Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.2000, Page 19
18 FMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 FIMMTUDAGUR 29. JÚNÍ 2000 23 DV Útgáfufélag: Frjáls fjölmiölun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjórí: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjórí: Eyjólfur Svelnsson Ritstjórar: Jðnas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Auglýsingastjórí: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, síml: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Rltstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Fllmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverð á mánuði 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaösins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Eflum trúboð lýðrceðis Franski utanríkisráðherrann neitaði að skrifa undir svonefnda Varsjár-yfirlýsingu hundrað ríkisstjórna lýð- ræðisríkja um framgang lýðræðis í heiminum. Hann sagð- ist andvígur því, að vestræn ríki reyndu að þvinga lýð- ræði eins og trúarbrögðum upp á þjóðir heimsins. Rúmlega hundrað riki hafa undirritað yfirlýsinguna og þar á meðal ísland. Með því eru ríkin ekki að gera annað en að staðfesta enn einu sinni sáttmála og yfirlýsingar frá stofnun Sameinuðu þjóðanna, rétt eins og gert var fyrir meira en áratug með svonefndum Helsinki-sáttmála. Sá undarlegi misskilningur sést oft, að mismunandi við- horf þjóða liggi að baki misjafns dugnaðar ríkisstjórna við að fara eftir sáttmálum og yfirlýsingum, sem þær hafa ját- azt með aðild að Sameinuðu þjóðunum og ýmsum öðrum íjölþjóðaplöggum, sem byggð eru á sama grunni. Sterkast kom þetta fram af hálfu nokkurra einræðis- herra í Suðaustur-Asíu, þar sem efnahagsþróun var góð. Þeir sögðu, að sínu fólki hentaði föðurleg umsjá, enda væri það í samræmi við menningararfleifð svæðisins. Vestrænt lýðræði væri þar aðflutt truflun. Eftir efnahagskreppuna í Suðaustur-Asíu hefur botninn dottið úr kenningu einræðisherranna. Komið hefur í ljós, að ýmsir homsteinar vestræns lýðræðis eru nauðsynlegir þjóðum þriðja heimsins, ef þær vilja sækja jafnt og þétt fram til bættra lífskjara að vestrænum hætti. Stjómarskipti em nauðsynleg til að spilling grafi ekki um sig. Skipting valdsins er nauðsynleg til að halda uppi öruggu rekstrarumhverfi laga og réttar. Frjáls fjölmiðlun er nauðsynleg til að fólk viti, hvað sé á seyði og sé fært um að taka skynsamlegar efnahagsákvarðanir. Þetta kemur til viðbótar margvíslegri staðfestingu þess, að þjóðir þriðja heimsins sækjast eftir svokölluðum trúar- brögðum lýðræðis, þótt einræðisherrarnir hafi fullyrt annað. Almenningur vill heiðarlegar leikreglur, öryggi dóms og laga, frjáls skoðanaskipti og stjórnarskipti. Undir lok tuttugustu aldar bötnuðu aðstæður lýðræðis verulega. Sovétríkin hrundu og kenningin um sérstakt austrænt lýðræði varð siðferðilega og efnahagslega gjald- þrota. Því eru nú betri aðstæður fyrir útþenslu lýðræðis en hafa verið frá upphafi Sameinuðu þjóðanna. Helsinki-sáttrnálinn var upphafið að hruni Sovétríkj- anna. Þjóðir Austur-Evrópu sóttu til hans styrk til að rísa upp og varpa af sér oki steinrunninna trúarbragða. Von- andi verður Varsjár-yfirlýsing þessarar viku upphaf nýrr- ar sóknar lýðræðis gegn harðstjómm heimsins. Margt er hægt að gera. Sérstaklega er mikilvægt að frysta þá harðstjóra, sem víkja af vegi fyrra lýðræðis, svo sem Alberto Fujimori í Perú og Mahathir Mohamed í Malasíu, úr fínimannsklúbbum landsfeðra, og láta Vla- dimír Pútín í Rússlandi vita, að hann sé á gráu svæði. AUt efnahagslegt og viðskiptalegt vald í heiminum er hjá þeim helmingi ríkja heims, sem fer meira heldur en minna eftir forsendum lýðræðis eins og þær eru skráðar í stofnskjölum Sameinuðu þjóðanna. Það gefur færi á að efla trúboð lýðræðis um allan helming á nýrri öld. Þetta trúboð stríðir ekki gegn heföum og draumum al- mennings í þriðja heiminum. Það eflir þvert á móti mann- lega reisn fólks um allan heim um leið og það stuðlar að efnahagslegri velgengni þess. Því meira lýðræði, því færri verða stríðin og því öflugri verða viðskiptin. Orð franska utanríkisráðherrans hljómuðu eins og flugusuð í hljómkviðu ríkjanna hundrað, sem skrifuðu undir trúarjátningu lýðræðis í Varsjá í þessari viku. Jónas Kristjánsson DV Skoðun Að gera sér mat úr jöklum Hornflrðingar standa fyr- ir merkilegu framtaki með jöklasýningu sem opnuð var fyrir mánuði. Inntak hennar er Vatnajökull - náttúra, saga og menning. Hér leggja saman vísinda- menn, listamenn og leik- menn úr héraðinu og niður- staðan sem blasir við í Sindrabæ er afar þekkilegt og fræðandi yfirlit um jökla almennt og hinn volduga nágranna Vatnajökul sér- staklega. Þekking á jöklum hérlendis hefur vaxið risaskrefum á öldinni sem nú er að kveðja og hafa sjónir og rann- sóknir ekki síst beinst að Vatnajökli. Bæði innlendir og erlendir vísinda- menn hafa lagt hér sitt af mörkum, og leikmenn í Jöklarannsóknafélagi íslands hafa stutt við starf þeirra og greitt götu almennings til ferða og dvalar á jöklinum. Nöfn Sigurðar Þórarinssonar og Helga Bjömssonar ber hátt í þessari sögu en jafnframt fer ört fjölgandi efnilegum visinda- mönnum sem meðal annars lesa við- burði og aðstæður liðinna alda og ár- þúsunda úr klakaheimi jök- ulsins. Heillandi unthverfi Sjónir manna beinast nú í síauknum mæli að hálendi íslands. Þar mynda jöklam- ir kjama sem hafa verið áhrifamiklir í að móta um- hverfið með ísskriði og jök- ulfljótum til allra átta. Þeg- ar við þetta bætist eldvirkn- in er um að ræða efni í óviðjafnanlegt drama, eins og við fengxun sýnishom af þegar gaus í Gjálp fyrir tæpum fjór- um árum. Um leið og Islendingar hafa þurft að bregðast við þeirri vá sem fylgir eldgosum og jökulhlaup- um em menn farnir að sjá að jökl- amir eru efniviður til aíþreyingar og atvinnusköpunar sem aðrar þjóðir mega öfunda okkur af. Brýnt er að halda svo á málum aö viö spillum ekki hreinleika og ímynd jöklanna og nánasta umhverfis þeirra með vanhugsuðum aðgerðum. Það verður best gert með því að gera jöklana að þjóðgörðum og leggja til þeirra fjalllendi og óbyggðir allt um „Þekking á jöklum hérlendis hefur vaxið risaskrefum á öldinni sem nú er að kveðja og hafa sjónir og rann- sóknir ekki síst beinst að Vatnajökli. “ Samfylkingin eflist eini flokkurinn sem hefur komið með skýrar og augljósar tillögur um stjóm fiskveiða á meðan allir aðrir éra að reyna að semja sin á milli og innibyrðis um það hvernig lög um fiskveiðar skuli hljóða. Össur leiðir næstu ríkisstjórn Tillögur Samfylkingarinnar í flsk- veiðistjórnarmálum voru einróma samþykktar á stofnfundi hennar 1 byrjun maí. Ég hvet alla til að verða sér úti um þessar tillögur og kynna sér þær frá fyrstu hendi. Fiskveiði- stjómarmálin eru ein þau erfiðustu sem við glímum við nú um þessar mundir og á þeim hefur Samfylking- in tekið með festu og hugrekki. „Stefnuleysi, ósamstaða og for- mannsleysi" voru þau orð sem höfð vora um okkur samfylkingarmenn fyrir síðustu kosningar. Reyndar var þetta alls ekki rétt. Samfylkingin lagði fram stefnuskrá sína í kosningabaráttunni og sam- staða var meðal okkar og við höfðum valið okkur ágætan talsmann. Og stofnfundurinn staðfesti allt þetta. Stefnan er skýr, samstaðan augljós og glæsileg kosning fyrsta formanns Samfylkingarinnar eru staðreynd. Össur Skarphéðinsson mun leiða Samfylkinguna næstu árin. Á bak við hann er ánægður stór hópur fólks um allt land og fer þessi hópur stækkandi eins og síðasta skoðankönnun Gallup sýnir. Það hlýtur að verða hlutverk Össurar að mynda næstu ríkisstjóm íslands, enda er tími til þess kominn að hugsjón jafnaðarstefnunnar nái að rétta kúrsinn á þjóðarskútunni sem þegar er komin með hættulega mikla slagsíðu á stjórnborða. Karl V. Matthíasson Samfylkingin er til dœmis eini flokkurinn sem hefur komið með skýrar og augljósar tillögur um stjóm fiskveiða á meðan állir aðrir eru að reyna að semja sín á milli og innbyrðis um það hvemig lög um fiskveiðar skuli hljóða. - Frá stofnfundi Samfylkingarinnar í maí sl. Samfylkingin er komin á skrið á ný. Hún hefur eignast fyrsta for- mann sinn, Össur Skarphéðinsson, sem byrjar formannsferU sinn með glæsibrag. Það eru ánægjuleg gleði- tíðindi hvemig þessi nýi flokkur er að ná sér á strik eftir að hafa dalað frá því sem við vonuðumst til í fyrstu. Andstæðingar Samfylkingar- innar hafa hamast við það að tala um stefnuleysi hennar og að hún sé höfuðlaus her. Jafnvel þótt allir hafi vitað að grundvallarstef Samfylking- arinnar sé jöfnuður og réttlæti byggt á hugsjónum gömlu A-flokkanna og Kvennalistans var allt gert til að draga úr trúverðugleika þess ágæta hóps sem þar hefur komið við sögu. - Fólk þetta á mikla reynslu í stjómmálum sem og á öðr- um vettvangi. Meira en gaman Stofnfundur Samfylking- arinnar var sérstaklega vel heppnaður fundur. Þar ríkti mikil samstaða og alls ekki flokkadrættir sem margir andstæðingar Samfylkingar- innar höfðu spáð um og von- ast til. Stjórnmálaályktun stofnfundarins var sam- þykkt einróma. Þar kemur fram hvers konar samfélag við sam- heldur fylkingarmenn viljum byggja og búa rýna þí við. Einn andstæðingur Samfylking- laginu. Karl V. Matthíasson sóknarprestur í Grundarfíröi arinnar, sem var að reyna að vera fyndinn á kostnað hennar, hafði það í flimt- ingum að það væri svo gaman í Samfylkingunni en þar væri ekkert meira. Reyndar er það rétt hjá þessum stjórnmálamanni að það er gaman aö vera í Samfylkingunni en þar er líka heilmargt meira um að vera en gaman. Sam- fylkingin hefur sýnt það að hún þorir að koma með til- - lögur í öllum málum og er ekki hrædd við það að gagn- ið sem betur má fara í samfé- Samfylkingin er til dæmis Meö og á móti sjónvarpsskjá á Þingvöllum? Myndi auka aðsókn til muna „Margir munu eflaust ekki tíma því að fórna beinni útsendingu frá úrslitaleik EM í knattspyrnu fyrir Kristnihá- tíðina á Þingvöllum (K-2000). Það myndi því leysa málin hjá ansi mörgum að geta samein- að fótboltann og K-2000. Að- sóknin yrði líka án efa marg- falt meiri en ella. Það hlýtur að gera lukku innan kirkjunnar að einhverjir láti sjá sig, miðað við allt það opinbera fé sem búið er að dæla i verkefnið. Svo væri meira að segja miklu skemmtilegra að horfa á úr- slitaleikinn á risastórum skjá undir berum himni heldur en heima í stofu eða í reykmett- uðu lofti á einhverju öldur- húsinu - stemningin væri beint í æð. í bónus fengi mað- ur svo gospeltónlist í hálfleik og pylsusalan ryki upp úr öllu valdi. Einnig er aldrei að vita nema hönd Guðs léti sjá sig, það væri mjög við hæfi, slíkt hefur jú gerst áður í mikil- vægum knattspyrnuleik. Þannig gætu allir unað glaðir og sameinast sáttir í stuði með Guði. Skundum á Þingvöll og horfum á leik!“ Haukur Þór Hauksson viöskiptafræöingur Mun taka upp leikinn „Þar sem ég er forfallinn áhuga- maður um fótbolta hefi ég reynt að sjá sem flesta leiki í EM2000. En sjónvarpsútsend- ingu get ég líka tekið upp á video og horft á síðar. Og það ætla ég að gera um helgina, taka upp úrslitaleikinn sem verður vonandi á milli Portú- gala og Hollendinga. Mér finnst í lagi að horfa á þennan leik síð- ar um kvöldið enda er knattspyrnan hin sama, frábær. Mér finnst að það raski of mikið þeirri dagskrá sem löngu er ákveðin að setja upp stóran sjónvarpsskjá á Þingvöllum - þó hugsanlega mætti hafa sjónvarp í einhverju tjaldi. En ég held að við verðum einfald- lega að velja á milli að njóta þeirrar fjölbreyttu dagskrár sem fram fer á Þingvöllum og fótboltans í beinni. Ég ætla bæði að njóta dagskrárinnar á Þingvöllum, sem er „live“ eins og sagt er, og horfa á boltann í sjónvarpinu síðar um kvöldið eða nóttina. Og ég veit að við verðum mörg sem ætlum að gera þetta, taka bæði þátt í dagskránni á Þingvöllum og horfa á fótboltann þegar við kom- um heim.“ Séra Jón Helgí Þórarinsson prestur Komiö hefur í Ijós aö úrslitaleikur Evrópumótsins í knattspyrnu, sem spílaöur veröur næstkomandi sunnudag kl. 18, rekst á viö dagskrá Kristnlhátíöarinn- ar á Þingvöllum. Kristnlr boltafíklar vita því vart í hvorn fótinn þeir eiga aö stíga næsta sunnudag. kring. Með því fengist í senn kjöl- festa og aðdráttarafl í ferðaþjónustu næstu áratuga og skilaboð til um- heimsins sem tekið væri eftir. Samspil lista og náttúru Myndlistarmenn leggja sitt til jöklasýningarinnar á Höfn og minna okkur á þá sterku skírskotun sem jöklar og háfjöll hafa á mannshug- ann. Verk Önnu Líndal, Eggerts Pét- urssonar og Finnboga Péturssonar eru af ólíkum toga en öll auka veru- lega á gildi sýningarinnar. Það á einnig við um myndir Ragnars Th. og myndir unnar af bömum í sýsl- unni. Framtak Austur-Skaftfellinga með þessari sýningu er lofsvert og ætti að verða öðrum hvatning til að leita við- fangsefha og fanga í sérkennum eigin umhverfis. Ég hef stundum orðað það svo að í sunnanverðum Vatnajökli eigi Skaftfellingar auðlind sem fylli- lega getur jafnast á við flskimiðin úti fyrir. Norðan jökulsins er svo að flnna lítt snortin og óviðjafnanleg víð- emi sem nýst gætu Austfírðingum með hliðstæðum hætti. Hjörleifur Guttormsson Ummæli Slæmt fyrir Hafró „Það er slæmt fyrir Hafrann- sóknastofnun að þurfa að viður- kenna að veiði- geta á þorski hafi verið ofmet- in í fyrra og draga þurfi þess vegna úr veiðum á næsta ári. Það vekur upp spumingar um hvort ná- kvæmni i vinnubrögðum sé ábót- vant, hvort rannsóknir séu ekki nægar og fjármagn til að stunda al- hliða vísindi í hafinu sé of naumur stakkur skorinn. Fyrir leikmann getur verið erfítt að svara þessum spurningum, slík svör hljóta að koma frá stjórn Hafrannsóknastofn- unar.“ Kristján Pálsson alþm. í Morgunblaðsgrein 28. júní. Fyrirtækin ráöa gengisþróuninni „Miðað við nú- verandi vaxta- stig á peninga- markaði virðist enn gert ráð fyr- ir að stýrivextir verði hækkaðir. Það er hins veg- ar mjög ólíklegt að ein vaxta- hækkun til viðbótar valdi umtals- verðri styrkingu krónunnar. Á end- anum eru það væntingar íslenskra fyrirtækja sem ráða gengisþróun krónunnar til framtíðar og það eru væntingamar sem hafa breyst." Arnar Jónsson, sérfr. hjá Viöskipta- stofu Landsbanka Islands í Viöskiptablaöinu 28. júní Stundarbr j álæði „Hvemig ættu Alfreð Þorsteins- son og Sigrún Magnúsdóttir að útskýra fyrir öll- um þeim fram- sóknarmönnum sem lögðu Reykjavíkurlist- anum lið að nú væri ballið búið? Er ekki hætt við að það próf sem sjálfstæðismenn telja þessum flokkum svo hollt geti orðið frekar óþægilegt? Einkum þeim sem sem fyrstir verða til að svíkja lit? Það væri ekki ólíkt nokkrum félögum Samfylkingarinn- ar að hugsa sem svo að fá borgar- stjóra yfir til sín og þjarma svolítið að VG. En hvaða tilgangi þjónaði það nema stundarbrjálæði? Stefán Jón Hafstein í Degi 28. júní. Endurreist einræði miðaldakirkjunnar? Hin evangelíska þjóð- kirkja hefur mikið verið í umræðunni undanfarið. Ekki síst hin nýja stefna kirkjuyfirvalda á höfuð- borgarsvæðinu að koma á „festu og aga“ innan kirkj- unnar, einkum meðal presta. Hörð „áminningar- bréf' eru birt opinberlega gegn þeim sem ekki hljóta náð kirkjuyfirvalda í Reykjavík og þykir mörg- um nóg komið í miðalda- hugsunarhætti. Þá eru kirkjuyfir- völd á höfuðborgarsvæðinu að fækka mjög sóknum á landsbyggð- inni. Hér er einnig um mikla borg- aralega lágkirkjustefnu að ræða, andstætt þeirri hákirkjustefnu, þar sem áhersla er lögð á að allir lands- menn geti notið þjónustu kirkjunn- ar, sálgæslu og helgiþjónustu. „Óæskilegir“ prestar Það þarf ekki glöggt auga til að sjá að kirkjuyfirvöld í Reykjavík hafa á undanförnum árum og allt til dags- ins í dag róið að því öllum árum að losna við „óæskilega" presta og guð- fræðinga og hefur greinarhöfundur persónulega reynslu af slíkri kirkjupólitík í Reykjavík. Vísir að einræði miðaldakirkjunnar í Evrópu virðist vera að komast á, þar sem ríkja skal „agi og festa“. Það er oft skammt öfganna á milli og örþunnt er bilið á milli stjórnleysis og ógnar- stjórnar. Það er kaldhæðnislegt að eitt af því sem hinn mikli siðbótamaður Mart- einn Lúther barðist gegn var sú ógn- arstjóm og kirkjupólitísku bannfær- ingar, sem einkenndu kirkjuyfirvöld á miðöldum. Og svo langt ganga sumir í átt til ein- kennilegrar samblöndunar hugsunarháttar miðalda og kommúnisma að forsætis- ráðherra réttarríkisins ís- lands má ekki segja álit sitt á skoðunum biskups Islands, þar sem biskup vanþakkar rausnarleg framlög íslensku þjóðarinnar til bjálparstarfa og „bannar“ þjóðinni að eiga farsíma; slikt sé taumlaus græðgi. Minnir þetta óhugnanlega á við- horf ýmissa kirkjuleiðtoga miðalda- kirkjunnar, þar sem almenningur mátti ekki eiga neina veraldlega muni, slíkt var hin mesta og versta synd. Hætta á valdníðslu Það er fyllsta þörf á siðbót og sið- væðingu innan kirkjunnar og verður slíku ekki komið á nema með vald- dreiflngu. Reykjavík er höfuðborg ís- lands, en ekki ísland, sem lands- byggðin fylgir síðan með sem ein- hvers konar nýlenda borgríkisins. Eitt af því sem kirkjuyfirvöld á höfuðborgarsvæðinu vinna að er að fækka mikið sóknum innan prests- embætta á landsbyggðinni. Vafalítið þarf að fjölga sóknum og prestsemb- ættum á höfuðborgarsvæðinu, en það má ekki gera á kostnað lands- byggðarinnar. Á sama tima og lands- stjómin er að vinna að byggðamál- um landsbyggðarinnar vinna kirkju- yflrvöld í Reykjavík markvisst gegn landsbyggðinni með því að leggja niður fjölda sókna innan prestakalla þar, auk þess að miðstýra prestsemb- ættum landsbyggðarinnar, og tryggja sér þannig sem mest völd. Allar valdstjórnir þurfa aðhald, því ella er mikil hætta á valdníðslu, og því miður höfum við ekki komist hjá því að sjá slikt gerast innan þjóð- kirkjunnar. Hrópandi mótsögn Ef ekkert verður að gert situr landsbyggðin eftir og fær ekki þá lögboðnu þjónustu sem henni ber samkvæmt lögum og lagaákvæði stjórnarskrárinnar, að hin evangel- ísk-lútherska kirkja sé þjóðkirkja á íslandi, sem þýðir vissulega að hún sé þjóðkirkja allrar landsbyggðar- innar en ekki bara höfuðborgar- svæðisins. Þá er slík mismunun, sem kirkjuyfirvöld í Reykjavík beita almenning þessa lands eftir búsetu, í hrópandi mótsögn við jafnræðisá- kvæði stjómarskrárinnar. Hér þarf að koma til almenn sam- staða landsmanna allra til að spoma við þessari óheillavænlegu þróun. Vinna þarf að því af fullum krafti að landsbyggðin sitji ekki eftir hvað varðar hina lögboðnu prestþjónustu. Mikilvægt er að þjóðin öll vakni af þyrnirósarsvefni og bregðist við þessu óréttlæti. Hin lögboðna prest- þjónusta á að nýtast öllum lands- mönnum, bæði landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Ella verður höfuðborgarsvæðið að nokkurs kon- ar borgríki kirkjunnar, sem er öllum landsmönnum til skaða. Þá þarf að auka valddreifingu innan kirkjunn- ar, sem myndi tryggja sem jafnastan rétt allra landsmanna til hinnar lög- boðnu þjónustu prestsins. Þannig myndi jafnræðisákvæði stjórnar- skrárinnar ná til allra landsmanna. Ólafur Þórisson Ólafur Þórisson guöfræöingur frá HÍ „Mikilvœgt er að þjóðin öll vakni af þymirósarsvefni og bregðist við þessu óréttlœti. Hin lögboðna prestþjónusta á að nýtast öllum landsmönnum, bæði landsbyggðinni og höfuðborgarsvœðinu. “ - Á kirkjuþingi í október sl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.