Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Side 6
t í s k a n
h á d e g i
Papa M í gírnum.
Lágmenn-
ing er góð
menning
Eins og flestum þeim er kunnugt
sem eitthvað fylgjast með tónlist þá
hefur hin margrómaða Lágmenning-
arhátið skotið upp kollinum aftur.
Eins og fyrri daginn er það Hljóma-
lindar-dúddinn Kiddi kanina sem
stendur á bak við þetta briUjant uppá-
tæki og hefur hann hvergi gefið eftir í
vali á gæðaböndum sem koma og
leyfa okkur, einangruðum Frónbúum,
að heyra safarika og heymar-meyra
útlenska tóna eins og þeir geta bestir
orðið. Nú þegar hafa tvær sveitir
komið og spilað. Fyrst kom Papa M og
dáleiddi fólk er á hlýddi svo mjög að
sumir hafa enn ekki komið niður úr
skýjunum. Annan í páskum komu síð-
an geðsjúklingamir í And you will
know us by the trail of dead og er
skemmst frá þvi að segja fólk beit sig
í tunguna af gleði. Danska hijómsveit-
in Silo spilar næst, þ.e. í
Þjóðleikhúskjallaranum þann 6. maí
næstkomandi. Fieiri em síðan á leið-
inni og hafa heyrst nöfn eins og Sonic
Youth, Mogwai og fleiri og fleiri en of
snemmt er að segja neitt til um það
enn. Aðdáendum góðrar músíkur er
þvi bent að á að hafa eyrun sperrt og
augun opin þvi að ef fram fer sem
horfir verður tónlistarveisla a’la
Kiddi langt fram eftir ári.
Pál 1
Óskar
sveiflast taskan
Orðið taska hefur
stundum verið
notað yfir brjóst
á kvenmönnum
en þykir ekki
mjög fínt. Hinar
eiginlegu töskur
í bænum í dag
eru hins vegar
alveg stórglæsi-
legar og úrvalið
gott, enda tími
til kominn að
kasta bakpokun-
um og fá sér
eitthvað léttara
til að burðast
með þar sem
sumarið er nú
loksins komið.
Sturtum skóla-
bókunum úr tösk-
unum og fyllum
þær af sólarolíu!
ky n 1 í f
Dr. Love er sjálfskipaður kynlífsfræðingur götunnar. Hann leysir úr tilfínningafíækjum lesenda Fókuss og gesta Fókusvefsins á
Vísi.is. Einungis er hægt að svara völdum bréfum en þeir sem eru virkilega þurfandi geta leitað á náðir Dr. Love í síma 908 1717.
Munalostinn
Nú er svo komiö aö ég varla get náö honum upp án þess aö vera í þessum inni-
skóm! Hvaö er eiginlega í gangi hérna hjá mér,“ spyr einn mjög áhyggjufullur.
Kæri Dr. Love.
Ég er karlmaöur á þrítugsaldri og er meö þung-
ar áhyggjur af því að þaö sé eitthvað alvariegt
aö mér. Máliö er aö alltaf þegar ég klæöi mig í
kvenmannsinniskó þá blýstendur mér og ég
enda alltaf á því aö fróa mér. Mesta kikkið fæ
ég út úr því aö vera nógu lengi í inniskónum þar
til ég heyri smella I þeim. Nú er svo komið aö
ég varla get náö honum upp án þess aö vera !
þessum inniskóm! Hvað er eiginlega ! gangi
hérna hjá mér? Er ég klæðskiptingur eöa kyn-
skiptingur? Þarf ég að fara til sálfræðings? Þarf
ég aö fara í aðgerö? Ég er að deyja úr áhyggjum
yfir þvi aö einhver komist að þessu. Ég verö að
fá svar.
Meö fyrirfram þökk
EINN MJÖG ÁHYGGJUFULLUR!
ENGAR ÁHYGGJUR,
ELSKU VINUR
Dr. Love er mættur til að bjarga lifi þinu! - Þú
ert ALLS EKKI klæðskiptingur eða kynskipting-
ur. Þú telst ekki einu sinni sem dragdrottning!
Rétta orðið yfir þig er MUNALOSTI eða MUNAÐ-
ARLOSTI eins og ég hef líka heyrt talað um.
Þetta er islenska þýðingin á oröinu „FETISH"
sem mikið er notað I talmáli meðal ákveðinna
jaðarhópa. Þegar þú ert haldinn munalosta þá
fílar þú að nota ýmis utanaðkomandi „hjálpar-
tæki" til að koma þér í kynferöislega girinn eða
jafnvel fíiar best að stunda kynlíf undir einhverj-
um mjóg ákveönum kringumstæöum. Stundum
sérhönnuðum!
Það kannast auövitaö allir við ímyndina um ítur-
vöxnu konuna sem er klædd i niöþröngan leður-
eöa plastskrúöa, í 20 cm háum hælastigvélum
og heldur á svipu. Hún drottnar yfir öðrum kyn-
félögum sínum - og hún ætlar ekki aö tala um
veðrið við þá! Þetta er kannski kliskju-
kenndasta hugmyndin okkar um fetish eða
munalosta.
í þínu tilfelli eru kvenmannsinniskór þitt TURN
ON! FRÁBÆRT. POTTÞÉTT. ÞÁ ALLA VEGA ERTU
MEÐ ÞAÐ Á TÆRU HVAÐ KEMUR ÞÉR TIL! Það
er nú meira en hægt er að segja um margan Is-
lendinginn. Þannig að þú ert mjög heppinn,
góði minn, að hafa fattaö þetta. Nú getur þú lif-
að vel heppnuöu, stefnuvirku og meðvituðu kyn-
lífi til æviloka. Húrra fyrir þér!
Þetta hugtak (fetish) nær yfir svo breitt svið að
viö getum talaö um fyrirbæri eins og Uniform,
bindileiki og jafnvel S&M í sömu andrá. Fyrir
utan ailt fólkið sem fílar að klæða sig í leður,
gúmmí, plast, vínyl og risastígvél sem ná upp i
klof - þá er líka þar á meðal fólk sem fílar aö
vera allsbert innan undir regnkápum, eða lætur
rassskella sig duglega. Allt í þágu lostans!
Fólk sem fílar að nota víbratora, dildóa og
gervipíkur gæti varla flokkast undir alvöru fet-
ish, ekki nema það heimti það sjálft. (Sama er
mér.) En þegar utanaðkomandi hjálpartæki eru
í formi uppþvottahanska þá heitir það löggiltur
munalosti. Sumir fila að fróa sér einvörðungu
með uppþvottahönskum. - Svo eru lika þeir
sem til dæmis eru mjög svag fyrir öllu sem við-
kemur fótum: horfa á, pæla I, sleikja, sjúga og
jafnvel láta ríða sér með fótum og tám ástvinar
síns. Á enskri tungu nefnist það FootFetish!
Það eru gefin út heilu tímaritin fyrir þá sem lof-
syngja fætur og tær. Áfram þaðl
Af hverju er sumt fólk haldið munalosta? Púff,
það er sko búið aö hnakkrífast um það í gegn-
um tlðina, skal ég segja þér. Flestir kynfræðing-
ar og sálfræöingar hafa lent á þeirri niðurstööu
aö fetish sé nær alltaf LÆRÐ HEGÐUN og eigi
sér rætur i einhverju kynferðislegu atviki úr
barnæsku. - Langsóttasta dæmiö um fetish
sem ég hef heyrt er um manninn sem gat ekki
fengið það án þess að vera undir sænginni
sinni og láta konuna sina fróa sér meö þvi aö
nudda fótunum upp að limnum á honum. Það
var rakið til atviks í barnæsku þar sem lítil syst-
og þú
ir mannsins veitti honum sína fyrstu fullnæg-
ingu þegar hún slysaðist til að nudda fótum sín-
um upp að honum í svefni. Sel það ekki dýrara
en ég keypti það!
En þrátt fyrir allar vangaveltur um munalosta þá
máttu ALDREI rugla þér saman við kynskiptinga
eða klæðskiptinga. Þá erum við fyrst komin út
í allt aðra sálma. Ég trúi því ekki að fólk sé enn
þá að rugla þessu saman, kyn- og klæðskipt-
ingum og svo dragdrottningum i bland. Sumir
haldajafnvel að þetta sé allt sami hluturinnl!
Hér með skal það kunngjört að kynskiptingur er
manneskja sem fædd er i vitlausum líkama og
meö ótrúlegum viljastyrk krefst þess að fara í
kynskiptiaðgerð. Klæðskiptingur er aftur á móti
oftast nær GAGNKYNHNEIGÐUR KARLMAÐUR
(aldrei hommi) sem klæöir sig upp í undirföt og
kjóla, oftast nær af konunni sinni. Þetta gerir
klæðskiptingurinn með mestu leynd, því partur
af spennunni felst i því hvort einhver komi að
honum við þessa iðju sína. Hann fær kynferðis-
legt kikk út úr því.
Dragdrottningin er aftur á móti oftast nær SAM-
KYNHNEIGÐUR KARLMAÐUR sem dressar sig
EKKI upp i fötin af vinkonum sínum heldur eitt-
hvað annað, meira og miklu brjálaðra en það!!
Drag er aldrei það sem við getum kallað hefð-
bundinn kvenfatnaður! Drottningin er ekki að fá
neitt sérstakt kynferðislegt kikk út úr þessu.
(Hún veröur að teipa niður á sér tippið þannig
að ekki er hægt að pæla í því á meðan.) Þetta
hefur miklu meira með skemmtun, alter egó og
leikhús aö gera heidur en kynlíf. Og dragdrottn-
ingin fer aldrei meðfram veggjum, ólíkt klæö-
skiptingunum. Hún vill helst troða upp á Lækj-
artorgi!
Ég skrapp á mjög góðan fetish-klúbb fyrir bæði
kynin í Berlín um daginn, „KIT KAT CLUB“, þar
sem reglan var einföld. Þú máttir ekki fara inn
á klúbbinn I gallabuxum eða hversdagsfatnaði.
Ef þú vildir komast inn þá þurftir þú vinsamleg-
ast að klæða þig úr gallabuxunum - og fara inn
i klúbbinn á nærbuxunum ef þú varst ekki með
neitt annað á þér til að vera í.
Sem betur fer var ég i pungbindi og uppreimuð-
um hermannastígvélum og dyravörðurinn sam-
þykkti það! Þegar inn var komið voru allir í geð-
veiku stuði meö þrjóstin þer, í fatnaði (stundum
sérhönnuðum) úr gúmmii, leðri, plasti o.s.frv.
Sumir voru bara á nærfötum í NOKIA stígvélum
og filuðu sig í botn. Aðrir voru að leika sér með
fjaðrir, svipur, sexí leikföng og meö
þvottaklemmur á geirvörtunum. Sumir voru
pakkaöir inn í glært plast (eins og „PLÁHNET-
AN" á plötuumslaginu) og gátu sig hvergi hreyft.
Þetta er eitthvað það mesta stuð sem ég hefi
nokkurn tíma komist í á ævinni! Þetta var
TOTAL FRELSI! Plötusnúðurinn var frábær og ég
dansaði um á pungbindinu til klukkan 10 um
morguninn. Þú ættir að fara á „KIT KAT“-klúbb-
inn i Berlín eða SPOTLIGHT um helgina -
klæddur í kvenmannsinniskóna, og fíla þig i
botn.
NJÓTTU LÍFSINS!
ÞINN YLHÝR,
DR. LOVE
f Ó k U S 28. apríl 2000
6