Dagblaðið Vísir - DV - 09.05.2000, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
ÞRIÐJUDAGUR 9. MAÍ 2000
Gæsluflugmenn:
Þurfa að
treysta á
leigubíla
Sjómenn hafa talsverðar áhyggjur
af útkallsmálum þyrlusveitar Land-
helgisgæslunnar. Flugmenn hafa
þurft að treysta á leigubíla til að
koma sér út á flugvöll. Erfltt getur
hins vegar verið að ná í leigubíla á
álagstímum ef mikið liggur við, t.d.
um helgar.
m- Heimildarmaður DV sagðist hafa
upplýsingar um að hálftíma töf
hefði orðið í Alfa-útkalli af þessum
sökum. Útkallsmál þyrluflugmanna
munu einnig hafa komið til um-
ræðu innan deilda SVFÍ. Páll Hall-
dórsson, yfirflugstjóri hjá Landhelg-
isgæslunni, sagðist ekki vilja tjá sig
um þessi mál. Hann segist þó ekki
vita tU að nein vandræði hafi skap-
ast af þessu ástandi. „Það verður
vonandi heldur ekki á meðan þetta
er í gangi.“
Halldór Benoný Nellett er stað-
* gengill Hafsteins Hafsteinssonar,
forstjóra Landhelgisgæslunnar, sem
er í fríi. „Þetta er viðkvæmt samn-
ingamál og viðræður hafa verið í
gangi við flugmenn vegna þess. Það
er verið að reyna að leysa þetta. Við
höfum vissulega áhyggjur af þessu
ástandi. Þetta hefur þó ekki valdið
vandræðum svo ég viti til,“ sagði
Halldór Benoný Nellett.
-HKr.
Þingmannakærleikur
Össur Skarphéöinsson fékk margar
og innilegar hamingiuóskir eftir
glæsilegt kjör hans til formanns
Samfylkingarinnar. Hér er þaö al-
þingismaöurinn Þorgeröur Katrín
Gunnarsdóttir sem óskar honum til
hamingfu meö unnin afrek á sviöi
stjórnmálanna.
WERI EKKI BETRA AÐ
FÁ ÚTIBÚ Á HRAUNIÐ?
Sjóvarnargaröur klár
Framkvæmdum viö sjóvarnargarö sem nær allt frá Laugarnestanga og vestur á Seltjarnarnes er nú lokiö eftir aö síö-
asti steinninn small á sinn stað í gær. Svæöiö tekur á sig skemmtilega mynd eftir þessar framkvæmdir. Meö þessu
er búiö aö tengja saman varnargarða á Seltjarnarnesi og í Reykjavík og ströndin hefur breytt um svip.
Viðskiptahallinn:
Einsdæmi meðal
þróaðra þjóða
Langvarandi viðskiptahalli er
farinn að valda vaxandi áhyggj-
um í fjármálakerfi landsins.
Seðlabanki íslands hefur m.a.
sent frá sér aðvörun og talið er að
viðskiptahallinn geti að óbreyttu
ógnað stöðugleika í efnahagsmál-
um.
í skýrslu Seðlabanka segir að
viðskiptahallinn á síðasta ári hafi
verið 6,7 prósent af landsfram-
leiðslu . Svo mikill viðskiptahalli
sé nánast einsdæmi meðal þró-
aðra þjóða. Síðasta ár var annað
árið í röð með miklum viðskipta-
halla og Seðlahankinn segir alvar-
legt að samkvæmt mati Þjóðhags-
stofnunar séu ekki líkur á að hall-
inn minnki að óbreyttu á næstu
árum. Þá mældist hækkun vísi-
tölu neysluverðs 6 prósent í byrj-
un apríl. Það sé meira en verið
hafi frá því verðbólga komst nið-
ur fyrir tveggja stafa tölu í upp-
hafi tíunda áratugarins. Verð-
bólgan nú eigi rætur að rekja til
ofþenslu og spennu á fasteigna-
markaði. Um 70% hækkunar
neysluverðs megi rekja til hækk-
unar á húsnæði og bensíni. Þá
segir að nánast engin merki sjáist
enn um að ofþensla sé tekin að
hjaðna. -HKr.
Fangi sýknaður af ákæru um fjársvik - ólögleg millifærsla í Búnaðarbankanum:
Bankinn tapar 620
þús. af úttekt fanga
- dómarinn segir ákæruvaldið ekki hafa reynt að sanna grunnatriði aðalkröfu
Fangi á Litla-Hrauni hefur ver-
ið sýknaður af ákæru Lögreglu-
stjórans í Reykjavík um fjársvik
og skaðabótakröfu Búnaðarbanka
íslands upp á samtals tæplega 1,7
milljónir króna. Ástæða sýknunn-
ar er sú að ákæruvaldið reyndi í
raun ekki að sanna grunnatriði
málsins gagnvart aðalkröfu máls-
höfðunarinnar. Á hinn bóginn tók
dómurinn ekki mið af varakröfu
lögreglustjóra.
Mál þetta þýðir i raun að Bún-
aðarbanki íslands tapar a.m.k. 620
þúsund krónum - fjármunum sem
fanginn átti ekki en náði engu að
síður að ráðstafa í eigin þágu.
Bankinn hefur „fryst" mn 140 þús-
und krónur. í málinu voru 760
þúsund krónur einhverra hluta
vegna - gegn reglum bankans -
millifærðar af reikningi ákveðins
viðskiptavinar Búnaðarbankans í
Mosfellsbæ inn á reikning fang-
ans í íslandsbanka.
Fanginn neitaði sök. Hann
kvaðst reyndar hafa átt von á að
peningarnir, 760 þúsund, yrðu
lagðir inn á reikning hans um það
leyti sem raun bar vitni, 1. sept-
ember siðastliðinn, en hann hafi
ekki vitað nákvæmlega hvaða dag
það yrði. Fanginn kvaðst fyrir
dómi ekki geta skýrt frá hvaðan
peningamir kæmu en hann hafi
ekki vitað annað en að þeir væru
löglega fengnir.
Millifærslan af reikningi við-
skiptavinar Búnaðarbankans í
Mosfellsbæ fór fram með þeim
hætti að ókunnur maður hringdi í
starfsmann útibúsins, gaf upp síð-
ustu fjóra tölustafma í kennitölu
reikningseigandans og fékk
þannig 760 þúsund krónur milli-
færðar á reikning fangans í ís-
landsbanka. 610 þúsund krónur
voru síðan teknar út í íslands-
banka og 10 þúsund nokkru síðar.
Eftir það var afgangur á reikningi
fangans frystur og maðurinn
ákærður.
Héraðsdómur Reykjavíkur tek-
ur fram í dómi sínum að hvorki
starfsmaður bankans sem sá um
millifærsluna né heldur skrif-
stofustjóri útibúsins hefðu verið
leiddir fyrir dóminn. Heldur ekki
sjálfur eigandi reikningsins i Mos-
fellsbæ. Dómurinn tekur fram í
Langgöngur Haralds:
Þetta er eiginlega ómennskt
„Þetta er eiginlega ómennskt að
gera þetta dag eftir dag. Haraldur
hefur verið að fara 7 göngulotur á
dag sem er ein og hálf klukkustund
hver. Hann er þá á ferðinni í um 12
klukkustundir á dag með stuttum
hvíldum. Við fórum yfirleitt 5 göngu-
lotur á dag á Suðurpólnum og á
Grænlandi og þótti alveg nóg. Stund-
um fórum við 6 en þá þurfti maður
að borga vel fyrir líkamlega á eftir,“
sagði Ólafur Örn Haraldsson, faðir
Haraldar Amar. Pólfarinn sagði fóð-
ur sínum í símtali í nótt að hann
hefði lagt að baki heila 21.6 kíló-
- segir faðir hans
metra á göngu
sinni í gær.
„Það var allt
mjög gott að frétta
af Haraldi. Mikil
ánægja og gleði.
Hann á nú eftir
um 38 kílómetra
en eitthvað rak
hann til baka, 1-2
kílómetra," sagði
Ólafur Öm. Með
sama áframhaldi nær Haraldur póln-
um að líkindum annað kvöld, mið-
vikudagskvöld. Daginn eftir, fimmtu-
Haraldur
Ólafsson.
daginn 11. maí, standa síðan vonir til
að flugvél með bakvarðasveit leið-
angursins og Unu Ómarsdóttur,
konu Haralds, lendi á pólnum til að
ná í göngugarpinn eftir að hafa ver-
ið 62 daga á ferðinni á pólinn. Það er
hins vegar háð því að sólin skíni því
flugmennimir verða að hafa viðmið-
un - skugga - til að geta lent og forð-
ast snjóblindu. Haraldur verður
fyrsti íslendingurinn til að ganga á
norðurpólinn og einn fárra í heimin-
um sem bæði hefur gengið á hann og
suðurpólinn.
-Ótt
niðurstöðu sinni að ákæruvaldið
hefði við dómsmeðferðina ekki
reynt að sanna grunnatriði máls-
ins - að færsla 760 þúsund króna
af reikningnum í Mosfellsbæ inn
á reikning ákærða væru fangan-
um saknæm. Varakrafa ákæru-
valdsins var sú að fanginn yrði
sakfelldur fyrir ólögmæta meðferð
fundins fjár. Dómurinn tók ekki
mið af henni: Hann telur að
ákæruvaldinu beri að sanna sekt
sakbomings og atvik sem telja
megi honum í óhag og meginregla
réttarfars sé sú að dómur skuli
reistur á sönnunargögnum sem
færð eru fram við meðferð máls
fyrir dómi.
-Ótt
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PU RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA