Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Qupperneq 8
26
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000
Sport
JOV
HESTAmo/ar
Ársþing Landsambands
hestamanna verður haldið í
íþróttahúsinu i Mosfellsbæ dag-
ana 27. og 28. okt. nk.
Erling Sigurðsson
og Glitnir sigruðu
með glæsibrag í tölti
Stóðhesturinn Andvari frá
Ey hefur verið helsjúkur af stíf-
krampa frá því um miðja síð-
ustu viku. Hann hefur verið í
fóðrun á Skarði í Landsveit og
hefur húsfreyjan Fjóla Rúnars-
dóttir annast hestinn nótt sem
dag ásamt dýralækni. Líðan
hestsins hefur verið mjög tví-
sýn. Andvari hefur verið vin-
sæll kynbótahestur á síðustu
árum.
hjá Andvara
Stifkrampi í hrossum er
mjög sjaldgæfur en getur komið
upp þar sem hænsn hafa verið
fyrir. Ábúendur á Skarði segja
að slíkt tilfelli hafi aldrei komið
upp hjá þeim.
„Hlaupa- og kynbótabrautin
í Víðidal er sú besta fyrr og síð-
ar,“ segja þeir sem hafa hvað
mestu reynsluna, þeir Ragnar
Hinriksson og Sigurbjörn
Bárðarson. Tímamir sem þeir
fóru á á fimmtudaginn siðastlið-
in segja allt sem segja þarf.
Raggi á 14,2 i 150 m skeiði á
Vigra og Diddi á 21,6 i 250 m
skeiði á Ósk frá Litla-Dal. Frá-
bærir tímar á þessum tíma árs.
Björn Steinbjörnsson dýra-
læknir hefur í samstarfí við
Hrossaræktarsamband Austur-
lands komið á fót fersksæðing-
um í landsfjórðungnum. Sætt
verður á KetÚsstöðum í vor.
Nokkur kurr er í mönnum út
af aðgangseyri sem innheimtur
var á stóðhestasýningunni í
Víöidal en þar þurftu menn að
láta af hendi 1.600 kr. Og ekki
bætti úr skák þegar á Reiðhall-
arsýninguna kom, þá fóru 2.800
kr. úr veskinu.
Margir hafa beðió spenntir
eftir að draumahesturinn Suðri
frá Holtsmúla verði sýndur í
kynbótadómi. Nú rætist draum-
urinn því hesturinn fer í for-
skoðun á sýningu á Gaddstaða-
flötum siðar í mánuöinum.
Þeir sem sjá um skráningu
hrossa sem fara eiga í dóm á
Gaddstaðaflötum eru famir að
hafa áhyggjur af þeim fjölda sem
nú þegar er kominn.
Sex iþróttamót fóru fram um
helgina á suðvesturhominu og
margir veltu þvi fyrir sér hvort
þetta væri ekki fullmikið af því
góða. Það getur verið erfitt að
finna dómara á öll þessi mót.
Auk þess er erfitt fyrir almenn-
ing að fylgjast með, hvað þá fjöl-
miðla.
Baldurfrá Bakka er kominn
til Vals Blomsterberg í Kalifom-
íu og gerir það gott. Gríðarleg
ásókn er í klárinn hjá kali-
fomiskum merum. Enda undrar
það engan, klárinn er heims-
meistari í fimmgangi og feikna
reiðhross.
Ferðanefnd Fáks hefur verið
með öflugt starf undanfarin ár
og skipulagt rómaðar ferðir um
heiðlönd og sveitir landsins. Nú
stendur til að fara Reykjanes-
ferð þann 3. og 4. júni. Fleiri
spennandi ferðir eru á dag-
skránni í sumar. -HÓ
Það má segja að hestaíþróttamenn
hafi verið á mikilli yfirreið um helg-
ina því hvorki fleiri né færri en 10
íþróttamót voru haldin á sama tima.
Óll mótin voru hér á suðvesturhomi
landsins og viðraði frábærlega flesta
dagana nema seinnipart sunnudags-
ins.
Skráning var misgóð og telja menn
að úrtaka fyrir landsmót hafi haft þar
áhrif á en hún mun fara fram hjá vel-
flestum þessara félaga i lok þessa
mánaðar.
Ánægjulegt er að sjá hve keppnis-
vellir hjá félögunum á Reykjavíkur-
svæðinu eru orðnir góðir og þá sér-
staklega hjá Sörla í Hafnarfirði en fé-
lagið hefur verið að koma upp nýjum
velli nú á vordögum.
Að raða þessum mótrnn öllum á
sama tíma er nokkuð sérkennilegt í
ljósi þess að flest þeirra voru opin
mót. Svo getrn- verið erfitt að fá dóm-
ara og setur það þátttakendur í erflða
stöðu með að velja mót.
Mikil og ör þróun hefur verið í
hestamennsku á íslandi undanfarin
ár og gildir það um allflesta mála-
flokka. Einn liður sem setið hefur
nokkuð á hakanum er að tilkynna
lokaúrsht um leið og mótum lýkur til
fjölmiðla sem annarra. Fæstir dóm-
pallar eru símatengdir og einhver
misbrestur er á tölvuvæðingu hjá fé-
lögunum. Þetta verður að laga svo
hestaíþróttir og hestamennska fái
verðskuldaöa athygli. -HÓ
Will Coweet á Djákna sigraði í tölti hjá Fáki.
DV-myndir HÓ
Helgina áður var sýning í
Ölfushöilinni á útvöldum stóð-
hestum en þar þurftu menn ein-
ungis að greiða 1.800 kr fyrir að
sjá sýninguna og ball í bónus á
eftir. Var góður rómur gerður af
sýningunni og ballinu.
Davíð Matthíasson, sigurvegari í ungmennaflokki í fimmgangi