Dagblaðið Vísir - DV - 15.05.2000, Side 10
28
MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2000
Sport unglinga_______________________________________________________________pv
Storsigur
FH á Val í bikarúrslitum 2. flokks kvenna
FH varð bikarmeistari í 2. flokki
kvenna með því að vinna stóran 17
marka sigur á Val í úrslitaleik,
29—12. FH vann KA í undanúrslit-
um en Valur sló út ÍR.
Harpa Vífilsdóttir, sem spilar
vanalega sem hornamaður í 3.
flokki, fór í FH-markið í úrslita-
leiknum og var besti maður vall-
arsins og varði alls 25 skot. Drífa
Skúladóttir, fyrirliði FH, átti líka
fínan leik, gerði sjö mörk og átti
sex stoðsendingar á fé- ^ w
laga sína. Þær voru
báðar kátar eftir leik ÆF
og sögðust ekkert I
sjá eftir því að vera m jr
ekki með í íslands- w I* “
mótinu í ár.
Þetta eru 14 titlar
á fimm árum hjá fjór-
um stúlkum í FH-lið-
inu: Drífu, Dag-
nýju Skúla-
dótt-
Guðrúnu Hólmgeirsdóttur og Þór-
disi Brynjólfsdóttur, en vegna mik-
ils álags í meistaraflokki I vetur
var FH aðeins með í bikarkeppni 2.
flokks. Þær fjórar unnu fyrstu
titlana með ÍR en síöustu 10 titlana
unnu þær með FH.
Mörk FH: Drífa Skúladóttir 7, Þórdís
Brynjólfsdóttir 6/2, Hafdís Hinriksdóttir
6, Gunnur Sveinsdóttir 4, Sigrún Gilsdótt-
ir 3, Guðrún Hólmgeirsdóttir 2, Dagný
Skúladóttir 1. Mörk Vals: Ámý Isberg 2,
Eygló Jónsdóttir 2, Elfa Hreggviðsdóttir 2,
Kolbrún Franklin 2/1, Marín Sörens 1,
Lísa Njálsdóttir 1, Svanhildur Þorbjöms-
dóttir 1, Anna M. Guðmundsdóttir 1.
1982-árgangur KR í körfunni
Bestu leikmenn FH í bik-
arúrslitaleik 2. flokks
kvenna: Drífa Skúladóttir
fyrirliöi (til vinstri) og
Harpa Vífilsdóttir mark-
vöröur. Æ
í röð Islandsmeistara í sínum árgangi
* Wa .
nm jk ip j?, s* i
m J ,1 i:9Bl : m
K
Hér aö ofan er drengja-
flokkur KR sem varö
íslandsmeistari sjöunda
áriö í röö í vetur.
Hér til hægri lyftir
Björgvin Björnsson
íslandsmeistarabikarn-
um og lengst til hægri er
besti maöur KR í
úrslitaleiknum gegn ÍR,
Hjalti Kristinsson, en
hann geröi 27 stig á 28
mínútum og hitti úr
öllum tíu vítum sínum.
Hjalti Kristinsson úr KR:
27 stig á 28
mínútum
Hjalti Kristinsson átti mjög góðan leik í úr-
slitaleiknum gegn ÍR i drengjaflokki. Hjalti
skoraði 27 stig á 28 mínútum, tók 8 fráköst og
hitti úr 7 af 13 skotum utan af velli og öllum 10
vítaskotum sínum.
„Mér gekk mjög vel. Eftir að hafa ekki geng-
ið nógu vel í fyrri hálfleik ákvað ég að koma vel
stemmdur í seinni hálfleik. Við vorum undir í
hálfleik en staðan gaf ekki rétta mynd af getu
liðanna og ég mætti brjálaður inn í seinni hálf-
leikinn. Ég er búinn að æfa síðan ég var 10 ára
og hef verið Islandsmeistari með þessum strák-
um síðustu sjö árin. Við erum búnir að halda
hópnum saman allan þennan tíma eftir að
nokkrir eldri strákar í hverfinu fóru í körfu og
við eltum. Ég fékk nokkra leiki með meistara-
Qokki í vetur og ætla að reyna að vera meira
með þar næsta vetur,“ sagði Hjalti í leikslok.
FNALA
ÓLAGA
1982-árgangur KR í
körfunni er á góðri leið
með að verða sigursæl-
asti árgangur í sögu ís-
lenska körfuboltans en
liöiö varð íslandsmeistari
í drengjaflokki í vetur og
það var jafhframt sjöunda
árið í röð því KR-ingar
hafa orðið íslandsmeistar-
ar á hverju ári frá því að
þeir unnu fyrst í minni-
bolta árið 1994.
KR fékk þó verðuga
keppni í úrslitaleiknum í
ár þar sem bikarmeistar-
ar ÍR-inga voru með for-
ustu í hálfleik, 34-33, og
leikurinn hélst jafn allt
þar til í lokin. KR vann
þó á endanum, 76-61.
Hjalti Kristinsson, Jón
Arnór Stefánsson og
Valdimar Helgason léku
best KR-inga en Sigurður
Tómasson var í sérflokki
í liði ÍR.
Stlg KR: Hjalti Kristinsson 27,
Jón Amór Stefánsson 15, Jak-
ob Sigurðarson 13, Valdimar
Helgason 12, Helgi Már Magn-
ússon 8, Óskar Arnórsson 1.
Stig ÍR: Sigurður Tómasson
18 (9 stoðsendingar, 9 frá-
köst, 6 stolnir, 5 varin skot),
Ómar Sævarsson 13 (15 frá-
köst), Ólafur Long 9, Ingvar
Helgason 8, Ólafur Sigurðs-
son 7 (6 stoðsendingar), Ólaf-
ur Þórisson 6. -ÓÓJ