Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.2000, Qupperneq 16
Alvörustörf eru það flottasta í dag. Aö vinna
eitthvað sem er raunverulegt og að vera helst
í einhverjum einkennisbúningi. Ef maður er at-
vinnulaus og vantar vinnu í góðærinu á maður
aö leita uppi starf sem er fyrir hörkunagla og
sterkar konur. Eins og til dæmis I slökkviliðinu
eða lögreglunni. Það jafnast ekkert á við það
að eyða deginum við að berjast við elda, keyra
sjúkrabíl eða handtaka fólk. Þetta eru störfin
sem þykja mest kúl í jakkafataklæddu og skrif-
stofuvæddu þjóðfélagi hagvaxtarins. Það er
auðvitað ömurlegt að hanga í mislitum og óög-
uðum jakkafötum við skrifborð. Og það erjafn-
vel svo rosalega hallærislegt á upplýsingaöld
að það er skárra að vera öskukarl, öryggis-
vörður eða strætóbílstjóri. Þetta er fólkið sem
kvikmyndirnar fjalla helst um og einu störfin
sem eru almennilega áþreifanleg.
Sjálfstætt fólk fékk einhverja smáaura frá Kvikmyndasjóði íslands nú um daginn
til að undirbúa gerð Hollywood-myndar á þessari ástsælustu skáldsögu íslendinga.
Fókus fór því á stjá og spurði bransafólk og aðra tengda bransanum hverja þau
sæju fyrir sér í helstu hlutverkum. Niðurstaðan var að gelgjur landsins gætu allt
eins þurft að fara að búa sig undir komu Leonardo DiCaprios til landsins.
Tæpir
milljarðar
Ragnar Bragason
leikstjóri:
Bjartur í Sumarhúsum: John Travolta
Ásta Sóllilja: Drew Barrymore
Ingólfur Arnarson Jónsson: Keanu Reeves
Rósa: Meg Ryan
Gvendur: Leonardo DiCaprio
Áætlaður launakostnaður 80 milljónir dollara.
Óllil3a
Stóru sjónvarpsstöðvarnar eru úr Fókus. Það
er ekkert hægt að horfa á Stöð 1 og 2. í fyrsta
lagi sýna þær of leiðinlega unglingaþætti, enn
verri bíómyndir, ódýrustu heimildaþættina og
ná ekki einu sinni að standa uppi í hárinu á
litlu sjónvarpsstöðinni SkjáEinum, hvað þá
stóru útlendu stöðvunum sem hægt er að fá
aðgang að í gegnum fjölvarpið eða breið-
bandið. Þetta er bara að verða staðreynd.
Hvorki Stöð 1 né 2 standa sig, þá sérstaklega
ekki Stöð 1 sem verður ömurlegri með hverri
mínútunni sem líður. Hefur ekki einu sinni vit
á því að ráða til sín ferskan dagskrárstjóra
þegar Siggi Valgeirs fór með vasasunnudaga-
leikhúsið sitt. Svo ekki sé talað um hvað flagg-
skip Stöðvar 2, 19:20 sem lengi hefur verið
besti fréttaþáttur á íslandi, er orðið óskiljan-
legt eftir breytingarnar. Segja sömu fréttirnar
aftur og aftur i sama fréttatímanum og standa
sig engan veginn. Það er því mál að fólk fái sér
bara örbylgjuloftnet og horfi á almennilegar
stöðvar.
Guðný Halldórsdóttir
leikstjóri:
Bjartur í Sumarhúsum: Liam Neeson
Ásta Sóllilja: Maria Bonnevie
Ingólfur Arnarson Jónsson: Ralph Finnes
Rósa: Emily Watson
Gvendur: Matt Damon
Áætlaður launakostnaður 25 milljónir dollara.
meira á.
www.visir.is
Á frumsýningu Fínbjöllu í Háskólabíói, á föstu-
dagskvöldið, var auðvitað múgur og
margmenni: Gjörningaklúbburinn og Halli Jóns.
Andrea umboðsmaður Helgadóttir, Bjargey
Jónsdóttir kvikmyndageröarkona, Sunna (þessi
sem á búðina á Laugaveginum, systir Ara Alex-
ander), Hrönn kvikmyndagerðarkvendi, Kári
Schram og Snorri Ásmundsson klámtán. en
allt þetta fólk - eða næstum því - var mætt í
eftirpartí á Sexbaujunni á Eiðistorgi á eftir.
Á Kaffibarnum um kvöldið var sneisafullt út úr
dyrum. Þar mátti sjá Egil Helgason og nýju kon-
una, Hallgrím Helgason og Huldar Breiðfjörð
ásamt Húberti Nóa saman við borð. Seinna
settust þar Sjón og Ásgerður
kona hans nýkomin af óperu-
frumsýningu ásamt Móu systur
Ásgerðar og Eyþóri Arnalds.
GusGus-gaurar, fyrrverandi og
núverandi Steppi Steph - með
kærustunni Hrafnhildi fata-
hönnuði, Daniel Ágúst og
Gabriella og Maggi Jóns. Snæ-
fríður Baldvins sást þarna líka T heitum sam-
ræðum við ex-Hrafn Jökulsson, öðru nafni
Imba (Ingibjörg). Ási Ásmundsson var á staðn-
um með kollega sínum Hlyni Hallssyni sem
undanfarið hefur fengist viö að skrifa dagbók á
vegg Kjarvalsstaða . Allt nnbjöllugengið var
mætt, enda Hrönn Sveinsdóttir starfsmaður á
barnum. Foreldrar hennar voru aðalstjörnur
kvöldsins og fengu því að fljóta með, enda
einnig foreldrar annarrar Fínbjöllu, Árna Kyrr.
Seint ætlar Lagarfljótsormurinn að hætta að
verða Austfirðingum uppspretta nafngifta því
um helgina var opnaður nýr/gamall staður á Eg-
ilsstöðum sem ber það frumlega nafn Ormur-
inn. Á meöal þess fólks sem mætt var til að
fagna komu nýs öldurhúss skal helst nefna
Brodda Bjarnason, forseta bæjastjórnar, og
frú, yngismeyjarnar er þátt taka í Fegurðarsam-
keppni Austurlands og Birgittu hárgreiðslufrík.
.Jóhann Hauksson og Haraldur útvarpsfrétta-
menn heiðruðu einnig staðinn með nærveru
sinni, sem og mæðgurnar Auður hótelstýra og
dóttir hennar Bryndís. DJ. D.O.D. sá um hrynj-
anda fyrir fólk að hreyfa sig við.
Hljómsveitin Buttercup spilaði á dansleik í Sjall-
anum, Isafirði. Eitthvað virðist lýsingin hafa ver-
ið dauf, eða þá að andrúmsloft hafi verið reyk-
mettað um of, þvi að enginn gat greint frá nein-
um einum sérstökum sem að sótti staðinn
þetta kvöld. Ekki nema vera skyldi að Nína
Óskars, íslandsmeistari í vaxtarækt, hafi
geislað nógu mikið til að sitja eftir í hug-
skotum fólks.
Fönkið réð ríkjum á Sólon Islandus síðast-
liðið föstudagskvöld í boði hljómsveitarinn-
ar Funkmaster. Sölvi, trommari i Quarashi,
mætti á svæðiö og einnig Maríus
söngleikjasöngvari. Gestir af frum-
sýningu íslensku Óperunnar á
Lúkretía svívirt færðu sig yfir til að
melta menninguna sem á borð var
borinn þeim. Á meðal þeirra voru
Ólafur Ragnar, forseti vor, Garðar
Cortes, Anna Sigríður óperusöng-
kona og viðskiptajöfurinn Jón
Ólafsson. Loks bættust partífikl-
arnir úr Með Hausverk um helgar í
hópinn, eftir að hafa drukkið i
beinni fyrir Landann.
Ekki sættu allir sig við að hanga hér uppi á
Fróni um helgina. Hópur íslendinga brá undir
sig betri fætinum og hélt sem leið lá til Bitla- og
fótboltaborgarinnar Liverpool. Var
tilgangur ferðarinnar að horfa á
leik Liverpool og Leeds. Eitthvað
var sætaskipan misjöfn eftir fólki
því að samkvæmt öruggum heim-
ildum þá sást til Árna Þórs Vig-
fússonar láta fara vel um sig í
Carlsberg-boxinu. í fylgd með hon-
um voru þau Dóra Takefusa og
Kristján Ra.
Síðan sást söngvarinn Roger Whittaker
á Rauðará steikhúsi á laugardagskvöld
ásamt umboðsmanni sínum og eigin-
konu og hældi steikum staðarins
óspart.
Líf og fjör var á Spotlight á föstudags-
kvöldið og stóð Rósa, skip- og skemmt-
anastjóri, í stafni og stýrði partífleyinu
af einurð, líkt og hennar er vaninn. Vél-
stjóri þetta kvöld var DJ. ívar og sá hann um að
dansvélin gengi á fullu stími allt kvöldið. Á með-
al háseta voru Stimmi módel, ásamt vinum og
vandamönnum, Felix Bergsson,
leikari og fyrrum Greifi, og Band-
eras, strippari á Þórscafé.
Ein af þotum íslenska þotuliðs-
ins, TF-REX, hóf sig á loft um
helgina og var áætlaður lending-
arstaður óljós, sem fyrr, en fólk
lét það ekki á sig fá; settist i
sætin sín, spennti sætisólar og lagði af stað út
í óvissuna. Meðal farþega á
föstudagskvöldiö var starfs-
fólk Saga-Film. Aðrir sem
tóku flugið um helgina voru
þeir Eyþór Arnalds, Islands-
síma fir, og viðskiptafélag-
arnir Jón Ásgeir Bónus-
maöur og Jón Ólafsson.
Á Sportkaffi var margt um
manninn að vanda. Þar sáust m.a. Magnús Ár-
mann skemmtanakóngur, Jóhannes í Popptívi
og Eiríkur, sölustjóri hjá Bílanaust. Félagarnir
tónelsku Villi Goði, Bergur og Matti kíktu
einnig inn sem og Erla sem þátturinn Með
hausverk um helgar kostaði ný brjóst á.
16
f Ó k U S 11. febrúar 2000