Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Síða 11
+ * „Sumir verða hræddir þegar Hvað þá ef maður segist vera naður segist vera með hommi með geðhvörf“ Fjöldagrafir í Kosovo Og lífið hélt áfram. Sigursteinn gafst ekki upp á að gera góðar heim- fidamyndir og starfa sem blaðamað- ur á íslandi. En um vorið ‘98 urðu enn á ný þáttaskil í lifi hans. Hann fór til Júgóslavíu á vegum Plúton tfi að gera þátt um flóttamenn sem voru á leið hingað tfi íslands. „Við vfidum líka koma við í Kosovo en fiöldamorðin þar voru þá að byrja. Þessi ferð gekk einmitt mjög vel þar tfi við komum til Kosovo. Við þurftum að keyra í gegnum fiöldann allan af varðstöðv- um Serba og á þessum tíma var tfi að mynda bara ein fréttastofa i land- inu, að okkur undanskildum. En það voru Reutersmenn og þeir keyrðu einmitt um á brynvörðum bil á meðan við rúntuðum um á Scoda Favorit," segir Sigursteinn og útskýrir: „í Kosovo hittum við fólk hjá mannréttindasamtökum sem fóru með okkur í þorp þar sem hundrað manns hafði verið slátrað tveim vikum áður. Þorpinu hafði verið gereytt. Bamaleikföng lágu á víð og dreif og húsgögn út um allt - skotgöt á húsum sem voru allt að einn metri í þvermál og hræ af dýr- um lágu þama og svona um hund- rað til tvö hundruð metra frá sjálfu þorpinu vom fiöldagrafir. í næsta nágrenni voru auk þess leyniskyttur og Serbarnir í varðstöðinni við þorpið sögðu okkur að þeir gætu ekki varið okkur ef við færum inn í þorpið.“ En það kom auðvitað ekki til greina að snúa við þarna og því fóm þau inn í þorpið og komust að því að í Pristina var Qölskylda sem lifði árásina af. Þau fundu hana og í henni var auk þess einn örfárra karlmanna sem lifði af, 17 ára piltur sem komst undan, særður, í kven- mannskufli. „Þessi drengur var auðvitað í stórhættu þarna úti - svaf aldrei á sama stað af ótta við Serbana. Móð- ir hans grátbað mig um að bjarga honum og fara með hann tfi íslands. Ég fór á fullt í það en ekkert gekk. Endaði á því að ganga á milli Pontí- usar og Pílatusar í Belgrad til að reyna að bjarga þessum pilti en ekk- ert gekk. Ég veit ekki hvar þessi fiöl- skylda er niðurkomin í dag en for- maður mannréttindasamtakanna, sem fóru með okkur inn í þorpið, og fiölskylda voru dregin út á götu fyr- ir rest og skotin í höfuðið." Starfsfólk og sjúklingar „Svo gerðist það á leiðinni heim að ég fór að fá ranghugmyndir um allan fiandann. Það er erfitt að lýsa þeim eða hvemig manni líður á svona tímapunkti. En þetta er kannski til- finningin sem dópistar eru alltaf að leita að. Ecstasy-tilfinning þar sem raunveruleikinn verður annar en hann er. Gallinn er bara að umhverf- ið er ekkert að spfia með og þegar dagamir líða ferðu að skynja hluti sem eiga sér enga stoð í raunveru- leikanum. En ég veikist sem sagt þama í Kaupmannahöfn og er lagður inn á geðsjúkrahús þama úti. Og þar var strax lögð áhersla á að maður færi í göngutúra, eldaði, vaskaði upp og starfsfólkið borðaði meira að segja með sjúklingunum. En hér heima eru þetta tvö lið: starfsfólk og sjúk- lingar. Ég lenti að vísu í því að um- sjónarmaður minn varð ástfanginn í mér og það er ekki sniðugt þegar maður er veikur fyrir. Hann fékk meira að segja að fara með mig heim tfi sin á meðan ég var í vistun á sjúkrahúsinu og ef mér væri ekki svona hlýtt til þessa manns færi ég í mál við dönsk heilbrigðisyfirvöld." Og er það þarna sem þú nœrð tök- um á sjúkdóminum? „Nei. Vandamálið var að þeir úti greindu mig þannig að ég hefði feng- ið sturlunarupplifun i Kosovo vegna þess sem ég sá þar. Svo þegar ég fékk aftur áfall i janúar í fyrra vissi ég ekkert hvað var að mér. Læknamir hér sögðu mér að ég væri með geö- hvörf og yrði að taka Lithium en þeir úti höfðu sagt að ég hefði sturlast og það var í rauninni ekki fyrr en ég kynntist mjög góðum vini mínum sem er með geðhvörf að ég áttaði mig á þvi að ég er með geðhvörf. Hann hefur ekki veikst í fimm ár og kom mér í skfining um að ég væri með geðhvörf og gæti vel lifað með þeim sjúkdómi." Eigin fordómar erfiðastir A íslandi eru um tvö þúsund manns með geðhvörf. Þeir læra flest- ir að lifa með sjúkdómnum, þökk sé Lithium, en það eru alltaf einhverjir sem fara alveg yfir um, breytast í stofnanamat eða svipta sig lífi. Hver er munurinn á þér og þeim sem eru alveg farnir? „Þeir sem eru út úr þessum heimi og búa á Kleppi eða á sambærilegum stofnunum eða eru í sértrúarsöfnuð- um, sem taka 10 prósent af öruorku- bótunum, eru meðvitaðir um sjúk- dóminn og þess vegna ná þeir sér ekki upp úr þessu. Það er líka slæmt þegar sértrúarsöfnuður hvetur geð- hvarfasjúklinga tfi að hætta að taka lyfin sin en ég veit fiölmörg dæmi þess,“ segir Sigursteinn. Veróur þú var við að fólk hafi for- dóma gagnvart þér? „Sumir verða hræddir þegar mað- ur segist vera með geðhvörf. Hvað þá ef maður segist vera hommi með geð- hvörf. En það sem er nauðsynlegt við þetta er að fólk sé ekki í skápnum með geðhvörf. Fólk veikist helst á aldrinum 16-25 ára og því skiptir það ofsalega miklu máli að það sé talað um þetta. Það er eins með geðhvörf og samkynhneigð að það sem er erf- iðast að yfirstiga eru eigin fordómar. Ég hef gengið í gegnum hvort tveggja og veit hversu nauðsynleg umræðan er. Eins og þegar ég réð mig sem fréttastjóra Skjás eins, þá vissu eig- endumir að ég væri með geðhvörf og að ég væri hommi. Það skipti engu máli. Enda get ég alveg unnið og staðið mig í mínu starfi svo lengi sem ég passa mig á því að lifa heil- brigðu lífi, passa mataræðið, vín- drykkju og lifi reglusömu lífi,“ segir Sigursteinn og bætir því við að óregla getur alið af sér þennan sjúk- dóm. „Margir fíkniefnaneytendur þróa til dæmis með sér geðhvörf og það eru kannski fáir sem vita það að fíkniefnaneysla getur valdið varan- legum geðsjúkdómi." Þaö hefur ekkert blandast inn í þetta hjá þér? „Nei. Ég hef prófað hass tvisvar og einhvem tíma var ég plataður til að borða E-töflu og þótti ekki sérstakt. Annars drekk ég vín i hófi og því hef- ur það ekki haft nein áhrif,“ segir Sigursteinn sem hefur verið án ein- kenna í rúmt ár núna. Og nú ertu duglegur að reyna aó út- rýma fordómunum í samfélaginu? „Já. Ég og vinur minn, Héðinn Unnsteinnsson, sem hjálpaði mér að horfast í augu við sjúkdóminn, stofn- uðum ásamt einum lækni sem er með geðhvörf sjálfshjálparhóp síðast- liðið haust og það hefur skipt höfuð- máli fyrir marga. Þetta virkar svipað og hjá AA. Við komum saman einu sinni í viku og ræðum málin," út- skýrir Sigursteinn og það sést votta fyrir brosi í andlitinu. En hvað er svo fram undan hjá þér? „Halda mér heilbrigðum. Það er svona aðalatriðið ásamt því að sinna vinnunni minni eins og vel og ég get - byggja upp öfluga fréttastofu og það er auðvitað full vinna. Svo þætti mér vænt um að fá botn í þetta Guðmund- ar- og Geirfinnsmál sem er án efa ljótasta sakamál síðustu aldar og hef- ur auk þess verið ákveðinn örlaga- valdur í mínu lífi,“ segir Sigur- steinn, stendur upp og hverfur aftur til starfa sinna. 11. febrúar 2000 f Ó l< U „Ég er Reykvíkingur í húð og hár þó ég hafi að hluta til alist upp á Laugarvatni," segir Sigursteinn Másson fréttastjóri og hellir kaffi í glasið sitt á Hótel Holti. Móðir hans var mjög ung þegar hún eignaðist hann og hætti fljótlega eftir fæðing- una með fóður hans. „Á þeim tíma sem þetta gerist var ekki litið á það mjög jákvæðum augum að kasta frá sér innkomunni með því að hætta með foður mínum en mamma vissi að þetta gæti ekki gengið og barðist síðan fyrir því að koma mér til manns.“ Sigursteinn er 32 ára í dag og á meðan móðir hans var að ljúka námi í Reykjavík bjó hann hjá ömmu sinni og afa á Laugarvatni. Og þegar kom að því að fara í menntaskóla byrjaði Sigursteinn í Menntaskólanum á Laugarvatni en hætti skyndilega eftir þrjá daga. „Mér fannst frekar barbarískt andrúmsloft þarna. Stanslaust fyllirí á öllum, sem var að visu ágætt fyrsta kvöldið en þegar fólk var enn þá fufit á hádegi á þriðjudag fór ég til skólameistarans og sagði honum að hann ræki uppeldisstöð fyrir SÁÁ en ekki menntastofnun. Og svo tók ég næstu rútu í bæinn og fór í MH. Þaðan kláraöi ég stúdentinn en ég frétti seinna að það hefði runnið af þeim á Laugarvatni á annarri viku þannig að ég var kannski svoldið fljótur á mér.“ Og hvað gerðiróu eftir MH? „Ég fór í stjórnmálafræði en kláraði hana að vísu ekki. Áður en ég gat fest hugann við háskólanám var ég farinn að vinna sem frétta- maður á Bylgjunni. Og þetta voru svo spennandi tímar. Austur-Evrópa var að opnast og mér fannst svo frá- bært að geta setið við Reuter-inn og prentað út úr honum glóðvolgar fréttir sem maður hljóp með inn í stúdíó og sagði frá þeim í beinni út- sendingu. Aðra stundina var Ceausescu flúinn og þá næstu var búið að drepa hann. Mér fannst þetta allt vera svo merkfiegt að ég gat eiginlega ekki hugsað mér að sitja i tímum þar sem flafiað var um kommúnismann likt og hann lifði góðu lífi i A-Evrópu. Þess vegna datt ég bara alveg inn í þennan fiölmiðla- pakka og hef verið þar síðan." Fyrstu einkenni \ Restina af sögu Sigursteins þykj- umst við öll þekkja. Hann gerist fréttamaður á Stöð 2 og er svo rek- inn. Dúkkar aftur upp í sjónvarpi með heimildaþætti um Guðmund- ar- og Geirfinnsmálið, Sönn ís- lensk sakamál (fékk Eddu-verðlaun- in í fyrra) og Fíkniefnamarkaðinn á Norðurlöndum, svo nokkuð sé nefnt. Auk þess er hann ritstjóri Heims- myndar um tíma og svo mætir hann allt í einu á svæðið sem fréttastjóri Skjás Eins. Það sem fæstir vita er þó að á árinu 1993 fór Sigursteinn í blaðamannaskóla í París ásamt blaðamönnum hvaðanæva úr ver- öldinni. „Þarna voru blaðamenn frá Kamerún, Bangladess og víðar. Þetta var fólk sem hafði mjög ólíkan bakgrunn. Éinn af bekkjarfélögum mínum var til dæmis umsjónarmað- ur „Game Show“-þáttar ásamt því að vera aðalfréttaþulur rikissjón- varpsins í heimalandi sínu. Öðrum fannst sjálfsagt að gagnrýna ekki sfiómvöld í heimalandinu. Það var líka einhverjum framandi allt sem varðar faglegt sjálfstæði ritstjórnar og fréttastofu gagnvart eigendum fiölmiðilsins,“ útskýrir Sigursteinn og bætir því við að þau hafi ferðast út um alla Evrópu í þeim tilgangi að skrifa fréttir sem þau sendu til Par- ísar. „Maður fór alltaf einn í þessar ferðir en fyrsta ferðin var farin i sameiningu. Við áttum ekki að skrifa neitt heldur dvelja í Tyrk- landi í boði stjórnvalda þar. Og það var einmitt þar sem ég varð fyrst var við einkenni geðhvarfa hjá mér. Geðhvörf eru það sem á ensku kall- ast Manic Depression og lýsa sér í örri hugsun, svefnleysi og þeirri löngun að vfija vinna allan sólar- hringinn og svo endar þetta yfirleitt í ranghugmyndum." Missti sig í Tyrklandi Sigursteinn dvaldi ásamt félögum sínum í viku í Tyrklandi. Þau hittu alla helstu ráðamenn þjóðarinnar og voru hundelt af ljósmyndurum, blaðamönnum og fréttamönnum. Þau gistu á finustu hótelunum og voru fyrsta frétt á öllum stöðvum og á forsíðum dagblaðanna. Og allt í einu rann það upp fyrir Sigursteini að tyrknesk stjórnvöld væru að nota þau í pólitískum tilgangi en á þess- um tíma voru árásir Tyrkja á Kúrda í hámarki. „Þetta leit út eins og við værum einhvers konar alþjóðleg blaða- mannaviðurkenning fyrir tyrknesk stjórnvöld," segir Sigursteinn og bætir því við að hann hafi fríkað á þessu rugli og dregið sig út úr hópn- um sem hann var í. „Ég fór bara á flakk og gróf upp stjómarandstæð- inga í Tyrklandi en þeir voru þeir einu sem viðurkenndu að það væri til eitthvað sem héti vandamál í kúrdísku héruðunum. Stjórnvöld viðurkenndu ekki þetta vandamál og töluðu ekkert um þetta. En ég þræddi skrifstofur þessara stjómar- andstæðinga, hætti að sofa á hótel- inu og svaf bara hjá þessum nýju fé- lögum mínum, stjórnarandstæðing- unum, en þingmenn flokks þeirra voru allir handteknir skömmu síð- ar.“ Og á meðan Sigursteinn spjallaði við stjórnarandstæðinga og leitaði aö Kúrdum til að komast að hinu sanna í málinu voru samblaðamenn hans bara að dóla sér á lystisnekkj- um og njóta veitinga tyrknesku stjórnarinnar. „Ég fann til dæmis ritstjóra á kúrdísku dagblaði sem hafði misst hálfa ritstjómina sína. Hann hafði haft 24 blaðamenn en tólf höfðu ver- ið drepnir. Það var líka alltaf verið að misþyrma og drepa blaðsöluböm- in sem seldu blaðið. Ég var sem sagt allt í einu kominn í samband við fólk sem hafði misst bömin sín af því að þau seldu blöð sem ríkið sam- þykkti ekki og ég hitti líka fólk sem hafði verið pyntað. Og mér þótti mjög léiöinlegt að hér heima hafði enginn áhuga á þessu. Fólk vildi bara heyra fréttir af máli Sophiu Hansen og ég fiallaði líka um það erfiða mál, talaði við Halim A1 og svona, en ég vildi hafa gert miklu meira í Tyrklandi." Hvernig endaói þessi dvöl þín í Tyrklandi? „Þetta endaði með því að mynda- tökumaöurinn sem ég hafði notað við mnfiöllunina um Sophiu Hansen sagöi mér að fara ekki út eftir myrk- ur og halda mig á hótelinu því það væri fylgst með mér hvert sem ég færi. Ég hlýddi því auðvitað ekki og að lokum rauk ég út eitt kvöldið með diktafón að vopni og spurði gangandi vegfarendur hvort þeir gerðu sér grein fyrir því hvemig málum væri háttað í landinu. Ég á kassettumar af þessu enn þá og maður getur heyrt fólkið segjast bara vera túristar og biðja mig að láta sig í friði. Og einhverjir tveir herramenn segja að það séu tveir jakkaklæddir menn að elta mig og því vilji þeir ekkert við mig tala. Svo ég fór upp á hótelherbergið mitt og horfði yfir grútskítuga borgina. Öskukallar voru í verkfalli á þess- um tíma og því var borgin ekki mik- ið fyrir augað. Ég hlustaði á bænim- ar sem ómuðu úr moskunum og loks brotnaði ég niður, grét eins og bam og vissi ekkert hvað hefði eiginlega komið yfir mig. Það var ákveðinn dómgreindarbrestur hjá mér að rjúka út á torg með diktafón og ónáða túrista í trássi við viðvaran- ir.“ Sigursteinn fór aftur tfi Parísar og hélt náminu áfram þrátt fyrir að uppi hafi verið hugmyndir um að reka hann. Guðmundar- og Geir- finnsmálið Þremur árum síðar, 1996, var Sig- ursteinn löngu kominn heim frá París og í fullri vinnu á Stöð 2 þeg- ar hann er skyndilega rekinn eftir sjö ára starf hjá stööinni. „Ég tók það mjög nærri mér að vera rekinn án viðvörunar eða áminningar. Á þeim tímapunkti hafði ég líka verið að skoða Guð- mundar- og Geirfinnsmálið í nokkra mánuði og var svona að átta mig á því hvað þetta mál er hræðilegt. Líf fólks hafði verið eyðfiagt að tfiefnis- lausu," segir Sigursteinn og það er erfitt að horfast í augu við. „Ög svo komst ég líka að því að þegar grunn- rannsókninni sleppti þá kalla stjóm- völd afit í einu einhvem Þjóðverja hingað sem sannar glæpi á fólk án almennilegra sönnunargagna í stað þess að sleppa þessu fólki bara. Það er líka sannað aö þetta mál náði tfi æðstu ráðamanna, þar á meðal Ólafs Jóhannessonar dómsmála- ráðherra. í ofanálag var þessi þýski maður enginn lögreglumaður heldur leyniþjónustumaður sem erfitt reyndist að finna gögn um í Þýska- landi. Hann kemur bara allt í einu tfi íslands og pakkar málinu inn í fallegar umbúðir ásamt því sem hann hannar Rannsóknarlögreglu ríkisins með HaUvarði Einvarðs- syni,“ heldur Sigursteinn áfram og augljóst að hann þekkir sögu máls- ins mjög vel enda gert tvo þætti um málið. Bjóst við að verða stútað „Á þessum tímapunkti fer ég að velta því fyrir mér hvort mér sé veitt eftirför," segir Sigursteinn. „Það var nýbúiö að reka mig úr vinnunni og ég hafði í fyrsta skipti sagt frá því í Degi að ég væri að vinna að heimfidamynd um Guð- mundar- og Geirfinnsmálið. Það heyrðust skruðningar í símanum heima hjá mér og svo gerist það eitt kvöld að ég er eltur af einum af bíl- unum sem eltu mig vanalega. Ég stoppa á gatnamótum. Bíllinn kem- ur alveg upp að mér þannig að ég sé ekki númerin. í bílnum sitja tveir menn og þegar ég lít í baksýnisspeg- ilinn sé ég að þeir hylja andlitin. Ég vissi ekkert hvað ég átti að gera - fara út úr bílnum og labba að þeim, bakka á þá eða keyra eins og óður væri í burtu," heldur Sigursteinn áfram en hið síðastnefnda var einmitt það sem hann gerði. Hann spændi bara í burtu, hræddari en hann hafði nokkum tíma verið. Næstu daga fór hann ekki heim tfi sin heldur svaf bara hjá vinum og hélt sér í fiölmenni á daginn: „Ég fór líka að taka eftir ýmsu í umhverfi mínu og byrjaði að vantreysta flest- um í kringum mig að ástæðulausu. Ranghugmyndir mína vom orðnar svo miklar að ég endaði inni á geð- deild og var í einangrun í tvær vik- ur - mátti ekki fara inn í matsal, horfa á sjónvarpið eða lesa blöð. Það var setið yfir mér og ég man að þeg- ar ég vaknaði þama fyrst var ég uppdópaður og þar sem ég var mjög óvanur lyfium fékk ég miklar auka- verkanir - gat ekki hreyft höfuðið og uppliföi mig sem fanga. Enda vantreysti ég yfirvöldum það mikið að ég bjóst alveg eins við því að mér yrði bara stútað þama,“ heldur Sig- ursteinn áfram án neinnar sérstakr- ar áherslu. Svona gerðist þetta bara og svona leið honum. Nokkrum vik- um seinna var honum farið að líða betur og hann fór aftur út. Sigursttjinn Mósson ei landsmönnuin vel kunnui. Fyrst sagði hann okkui fréllii á Bylgjunni, svo á Stöð 2 og jogai hann var rekinn þaðan gerðisl hann ritsljóri Heimsmyndar og tók að sér aö gera nokkrai aí merkilegri heimildarmynclum seinni ára. I dag er hann fréttastjóri a Skjá einum og ákveðinn i aö láta lordómana ekki ná yfirhöndínni, aftur. Mikael lortason hitti hann i góöu yíirlaeti á Hótel Holli. m 11. februar 2000 < < 4 *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.