Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2000, Síða 13
Kiddi í Hljómalind er kominn í gott
rokkstuð á ný og boðar nú endurkomu
lágmenningarborgarinnar Reykjavíkur.
Eins og fólk man eflaust stóð hann
fyrir mörgum frábærum tónleikum í
fyrra, m.a. með Fugazi, JSBX og Low.
Á miðvikudaginn byrjar stuðið, þá
kemur hljómsveitin Papa M.
andi tónlist, byggð upp af falleg-
um endurtekningum sem taka
hlustandann í innra ferðalag. Dav-
id Pajo býr enn í Louisviile en hef-
ur ferðast reiðinnar býsn að und-
anfomu. Hann spilaði með Wiil
Oldham á Kúbu fyrr í mánuðinum
og kemur hingað ferskur af míní-
túr um Japan. Héðan fer Papa M
til að spila á All Tomorrows
Parties-festivalinu á Englandi þar
sem bandið verður á stóra sviðinu
á eftir Sigvu- Rós 9. apríl. Svo er
Papa M stíft bókað víðs vegar í
Evrópu fram í júlí.
Fjórir koma með David: Paul
Oldham (var með bróður sínum,
WiU, í Palace Brothers og hefur
auk þess spilað með Royal Trux) á
bassa, Alan Licht (hefur unnið
með Thurston Moore og
Wharton Tiers) á gítar, Tony
Bailey á trommur og Kymberly
Orcholski á banjó og hljómborð.
Tónleikarnir verða eins og áður
segir nk. miðvikudag (5. apríl) og
fara fram i Þjóðleikhúskjallaran-
um. Miðasalan er hafin í Hljóma-
lind.
Næstu bönd á lágmenningarhá-
tíðinni eru svo graðhestarokk-
bandið ...And You Will Know Us
by the Trail of the Dead frá Texas
og dönsku ló-fæ rokkararnir í Silo
(Já, það er til gott danskt rokk!).
Gaman.
Dr. Gunni
Gettu hver er
með kombakk
Fyrsta súperband Kanada, The
Guess Who, er komiö saman
aftur og ætlar á túr um
Kanada. Þaö er uppruna-
lega útgáfan sem er nú
komin saman í fyrsta skipti
síöan amma var ung. Þaö
þarf væntanlega ekki aö
spyrja aö því að frægasta lag
sveitarinnar - „American Woman" -
veröur á efnisskránni. Þaö kom sterkt inn aft-
ur þegar Lenny Kravitz riðlaöist á þvf í Austin
Powers 2.
Krabbabein fellir lan Dury
Enski söngvarinn lan Dury lést á mánudaginn,
57 ára aö aldri. Hann hafði í nokkur ár barist
hetjulega við krabbabein. Veikindi voru ekkert
nýtt fýrir hann því hann var
hálfgeröur krypplingur
en sló þó í gegn í
pönkþylgjunni með
sveit sinni The
Blockheads og
smellina „Sex and
Drugs and Rock N
Roll" og „Hit Me with
Your Rhythm Stick". Hljóm-
sveitin hætti störfum snemma á 9. áratugn-
um en sneri aftur 1998 með plötuna „Mr.
Love Pants". lan var frægur og vinsæll í Bret-
landi og auk þess aö syngja lék hann í leikrit-
um og kynnti listaprógrömm í sjónvarpinu.
Nýjar plötur með No Doubt,
Neil Young o.fl.
Alltaf er gaman að tékka á plötuút-
eáfum næstu mánaöa og
hér er þaö helsta. I apríl:
Chumbawamba - „What
You See Is What You
Get", No Doubt - „Re-
turn of Saturn", Elliot
Smith - „Figure 8", Lou
Reed - „Ecstasy", Neil
'w Young - „Silver & Gold" og í
maf: Pearl Jam - „Binaural", Cypress Hill -
„Skull & Bones", Kid Rock - „The History of
Rock" og nýjar enn ónefndar plötur meö Nick
Cave, Bad Religion og Sinead O'Connor.
Stjörnukerfi Ifókus
★★★★ *Gargandi snilld! *Notist í neyð.
★ ★★ *Ekkl missa af þessu. 0 Tímasóun.
** *Gó« afþreying. " ./skaólegt.
★ ★Nothæft gegn leiðindum. 1
Björk og Thom saman
á plötu?
Thom Yorke úr
Radiohead syng-
ur dúett með
Björk! einu lagi í
sándtrakki henn-
ar við Lars Von
Trier-myndina
„Dancer in the
Dark". Lagið er
enn ónefnt en
Thom mun eiga
aö syngja f staö-
inn fyrir leikar-
ann Peter Stormare sem kann ekki að syngja
en leikur á móti Björk í myndinni. Platan með
tónlist Bjarkar úr myndinni kemur út f septem-
ber, á sama tfma og myndin veröur tekin til
sýningar. Fyrst kemur þó smáskffa f júnf. Nýrri
plötu með Radiohead má hins vegar búast viö
í október.
Daloiðslu to
Papa M
M er þrettándi
stafurinn
Eftir Slint var David um tima í
listaskóla en sneri aftur og gekk i
hljómsveitina Tortoise 1995. Tor-
toise var í beinan karllegg af
Slint, nema í djassaðri gír. Með
Tortoise lék David á plötunni
Millions Now Living Will Never
Die, sem er besta plata Tortoise og
Papa M er sólóhljómsveit Dav-
ids Pajo. Hann fæddist í Texas
1968 en ólst upp í Louisville í
Kentucky. Hann byrjaði að spila í
ýmsum pönk- og sveitaballabönd-
um í byrjun 9. áratugarins en
gekk í Slint þegar sú sveit var
stofnuð árið 1987 upp úr pönk-
bandinu Squirrel Bait. Þar spilaði
David á bassa en hefur fært sig
yfir á gítar í seinni tíð. Slint var
að mestu óþekkt á meðan hún
starfaði en hefur haft því meiri
áhrif eftir „dauða“ sinn. Hljóm-
sveitin starfaði til 1991 og kvaddi
með plötunni Spiderland sem án
efa kynnti til sögunnar uppskrift-
ina að „post-rokkinu“ svokallaða,
að mestu ósunginni tónlist sem
hefur þróast áfram með böndum
eins og Mogwai, June of 44 og
Rodan, svo fáein séu nefnd.
ein af bestu plötum síðasta áratug-
ar. Með fram Tortoise var David í
hljómsveitinni The For Camation
með mönnum úr Tortoise og Slint.
David yflrgaf Tortoise árið 1998 og
einbeitti sér að eigin „bandi“ sem
hann hefur kallað ýmsum nöfn-
um, fyrst M is the Thirteenth Lett-
er (ein 7“), þá M (ein smáskífa
með Laetitia Sadier úr Ster-
eolab), næst Aerial M (tvö albúm
og slatti af smáskífum) og nú kall-
ar David „bandið" Papa M. Band-
ið er í raun bara David sjálfur og
svo kemur fólk og fer að vild.
Þessu til viðbótar hefur David
slegið á sína léttu strengi með
böndum eins og Stereolab og
Royal Trux og mikið unnið með
Will Oldham sem kom hingað í
fyrra sem Bonnie „Prince“
Bonnie. Fyrstu spor Wills inn i
rokksenuna 1 Louisville voru
einmitt að taka myndir fyrir um-
slagið á „Spiderland".
Næstum
því ógnvekjandi
Fyrsta plata Papa M heitir Live
from a Shark Cage og fylgir fyrri
stefnu. Meginþráðurinn í tónlist-
arsköpiminni er áhrifaríkt gitar-
spil Davids sem stundum jaðrar
við að vera ógnvekjandi og í bak-
grunni eru blíðir taktar sem
minna á öldugang. Þetta er dáleið-
p1ötudómar
hvaöf fyrir hverrrP ^t^ö'VeVn^cPi^r' niöurstaöa
★★★★
Hljómsveitin: Kelis
piatan: Kafeidoscope
Útgefandi: Virgin/Skífan
Lengd: 61,37 mín.
★★★★
Hljðmsveltln: BlackalÍCÍOUS
Platan: NÍa
Útgefandi: Mowax/Japis
Lengd: 70,13 mín.
Söngkonan Kelis er tvftug og frá
Harlem. Hún er á svakalegri upp-
leið, enda smellurinn „Caught out
there (I Hate You so Much)" frá-
bært lag sem ryður brautina. Heil-
arnir á bak viö lögin og áferð piöt-
unnar eru tveir náungar frá Virginíu
sem kalla sig Neptunes.
Þeir Chief Xcel og Gift of Gab, með-
limir Blackalicious, mynda ásamt DJ
Shadow, Latryx o.fi. Quannum-hóp-
inn sem hefur starfaö f og umhverf-
is San Francisco nokkur undanfarin
ár. Nia er hápunkturinn á útgáfunni
frá þeim hingað til.
Þar sem dæmin sanna að maður
hefur getað sett samansemmerki á
milli R&B-tónlistar og staðnaðra
vælukjóaleiöinda er frískandi aö
uppgötva eins frábært R&B og
þetta. Allir R&B-unnendur opnir fyrir
nýjungum og poppunnendur al-
mennt ættu aö geta hafa mjög gam-
an af þessari plötu.
Þetta er mjög fjölbreytt hip-hop-plata
þar sem þeir félagar bregöa fyrir sig
hinum ólíkustu stílbrögðum. Á plöt-
unni má t.d. finna old school hip
hop-takta, skfrskotanir í 70’s soul-
tónlist og 80's r&b. Þetta er plata
fyrir rappaðdáendur meö hugmynda-
flug!
Kelis Rodgers er alin upp af
mömmu miðli og pabba saxófónleik-
ara. Hún gekk í „Fame“-skólann og
var komin inn á Wu-Tang-gengið
(söng á sföustu 01’ Dirty Bastard-
plötu) en ákvaö aö vinna frekar meö
Neptunes-strákunum. Hún ætti ekki
aö þurfa að sjá eftir þvf.
Meölimir Quannum-hópsins hittust f
háskólabænum Davis f Kaliforníu.
Þetta er 50 þús. manna bær, fjarri
kraumandi suðupotti rappsins ! stór-
borgum á við New York og L.A. Þeir
félagar telja að einangrunin hafi gef-
ið þeim frelsi til aö gera sérvisku-
legri og skrýtnari tónlist.
★★
Hljómsveitln: TÓnlÍSt ÚT
bíómynd
Platan: The Miliion
Dollar Hotei
Útgefandl: Universal / Skffan
Lengd: 55,43 mfn.
★★★
Hljómsveitin: Mira CalÍX
piatan: OneOnOne
Útgefandi: Warp / Japis
Lengd: 55,37 mfn.
„The Miliion Dollar Hotel" er nýjasta
mynd Wim Wenders, gerð eftir
handriti sem Bono átti þátt f að
skrifa. Bono sér um tónlistina. Hér
eru þrjú lög með U2 og slatti af lög-
um með The MDH Band sem Bono
er í ásamt Brian Eno, Daniel Lano-
is, Bill Frisell og fleiri.
Mira Calix (eöa Chantal Passam-
onte eins og hún heitir réttu nafni)
var lengi blaðafulltrúi hjá Warpútgáf-
unni. Hún hefur spilaö sem dj und-
anfarin ár (hitaöi t.d. upp fyrir
Autechre f MH), en OneOnOne er
hennar fýrsta plata.
Þetta er ekki ný U2-plata en allir
U2-aödáendur geta verið fullsæmdir
af aö eiga þessa plötu. Bono tekur
þann kostinn aö fylla sándtrakkið af
dapurlegu flotpoppi svo Ifkiega er
þetta ægidöpur og innávið kvik-
mynd, enda varla við ööru að búast
frá Wim.
Þetta er tilraunakennd raftónlist og
á þar meö ágætlega heima á Warp-
merkinu. Þetta er plata týrir raftón-
listarspekúlanta og alla þá sem
hafa þolinmæöi til að staldra við og
hlusta. Hún passar engan veginn f
partíið og er fullþunglamaleg sem
bakgrunnur á auglýsingastofunni.
Besta lag plötunnar er The Ground
Beneath Her Feet með U2. Textinn f
þvf er eftir Salman Rushdie. Aöal-
leikkonan, Milla Jovovich, syngur
gamla Lou Reed-slagarann Satellite
of Love en aðalleikarinn, Mel Gib-
son, syngur ekki neitt.
Mira reynir ekki að skapa neitt full-
komiö tækni-sánd, hún hefur mikiö
dálæti á gömlum analógískum raf-
gervlum og svo var söngurinn f lag-
inu Ms. Meteo tekinn upp f lestinni,
sunginn beint inn á vasadiskóið!
„Ég varð að syngja lágt til þess að
trufla ekki hina farþegana," sagði
hún.
Kelis er frábær söngkona og flest
lögin eru grfpandi og góð. Áferöin er
mjög nakin, taktarnir halda lögunum
uppi, auk frumlegra tóna, sánda og
karlkyns rappara. Yfir öllu svffur svo
söngkonan. Þetta er frumlegt og
eins og meö aöra frumkvöðla má
búast við að þessi uppskrift veröi
útvötnuö af öörum. Dr. Gunnl
Þetta er frábær plata. Snilld DJ
Shadows sem pródúsers hefur lengi
veriö kunn og Xcel gefur honum Iftið
eftir. Gestir eins og El-P (úr
Company Row) og Jurassic 5 gera
Ifka sitt til þess aö skapa flotta
plötu sem minnir mann á hvaö hip
hop getur verið skemmtileg tónlist.
Trausti Júlíusson
Þetta er svæfandi rólegt popp og
eru sum lögin ámóta spennandi og
gufa. Kóverlögin (Satellite og An-
archy in the UK, sungiö með salsa-
bfti) eru frekar lummó en nokkur lög
gera þessa plötu áhugaverða, þ.á
m. tvö U2-laganna sem eru meö
þvf albesta sem frá sveitinni hefur
komiö. Dr. Gunni
Þetta er þokkaleg plata. Þó aö hún
nái kannski ekki aö vera áhugaverö
allan tímann þá leynast á henni fínir
hlutir. Bestu lögin eru einhvers kon-
ar dimmar stemningar meö létttrufl-
uðum bftum skröltandi undir.
Trausti Júlíusson
í
31. mars 2000
f ó k u s
13