Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Blaðsíða 9
9
FTMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000
I>V Fréttir
Samnorrænt átak til að endurskoða byggingarlist víkinga:
Skökk mynd af nor-
rænni byggingarsögu
- segir Orri Vésteinsson fornleifafræöingur
Samnorræn rannsókn
Fornleifafræöingar frá íslandi og Danmörku stóöu fyrir uppgreftri í
Þjórsárdalnum á dögunum og er hann fyrsta skrefiö í samnorrænni rannsókn
sem ætlaö er aö lagfæra viðteknar hugmyndir um byggingarsögu
Noröurtandanna.
„Ætlun okkar er að varpa nýju ljósi
á byggingarlist á Norðurlöndum vík-
ingaaldar og til þess fáum við tæplega
7 milljóna króna árlegan styrk í þrjú
ár úr Norræna hugvísindasjóðnum,"
segir Orri Vésteinsson, fomleifafræð-
ingur hjá Fomleifastofnun Islands,
um samnorrænt átak sem nú stendur
yflr til að leiðrétta viðteknar hug-
myndir um byggingarsögu Norður-
landanna.
„Flestar okkar hugmyndir um
byggingarlist á Norðurlöndunum á
víkingaöld byggjast á rannsókmun frá
fjórða áratugnum sem fengust á ís-
landi og Grænlandi og við höfum að-
eins einn stað í Noregi sem gefur ein-
hverja mynd af þarlendri byggingar-
list á tímabilinu," segir Orri.
Að sögn Orra hafa verið byggðar
endurgerðh' víkingahúsa á þessum
rannsóknum en nú em þær í raun-
inni úreltar og ófullkomnar þrátt fyr-
ir óumdeilanlegt mikilvægi þeirra.
Hann segir rannsóknina marka
tímamót, þar sem nú komi saman 7
fomleifafræðingar frá Danmörku og
tveir frá íslandi sem áður hafi í raun
verið að vinna hver í sínu homi.
„Við munum bera saman hug-
myndir okkar og þannig fæst mun
betri heildarmynd af norrænni bygg-
ingarlist," segir Orri.
Nú er fyrsta skref samnorrænu
rannsóknarinnar á lokastigi en það
felst í uppmælingu fombæja í Þjórsár-
dalnum og endurskoðun gagna frá
eldri rannsóknum.
„Það hafa verið gerðir uppgreftir
hér á landi og annars staðar á Norður-
löndum á síðustu árum sem passa ein-
faldlega ekki við þá mynd sem menn
gerðu sér af byggingarlist á víkinga-
öld en ein skýringin gæti verið sú að
ófuUkomin tækni við uppgröft i eldri
rannsóknum hafi gefið skakka
mynd,“ segir Orri.
Að sögn Orra er ástæða þess að nú
sé farið að efast um þær hugmyndir
sem þóttu sjálfsagðar allt frá rann-
sóknunum á 4. áratugnum fram á síð-
ustu ár sú að nýlega hafi verið gerðir
uppgreftir sem benda til öðmvísi þak-
gerðar og annarrar efnisnotkunar,
auk þess sem við greindum meiri fjöl-
breytileika á miili svæða og tímabila.
„Við teljum hugsanlegt að bygging-
arhefðir hafi verið breytilegar á milli
landshluta og að notkun torfs hafi tek-
ið miklum stakkaskiptum árin og ára-
tugina eftir landnám og það er vitað
að á fyrstu árum landnáms hér á
landi vora húsin öðravísi uppbyggð
heldur en þegar líða tók á þjóðveldis-
öldina," segir hann.
Samkvæmt hugmyndum fornleifa-
fræðinga vora hús í upphafi land-
náms uppbyggð sem einn stór skáli en
síðar skiptust þau upp í smærri bygg-
ingar.
„Við höfum hins vegar tekið eftir
því við uppgröft á Hofsstöðum í Mý-
vatnssveit að húsin þar voru hreinar
timburbyggingar. Rannsóknir á
Hjaltlandi og viðar hafa bent til að
víkingahúsin kunna að hafa verið tvi-
lyft og með mun þróaöri þakgerð en
menn gerðu sér grein fyrir og margt
bendir til að byggingartækni víkinga
hafi verið vanmetin hingað til,“ segir
Orri.
Fyrsta áfanga samnorrænu rann-
sóknarinnar lauk á dögunum og
munu norrænu fornleifafræðingamir
ákveða framhaldið í kjölfarið á grein-
ingu gagnanna en fastlega er reiknað
með uppgreftri í Þjórsárdalnum og
jafhvel Færeyjum, á Hjaltlandseyjum
eða í Noregi á næsta ári.
„Hluta styrksins verður svo varið í
uppgröft á skála á Hofsstöðum í Mý-
vatnssveit í sumar og næsta sumar en
hann er stærsti vikingaaldarskáli sem
vitað er um á íslandi," segir Orri. -jtr
Bráðabirgða-
stofur víkja
- fyrir nýrri kennslumiðstöö
DV. AKRANESI:
Fyrir nokkrum áram voru byggð-
ar bráðabirgðakennslustofur við
Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi til að bæta úr skorti á
kennslustofum en nú hillir í að þær
hverfi. Þetta kom fram á síðasta
fundi stjómar skólans. Næsti áfangi
í uppbyggingu húsnæðismála FVA
er svonefndur B-hluti kennslumið-
stöðvar. í honum verða kennslustof-
ur, bóka- og gagnasafn ásamt til-
heyrandi vinnurými nemenda. Með
þessu verða lagðar af kennslustofur
í timburhúsum sem vora byggðar
til bráðabirgða.
í fyrri áfanga yröi safnahlutinn
byggður 2001. Seinni áfangiim,
kennslustofur, yrði byggður
2002-2003. Heildarkostnaður er áætl-
aður 55 milljónir á árinu 2001. Sveit-
arfélögin á Vesturlandi, sem eiga
aðild að skólanum, munu taka end-
anlega ákvörðum um þetta en já-
kvætt svar hefur borist frá flestum
þeirra. -DVÓ
Hátíð hjá hestamönnum
Landsmót hestamanna er á næsta leiti á Víöidalsvelli viö Reykjavík. Þar er nú búiö aö koma upp margvíslegri
aöstööu til aö taka viö fjölda gesta. í síöustu viku var þar vígöur nýr skeiövöllur sem gefiö var nafniö Brekkuvöllur.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri reiö viö þaö tækifæri einn hring um nýja völlinn í fylgd valinkunnra
hestamanna.
Engin Visa-debetkort:
Efnið í kortin uppurið
- viskiptavinum boðið Maestro-kort í staðinn
Viðskiptavinir íslandsbanka hafa
að undanfómu lent í því að fá ekki
Visa-debetkort á þeim forsendum að
plastið í Visa-kortin sé ekki til hjá Is-
landsbanka. Viðskiptavinur Islands-
banka í Hafnarfirði, Marteinn Sverr-
isson, segir að sér hafi verið boðið að
fá sér Maestro-debetkort í staðinn eða
að eiga að öðrum kosti á hættu að
verða án debetkorts um mánaðamót-
in. „Það sem mér fmnst skrýtið í
þessu er að þetta era tveir samkeppn-
isaðilar og til þess að standa ekki uppi
debetkortslaus um mánaðamótin
neyddist ég til að þiggja kort frá hin-
um aöilanum," sagði hann í samtali
við DV. Sigurveig Jónsdóttir, upplýs-
ingafulltrúi íslandsbanka og FBA,
staðfestir að Visa-debetkortabirgðim-
ar séu uppurnar hjá íslandsbanka og
segir ástæðuna þá að verið sé að
koma með á markaðinn nýja tegund
korta sem inniheldur örgjörva og að
ekki hafi verið pöntuð önnur sending
af venjulegum debetkortum fyrr en
ljóst var að innleiðing örgjörvakort-
anna myndi tefjast. Hún segist eiga
von á að kortin komi í næstu viku,
hugsanlega enn fyrr. „Þetta er spurn-
ing um nokkra daga og þeir sem era
með kort sem renna út við þessi mán-
aðamót og sem ekki geta beðið þurfa
að fá Maestro-kort til bráðabirgða."
Hún segir jafnframt að flestum við-
skiptavinum bankans standi á sama
um hvort þeir séu með Visa- eða Ma-
estro-debetkort, þar sem kortið gegni
fyrst og fremst því hlutverki að veita
fólki aðgang að reikningnum sínum,
og enginn munur sé á þjónustunni
hvora tegundina sem um sé að ræða.
Andri Valur Hrólfsson, markaðsstjóri
hjá Visa-ísland, segir að einungis sé
um að ræða tímabundna óheppni en
segist ekki hafa neinar áhyggjur af
því að þetta komi niður á viðskiptum
hjá Visa-ísland.
-hds
9láfdBESE3QESI
ARGEIMTÍNU
Sælkerasosun
hata slegiö í gegn!
ARGENTÍNU
GRÆNPIPAR
SÓSA
ARGENTlNU
GRÁÐA0ST
SÓSA
ARGENTlNU
SINNEPS &
GRASLAUKS
SÓSA
ARGENTtNU
HVÍTLAUKS
SÓSA
ARGENTlNU
BEIK0N
KARTÖFLUSÓSA
ARGENTÍNU
KRYDDOLÍA
FYRIR GLÓÐARSTEIKINGU
A KJÖTI, FISKI & GRÆNMETI
ARGENTÍNU
Sælkerasósur
fást AÐEINS í
NÓATÚNI
rtannnnnni