Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
Fréttir I>V
Framkvæmdastjóri Jórvíkur er óhress með sjúkraflugsmálin:
Aðrir fá milljónir á silfurfati
- við eigum svo að hlaupa til þegar á bjátar
Jón Grétar Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri flugfélagsins Jórvík-
ur, er óhress með stöðu sjúkraflugs-
ins hér á landi. Hann segir að búið
hafi verið að hringja í þá og spyrja
hvort þeir væru tilbúnir að taka
sjúkraflugið að sér fyrir vestan.
Þeir hafl verið tilbúnir til þess að
sinna þessu 24 tíma á sólarhring og
með nægan mannskap til þess.
Hann segir því með ólíkindum að
tveim dögum seinna eigi að grafa
upp félag á Norðausturlandi til að
sinna sjúkraflugi á Vestfjörðum.
„Þeir virðast eiga að fá einhvem
bitling vegna þess að þeir hafa ver-
ið í erfiðleikum. Þeir hirtu samning
um sjúkraflug fyrir vestan frá ís-
landsflugi þegar það félag gat ekki
sinnt þessu lengur.“
Þar á Jón Grétar við flugfélagið
Mýflug sem var með samning um
sjúkraflugið fram i maí. Síðan í maí
hafa læknar fyrir vestan þurft að
leita sjálfir leiða til að koma sjúk-
lingum til Reykjavíkur. Samkvæmt
heimildum DV er hins vegar ætlun-
in að framlengja samninginn við
Mýflug til áramóta.
„Ég er orðinn hundleiður á því
að berjast við að halda fluginu
gangandi þarna vestur þegar aðilar
í kringum mann eru að fá 5-6 millj-
ónir á ári á silfurfati frá rikinu til
að standa straum af kostnaði yfir
dauðan tima. Við eigum svo að vera
tilbúnir að hlaupa til þegar á bjátar.
Við erum búnir að þjóna þessu
byggðarlagi í þrjú ár en samt er
leitað til Norðausturlands eftir
sjúkraflugi frekar en að tala við
okkur.
Mér skilst að sjúkraflugið verði
allt boðið út hér innanlands i haust
en ekki á evrópska efnahagssvæð-
inu. Þetta er samt trúlega það eina
sem erlendir aðilar sem eru sér-
hæfðir í slíku hefðu áhuga á að
bjóða í. Hins vegar á að bjóða út í
Evrópu flug til Gjögurs sem vitað er
að enginn hefur áhuga á.“
Sniöið að þörfum Flugfélagsins
Jón segir að hugmyndir um að
flytja sjúkraflugið til Akureyrar
virðist fyrst og fremst vera með
hagsmuni Flugfélags Islands í huga.
Það sé eina félagið sem hafi aðstöðu
fyrir norðan og þvi sé afar erfitt fyr-
ir aðra að bjóða í þetta. í athuga-
semdum sem Jórvík sendi vegna
fyrirhugaðs útboðs Ríkiskaupa á
þessu flugi kom fram að félaginu
þætti skrýtið að heilbrigðisráðu-
neytið gæfi sér fyrirfram að miðstöð
sjúkraflugs skyldi staðsett á Akur-
eyri. Flugrekstraraðilum væri
þannig ekki gert mögulegt að bjóða
í flugið frá þeim stað sem þeim
fyndist hagkvæmast að nota. Bent
Kostnaður við sjúkraflug rýkur upp úr öllu valdi:
Styrkir margfaldast
- á við það sem landshlutaflugfélögin fengu áður
„Þegar fótunum var kippt undan
litlu landshlutafélögunum í fluginu
með þvi að rifta póstsamningunum
við þau þá varð sjúkraflugið strax
ótryggara og mun dýrara," segir
Hörður Guðmundsson, fyrrverandi
sjúkraflugmaður og eigandi flugfé-
lagsins Emis á ísafirði.
Að sögn Harðar var það leynileg
hernaðaráætlun ráðamanna að
stóru flugfélögin tvö ættu að ríkja á
markaðnum.
„Ráðamenn töldu sig þurfa að
grysja markaðinn fyrir Flugfélag !s-
lands og íslandsflug svo að litlu
flugfélögin væru ekki að þvælast
fyrir,“ segir hann.
Innanlandsflug íslandsflugs er í
mikilli lægð miðað við það
sem fyrst var á dögum
frjáls flugs en að sögn Harð-
ar er Flugfélag íslands nú i
raun orðið að einokunarfé-
lagi á flugmarkaðnum.
Hörður segir litlu fyrir-
tækin hafa sparað ríkinu
stórfé með því að sinna
sjúkrafluginu en að því er
hann segir fékk flugfélagið
Emir um 800 þúsund til 2
milljónir króna í styrk á
ári þegar mest var. Nú er
svo komið að flugfélög fá
borgaðar 5-6 milljónir fyrir
að standa sjúkraflugsvakt-
ina á ísafirði.
Höröur
Guömundsson
Það var leynileg hern-
aóaráætlun ráöa-
manna aö stóru
flugfélögin tvö
ættu aö ríkja á
markaönum.
„Við vorum að sinna
sjúkraflugi allt suður í
Búðardal og gerðum það
af mikilli ábyrgð. Það
var vitað að það væri
enginn stórgróði í flug-
samgöngum á þessu
svæði og við höguðum
okkur eftir því,“ segir
hann.
Hann segir sitt flugfé-
lag hafa getið staðið
undir rekstrinum vegna
þess að póstsamgöng-
urnar voru á þeirra
snærum og samfara
væri stundað sjúkraflug
og annað flug.
„í löndum þar sem strjálbýli er
mikið er þetta alltaf leiðin sem er
farin. Fyrst koma póstsamgöngum-
ar og aðrar samgöngur byggjast í
kringum þær. Það þýðir ekki að
ætla að fá einhverja stóra karla að
sunnan sem vilja bara græða pen-
inga.“
Hörður segir áætlanir ríkisins í
sjúkraflugi og landsfjórðungasam-
göngum vera vanhugsaðar og að
þjónustan sé miklu dýrari en ríkið
hafði gert ráð fyrir. „Það er verið að
nota póstbíla til að keyra á milli
byggðarlaga og allt þetta er miklu
dýrara en hefði verið ef litlu flugfé-
lögunum hefði verið leyft að stunda
þetta áfram,“ segir hann. -jtr
Flugfélag Sturla
íslands. Böövarsson.
er á i því sambandi að skoða þyrfti
hvort Reykjavik hentaði ekki betur
með tilliti til veðurfars, sjúkrastofn-
ana og mannaforða til að sinna
þessu flugi.
Komum ekki nálægt útboðinu
„Það væri fáránlegt að halda því
fram að við værum ekki með bestu
aðstöðuna á Akureyri enda höfum
við verið að byggja þar upp í tugi
ára en ef svo fer aö við fáum ekki
útboðið þá erum við alltaf reiðubún-
ir til að selja þá aðstöðu," segir Jón
Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri
Flugfélags íslands.
„Það er ljóst að þessi mál era
komin í óefni og það þarf að finna
einhverja lausn til að tryggja þetta
flug en við komum ekkert nálægt
þessu útboði," segir Jón.
Hann segir það sjúkraflug sem
Flugfélag íslands hafi tekið þátt í
ekki hafa verið styrkt á neinn hátt
heldur hafi þeir leigt út flugvélar
sínar til þeirra verka og stundum
hafi það farið fram i sambandi við
reglulegt áætlunarflug.
Vill ekki málamyndaútboö
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra sagði í samtali við DV að hon-
um væri gegn skapi að standa að
málamyndaútboði.
Hann segir hugmyndina vera þá
að setja fram útboð um flug á milli
jaðarbyggða sem stjómað yrði frá
Akureyri og sjúkraflug yrði tengt
við það.
„Það er starfshópur með þetta í
athugun núna og hann verður að út-
færa hugmyndina þannig að fleiri
en einu fyrirtæki verði sköpuð að-
staða til aö taka útboöinu. Annars
væri þetta ekki útboð og ég vil ekki
standa að málamyndaútboði," segir
Sturla.
Sturla segist gera ráð fyrir því að
starfshópurinn hagi tillögum sínum
svo að þær verði útboðshæfar og
segir hagsmuni ríkisins felast í því
að fram fari frjálst útboð á sjúkra-
flugi og öðra flugi til jaðarbyggða.
-HRr.Ajtr
REYKJAVÍK AKUREYRI
Stinningskaldi suövestanlands
Suöaustan 8 til 13 m/s verða suðvestan til
en annars hægari vindur. Skýjaö sunnan- og
vestanlands og hiti 10 til 15 stig.
Sólariag í kvöld 23.59 00.50
Sólarupprás á morgun 03.04 01.44
Síódegisflóö 16.27 21.00
Árdegisflóö á morgun 04.50 09.23
Skýilnáar S v$&wiíÉw\m Í *—ViNDATT * HITI
■^^ViNDSTYRKUR i metrum á sokúmíu ’SáfOST HSÖSKÍRT
<3 £3 O
u-rrsKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAÐ
© Q w Q
RiGNiNG SKÚRiR SLYDDA SNJÓKOMA
Q "9
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNiNGUR ÞOKA
!1&
Enn ófært um Fjallabak
Helstu þjóövegir landsins eru greiðfærir
þó víöa sé í gangi vegavinna. Flestir
hálendisvegir eru nú færir fjallabílum.
Þó er ófært um Eyjarfjaröarleiö á
Sprengisand og um Fjallabak nyröra og
syöra. Fært er í Landmannalaugar um
Sigöldu og í Eldgjá úr Skaftártungu.
Hægviöri
Fremur hæg breytileg eða suölæg átt víðast hvar. Víöa þokuloft, einkum
viö sjóinn. Skýjað meö köflum eða léttskýjaö á Norður- og Austurlandi.
Hiti 10 til 18 stig að deginum en allt aö 25 stig í innsveitum.
»:»ititiii.«ftriJiir MTi*) 1 1 f
Vindur: A— Vindun vl—\ Vindun
°-2^' \ i 0-2^ | 0-2 m/s n |
Hiti 10° til 20° ^ j Hiti 10“ til 20" ^ ! Hiti 10“ tii 20“ '
Fram á mlövikudag lítur út Hæg breytlleg átt verður, Gert er ráð fydr
fyrir fremur hæga skýjaö meö köflum en áframhaldandi hægviöri
breytilega átt. Skýjaö meö hætt vlö þoku vlö sjóinn. um land allt. Skýjaö meö
koflum en hætt vlð þoku Síödegisskúrir á stöku köflum. Síödegisskúrir á
viö sjóinn. Síödegisskúr á staö. Hitl á bilinu 10 tll 20 stöku staö. Hlti frá 10 til
stöku staö. stlg, hlýjast tll landslns. 20 stig.
AKUREYRI léttskýjaö 12
BERGSTAÐIR skýjaö 14
BOLUNGARVÍK skýjaö 11
EGILSSTAÐIR 11
KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 10
KEFLAVÍK þokumóöa 10
RAUFARHÖFN hálfskýjaö 9
REYKJAVÍK skýjaö 12
STÓRHÖFÐI þokumóöa 9
BERGEN léttskyjaö 11
HELSINKI rigning 18
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 13
OSLÓ skýjaö 13
STOKKHÓLMUR þokuruöningur 12
ÞÓRSHÖFN alskýjaö 7
ÞRÁNDHEIMUR alskýjaö 10
ALGARVE heiöskírt 20
AMSTERDAM skýjaö 13
BARCELONA mistur 22
BERLÍN rigning 11
CHICAGO hálfskýjað 16
DUBLIN skýjaö 16
HALIFAX hálfskýjað 18
FRANKFURT skýjaö 11
HAMBORG súld 9
JAN MAYEN jan þoka 1
LONDON mistur 15
LÚXEMBORG léttskýjaö 10
MALLORCA heiöskírt 24
MONTREAL heiöskírt 18
NARSSARSSUAQ skýjaö 6
NEW YORK skýjaö 21
ORLANDO skýjaö 22
PARÍS hálfskýjaö 15
VÍN léttskýjaö 15
WASHINGTON
WINNIPEG léttskýjaö 12