Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.2000, Síða 14
Jafntefli <
Sundance
Myndin Girlfight eftir Karyn Kusama og
You Can Count on Me eftir Kenneth
Lonergan lentu jafnar
sem besta myndin á
Sundance-kvik-
myndahátfðinni
um síðustu
helgi. Þetta hef-
ur ekki gerst síð-
an 1993. Þá fékk
Kusama einnig
verölaun sem besti
leikstjórinn og Lonergan verðlaun fyrir
besta handrit. Af öðrum kvikmyndahátíð-
um er það að frétta aö Almodóvar fékk
bestu mynd (Todo Sobre Mi Madre) á
spænsku Goya-verðlaununum á sunnu-
daginn ásamt þvf að vera valinn þesti leik-
stjórinn. Þýski Berlfnarbjörninn byrjar að
bylta sér í næstu viku en þar er margt
góðra mynda, t.d. The Million Dollar Hotel,
sem U2 eiga nokkur lög f, eins og kemur
fram f poppmolunum hér f blaðinu.
Burton
Leikstjórinn Tim Burton skrifaði undir
samning við Shockwave.com nú f vikunni
um að gera nokkrar hreyfi-stuttmyndir f
anda The Nightmare before Christmas sem
hann gerði árið 1993.
Shockwave.com er
heimasíða á Net-
inu sem sérhæf-
ir sig f tölvuleikj-
um, teiknimynd-
um, tónlist og
öðru tölvudóti
sem notar
Macromedia Shockwa-
ve hugbúnaðinn. Burton ætlar að búa til
26 stuttmyndir sem eiga að skarta „list
eins og hún hefur aldrei áður sést“, skv.
Shockwave.com. Burton er ekki eini mað-
urinn sem þeir hafa keypt til sfn til að Iffga
upp á tölvuskjáinn, fyrir einum mánuði
gerðu þeir svipaðan samningvið Trey Park-
er og Matt Stone, höfunda South Park.
Smith
Kvikmyndaframleiðslufyrirtæki Wills
Smiths var nú á dögunum að negla fram-
leiðsluréttinn á endurgerð
frönsku myndarinnar
Diva. I aöalhlut-
verkið hefur hon-
pm sfðan tekist
að fá söngugl-
una Whitney
Houston. Diva
var upprunalega
gerð f Frakklandi árið
1981og leikstýrt af Jean-
Jacques Beineix (IP5). Þar mátti finna
kostulegan hóp persóna, t.d. póstmann
sem ber mikla ástrfðu til ópera, dauöa
hóru og eiturlyfjabarón. Smith er búinn að
vera að reyna að næla f réttindin af mynd-
inni f nokkur ár og loksins tókst honum að
tala eigendurna, Canal Plus Image, tll. Það
verður gaman að fylgjast með þvf hvernig
þeim tekst til, egóflippurunum atarna.
I dag rætist draumur margra að sjá
hina frábæru sögu, Breakfast of
Champions, eftir einn þekktasta rithöf-
und Amerikana, Kurt Vonnegut Jr.,
lifna við á hvíta tjaldinu. Þetta er ein
vinsælasta skáldsaga Vonneguts og
jafnframt ein sú besta. Hann skrifaði
hana á hátindi ferils síns, árið 1973.
Flestir sem vinna að myndinni eru
búnir að vera með hana í maganum í
rúm tuttugu ár, þar á meðal Bruce
Willis og leikstjórinn Alan Rudolph,
sem einnig skrifaði handritið.
Heimar skerast
Myndin fjallar um Dwayne Hoover
(Bruce Willis) virtasta viðskiptajöfur-
inn í Midland City og jafnframt fræg-
asta mann borgarinnar. Hoover er á
barmi taugaáfalls en þrátt fyrir það
heldur ímynd hans sem hins full-
komna leiðtoga fjármálaveldisins
áfram að blómstra á meðan hann
rennur rólega frá andlegu jafnvægis-
leysi í gargandi geðveiki. Á sama tíma
er Kilgore Trout, misskilinn rithöf-
undur, að ferðast þvert yfír Bandarík-
in til Midland City til að vera heiðurs-
gestur á fyrstu listahátíðinni þar í bæ.
Þegar listahátíðin hefst mætir Hoover
örvinglaður þangað í leit að svörum
við veröldinni sem honum finnst vera
að bresta. Þar hittir hann Kilgore
Trout en á sama augnabliki skerast
heimar þeirra með þeim afleiðingum
að líf beggja gjörbreytist, sem og fram-
tíð Midland City.
Dauði í Dresden
Bækur Kurts Vonneguts Jr. njóta
enn mikilla vinsælda og eru langt frá
því að úreldast. Það sem helst ein-
kennir þær er kjarkur Vonneguts til
að deila á samfélagið og vitleysuna
sem þar er talin sjálfsögð og hæfni
hans til að lauma vísindaskáldskap í
bland, án þess þó að hverfast fullkom-
lega yfir í þann geira. Sú lífsreynsla
sem helst mótaði Vonnegut og er hvati
þorra skrifa hans eru árin sem hann
Varpað verður á hvíta tjald
Regnbogans í kvöld meistarastykki
Kurts Vonneguts Jr., Breakfast of
Champions. í tilefni af því er rétt
að líta aðeins á feril hans og
söguna á bak við söguna.
barðist fyrir Bandaríkjamenn í seinni
heimsstyrjöldinni. Á sama tíma
framdi móðir hans sjálfsmorð heima
fyrir og hann var tekinn fanga af Þjóð-
verjum og neyddur til að þræla fyrir
þá. Hann lifði ómeiddur af sprengju-
árásina á Dresden (þar sem fleiri var
slátrað en í Hiroshima og Nagasaki til
samans) og slapp loks aftur yfir til
Kanaríkis þegar Sovétmenn réðust
inn í Þýskaland árið 1945. Heimafyrir
voru miklir umbrotatímar og hófst rit-
ferillinn í lítilli íbúð í New York.
Misheppnuð
sjálfsmorðstilraun
Vonnegut gaf út sína fyrstu bók,
Player Piano, árið 1953, og vakti strax
athygli. Þar tók hann óvægið á hlut-
skipti verkafólks í grimmu stéttasam-
félaginu. Það var síðan með útgáfu
Mother Night, árið 1962, sem hann
festist í sessi sem almennilegur rithöf-
undur og þá gat fátt stöðvað kauða
(Mother Night var einmitt fest á filmu
fyrir fjórum árum, en þar leikur Nick
Nolte, sem leikur einnig i Breakfast of
Champions, aðalhlutverkið). í kjölfar-
ið fylgdi hvert meistaraverkið á fætur
öðru, Cats Cradle, Slaughterhouse-
Five og Breakfast of Champions, sem
var fimmtugsafmælisgjöf hans til
sjálfs síns. Þar tekur hann á persónu-
legum málefnum, t.d. er Kilgore Trout
eftirmynd þess sem hann sjáifur óttað-
ist að hann yrði, gamall, skítugur rit-
höfundur sem enginn tekur mark á
eða hlustar á. Enda kallar Trout á
.Vonnegut í lok bókarinnar og biður
hann, skapara sinn, að gera sig ungan
á ný. Að öðlast æskuna á ný er einmitt
ein af helstu þrám Vonneguts sjálfs,
þar sem hann óttaðist að þegar aldur-
inn færðist yfir liktist hann foreldrum
sínum meir og myndi jafnvel feta í fót-
spor móður sinnar, í lausu lofti. Síð-
asta bók sem hann gaf út, Hocus
Pocus, fjallar reyndar um misheppn-
aða sjálfsmorðstilraun hans en það er
vonandi að gamlar minningar hellist
yfir hann og hann yngist i andanum
þegar hann sér afrakstur þeirra fé-
laga, Willis og Rudolph, á hvíta tjald-
inu. -hvs
Friðrík Þór Friðriksson byrjaði árið - öldina - árþúsundið - á því
að frumsýna Engla alheimsins en litlu guttarnir í bransanum virðast
ætla að Ijúka því með því að frumsýna endalaust af borgarsögum.
Það eru augljós kynslóðaskipti i
islensku bíói, sex myndir væntan-
legar frá tíu ungum leikstjórum.
Þessi ógurlegi
fjöldi leik-
stjóra af að-
eins sex
m y n d u m
stafar af Viili-
ljósi sem ver-
ið er að skjóta
eftir handriti
H u 1 d a r s
Breiðfjörðs.
Það eru nefni- Jóhann Sigmarsson
lega fimm frumsýnir Óskabörn
leikstjórar að þjóðarinnar í ár.
myndinni. Þau Inga Lísa
Middleton, Dagur Kári Péturs-
son, Ragnar Bragason, Ásgrím-
ur Sverrisson og Einar Þór Sig-
urðsson.
Hinar myndirnar sem verða
væntanlega frumsýndar á árinu
eru náttúrulega 101 Reykjavík eftir
Baltasar Kormák og Fíaskó eftir
Ragnar Bragason. Svo eru það ís-
lenski draumurinn eftir Robert
Douglas, Óskaböm Þjóðarinnar
eftir Jóhann Sigmarsson og
Gemsar eftir Mikael Torfason.
Það sér því hver heilvita maður að
um skýr kynslóðaskipti er að ræða.
En það sorglega við þessi skipti
Ragnar Bragason er
hluti af nýrri kynslóð
kvikmyndargerðar-
manna.
er að þau
virðast í
augnablikinu
ekki ætla að
skila sér á
næsta ári.
Það fékk alla-
vega engin
ný mynd frá
ungum leik-
stjóra styrk
frá Kvik-
myndasjóði
íslands þetta
árið. Þær
myndir sem
fengu voru
Óskabarnið Baltasar frumsýnir 101 á
þessu ári.
myndir Roberts Douglas og Mika-
els Torfasonar en búið var að taka
upp báðar myndirnar þegar þær
fengu styrk sem gefur óbein fyrir-
heit um að menn eigi bara að fara
út og skjóta myndirnar sínar og þá
komi styrkurinn. Allavega verða
lítil sem engin kynslóðaskipti á
næsta ári ef enginn fer að gera
mynd án styrkja þetta árið.
14
f Ó k U S 4. febrúar 2000