Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Qupperneq 3
e f n i
Ert þú einn þeirra sem eru orðnir leiðir á djamminu og 1
þar lengur að finna? Örvæntu ekki því ýmsar breytingar e
skemmtanalífi Reykjavíkur á næstu vikum og mánuðum.
Sambíóa-Ísi er búinn aö taka viö
stjórninni á Thomsen og ætlar
aö pússa staöinn upp og skipta
um klósett.
m
w m
v;.
Er aö opna bar á Hverfisgötunni?
Fjölnir Þorgeirsson er markaös-
stjóri á nýjum staö í Austur-
stræti 10 þar sem munu veröa
5 barir.
Nýr og betri Astró
Um mánaðamótin febrúar/mars
verður Astró opnaður á ný eftir
miklar breytingar. Að sögn Magn-
úsar Ármanns, eiganda Astró, er
þessa dagana verið að taka staðinn
gjörsamlega í gegn og endumýja
hann frá gmnni. í upphafi var
Astró hannaður sem veitingahús
en ekki klúbbur en það er það sem
hönnuðurinn Michael Young hefur
verið fenginn til þess að sjá um að
breyta. Allar innréttingarnar hafa
verið rifnar út og allt verður end-
umýjað frá grunni. Útliti staðarins
verður ekki bara breytt heldur
verða líka gerðóu: ýmsar áherslu-
breytingar hvað tónlistina og fleira
varðar. Þegar staðurinn opnast á
ný verða þar m.a. tvö dansgólf
þannig að þar verður heldur betur
hægt að sletta úr klaufunum enda
mun staðurinn einnig státa af geð-
veiku hljóðkerfi. Kelirófurnar fá
líka sitt pláss á staðnum því þar
verða tvö prívatherbergi.
Fimm barir og tvö
dansgólf
í mai mun glænýr skemmtistað-
ur verða opnaður í Austurstræti
Astró opnaður fljótlega eftir gagngerar endurbætur.
10. Staðurinn, sem hefur enn ekki
hlotið neitt nafn, verður, að sögn
Fjölnis Þorgeirssonar, markaðs-
stjóra staðarins, hlýr staður í anda
Café Blue og Eldhússins en það em
Eon arkitektar, Hlédís Sveinsdóttir
og Gimnar Bergmann Stefánsson,
sem hafa hannað alla þessa þrjá
staði. Staðurinn mun taka 800
manns og verður á tveimur hæð-
um. Efri hæðin mun verða kaffihús
á daginn, þar sem boðið verður
upp á alls konar smárétti, en um
helgar munu þar troða upp hljóm-
sveitir. Á neðri hæðinni verður
hins vegar diskótek. Á sumrin er
planið að fólk geti setið utandyra.
Staðurinn mun státa af fimm bör-
um, tveimur dansgólfum og góðum
sófum. Aldurstakmarkið inn á
staðinn verður 25 ára.
Nýir eigendur að
Tnomsen
ísi í Sambíóunum og Jóhann hjá
Griffli eru nýbúnir að taka við
stjórninni á Thomsen en fram-
kvæmdastjóri staðarins verður þó
áfram Agnar Tryggvi en hann á
einnig hlut í staðnum. Samkvæmt
upplýsingum frá Isa verður ekki
tekin nein U-beygja hvað stefnu
staðarins varðar. Tónlistarstefnan
mun verða sú sama og staðurinn
mun halda sinni sérstöðu hvað það
varðar en fá í staðinn góða andlits-
lyftingu. Fljótlega verður lagt í það
að mála og skipta um gólf og ljósin
verða tekin í gegn. Einnig mimu
salemi verða endumýjuð og öflugt
hljóðkerfi verður sett upp á báðum
hæðunum. „Við ætlum að leggja
meira í þetta og vera meira sjálfir
á staðnum heldur en fyrri eigendur
sem reyndu að fjarstýra honum,“
segir ísi.
Bóls-barinn:
Nýr bar á Hverfisgötu?
Á Hverfisgötu 76 var Bólstrarinn
ehf. áður til húsa en nú stendur
húsnæðið autt. Iðnaðarmenn em
þó byijaðir að pússa upp húsnæðið
og bólstraraskiltinu hefur verið
breytt í „Bóls-barinn“. Við bíðum
spennt eftir að vita hvers konar
staður eigi eiginlega að vera þama.
Af nafninu að dæma verður hér
líklega um enn einn nektarstaðinn
að ræða.
Elsta hús Reykiavíkur
vaknar til lífs á ný
Veitingahúsið Fógetinn hefur
verið lokað um nokkurt skeið en
fljótlega mun á ný kvikna líf í
þessu elsta húsi Reykjavíkur að
Aðalstræti 10. Að sögn Janusar
Bjamasonar, eins eiganda staðar-
ins, er hér um að ræða fínan veit-
inga- og skemmtistað í háum
klassa þar sem mönnum verður
ekki hleypt inn á strigaskónum.
Matseðilinn verður klassískur, án
mikillar tiiraunaeldamennsku, en
búast má við að verðlagið verði í
dýrari kantinum. Möguleiki verð-
ur á að taka inn hljómsveitir en
annars verður spilað diskó á dans-
gólfinu. Á efri hæðinni verður kon-
íaksstofa með sófum en i heildina á
staðurinn að vera mjög hlýlega
innréttaður. Ekki er búið að
ákveða hvort nafninu Fógetinn
verður haldið en áætlað er að opna
í lok mars. -snæ
Draumurinn um að komast yfir hafið
sem umlykur eyjuna okkar og stimpla sig
inn í hlustir annarra þjóða loðir við margar
hljómsveitir. Sumar fá tækifæri, aðrar ekki.
Strákarnir í Quarashi virðast vera í hópí
þeirra heppnu þar sem stærsta útgáfufyr-
irtæki heims, EMI, fékk þá til að koma út
til New York til að grúska í hljóðveri.
Margir umboðsmenn erlendra
útgáfufyrirtækja horfa löngunar-
augum hingað til lands sökum þess
hvað við erum öll æðislega
skemmtileg. Nokkrir slíkir voru
staddir í Flugskýli 4 nú í haust að
horfa á hljómsveitina Quarashi,
þar sem hún tróð upp ásamt öðrum
framsæknum, reykvískum hljóm-
sveitum. Það var ekki að spyrja að
því, umboðsmenn frá EMI, sem
ferðast um heiminn í leit að óupp-
götvuðum hljómsveitum, hrifust af
kraftinum í .strákumun og hugsuðu
sér gott til glóðarinnar.
Tónleikar með Korn?
Þannig æxluðust málin að nú
: eru strákamir á leiðinni út til New
York, nánar tiltekið Greenwich
Village á Manhattan, þar sem þeir
munu eyða næstu tveimur mánuð-
um við upptökur í hljóðveri sem
EMI útvegar þeim. Eins og flestir
vita era stórfyrirtæki á borð við
EMI með allar klær úti hvað varð-
ar að flnna nýja, hæfíleikaríka tón-
listarmenn. í hljóðverinu munu
þeir vinna með einhverjum af snill-
ingunum sem EMI er með á sínum
snærum en hver það er hefur ekki
enn verið ákveðið. Til greina koma
þó góðir gaurar sem hafa unnið
með hljómsveitum á borð við De La
Soul og The Pharcyde en því miður
náðist ekki í strákana til að
staðfesta hver það verður. Tónlist-
arbransinn þar ytra er mjög um-
fangsmikill þannig að ekki nægir
bransaköllunum að geyma strák-
ana á Manhattan. Fyrirhugað er að
halda tónleika með jpeim í Los Ang-
eles og Detroit og leyfa bransaköll-
um þar í bæ að hlusta á Vesturbæj-
arbrilliö. Ef einhverjum af þeim
líst vel á þá er síðan farið í samn-
ingaviðræður við EMI. Þó er ekki
líklegt að þeir vilji sjá á eftir því-
líkum snillingum. Jafnvel er í
deiglunni að þeir haldi tónleika
með hljómsveitinni Korn eða hvíta
popprapparanum Kid Rock, þar
sem umboðsmaður þeirra hefur
verið að snúast fyrir strákana. En
allt er hverfult í heiminum og mað-
ur veit aldrei.
Hugarangur
Hannesar:
Myndi
gera
hvað
sem er
fýrir frægð
ina
Yyf?
Síða sex:
Páll Ósk-
ar svarar
lesendum
í þágu listarinnar:
Hún gerir
hvað sem er
til að vekja á
sér athygli
>r Q Gunnar Helgason
Y leikari:
Nýorðinn
SL Axel Axels-
son og fé-
lagar
c. . 10-11
Sigurstemn
Másson frétta-
stjóri:
„Sumir
verða
hræddir
þegar maður segist
vera með geðhvörf“
Popp: 12-13
Moby lætur
margt fara
í taugarnar
á sér
Útvarpsfrum- 14-15
skógurinn:
Á hvað ál
að hlusfc
næstu vi |0 j
16-17
Sjálfstætt fólk: A
Travolta og * 1 ESp
DiCaprio
Þjóðólfur:
Embættin
eignfærð á
flokkana
Lifid eftir
18
vinnu
llnglnSin
Hr-—- —
sid
rupKi dags
s» *
ki1
ia
er
Sjð sjónworp
Iweriir voru hvar
17-:
22
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíöumyndina tók Hilmar Þór af
Sigursteinl Mássyni.
4. febrúar 2000 f Óku