Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2000, Síða 14
30
MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 2000
Þessi fallegu gömlu hús, sem öll hafa veriö tekin í gegn, setja fallegan svip á bæjarbraginn en þau standa eins og sjá má viö Tjömina í Reykjavík.
Endurbygging gamalla húsa:
Útlitið segir ekki allt
- segir Bragi Blumenstein arkitekt sem hefur sérhæft sig í endurbyggingu eldra húsnæðis
Bragi Blumenstein arkitekt.
_ Hann segir mikilvægt aö
fólk fái fagmenn til aö
ástandsskoöa hús sem þaö
hefur í hyggju aö kaupa
því útlitiö geti veriö
blekkjandi. Fólk þurfi aö
gera sér góöa grein fyrir
því út í hvaö þaö er aö
fara því kostnaöur viö
endurbyggingu sé oft mik-
ill.
„Þegar gamalt hús er keypt er að
ýmsu að hyggja. Fyrst skyldi skoða
hverrar gerðar húsið er en gömul
hús geta verið af ýmsum toga, s.s.
bárujárnsklædd timburhús, báru-
járnshús og timburhús. Aldur
þeirra skiptir miklu máli. Erfíðast
er að meta ástand húsa sem byggð
eru fyrir árið 1903 þar sem fyrir
þann tíma var engin eiginleg bygg-
ingarreglugerð til og hús því byggð
með ýmsum efnum. Fólki var frjálst
hvernig það byggði. Efniviður í
þessum húsum er af öllum gerðum
og mjög mismunandi að gæðum og
ekki er hægt að ganga að neinu vísu
i þvi efni.
Ástandsskoöun
Ég tel það mjög mikilvægt að fólk
leiti sér ráðgjafar og fái fagmenn til
að ástandsskoða hús sem það hefur
í hyggju að kaupa. Það þarf að gera
almenna ástandskönnun á húsinu
þar sem ákveðin atriði eru könnuð.
Það er nánast hægt að hafa gátlista
með sér og tékka hann af. Meðal at-
riða sem vert er að skoða er stærð,
burðarvirki, staðsetning á loftunar-
rýmum, hvar einangrun er til stað-
SANYL
ÞAKRENNUR
• RYÐGAEKKI.
m • PASSA f GÖMLU RENNUJÁRNIN.
• STANDASTISLENSKT VEDURFAR.
• AUDVELDAR IUPPSETNINGU.
• ÚDÝR OG GÓDUR KOSTUR.
Fást í flestum byggingavöru-
verslunum landsins.
Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755
ar og hvar lekavandamál geta kom-
ið fram. Frágangur við glugga og
hurðir, svo og frágangur við þak-
brún, er mjög mikilvægur. Einnig
þarf að skoða vel ástand drenlagna
hússins. Vandamál í kringum hús
koma oft fram þar sem nýtingu
kjallarans er breytt úr því að vera
köld geymsla í vistarverur. Þegar
aukinn hiti er settur í þennan hluta
hússins getur myndast rakaþétting
sem skapar önnur vandamál. Jafn-
vel getur það farið svo að skipta
þurfi um jarðveg undir og í kring-
um húsin til aö koma i veg fyrir að
vatnið hreinlega leki inn í þau.
Alltaf verib til
Oft hafa heyrst þau sjónarmið að
gömlu handverksmennirnir hafi vit-
að hvað þeir voru að gera og að
gamli frágangurinn væri betri en sá
sem er við lýði í dag. Það er ekki
alls kostar rétt. Það voru líka til
fúskarar á þeim tíma og nóg af
þeim. Mikið af eldra húsnæði er
ekki vel byggt, miðað við þá þekk-
ingu og aðstæður sem voru til stað-
ar á þeim tíma. Þetta á auðvitað
einnig við um húsbyggingar í dag.
Þær eru jafnmisjafnar og mennimir
eru margir. Lek þök og önnur
vandamál, sem við berjumst við í
dag, er ekkert annað en afleiðing af
lélegum frágangi.
Kostnaöur oft mikill
Útlit hússins getur verið blekkj-
andi. Mörg hús líta ágætlega út en
þegar betur er að gáð þarf að leggja
töluverðan tíma og mikla peninga í
að gera þau upp. Menn ættu að gera
sér fullkomlega grein fyrir því hvað
þeir eru að fara út í því margir gef-
ast upp í miðju kafi. Ég mæli einnig
með að fenginn sé fagaðili til að
gera grófa áætlun á kostnaði við
endurbyggingu hússins þannig að
fólk sjái svart á hvítu hve mikill
kostnaðurinn er. Reynslan sýnir að
það er full þörf á því. Um það vitna
öll dómsmálin sem snúast um svona
mál. Endurbygging á húsum getur
verið mjög misjöfn og hægt að
ganga mjög misjafnlega langt í end-
urbyggingunni. Einnig má minnast
á það að kostnaður við að taka nið-
ur vegg og byggja nýjan er meiri
heldur en þegar eingöngu er byggð-
ur nýr. Því má segja að endurbygg-
ing sé í flestum tilfellum dýrari en
nýbygging. Auðvitað eru svo húsin
í mjög misjöfnu ástandi og sum
þeirra þarf að endurbyggja mjög
mikið til að þau verði nothæf. Lög
og reglugerðir gilda svo um endur-
byggingu gamalla húsa og þarf fólk
að kynna sér þau mál mjög vel áður
en hafist er handa.
Huqa skal aö skipu-
lagi hússins
Þekking hins almenna borgara á
endurbyggingum húsa er í mörgum
tilfellum ekki nægileg. Það eru
margir þættir sem hafa áhrif á það
hvemig til tekst með endurbygging-
una og má þar t.d. nefna bæði innra
og ytra skipulag hússins. Fólk fer
oft út í að breyta skipulagi húsanna,
miðað við þær kröfur sem gerðar
eru til íbúðarhúsnæðis í dag, en
gleymir að taka með í reikninginn
þær kröfur sem gerðar eru af yfir-
völdum, t.d. í sambandi við bruna-
varnir, aðgengi, einangrun og ann-
að slíkt. Þetta hefur allt mikil áhrif
á endurbyggingu í dag. Svo eru
mörg hús friðuð að einhverju eða
öllu leyti. Því er ekki hægt að gera
hvað sem er við þau. Ástand eldri
húsa hefur batnað mikið undanfar-
in ár en þó þarfnast mörg þeirra
verulegs viðhalds því viðhaldsmálin
hér á landi hafa ekki verið i nógu
góðu lagi. Það er eins og menn haldi
að ef þeir kaupi hús þá þurfi þeir
ekki að eyða tíma og peningum í
viðhald næstu 30 árin.
Skipuleggja vel
Sæmilega laghent fólk getur gert
margt sjálft þegar kemur að endur-
byggingu gamaUa húsa en það þarf
hins vegar ákveðna stjómun á því
hvaða efni eru notuð, hvernig þau
eru notuð og vinnuna þarf að skipu-
leggja vel. Hér gildir í raun það
sama og í bílaviðgerðum. Það er
ekki hægt að setja varahlut úr nýj-
um Mercedes Bens í gamlan Skóda.
Eins þurfa tæknileg atriði, eins og
lagnir, rafmagn og einangrun, að
vera í lagi. Sem dæmi vil ég nefna
að ef endureinangra á gamalt hús
þarf að huga að mjög mörgmn þátt-
um, s.s. loftunarrýmum, staðsetn-
ingu á vindpappalögum og PAM-
gildi pappans, svo og öllum frágangi
við glugga og hurðir. Það er ekki
alltaf hægt að blanda saman nýrri
og gamalli tækni án þess að skoða
málið mjög vel.
Gömul hús vinsæl
Tilfinning manna fyrir eldra hús-
næði hefur aukist verulega og það
hefur með hugarfarið í þjóðfélaginu
að gera. Menn eru í auknum mæli
að viðhalda gömlum byggðakjöm-
um og götumyndum og vilja búa í
eldra húsnæði. Það segir okkur líka
að eitthvað er að því nýju húsin
sem verið er að byggja virðast ekki
uppfylla þær kröfur sem fólk gerir.
Margir eru að leita að þessu sér-
staka andrúmslofti sem fylgir oft
gömlum húsum og reynist oft erfitt
að búa til í nýjurn."
-ÓSB