
mjög skemmtilegt að vera orðinn at-
vinnuleikari og vinna aftur með hon-
um.“
Fannst þér líka gaman að vinna
meó Óskari og Kristófer, Darri?
„Já, mjög gaman, rosalega gaman,
eiginlega alveg ótrúlega gaman.
Kristófer er gamall vinur minn og
skemmtilegur maður og auk þess er
ég orðinn nokkuð sjóaður i að vinna
með Óskari."
Viljiö þió segja eitthvað stórsniöugt
í lokin?
„Já, ég,“ segir Óskar og tekur fram
að Sjónvarpið ætti að gera meira af
svona myndum þótt Sunnudagsleik-
húsið sé góðra gjalda vert.
Hvernig myndum?
Óskar: „íburðarmeiri og dramtísk-
um myndum." Kristófer tekur undir
það og útskýrir að þessi mynd sé
öðruvísi unnin en venjan sé hérlend-
is: „Hún er unnin í svipuðum dúr og
breskar sjónvarpsmyndir en þá er
staðið að vinnslunni eins og i bíó-
mynd. Farið á vettvang, aðeins ein
camera og klippt og hljóðsett sérstak-
lega,“ segir kvikmyndargerðarmaður-
inn og er stoppaður af áður en hann
fer út í fræðilegri útlistanir.
Að lokum má taka fram að
myndin verður sýnd í tveimur
hlutum. Fyrri hlutinn verður á
dagskrá 6. febrúar og seinni 13.
febrúar. -AJ
4. febrúar 2000