Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.05.2000, Qupperneq 7
b í ó Ifókus Yikan 2 §. maí tiI t, iúní 1 í fíðe j"—T X R y I^N N U, Á morgun verður sýningin Garðhúsabær opnuð á Kjarvals- stöðum. Þar gefur að líta teikningar og líkön af garðhúsum eftir 17 af kunnustu arkitektum heimsins. Einnig voru 27 ellefu ára krakkar úr Korpuskóla fengnir til að spreyta sig. Öllum að óvörum fóru krakkarnir langt fram úr arkitektunum í pælingum. Börnin skáka reynsluboltunum Hér gefur að líta „hryllingshúsið" eftir ungan Korpuskæling. Það er sérhannað fyrir masókista. Yfirskrift sýningarinnar, Garð- húsabærinn eða Kolonihaven, skír- skotar til lítilla húsa sem margir íslendingar reistu sér á sérstökum ræktunarlöndum um miðbik 20. aldar. Þar sem Kringlan stendur nú var m.a. þyrping af garðblettum og skýlum og myndaðist þar á sumrin lítið samfélag garðhúsaeig- enda. Þetta þekkist hjá öðrum þjóð- um, þ. á m. hjá heimaþjóð guðmóð- ur sýningarinnar, Kirsten Kiser, sem setur sýninguna upp á Kjar- valsstöðum. Bandarísk stjarna Kirsten opnaði sýninguna fyrst í Kaupmannahöfn ‘96. Síðan hefur hún einnig flakkað til Stokkhólms. í bæði skiptin báru borgirnar Menningarborgartitil Evrópu. Það lá því beinast við að næsti við- komustaður sýningarinnar yrði Reykjavík í ár. Sautján arkitektar sýna á Kjarvalsstöðum líkön af garðhúsunum sínum og teikning- ar. Margir þeirra eru vel þekktir í arkitektaheiminum en þar ber helst að nefna hinn bandaríska Frank O. Gehry en stjama hans hefur risið hátt upp á síðkastið. Arkitektamir koma víðs vegar að, flrá íslandi, Sviss, Sviþjóð, Finn- landi, Japan, Þýskalandi, Bret- landi, Spáni og Portúgal. Fulltrúar íslands í Garðhúsabæ era arkitektamir Hjördis Sigur- gísladóttir og Dennis Jóhannesson. Arkitektafélag íslands efndi til samkeppni um íslenskt garðhús í tilefni af komu sýningarinnar. Hjördís og Dennis báru sigur úr býtum og mun garðhús þeirra, Hús árstiðanna, verða reist í fullri stærð á Kjarvalsstöðum. Masókistahúsið Helsta nýmælið á sýningunni er a r k i - tektúr yngstu kynslóð- arinnar á íslandi s e m sannar- 1 e g a kemur á ó v a r t. Þ a r koma við sögu 27 nem- endur í 5. og 6. bekk Korpuskóla sem hafa unnið með arkitektin- um Ömu Mathiesen og kennurunum Arndísi Hilmarsdóttur og Jó- hönnu Þ. Ingimarsdótt- Hús árstíöanna eft- ir Hjördísi Sigur- gísladóttur og Dennis Jóhannes- son, sigurvegara keppni Arkitektafé- lags íslands. ur að hugmynd um Garðhúsabæ. Útfærsla nemendanna fór langt fram úr villtustu hugmyndum arkitekta almennt, bæði hvað varð- ar efnisnotkun og hugmyndalegan bakgrunn húsanna. Einn drengur bjó til dæmis til hryllingshús fyrir masókista, umkringt legsteinum, annar gerði fótboltahús fyrir erkisportista og þar fram eftir göt- unum. Krakkamir vom ófeimnir við að fara alla leið og notuðu plaströr, sykurmola, leir, vir, pappa og spegla til að koma hug- myndunum i verk. Frumlegri og óhamdari arkitektúr gefur varla að líta en likönin verða öll til sýnis, auk þess sem nemendur skýra hug- myndina að baki húsunum á myndbandi. Verk bamanna eru til sýnis á ganginum á Kjarvalsstöðum en arkitektarnir sýna í Vestursal. Sýningin verður opnuð á morgun og stendur til 23. júlí. Á opnuninni verða viðstaddir arkitektarnir Karina Tengberg frá Danmörku, Josef Paul Kleihues frá Þýskalandi og Hakkinen & Komonen frá Finnlandi. Að auki mæta arkitektagagnrýnendurnir Rebecka Tarschys frá Dagens Ny- heter í Stokkhólmi og Nicolai Ouro- ussoff frá Los Angeles Times auk ljósmyndarans Jonathans Beckers frá Vanity Fair. Að Garðhúsabænum standa Reykjavík menningarborg 2000, Listahátíð í Reykjavik og Arkitektafélag íslands. Bíóborgin Three to Tango Matthew Perry er mættur sem Chandler í arkitektagervi. Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Story of us ★ The Story of Us er misheppn- uö kvikmynd þar sem við fylgjumst með hjónabandserfiðleikum millistéttarfólks sem þolir ekki hvað annað lengur. -HK Sýnd kl.: 4 Any Given Sunday ★★ Any Given Sunday er stillt upp sem nútíma- hringleikum, með blóði, svita og tárum á leik- vellinum en baktjalda- makki, brostnum von- um oggjálífi utan vallar. -ÁS Sýnd kl.: 5.15, 8, 10.45 Man on the Moon ★★★ Milos Forman held- ur þétt og örugglega utan um frásögnina og virðist vera á góðri siglingu þessi. -ÁS Sýnd kl.: 5.45, 8,10.10 Bíóhöllin Three to Tango Sjá Bíóborgin. Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Brokedown Palace ★★ Myndin er brokk- geng, hún er áhrifamikil þegar best lætur en á stundum einnig fullyfirborðskennd. -HK Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Mission to Mars ★★ Miðað við að um geim- óperu er að ræða fá góðir leikarar með þá Gary Sinise og Tim Robbins í farabroddi óvenju mikinn texta sem þeir fara vel með þótt ekki sé hægt að segja að hann sé alltaf gáfulegur. -HK Sýnd kl.: 10.10 Stuart little ★★ Þótt Stúart litli sé ekki teiknimynd gengur hún fyrir sömu lögmálum. -BÆN Sýnd kl.: 4, 6 Mystery, Alaska ★★ Það er í rauninni ekk- ert í Mystery, Alaska, sem kemur á óvart. -HK Sýnd kl.: 3.45, 5.55, 8 Deuce Bigelow ★★ Grínmyndir sem ganga út það að henda gaman að öðrum kvikmynd- um hafa fyrir margt löngu tapað sjarma sfn- um. -BÆN Sýnd kl.: 8, 10 Million Dollar Hotel Leikstýrt af Wim Wend- ers. Sýnd kl.: 3.40, 5.50, 8,10.15 Any Given Sunday ★★ Sjá Bíóborgin. Sýnd kl.: 6,10 Háskólabíó I Kina spiser de hunde Klassamynd frá frænd- um vorum Dönum. Sýnd kl.: 6, 8,10 Angela's Ashes ★★★ Áhrifamikil kvikmynd. - HK Sýnd kl.: 5.20, 8 Ghost Dog: Way of the Samurai ★★★ Það er Forest Whitaker sem leikur hundinn og ger- ir það fantavel. -BÆN Sýnd kl.: 5.30, 8, 10.30 Gladiator ★★★ Sagan er fyrirsjáanleg og hand- ritið oft á tíðum klisju- kennt. -HK Sýnd kl.: 5, 8,10.50 For Love of the Game ★ Ekki mun þessi lækna mörg sár því myndin er mislukkuð rómantísk della. -HK Sýnd kl.: 10.40 Being John Malkovitch ★★★★ Innblásin mynd þar sem fmyndunaraflinu er gefinn al- gerlega laus taumurinn. -ÁS Sýnd kl.: 10.50 Microcosmos ★★★ Greinilegt er að mikill metnaður hefur verið lagður f gerð þessarar kvikmyndar. -HK Sýnd kl.: 8 Englar alheimsins ★★★ Góö mynd. -HK Sýnd kl.: 8 Kringlubfó Three to Tango Sjá Bíborgin. Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Splendor ★★ Mynd í ætt við Threesome og Chasing Amy. -BÆN Sýnd kl.: 4, 6, 8, 10 Toy Story 2 ★★★ Þetta framhald fýrstu Leikfangasögunnar er.-ÁS Sýnd kl.: 4 The Limey ★★★ Svöl ræma. -AS Sýnd kl.: 6, 8, 10 Laugarásbfó Gladiator ★★★ Sjá Háskólabfó. -HK Sýnd kl.: 5, 8,10.15 Erin Brockovitch ★★ Hér er róið á frekar gamal- kunnug mið. -ÁS Sýnd kl.: 5.15, 8, 10.30 Final Destination ★★ Stundum er ekki ann- að hægt en að brosa að vitleysunni. -HK Sýnd kl.: 4, 6, 8,10 Regnboginn Million Dollar Hotel Leikstýrt af Wim Wend- ers. Sýnd kl.: 5.45, 8, 10.20 Down to you ★ Down to You gerir ýmsar til- raunir til að brjóta upp form gelgjumynda. - BÆN Holy Smoke ★★ Dæmisaga um leitina að ástinni og hreinskilninni. -ÁS Sýnd kl.: 5.30, 8, 10.20 Dogma ★★★ Dogma er saga sem hreyfir viö áhorfandanum. -ÁS Sýnd kl.: 5.30, 8, 10.30 Boys Don’t Cry ★★★ Þótt Boys Don’t Cry sé ekki heimildarmynd sem slík er hún trú efninu þó eflaust sé ýmislegt fært f stflinn. - BÆN Sýnd kl.: 5.30, 8,10.20 nýtt í bíó 101 Reykjavík er rumsýnd í Sambíóunum á miðvikudaginn. Það eru stjörnu þessari Þar sem litlar fréttir hafa borist úr herbúðum 101 Reykjavík varðandi frumsýninguna á hinu svokallaða „auteur“-verki gulldrengsins Baltasars Kormáks er eiginlega voðalega lítið hægt að segja um mynd- ina. Við vitum öll að Victoria Abril leikur í henni ásamt Hilmi Snæ Guðnasyni og landsliði kúlaranna. Við vitum líka að Ingvar Þórðarson framleiðir myndina ásamt Balta. En þeir félagar hafa áður framleitt Flopp i Reykjavík þó allt virðist benda til þess að nú fái þeir uppreisn æru í bíó- bransanum og meiki það jafnvel í út- löndum. Það sem Fókus lék forvitni á að vita var hvort einhver hefur séð myndina. Dauðaleit var gerð af sjá- endum og fyrir tilviljun var Hallgrím- ur Helgason, höfundur skáldsögunnar 101 Reykjavík, króaður af í húsasundi og settar á hann þumalskrúfur. Ertu búinn að sjá rœmuna hans Balta? „Jú, ég hef séð hana,“ svarar Hall- grímur og virðist ekki ætla að segja neitt meira. Og hvað? „Hún er mjög fm.“ Eins og þú bjóst við? „Já, nokkum veginn. Svona eftir að ég las handritið og heyrði hverjir áttu að leika í henni. Þá vissi ég að hún yrði alltöðruvísi en bókin.“ En erum við aó heyra setningarnar þinar þarna? „Já, já. Og sjá persónumar og fram- vindu sögunnar." Hvað meó stjörnur? „Stjörnur. Viltu að ég fari að gefa henni stjömur," segir Hallgrímur og hlær. „Það em margar stjömur í þessari mynd.“ En ertu ánœgður með hvernig Balti gerói þetta? „Já. Hann er búinn að gera mjög góða bíómynd og ég get ekki verið ánægðari." Þú hefur aldrei verið eflns um aó Balti og Ingvar myndu klára þetta? „Nei, þessir strákar hafa alltaf gert allt sem þeir ætla sér að gera,“ segir Hallgrímur og þarf þá eiginlega að fara. Stjörnubíó Hanging Up Mynd úr smiðju Ephron-systr- anna. Sýnd kl.: 6, 8, 10 Erin Brockovitch ★★ Sjá Regnboginn. Sýnd kl.: 8,10.20 Stuart little ★★ Sjá Bíóhöllin. Sýnd kl.: 6 Reykjavik: Austurstræti 3, Suðurlandsbr. 46, Esso-stöðin Ártúnshöfða & Kringlunni. Hafnarfjörður: Esso-stöðin, Lækjargötu 46, Esso-stöðin, Reykjavíkurvegi 54. Keflavik: Hafnargötu 32. Akureyri: Kaupvangsstr. 1. «subuurv* Ferskleiki er okkar bragð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.