Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Síða 5
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000
23
DV
Sport
Blcand * i rss ka
ÍBV sigraði FH, 4-0, í árlegum
minningarleik um Lárus Jakobsson úr
Vestmannaeyjum, knattspymuírömuð
og guðfóður Shell-mótsins, sem lést um
aldur iram. Allan Mörköre skoraði
þrennu og Steingrimur Jóhannesson 1.
/BV-liðið dvaldi í æfmgabúðum á
Hvolsvelli um helgina
Frönsku knattspyrnunni lauk um helg-
ina. Monaco hafði fyrir löngu tryggt sér
titilinn og leikur í meistaradeild Evrópu
ásamt Paris St. Germain og Lyon. í
UEFA-bikamum leika Bordeaux,
Nantes, sem bikarmeistari, Gueugnon.
Montpellier, Le Havre og Nancy féllu í 2.
deild og þeirra sæti taka Liile, Guingamp
og Toulouse eða Sochaux.
Dunaferr Dunaujvaros vann um helg-
ina í fyrsta sinn ungverska meistaratitil-
inn í knattspymu þegar liðið sigraði
fyrrverandi meistara MTK frá Búdapest.
Glasgow Rangers sigraði Hearts, 1-0, í
skosku úrvaisdeildinni í knattspymu
um helgina. Celtic gerði markalaust jafn-
tefli við St. Johnstone á útivelli. Spennan
fyrir lokaumferðina næsta laugardag
felst í því hvort það verður Hearts eða
Motherwell sem tryggja sér sæti í
UEFA-bikamum.
Breskir fjölmiólar sögðu frá því í gær
að skoska liðið Celtic hefði boðið David
O’Leary, knattspymustjóra Leeds, risa-
samning gerðist hann knattspymustjóri
félagsins. Honum eiga að hafa verið
boðnar um 220 mihjónir í árslaun sem
gerði hann að tekjuhæsta stjóra Bret-
landseyja. Peter Ridsdale, stjómarfor-
maður Leeds, segir að O’Leary fari
hvergi.
Leeds United hefur gengið frá kaupun-
um á Frakkanum Olivert Dacourt frá
Lens fyrir um 900 milljónir og hefúr fé-
lagið aldrei greitt jafhmikið fyrir leik-
mann áður.
Terry Brown, stjómarformaður West
Ham, var í Frakklandi um helgina og
gekk þá formlega frá kaupunum á sókn-
armanninum Frederic Kanoute frá
Lyon og greiddi fyrir hann 400 milljónir
kióna.
Sporting frá Lissabon varð í gær
portúgalskur meistari þegar liðið sigraði
Salgueiros, 4-0.18 ár em síðan liðið varð
meistari siðast.
Deportivo Coruna gerði markalaust
jafhtefli við Racing Santander á Spáni í
gær og hefur þriggja stiga forystu á
Barcelona fyrir lokaumferðina um
næstu helgi. Barcelona gerði einnig
markalaust jafntefli við Real Sociedad.
Keflvikingar fengu í gær skoska
vamarmanninn Lian O'Sullivan frá
Hibemian til reynslu. Leikmanninn, sem
er 19 ára, geta Keflvíkingar fengið að
láni í sumar ef þeim líst á hann.
Tékkar vörðu heimsmeistaratitil sinn í
íshokkí í gær með þvi að leggja Slóvaka
í úrslitaleik, 5-3, í Pétursborg.
Litháinn Ramunas Mikalonis hefur
skrifað undir 3ja ára samning við
handknattleikslið Selfoss. Hann er
örvhent skytta, 25 ára, og talinn mjög
sterkur leikmaður.
Meiðsli hjá
KR-ingum
Titilvömin í sumar gæti reynst
Islands- og bikarmeisturum KR erf-
ið. Mikið er um meiösli í herbúðum
félagsins og útlit fyrir að KR mæti
til leiks án fjölmargra fastamanna í
fyrsta leik sinn í Landssímadeild-
inni gegn Fram á fimmtudaginn
næstkomandi.
Eins og áður hefur verið greint
frá í DV eru Þórhallur Hinriksson
og Kristján Finnbogason meiddir og
munu missa af fyrstu leikjum liðs-
ins. Fleiri leikmenn eru einnig á
þröskuldi þess að verða spilfærir.
Andri Sigþórsson er nýstiginn upp
úr erfiðum meiðslum, Þorsteinn
Jónsson tognaði á læri í leik gegn
KA í deildarbikamum, Einar Þór
Daníelsson kom heim meiddur frá
Lilleström í Noregi, Sigursteinn
Gíslason og Amar Jón Sigurgeirs-
son meiddust báðir í æfingaleik
gegn Selfossi á fostudaginn og ekki
er enn komið í ljós hver þeirra get-
ur spilað fyrsta leikinn. Ljóst er á
þessari upptalningu að KR-ingar
eiga við vandamál að stríða, vanda-
mál sem getur reynst þeim dýrkeypt
í fyrstu sex umferðunum sem em
spilaðar mjög þétt.
-SK
Leikmenn sem og áhangendur Lazio grétu af gleði þegar meistaratitillinn var í höfn á Ólympíuleikvanginum í Róm (
gær eftir sigurinn á Reggina. Þetta var annar meistaratitiil liðsins en sá fyrsti vannst fyrir 26 árum. Reuter
Ítalía:
Lazio
meistari
Lazio varð í gær ítalskur
meistari í knattspymu í annað
skiptið í sögu félagsins. Þetta var
besta afmælisgjöfm sem félagið
gat hugsað sér en það verður 100
ára gamalt á þessu ári.
í lokaumferðinni sigraði Lazio
lið Reggina, 3-0, á heimavelli en
Juventus, sem var í efsta sæti
fyrir umferðina, tapaði á útivelli
fyrir Perugia.
Lazio hlaut 72 stig, Juventus
71 stig.
Úrslit í gær:
Bari-Bologna..........1-1
1-0 Osmanovski (8.), 1-1 Signori (22.)
Cagliari-Inter Milan .0-2
0-1 Baggio (74.), 0-2 Zamorano (87.)
Fiorentina-Venezia ...3-0
1-0 Pierini (8.), 2-0 Batistuta (18.), 3-0
Batistuta (80.)
Lazio-Reggina ........3-0
1-0 Inzaghi (33.), 2-0 Veron (37.), 3-0
Simeone (73.)
AC Milan-Udinese......4-0
1-0 Bierhoff (12.), 2-0 Shevchenko
(39.), 3-0 West (59.), 4-0 Leonardo (85.)
Parma-Lecce ..........4-1
1-0 Di Vaio (2.), 2-0 Stanic (54.), 3-0
Crespo (57.), 3-1 Lucarelli (72.) 4-1
Stanic (87.)
Þýski handboltinn um helgina:
Perugia-Juventus ..........1-0
1-0 Calori (49.)
Torino-Piacenza............2-1
Spenna a toppnum
0-1 Gilardino (15.), 1-1 Ferrante (16.),
2-1 Ferrante (29.)
Verona-AS Roma............2-2
0-1 Tommasi (8.), 1-1 Adailton (12.),
2-1 Cammarata (53.) -JKS
- Kiel og Flensburg heyja harða baráttu um titilinn
Fyrsti sigurinn
Kiel og Flensburg eru efst og jöfn
fyrir lokaumferðina í þýska hand-
boltanum sem verður háð næsta
sunnudag. Kiel tapaði í gær fyrir
Grosswaldstadt á útivelli, 29-24, en
á sama tíma sigraði Flensburg lið
Frankfurt á heimavelli, 29-25. Kiel
og Flensburg hafa 50 stig en í síð-
ustu umferð leikur Kiel heima á
móti Lemgo og Flensburg á útivelli
gegn Eisenach.
Frakkinn Richard Richardson
var markahæstur 1 liði Grosswald-
stadt gegn Kiel og skoraði 6 mörk.
Hjá Kiel var Daninn Nikolaj Jakob-
sen atkvæðamestur með 9 mörk.
Daninn Christansen skoraði 10
mörk fyrir Flensburg gegn Frank-
furt.
Guðmundur Hrafnkelsson og fé-
Genk bikarmeistari:
Þórður skoraði
tvö mörk
Þóröur Guðjónsson og samherjar
hans í Genk urðu í gær bikarmeist-
arar í knattspymu þegar liðið sigr-
aði Standard Liege, 4-1, í úrslitaleik
í Brussel. Þórður var í essinu sínu í
leiknum og skoraði tvö mörk.
Með þessum sigri tryggði Genk
sér sæti í UEFA-bikamum ásamt
Brúgge og Ghent.
-JKS
lagar í Nordhom unnu Wuppertal,
24-25. Heiðmar Felixsson og Dagur
Sigurðsson skomðu 5 mörk hvor
fyrir Wuppertal sem eygir harða
baráttu við Bayer Dormagen en
þriöja neðsta sætið fer í umspil um
áframhaldandi vem i efstu deild.
Lemgo sigraði Dormagen, 20-15,
eftir að staðan í hálfleik var 9-11
fyrir Dormagen. Héðinn Gilsson
skoraði tvö mörk fyrir Dormagen og
þeir Róbert Sighvatsson og Daði
Hafþórsson eitt mark hvor.
Essen og Minden gerðu jafntefli,
29-29, þar sem Patrekur Jóhannes-
son skoraði níu mörk fyrir Essen,
þar af þrjú úr vítaköstum. Af þessu
markaskori Patreks má ætla að
hann sé að ná sér á strik í sóknar-
leiknum.
Ómar Valdimarsson, fyrirliði Fylkis,
hampar bikarnum.
Gummersbach og Magdeburg
skildu jöfn, 26-26, og skoraði Ólafur
Stefánsson fjögur mörk fyrir Mag-
deburg.
Wetzlar sigraði Bad Schwartau,
22-19, og skoraði Sigurður Bjarna-
son eitt mark fyrir Wetzlar.
Gústaf Bjamason skoraði fjögur
mörk fyrir Willstátt sem sigraði
Eisenaeh, 24-21. Willstatt er þegar
fallið í 2. deild ásamt Schutterwald.
Julian Róbert Duranona skoraði
fjögur mörk fyrir Eisenach. Nettel-
stedt vann síðan öruggan sigur á
Schutterwald, 33-22.
Kiel og Flensburg eru með 50 stig.
Lemgo og Magdeburg eru jöfn í 3.-4.
sæti með 47 stig og Norhom er í
fimmta sæti með 45 stig.
-JKS
Reykj avíkurmótið:
Fylkir vann
Fylkir varð Reykjavíkurmeistari
í knattspyrnu sl. föstudagskvöld
þegar liöið sigraði Val, 5-0, í
úrslitaleik. Þetta er í annað sinn
sem liðið vinnur þennan titil en
síðast gerðist það 1981.
Gylfi Einarsson og Sævar Þór
Gíslason skoruðu tvö mörk hvor og
Sigurður Karlsson gerði eitt. Fyrstu
tvö mörk Fylkis komu eftir sjö
mínútna leik.
-JKS
hjá 76’ers
Tveir leikir vora í úrslitakeppni
NBA í gærkvöld. Utah sigraði
Portland, 88-85, og er staðan í
einvíginu 3-1 fyrir Portland. Karl
Malone skoraði 27 stig fyrir Utah. Þá
sigraði New York lið Miami Heat,
91-83, og er staðan í einvíginu 2-2.
Philadelphia vann sinn fyrsta sigur
í viðureigninni gegn Indiana í
hörkuspennandi leik, 92-90. Staðan i
einvíginu er 3-1 fyrir Indiana og þarf
einn sigur í viðbót til að tryggja sig
áfram. Rik Smits var stigahæstur hjá
Indiana og skoraði 20 stig og þeir
Jalen Rose og Reggie Miller skoruðu
16 stig. Allen Iverson skoraði 19 stig
fyrir Philadelphia og Tyrone Hill
skoraði 18 stig.
LA Lakers stendur með pálmann í
höndunum eftir þriðja sigurinn gegn
Phoenix Suns, 99-105. Penny
Hardaway var stigahæstur hjá
Phoenix og skoraði 31 stig. Hjá LA
Lakers var Shaquille O’Neal sem fyrr
í aðalhlutverkinu, skoraði 37 stig og
tók 17 fráköst. Kobe Bryant skoraði 25
stig. Staðan í einvíginu er 3-0 fyrir
Lakers sem þarf einn sigur til.
-JKS
Sjö hjá Skaganum
ÍA vann Þrótt, Reykjavík, 7-1, í
æfingaleik um helgina. Hjörtur
Hjartarson (2), Guðjón Sveinsson (2),
Grétar Steinsson, Uni Arge og Kári
Steinn Reynisson skoruðu mörk ÍA.
Lillestrom upp um þrjú sæti
Eftir mjög erfíða byrjun náði
Lilleström sér í þrjú dýrmæt stig í
viðureign sinni við Válerenga, á
Ullevaal, á laugardaginn. Rúnar
Kristinsson átti einn sinn besta
leik í sumar og lagði upp mark
sinna manna með glæsilegum
einleik í gegn um Váleringa-
vömina.
„Þetta var nú kannski ekkert
góður leikur en hann var
spennandi. Spilið er að lagast hjá
okkur en er samt ekki orðið eins
gott og í fyrra. Við erum ekki að
skapa nógu mikið af færum. Þeir
sköpuðu sér fleiri góð færi en við
skoruðum úr eina færinu sem við
fengum og það er það sem skiptir
máli,“ sagði Rúnar Kristinsson.
Stabæk mátti sætta sig við 1-1
jafntefli gegn Moss eftir að hafa
náð forystu. Stóra vandamálið hjá
Stabæk er að liðið nær ekki að
skora mörk þrátt fyrir að fá til
þess færin.
Ríkharður skoraði
Viking gerði góða ferð til
Tromsö og valtaði, með 2-5 sigri,
yfir gestgjafa sína á Alfheim
Stadion. Ríkharður Daðason var
meðal markaskorara Viking og átti
góðan leik sem og Auöun
Helgason. Tryggvi Guðmundsson
átti ágætan leik með Tromsö og
skoraði seinna mark þeirra úr
vítaspymu.
Ekkert lið í úrvalsdeildinni
hefur valdið meiri vonbrigðum í
sumar en Tromsö sem spáð var
jafnvel öðru sæti deildarinnar
áður en leiktímabilið hófst. Liðið
er nú aðeins einu stigi frá
fallbaráttunni og því þungskýjaö
yfir snjósköflimum sem enn gera
fólki lífiö leitt í Tromsö-bæ.
Stuðningsmenn Rosenborg
önduðu léttar þegar Árni Gautur
Arason birtist á milli stanganna á
ný eftir meiðsli og lögfræðipróf í
síðustu leikjum liðsins.
Meistaramir þurftu lítið að hafa
fyrir 3-1 sigrinum á nýliðunum
Start í Kristiansand og sitja enn
fast á toppi deildarinnar.
Brann fylgir meisturunum eftir
eins og skugginn og átti ekki í
erfiðleikum gegn Bryne. Brann
skoraði þrisvar án svars frá
gestgjöfunum. -JKS/GÖ