Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.2000, Síða 15
Unnendur lifandi og grúví hip-hops í anda The Roots geta glaðst þessa dag- ana, eins og TVausti Júlíusson komst að þegar hann kynnti sér Chicago-rappar- ann Common og nýútkomna plötu hans. Common, rappari sem f sínar eigin leið Chicago-rapparinn Common vakti töluverða athygli fyrir plöt- una „One Day it’ll All Make Sen- se“ fyrir þremur árum. Hann hef- ur nýverið sent frá sér sína fjórðu plötu „Like Water for Chocolate“ og kannski er dagurinn sem „allt meikaði sens“ runninn upp. Common, sem heitir réttu nafni Lonnie Rashid Lynn, er 27 ára gamall. Hann starfaði fyrst undir nafninu Common Sense og gaf út fyrstu plötuna sína „Can I Borrow a DolIar?“ árið 1992. Næsta plata, „Resurrection" kom út tveimur árum seinna. Hún hafði m.a. að geyma lagið „I Used to Love H.E.R" sem var hörð ádeila á gangster rapp. Þegar þriðja platan „One Day It’ll AIl Make Sense“ kom út árið 1997 hafði hann stytt nafnið í Common. Hann hitti Ahmir Thomson, öðru nafni ?estlove, trommuleikara The Roots, nokkru seiima og ferðaðist með hljómsveitinni á tónleikaferð hennar yflr Bandarfkin. Flutti til New York Eftir að „One Day...“ seldist minna en vonir stóðu til ákvað Common að skipta um útgefanda. Hann yfirgaf Relativity Records sem gáfu út fyrstu 3 plöturnar og skrifaði undir samning við MCA. Upphaflega flutti hann til New York til þess að vera nálægt MCA- bækistöðvunum og geta passað Stjörnukerfi Ifókus ★ ★ ★ * ★ Gargandi snilld! ★ Notist í neyð. ★ ★ ★ ★ Ekki missa af þessu. 0 Tímasóun. ★ ★ ★ Góð afþreying. jgf Skaölegt. ★ ★ Nothæft gegn leiöindum.,<w*' upp á að allt gengi fyrir sig eins og hann óskaði, en fljótlega sogað- ist hann inn í tónlistarkreðsa borgarinnar sem leiddi til þess hvað margir gestir koma fram á „Like Water for Chocolate". Hann réð fyrst af öllu ?estlove til að hafa yflrumsjón með plötunni. ?estlove sagði honum: „Þú átt eftir að hata mig sem manneskju eftir þetta, en við eigum eftir að gera þína bestu plötu“. Ekki lítil yfirlýsing, en ?estlove stóð a.m.k. við seinni hluta hennar. Like Water for Chocolate er að miklu leyti imnin af sama liði og gerði Voodoo plötuna hans D’Angelo. Flest lögin eru pródúseruð af Soloquarians geng- inu, en það eru D’Angelo, Jay Dee og hljómborðsleikarinn James Poysner. Eins og tónlist The Roots þá er tónlistin á plötunni að miklu leyti spiluð með lifandi hljóðfærum. Þetta er soulskotin og fonkí blanda af hip hop og r&b. Fyrsta lagið á plötunni „Time Tra- vellin’", sem er tileinkað Fela Kuti, er dæmi um hvað Common er opinn fyrir nýjum og ólíkum hlutum. Lagið, sem er algjör snilld, er sambland af hip hoppi og afro-fonki. Það skartar djass- stjörnunni Roy Hargrove á trompet, hljómborðsleikurunum D’Angelo og James Poysner og afrísku söngvurunum Vinia Moj- ica og Femi Kuti, syni Fela. Aðr- ir gestir á plötunni eru t.d. Mos Def, sem syngur lagið „The Questions", DJ Premier, Bilal, Mista Sinista úr X-ecutioners og MC Lyte. Svo syngur D’Angelo lagið „Geto Heaven". Rapparinn Common: „Maður er ekki í tónlist til að syngja einhverja þvælu.“ Fór til Kúbu Það lag á plötunni sem Common þykir vænst tun er samt lagið „A Song for Assata“. Lagið samdi Common eftir að hafa lesið ævi- sögu Assata Shakur sem var ein af leiðtogum Black Panthers. Assata, sem er frænka Tupac heitins, flúði til Kúbu eftir að hafa verið ásökuð um morð sem hún hefur alltaf neitað að hafa framið. Hún er núna á fimmtugsaldri og búsett i Havana. Lestur bókarinn- ar hafði mikil áhrif á Common. Hann ákvað að saga hennar ætti erindi við bandarísk ungmenni ársins 2000 og gerði lag um lif hennar. Hann gat þó ekki sleppt laginu í útgáfu án þess að fara til Kúbu og hitta hana. Það segir kannski eitthvað um vinnubrögð- in hjá Common. Common vill að tónlistin hafi innihald. Annað lag á plötunni, „Dooinit", hefur vakið nokkra athygli, en sá frægi snúð- ur Funkmaster Flex neitar að spila lagið í útvarpsþættinum sín- um, þar sem hann túlkar það sem árás á rappkóngana Puff Daddy og Jay Z. Sjálfur segir Common: „Maður er ekki í tónlist til að syngja einhverja þvælu." plötudómar Fatboy Sliin endurnýjar sig Meistari Fatboy Slim (alias Norman Cook) er í hljóðveri í L.A. að vinna að næstu plötu. Hann er búinn að leggja grunn að 15 nýjum lögum en plötunnar er ekki að vænta lyrr en í lok ársins. Helsta breytingin frá fyrri verkum er að nú verður lifandi söngur í lögunum en ekki sömpl eins og til þessa. Hin ráma Macy Gray er að taka upp með honum þessa dagana en fleiri nöfn hafa ekki fengist uppgefin. Norman er með það á hreinu að nýja platan verður aö vera stórt stökk fram á viö. „Vonandi verður hægt að þekkja að þetta er ég,“ segir hann, „en ég vona að fólk segi ekki: „Æi nei, enn eitt lagið frá honum.“ Þaö eru búin aö vera svo mörg lög sem hljóma alveg eins og Gangster Tripp- in og Rockafeller Skank og ég vil ekki hljóma eins og fólkið sem hljómar eins og ég!“ Húrra fýrir íslendingunum! Það telst ekki lengur fréttnæmt þegar minnst er á íslenskar hljómsveitir I erlendum blööum. En alltaf er samt jafn gaman þegar jákvæðnin skfn af blaðamönnunum eins og gerðist í nýjasta NME þar sem Múm og Botn- leðju er hrósað. Múm- platan fær 8 af 10 í t ’ f jr* Æm einkunn og I dóminum 1 segir m.a. að í full- komnum heimi myndi hljómsveitin alltaf vera að- albandið á All Tomorrow’s Parties festivalinu. I tónleikagagnrýni á Botn- leðju (eða Silt) segir að Damon Albarn geti greinilega komið auga á sigurvegara og það eigi örugglega eftir að heyrast meira í Silt. Ævintýri Jaggers Gamli rollingurinn Mick Jagger hefur stofnað eigin kvikmyndaframleiðslufyrirtæki, Jagged, og nýlega hófust tökur á fyrstu kvikmyndinni sem hann framleiðir. Hún heitir Enigma og er með Kate Winslet í aðalhlutverki. Næst verð- ur gerð mynd með X-files-peyjanum David Duckovny f aðalhlutverki og þar að auki hefur Jaggerinn skrifað kvikmyndahandrit um rokk og ról-ævintýri sín sem hann kailar „Snap". Hann reynir nú að fá hjarta- banann Jude Law til aö taka að sér aðalhlut- verkið. Handritið að „Snap“ ku vera f léttari kantinum en það er spurning hvort Jagger hafi húmor fyrir sjálfum sér. Honum var a.m.k. ekki skemmt þegar hundur pissaði á skóna hans f hljóðveri nýlega. Hundinn á upptöku- maðurinn Arthur Baker sem sagði söguna svona: „Mick var í góðu stuöi og fann sig vel f laginu sem við vorum að taka upp. Einhver haföi opnað dyrnar og hundurinn minn læddist inn og meig á löppina á Jagger. Hann tapaði sér gjörsamlega, öskraði og æpti og gat ekki sungiö meira þann daginn." ★★★★ Hijómsveitin: Raymond Scott piatan: Manhattan Research Inc. Útgefandi: Basta / 12 tónar Lengd: 121:47 mín (2 diskar). ★ ★★★ Hljómsveitin: LTJ Bukem piatan: Journey Invards Útgefandl: Good Looking / Japis Lengd: 95,38 mín (2 diskar). hvaöf Raymond Scott var þessi bijálaða prófessortýpa í hvftum slopp sem vann aö uppfinningum f raftónlist og var langt á undan sinni samtfð. Þetta er safn af allskyns tónlist sem hann gerði á þessi framúr- stefnulegu tæki sín, m.a. auglýs- ingatónlist, dægurlög og kvikmynda- tónlist og alls konar tilraunir. Danny Bukem er einn af frumkvöðl- um jungle/d&b-tónlistarinnar. Hann er upphafsmaður atmospheric drum&bass-stefnunnar og rekur út- gáfuna Good Looking sem sérhæfir sig í þeirri tegund tónlistar. Bukem sló í gegn með fýrstu „Logical Progression" mixplötunni sem kom út áriö 1996. fyrir hvernf Miöað viö hve stór hiuti af tónlist samtfmans er raftónlist og unnin á tæki sem má rekja til uppfinninga Raymonds ætti þessi plata aö höfða til allra. Svo er þó varla, en allir raftónlistarspekúlantar, já og nánast allir sem hafa átt sintisæser ættu að athuga þessa fortföar- snilld. Tónlistin á Journey Invards er bæði drum&bass að hætti Bukem, en eins bregður hann fýrir sig öörum stílbrögðum; downtempo, jazzfunk, soul og endar plötuna á house- stykki. Þetta er þvf plata sem ætti að höfða til flestra áhugamanna um danstónlist. skemmtileqar staöreynclir Áður en Raymond helgaði sig upp- finningum og rafsýsli var hann hljómsveitarstjóri og samdi mörg fræg lög. Lögin hans voru Iffleg og frekar frfkuð og flestir kannast við sum þeirra þvf þau urðu sföar fasta- gestir í teiknimyndum um Bugs Bunny og félaga hans. Bukem er margrómaður fýrir lög eins og „Horizons" og „Music", en þetta er hans fýrsta stóra plata. Það hefur verið mikið beðið eftir henni og á tíma gekk sá orðrómur að hann hefði fengið Luciano Pavarotti til að syngja á plötunni. Það varð ekki. Guöi sé lofl niöurstaöa Brian Eno og Kraftwerk voru börn aö aldri þegar Raymond var að sýsla i sloppnum sfnum. Það verður því að fara aö breyta raftónlistarsögubókun- um. Þessi glæsilega útgáfa (diskun- um tveim fýlgir 144 bls. stútfullur upp- lýsingabæklingur) er fræöandi, spenn- andi og síðast en ekki sfst skemmti- leg - algjör fjársjóður! Dr. Gunni Þetta er fín plata. Þó að tónlistin sé fjölbreytt, þá er yfir henni góöur heildarsvipur. Þaö er þetta súper slikk silkitæra gæöa sánd sem Bu- kem er þekktur fyrir. Ferðalag Bu- kem inn á við hefur leitt af sér opn- un út á við og það verður gaman að fýlgjast með þróun tónlistar hans í framtiöinni. Trausti Júlíusson * ★★★★★ Hljómsveitln: The FOF Carnation piatan: The For Carnation Útgefandi: Domino / Japis Lengd: 43,45 mfn. ★★★★ Hljómsveitin: DJ Food piatan: Kaleidoscope Útgefandi: Ninja Tune / Hljómalind Lengd: 64,43 mín. For Carnation er hugarfóstur Brian McMahan, sem áöur leiddi hina áhrifaríku hljómsveit Slint, sem hægt er aö kalla frumkvööul í „post- rokkinu". Mannaskipan hefur ávallt verið rokkandi en með Brian á þess- ari þriðju plötu eru m.a. fýrrum trommari Slint, Kim Gordon úr Breeders og John McEntire úr Tor- toise tók plötuna upp. DJ Food eru í dag þeir Patrick Carpenter (PC) og Strictly Kev. Þetta er fýrsta DJ Food platan án Matt Black og Jonathan Moore úr Coldcut, en allir fjórir stóðu saman að síöustu DJ Food plötunni „A Recipe for Disaster" sem kom út fyrir 5 árum. Tónlistin er hæg og drungaleg en um leið Ijúf og dreymin. Aðdáendur Sigur Rósar geta auöveldlega fundiö sig í þessari plötu þó Brian syngi með mun dýpri róddu en Jónsi. Að- dáendur Nick Cave og Leonard Cohen ættu einnig óhikað að tékka á þessari plötu því textarnir eru djúpir. Þetta er plata fyrir alla Ninja Tune að- dáendur. Tónlistin er í hefðbundnum Ninja Tune stfl, hugmyndarik blanda af raftónlist/hip hop/jazz/break- beat/funk/swing og hljóð- og radd- sömplum héöan og þaðan. Þeir félag- ar njóta m.a. aöstoðar Bundy K Brown (áður í Tortoise) og 60's jazzljóðskáldsins, Ken Nordine. Brian kemur frá Louisville og byrjaði ferilinn f pönkbandinu Squarrel Bait, sem átti eftir að þróast í Slint. Þeg- ar Slint hætti 1992 tók Brian sér fjögurra ára frf því honum fannst enginn nenna að hlusta á sig. Will Oldham dró hann aftur í rokkið f bandinu Palace Brothers og sfðan hefur leiöin legið upp á við. Hingað til hafa DJ Food plöturnar allar verið fullar af matarlfkingum. Nöfnin á plötunum og lögunum hafa alltaf skírskotað til matreiðslu. Remix-platan þeirra hét t.d. „Refried Food“. Þessi hefð er aflögö með nýju þlötunni, þeir félagar trúa ekki að matargrín sé rétta uppskriftin að því að vera teknir alvarlega. Þessi plata er ekki óralangt frá plöt- unni „Spiderland", meistaraverkinu sem Brian gerði með Slint. Tónlistin er mjög áhrifamikil í einfeldni sinni og túlkun Brians á textunum er dramatísk og flott. Þetta er albesta platan I hægt og seiðandi deildinni í langan tíma. Dr. Gunni Þetta er flott plata sem sýnir að það er enn nóg Iff f herbúöum Ninja Tune. Þessi plata er aðeins rólegri og alvarlegri en þeirra fýrra efni, en hún er samt fuli af tilþrifum - stemningum og dramatfk. Sannköll- uð, eh, veisla fyrir hlustirnar. Trausti Júliusson 28. apríl 2000 f Ó k U S

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.