Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Side 9
 f TIiri|f!!lH !!!!|!!!!!!l!linii!f llllium i! Næsti Michael Owen „Ég fékk ekki beint nýja sýn á lífið og tilveruna en forgangs- röðin breyttist algerlega,“ segir Hulda Bjarnadóttir, dagskrá- gerðarkona á FM957, um áhrif- in sem fæðing sonar hennar, Óskars Dags Haukssonar, fyrir fjórum mánuðum hafði á lif hennar. „Ég er nú orðin ást- fangin af tveimur mannveriun, manninum mínum og nú syni mímnn. Þetta var svo sannar- lega ást við fyrstu sýn.“ Hulda bætir því við að áður fyrr hafi hún alltaf verið úti á lífinu eða á einhverjum þeytingi fram og til baka en nú heyri það undan- tekningum til að hún fari út úr húsi. „Mér finnst ég hafa þroskast á einhvem hátt, sé far- in að lifa ábyrgara og stöðugra lífi.“ Þegar Hulda er spurð hvort áhyggjumar hafi aukist eftir bamsburðinn segir hún að svo sé ekki heldur hafi þær gömlu horfið og nýjar komið þeirra I stað. „Ég verð rosalega spennt við þá tilhugsun að vita af því að hann á eftir að verða sjálfstæður og fara að taka eig- in ákvarðanir. Ég kvíði samt mest fyrir því þegar hann er orðinn unglingur og fer að rifa kjaft við mig. Ég bíð samt spennt eftir því að hann þrosk- ist. Ég ætla að hvetja hann til náms en svo er það bara hans að ákveða hvað hann vill verða. Ég veit þó að pabbi hans gerir miklar væntingar til hans á íþróttasviðinu og vonar að hann eigi seinna meir eftir að spila með Liverpool." Ekki er um að villast að félagsmótunin er byrjuð snemma á þessu heimili því Liverpool-búningur í bamastærð hangir uppi á vegg, tilbúinn á þeim degi sem Óskar Dagur fer að sparka i tuðru. Hulda BJarnadóttir á FM eignaðist Oskar Dag í byrjun árs. Halldór Gylfason var 25 ára þegar hann eignaðist son slnn, Gylfa. Kærastarnir eiga eftír að lenda þokkalega í þvt „Fyrir flmm mánuðum hafði ég aldrei haldið á litlu bami, hvað þá skipt um bleiu. Ég var svolítið stressaður yfir þessu til að byija með en komst fljótt að því að þetta er manni í blóði bor- ið,“ segir Daníel Þorsteinsson, trommari hljómsveitarinnar Maus, og maður skynjar það fljótt að hann er mun stoltari af frumburðinum, henni Iðunni, heldur en íslensku tónlistarverð- laununum sínum uppi á hillu í stofunni. „Það er í raun ekki hægt að lýsa þessari tilfinningu fyrir fólki sem ekki á böm, þetta er bara það geðveikasta sem þú getur lent i. Fæðingin var bara kreisí og, já, ég viðurkenni alveg að ég táraðist big time.“ Daníel vill einnig halda því fram að aðrir dularfullir atburðir eigi sér stað þegar maður eignast bam. „Það er voðalega lítið rætt um þetta en maður breytist geð- veikt og þá ekki andlega, heldur líkamlega. Byrjar að fá hár á undarlegum stöðum, þetta er rosalega einkennilegt, svo er önnur löppin á mér orðin eitt- hvað skrýtin. Maður verður ekk- ert mýkri við að eignast bam en ég er þó orðinn þroskaðri á ein- hverjum sviðum. Samt er maður alltaf sami grínarinn.“ Daníel segist hlakka rosalega til þess að hún byrji í skóla. „Þegar hún fer svo að koma með einhverja kærasta heim verða þeir þokkalega óheppnir því þeir eiga eftir að lenda svo hrikalega í því.“ Daníel er fyrstur af strák- unum í Maus til að eignast bam. „Ég hafði eiginlega ekkert hugs- að út hver okkar yrði fyrstur. Ég er náttúrlega elstur og vitrastur af þeim þannig að þetta kom ekki mikið á óvart, þvi ef þú lít- ur á þessa stráka sérðu að þeir eru alveg handónýtir." í annars manns „Maður fullorðnast aðeins við þetta og róast heilmikið. Vinir mínir höfðu margir hveijir eignast börn og ég hafði séð hvaða áhrif þetta hafði á þá. Maður fer að axla meiri ábyrgð og lifið er ekki leng- ur hreinn og beinn leikur," segir leikarinn Halldór Gylfason sem á tveggja og hálfs árs son sem var skírður í höfuðið á föður Halldórs. „Þegar hann fæddist urðu fjárhags- áhyggjurnar meiri og ég fór að vinna rosalega mikið. Konan min er í skóla þannig að ég þarf að sjá fyrir fjölskyldunni. Þ.a.l. hugsa ég rosalega mikið um peninga sem er hlutur sem mér leiðist mjög en það er líka það eina leiðinlega við þetta.“ Halldór segir að hann hafi á ákveðnu augnabliki gert sér grein fyrir því að hann væri tilbúinn að eignast barn. „Ég var á öðru ári í leiklistarskólanum þegar mér varð þetta ljóst. Þá var ég rúmlega 25 ára en hafði samt sem áður fyrst byrjað að hugsa um þetta þegar ég var tvítugur og hafði hitt konuna í lífi mínu. Það er í raun leynt og ljóst tilgangur lífsins að fjölga sér og öðlast þar með ódauðleika í lífi annars manns.“ Þegar Halldór er spurður um framtíðarvonir sínar fyrir hönd sonar síns segir hann: „Mér mun líða vel ef honum liður vel og ég stend með honum hvað sem honum dettur í hug að taka sér fyrir hendur þegar hann verð- ur stór.“ þú vilt vita meira IDN ADUR.ÍS 28. april 2000 f ó k u s 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.