Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Page 4
V i kan 26. m a 1 t i I 1 . i ú n l 1i f ið ,E—E—X—X—B Ifókus Argentína steikhús „Eg fór á Argentínu á afmælinu mínu. Það var algjör klassamáltíð og þjónustan alveg súper. Við fengum okkur fjögurra rétta mál- tíð og ákváðum að láta þjóninn ráða þessu fyrir okkur, hafa þetta svona surpræs. Réttirnir voru hver öðrum ljúffengari, hvergi veikur punktur." Kolbrún Pálína Helgadótíir föröunarfrœðingur Árshátíð á Hótel Örk „Ég fór á árshátíð Skjásl. Það mjög kósí og huggulegt. Það var mætt snemma og allir fóru í sund. Síðan var matur- inn og skemmtiat- riði. Að þvi loknu tók hljómsveitin ; Miðnes við og spil- | aði við góðar und- irtektir. En maður kvöldsins var Sjón. Hann tók Lúftgítar, eitt af fáum skiptum sem hann gerir það. Allt I allt var þetta mjög vel heppnuð árshátíð og ég skemmti mér mjög vel.“ Dóra Takefusa, sjónvarpskona á Skjá 1 Indiana Jones: The Last Crusade „Ég leigði mér spólu með stráknum mínum. Við tókum Indi- ana Jones: The Last Crusade. Al- veg djöfulli góð. Við feðgarnir skemmtum okkur hið besta yfir þessu enda segir mamma hans að við séum á svipuðu þroskastigi. Myndin er dálítið ógeðsleg í lokin þegar gaurinn bráðnar en við hlógum bara að þessu. Ég bið spenntur eftir næstu spólu sem við horfum á saman.“ Ingvar Valgeirsson tónlistarmaöur Turbulance 2 „Ég leigði þessa spólu af því ég hef svo gaman af flugvélamyndum. Það er skemmst frá þvi að segja að þessi er alveg hræöileg, svo hræði- leg að það er algjör snilld. Tom Berenger og Jennifer Beals leika að- alhlutverkin og gerist myndin um borð í júmbó- þotu sem er rænt. Ég hló __ eins og vitleys- ingur yfir þessu. Ég hvet fólk alveg eindregið til að taka þessa ræmu.“ Hans Steinar Bjarnason útvarpsmaöur / / Á miðvikudaginn upplifir Nanna Kristín Magnúsdóttir draum margra kvenna. Hún klæðist skjannahvítum brúðarkjól og undirbýr sig fyrir það að ganga takt föstum skrefum inn kirkjugólfið við brúðarmarsinn, Að vísu fer hún ekki alveg svo langt í einleiknum Bannað að blóta í brúðarkjól eftir Gerðí Kristnýju Guðjónsdóttur sem er frumsýndur í Kaffileikhúsinu kl, 20 á miðvikudaginn. Brúðkaupsdagurinn á ab vera fullkominn og þegar gengur illa í hjónabandinu eiga minningarnar um þennan dag að tendra aftur ástarbálið," segir brúðurin Elsa í einleiknum Bannað að blðta í brúðarkjól. Bannað að blóta í brúðarkjól er fyrsta verk af sex í einleikjaröðinni í öðrum heimi... sem KafFileikhúsið sýnir nú á árinu. Frá miðvikudegin- um munu einleikir verða frumsýndir með jöfnu millibili út árið. í mars á næsta ári er áætlað að hóa í alla leik- arana úr einleikjunum og halda ein- leikjahátið með þeim sem hafa þegar verið frumsýndir og kannski fleir- um. Þriðji brúðarkjóllinn Einleikurinn fjallar um Elsu sem er að fara að gifta sig. Við fylgjumst með henni í klukkutíma á sjáifan brúð- kaupsdaginn, daginn sem umbreytir hvaða konu sem er í drottningu. Elsa er ósköp venjuleg stelpa sem hefur átt sér drauma um menntun og módel- störf. Allt svoleiðis er samt svo ótrú- lega mikið vesen og fyrirhöfn miðað við það að vinna fyrir kaupi og geta keypt sér hluti eins og fót, ekki síst skó. Þetta er einleikur um ástina á þeim tímum sem hún á sér fá afdrep nema helst á irkinu. Þessi ljúfsára saga hentar öllum sem ætlar að gifta sig eða kvænast eða er giftur eða kvæntur, og þeir eru margir. „Nei, ég er nú ekki að fara að gifta mig sjálf alveg strax,“ segir leikkon- an Nanna Kristín Magnúsdóttir sem leikur brúði að hafa sig til á deginum stóra í einleiknum. Þó segir hún að það verði mikið um giftingar hjá vin- um sínum og vandamönnum nú í sumar. Hún segir það ekkert taka á taugamar að leika í brúðarkjól, sér- staklega þar sem þetta er í þriðja skipti sem hún leikur í einum slík- um, fyrst í Ivanov í Nemendaleikhús- inu ‘98 og síðan í Kossinum í Bíóleik- húsinu nú í vetur. Hvaöa kjóll af þremur er flottastur? „Ég get ekki gert upp á milli þeirra. Mér þykir mjög vænt um þá alla og sömuleiðis hlutverkin sem fylgja þeim,“ segir Nanna Kristfn. Þó hún stefni ekki hraðbyri upp að alt- arinu getur hún ekki neitað því að hafa hugsað til stóra dagsins. „Ef ég væri að fara að gifta mig myndi ég fara til Las Vegas til þess. Þetta er hugmynd sem ég fékk fyrir löngu síðan og líst enn vel á. Þó er ég ekki enn þá búin að minnast á það við Ólaf Darra, unnusta minn, enda er þetta mál ekki búið að vera á döf- inni. Ég er ekkert að flýta mér, enda bara 26 ára.“ Leikstjórinn giftir sig „Ég er búin að vera að æfa í 6 vik- ur. Þetta er búið að ganga frekar ljúf- lega þó svo að Elsa sé án efa viða- mesta hlutverk sem ég hef leikið til þessa," segir Nanna Kristín. í verk- inu stendur hún ein á sviðinu í rúm- lega klukkutíma og talar bókstaflega út í eitt. „Ég er alls ekki stressuð, nú er svo komið að ég get varla beðið eftir frumsýningunni. Það verður frábært að fylla loksins húsið af fólki.“ Kaffileikhúsið er mjög þétt, tekur rétt rúmlega hundrað manns í sæti og stendur Nanna Kristín ekki á sviði heldur beint fyrir framan áhorf- endurna. „Ég hef aldrei áður haft svona marga mótleikara en ég held að það sé óhætt að kalla áhorfend- uma það. Þeir eru alveg upp við mig.“ Aðspurð segist hún þó ekki stunda það að kreista svör upp úr áhorfendunum. „Þetta er meira eins og tal undir fjögur augu, ég er ekkert að pína liðið.“ Bannað að blóta í brúðarkjól er leikstýrt af Ingunni Ásdísardóttur. Ingunn ætti að vera nokkuð heit í þvi að leikstýra einleikjum þar sem hún leikstýrði La Voix humaine í ís- lensku Óperunni síðastliðið haust. Ingunn var einnig aðstoðarleikstjóri í Lucretia svívirt i Óperunni. Einleikurinn er saminn af Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur, rithöfundi og ritstjóra Mannlífs, og er hann jafnframt fyrsta verk hennar fyrir leiksvið. Leikmynd og búningar eru í höndum Rannveigar Gylfadóttur, bæði í þessu verki sem og öllum öðr- um í einleikjaröð KafFileikhússins, í öðrum heimi. Þá er gaman að geta þess að Ingunn leikstjóri er sjálf að fara að gifta sig 25. júní næstkom- andi. Aðdáendur Meg Ryan kætast! Stjörnubíó frumsýnir nýjustu mynd leikkonunnar, Hanging Up, og ætti hún ekki að svíkja þá sem halda upp á hennar formúlu. Auk Ryan leika Diane Keaton, Lisa Kudrow og Walter Matthau. Það er kannski ekki sanngjamt að tala bara um Meg Ryan þegar minnst er á Hanging Up þar sem Diane Keaton leikstýrir henni ásamt því að leika eitt aðalhlut- verkið. En þar sem myndin er gerð af þeim Ephron-systrum, Deliu og Noru, sem eiga heiðurinn að When Harry Met Sally, Sleepless In Seattle og You’ve Got Mail, er ekki skrítið að Hanging Up verði frekar kennd við Meg Ryan en Diane Keaton. Tekið stórt upp í sig Hanging Up fjallar um þrjár syst- ur, Georgiu, Eve og Maddy (Diane Ryan var bókuð í myndina áður en hún varð til. Keaton barðist í leikstjórastólinn og Kudrow sveif hugsunarlaust. Keaton, Meg Ryan og Lisa Kudrow) og samband þeirra við föður þeirra (Walter Matthau). Georgia er elst, algjör framapotari sem gefur út kvennablað fyrir flnu frúrnar (skýrt eftir henni sjálfri, Georgia). Hún er þessi týpa sem myndi taka ansi stórt upp í sig til að komast í topp 50 á Forbes-valdalistanum. Eve er pabbastelpan og lendir þess vegna í því að svara endalausum símtölum frá pabba gamla sem er orðinn nokkuð einmana á efri árum. Yngst er síðan Maddy, sápu- óperuleikkona sem heldur að hún sé búin að meika það en er hálfvon- laus. öll samsk’ipti innan fjölskyld- unnar hafa verið yfírborðskennd í þónokkum tíma þar til pabbi gamli lendir einn góðan veðurdag á spít- ala. Þá þýðir ekkert fyrir Georgiu og Maddy að láta Eve sitja uppi með gamla karlinn þannig að þær fara í allsherjarútkall til að sýna honum ástúð. Allt er þetta voða fyndið og sætt. Nora Ephron skrifaði bókina Hanging Up eftir samskiptum þeirra systra við föður þeirra, ásamt því að krydda söguna eilítið. Bókin fékk mjög góða dóma á sín- um tíma og seldist vel. Þegar þær systur byrjuðu að leita að leikkonum var Meg Ryan auðvitað sjálfgefln í hlutverk Eve. Þær römbuðu fljótt á Diane Keaton í hlutverk elstu systurinnar og tók hún strax ástfóstri við myndina. Fljótlega var hún búin að sannfæra þær um að leyfa sér að leikstýra henni. Keaton hefur leikstýrt einni mynd áður, Unstrung Heroes, sem var sýnd á Cannes 1995. Systumar tala mjög vel um hennar starf við gerð myndarinnar en þær virðast þó hafa slakað einum of á taumun- um. Það vantar nefninlega Tom Hanks í dæmið!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.