Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Blaðsíða 28
32 , Tilvera FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 I>V Sharon Stone lætur undan í mörg ár hefur veriö lagt hart að Sharon Stone að leika í framhaldi af Basic Instinct en hún ávallt neitað. Nú hefur hún samþykkt að endurtaka leikinn og leika tálkvendið slóttuga í Basic In- stinct 2. Ástæðan fyr- ir þessu breytta við- horfl hennar er aug- ljós. Stone hefur feng- ið um 6 milljónir doll- ara íyrir leik í kvikmynd en eru nú boðnar fimmtán milljónir fyrir Basic In- stinct 2. önnur ástæða er að síðustu myndir hennar hafa ekki gengið sem best. Má þar nefna The Muse og Simpat- ico. Hvort Michael Douglas verður aftur ' mótleikari hennar er ekki vitað en vist þykir að Paul Verhoeven mun ekki leik- stýra myndinni. Hann hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann sjái engan tilgang með framhaldi. Áætlað er að hefja tökur á myndinni í haust. Verður Ben Afflect næsti Jack Ryan? Þegar ljóst var að Harrison Ford ætl- aði ekki að leika njósnarann Jack Ryan í fjórðu kvikmyndinni um þessa hetju skáldsagnahöfundarins Tom Clancy komu strax upp á yf- irborðið bollalegging- ar um það hver myndi taka við en víst er að haldið verð- ur áfram með gerð The Sum of All Fe- ars, sem Philip Noyce mun leikstýra en hann var við stjómvölinn á Patriot Games og Clear and Present Danger. Sá sem nú kemur helst til greina er Ben Affleck. Það sem helst stendur í vegi fyrir því að hann fái hlutverkið er að hann er aðeins 27 ára en Harrison Ford var 52 ára þegar hann síðast lék Ryan. Annar möguleiki í stöð- unni, sem sagt er að Tom Clancy sé sátt- ur við, er að fá Alec Baldwin, sem lék v Ryan í The Hunt for Red October, til leiks að nýju. Upprunalega syndin Eins og öllum er kunnugt fékk kvik- mynd Lars von Trier, Dancer in the Dark, gullpálmann í Cannes. Um sama leyti var verið að kvikmynda stór- mynd í Mexíkó sem bar sama nafii. Fjallar sú kvikmynd um ríkan Kúbveija um siðustu alda- mót sem giftist ungri stúlku sem hann veit lítið um. í ljós kemur að hún er vandræðagemlingur. Er myndin byggð á skáldsögunni Waltz into Darkness eftir Comell Woolrich. Ljóst þótti að ekki gekk að halda nafn- inu Dancer in the Dark á myndinni og ekki þótti framleiðendum nafnið á skáldsögunni nógu gott svo úr varð nafnið Original Sin. Með aðalhlutverk- in í myndinni fara Anthony Banderas og Angelina Jolie. Leikstjóri er Michael Cristofer, en haxm leikstýrði Jolie í sjón- varpsmyndinni Gia, sem var sú mynd sem vakti athygli á leikkonunni. Draumalið Martins Scorsese Martin Scorsese vill ekki setja dag- setningu á hvenær hann ætlar að hefja fjaliar um ævi Dean Martins, fyrr en hann hefur fengið þá leikara sem hann vill í helstu hlutverkin. Tom Hanks hefur þegar gefið vilyrði fyrir að leika söngvar- ann og leikarann Dean Martin sem lifði skrautlegu lífi, svo ekki sé meira sagt. í hlutverk Franks Sinatra vill Scor- sese fá John Travolta, Jim Carrey til að leika Jerry Lewis, Adam Sandler til að leika Joey Bishop og Hugh Grant til að leika Peter Lawford, sem var mágur Kennedys forseta. Hvem Scorsese vill fá til að leika Sammy Davis jr. hefur ekki verið gert lýðum ljóst. Erfitt verður fyr- ir Scorsese að koma þessu liði saman þótt allir séu af vilja gerðir því þessar stórstjömur em yfirleitt bókaöar langt fram í tímann. tökur á Dmo, sem Jim Carrey og Rene Zwelleger í hlutverkum Irene og Hank/Charlie Irene fær aö kynnast of mörgum hliö- um á mannin- um sem hún elskar. Me, Myself & Irene frumsýnd í fimm kvikmyndahúsum: K inn persónuleiki að hætti Farrelly-bræðra Aðeins er tæp vika síðan nýjasta kvikmynd Jim Carreys, Me, Myself & Irene, var frumsýnd í Bandaríkj- unum og nú er hún komin til sýn- ingar hér á landi og það í einum fimm kvikmyndahúsum, Laugarás- bíói, Regnboganum, Bíóhöllinni, Nýja biói, Keflavík og Borgarbíói, Akureyri. Mynd þessi er gerð af Pet- er og Bobby Farrelly, sem eru ábyrgir fyrir einhverjum fyndnustu gamanmyndum tíunda áratugarins, Dumb and Dumber, There Is Somet- hing about Mary og Kingpin. Tvær fyrstnefndu slógu eftirminnilega í gegn en litið fór fyrir Kingpin sem þó hafði þennan sérstaka og grófa húmor sem einkennir Farrelly- bræður. Þetta er í annað sinn sem þeir bræður starfa með Jim Carrey og nú fær hann tækifæri til að leika tvær persónur í einum og sama manninum. Charley Baileygates á að baki sautján ára flekklausan fer- il í lögreglunni á Rhode Island. Hann er hjálpsamur, skapgóður og elskar þrjá syni sína og hugsar vel um þá. Því miður fyrir Charlie er hann tvöfaldur persónuleiki og þeg- ar hann hefur gleymt að taka inn meðulin sín eða búinn með þau verður hann að Hank Baileygates, orðljótum töffara sem drekkur eins og svampur, slæst við hvern sem er og hefur gaman af grófu kynlífi. Charlie og Hank eiga ekkert sameig- inlegt nema að þeir eru báðir hrifn- ir af Irene Waters (Renee Zellweger). Hefst nú stríð á milli þeirra um hylli Irene. Segja má að með Me, Myself & Irene sé Jim Carrey aftur kominn í farsagirinn en enginn gamanleikari í dag nær jafngóðmn tökum á því formi, þegar gott handrit er í boði. Carrey hefur með góðum árangri á síðustu árum verið að blanda sam- an dramatík og gríni (The Truman Show, Man on the Moon) og sannað sig sem leikari og nú er komið að gríninu aftur og sjálfsagt er enginn betri til að túlka tvær persónur í sama manninum en Carrey. í þess- ari mynd hefur hann einnig tæki- færi tU að starfa aftur með Farrelly- bræðrum, en þeir leikstýrðu honum í Dumb and Dumber. -HK Farrelly-bræður: Við viljum fá fólk til að hlæja „Það er til góður húmor, það er til slæmur húmor og svo er til Farrelly-búmor,“ segir Rene Zwelleger um þá bræður Peter og Bobby Farrelly og hún held- ur áfram: „Ég hef aldrei gert neitt þessu líku á æv- inni. Það getur enginn imyndað sér, nema að hafa kynnst því, hvað þeim bræðrum dettur í hug.“ „Við erum aðeins að fá fólk til að hlæja,“ segir Bobby Farrelly, „sem er erfitt i nútímaþjóðfélagi án þess að fara út fyrir mörkin. Við leikum okkur á brúninni og ég vona svo sannarlega að þar séum við fremstir." „Auðvitað móðgum við suma,“ bætir Peter Farrelly við, „en reglan er samt sú hjá okkur að ef við fórum meira út fyrir velsæmið en við erum innan þess, þá fórum við að klippa.“ Me, Myself & Irene er íjórða kvikmynd þeirra bræðra. Fyrsta myndin, Dumb and Dumber, sló hressilega i gegn og kom með nýja sýn á gamanmynd- ir. í kjölfarið kom Kingpin með Woody Harrelson og Randy Quaid, sem fékk ekki eins góðar viðtökur. Þrátt fyrir góðan húmor vantaði léttleikann sem ein- kenndi Dumb and Dumber. Þeir réttu samt heldur betur úr kútnum með sinni þriöju kvikmynd, There’s Something about Mary, sem naut mikilla vinsælda. Þeir bræður hófú snemma ritstörf og fyrsta sem þeir seldu voru tveir þættir í sjónvarpsseríuna Sein- feld. Þeir héldu áfram að skrifa og meðal þeirra elstu verka er handritið að Me, Myself & Irene, sem þeir áttu í fórum sínum. Þegar handritið barst tO Jim Car- rey og hann lýsti áhuga sínum á því var það sett fram yfir allt annað og endurskrifúðu þeir það með Carrey í huga. Peter og Bobby eru báðir háskólagengnir. Reyndu þeir fyrir sér á ýmsum sviðum áður en þeir fóru í kvikmyndabransann. Bobby hannaði meðal annars fyrsta kringlótta strandarhandklæðið og reyndi mik- ið að koma því á markaðinn og Peter hefúr meðal annars skrifað tvær skáldsögur, The Comedy Writer og Outside Providence, sem kvikmynd var gerð eftir sem þeir framleiddu. Farrelly-bræður Peter og Bobby Farrelly hafa vakiö athygli fyrir frumlegan og skemmtilegan húmor.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.