Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 4
20 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 Sport - að Hlíðarenda eftir Valssigur á KA í gærkvöldi 1- 0 Ólafur Ingason (56.) 2- 0 Kristinn Lárusson (84.) Valsmenn unnu mjög mikilvægan sigur á KA-mönnum í 1. deildinni í gær og tryggðu sér um leið toppsætið á ný þar sem FH-ingar töpuðu stigum á Hornafirði. Staðan er vissulega orðin góð að Hlíðarenda, 19 stig eftir átta leiki og næst á dagskrá er uppgjör toppliðanna í næstu viku. Sigur Valsmanna á KA-mönnum í gær var fyrst og fremst vamarsigur enda er Valsvömin vel skipuð og gaf gestunum lítil færi á að skapa hættu í gær. Bæði lið fóm annars varlega í sínum aðgerðum og lítið gerðist þar til um miðjan fyrri hálfLeik þegar Einar Daníelsson dómari dæmdi tvö mörk af á tveimur mínútum, eitt á hvort lið. Fyrra markið gerði Þorvaldur Örlygs- son úr óbeinni aukaspymu inn í vítateig en þar biðu KA-menn ekki eftir flauti dómarans. Tveimur mínútum síðar skoppaði boltinn yfir Eggert Sigmunds- son, markvörð KA, eftir langa sendingu en Eggert var hættm- eins og aðrir varn- armenn KA þar sem Ólafur Ingason var dæmdur rangstæður. Við þetta færðist aukin harka í leikinn en liðinum gekk þó áfram illa að skapa færi. Ólafur Ingason, framherji Vals- manna, var litið með í leiknum nema þá helst við að láta dæma sig rangstæð- an en líkt og góðum framherja sæmir refsaði hann KA-mönnum þegar hann slapp í gegn réttstæður eftir góða skallasendingu Kristins Lámssonar og skoraði laglega. KA-menn tóku við sér eftir þetta en sem áður í leiknum stöðvuðust nær allar sóknimar á Bri- an Welch sem var sem klettur í Valsvörninni og átti alla skallabolta. Valsmenn innsigluðu síðan sigurinn skömmu fyrir leikslok er Kristinn Lár- usson var réttur maður á réttum staö eftir horn Arnórs Guðjohnsens og skalla Vilhjálms Vilhjálmssonar. Það munar mikið um Kristin í Valssliðinu en hann skoraði þama í öðrum leikn- um í röð og hann og Arnór bera spil liðsins uppi. Bestu menn Vals vom þó aftasta varnarlína liðsins. Miðverðimir Brian Welch og Pól Thorsteinsson gefa fá færi á sér og Hjörvar Hafliðason átti Lokasprettur - Víkinga skilaöi þriggja marka sigri á Dalvíkingum 0-1 Sumarliði Ámason (32.) 0-2 Sváfnir Gislason (38.) 1- 2 Jóhann Hreiðarsson (43.) 2- 2 Atli Viðar Björnsson (58.) 2-3 Jón Grétar Olafsson (91.) 2-4 Sumarliöi Árnason (94.) 2-5 Láms E. Huldarson (95., viti) í byrjun leiks leit það út að Víkingar ætluðu að vinna auðveldan sigur á Dalvík. Vörn Dalvíkinga var ótraust og bjargaði Atli Már Rúnarsson oftar en einu sinni Dalvíkingum. Dalvíkingar fengu fyrsta almennilega færið sitt á 43. mínútu og var það nýtt en áður höföu Víkingar sótt stíft að marki Dalvíkinga. Markmenn beggja liöa vel með á nótunum Seinni hálfleikur byrjaöi vel og var mikið um skot að marki en markmenn beggja liða björguðu miklu. Atli Viöar jafnaði svo fyrir Dalvíkinga og við það lifnaði aðeins yfir leik þeirra. Þórir Áskelsson var svo tekinn út af um miðjan seinni hálfleik og við það virtist allur stöðugleiki fara úr liðinu. Víkingar fóra að sækja meira og bjargaði Atli að Dalvíkingar fengu á sig mark. Þrjú mörk á fjórum mínútum En svo bregðast krosstré sem önnur tré og skoruðu Vikingar þrjú mörk á fjórum mínútum en þessar fjórar mínútur voru allar í þeim töfum sem dómari leiksins, Jóhannes Valgeirsson, bætti við. Dalvikingar virtust hafa gefist upp eftir að vallarklukkan var komin í 90 mínúturnar og nýttu Víkingar þaö svo sannarlega. -JJ Maður leiksins: Sumarliði Árnason, Vikingi. DV ÍR-Þróttur í Breiðholtinu í gærkvöld: Góð stígandi - sagði Ásgeir Elíasson eftir sigur á ÍR 1-0 Amór Gunnarsson (4.) 1-1 Páll Einarsson (45.) 1-2 Páll Einarsson (87. vítasp.) Þróttarar unnu mikilvægan sigur á ÍR í 1. deildinni i knattspymu í Mjóddinni í Breiðholti í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 1-2 og verða það að teljast mjög sanngjörn úrslit miðið við gang leiksins. Þróttarar fógnuðu mjög þessum sigri sem var jafnframt fyrsti útisigur liðsins í deildinni i sumar. Óskabyrjun ÍR ÍR-ingar fengu óskabyrjun þegar Arnór Gunnarsson skoraði strax á fjórða mínútu og var vel að þessu marki staðið. Þróttarar áttuðu sig smám saman á hlutunum og tóku leikinn í sinar hendur, voru mun beittari i leik sínum en í sjálfu sér var liðið ekki að skapa sér hættuleg tækifæri. Liðið var að leika vel og spilamennskan góð úti á veUinum. ÍR-ingar duttu í þá gryfju að bakka fuUmikið og fyrir vikið fengu Þróttarar meira rými á veUinum. Jöfnunarmark Þróttara lá í loftinu og það kom ekki fyrr en á lokamínútu fyrri hálfleiksins. PáU Einarsson rak endahnútinn á góða sókn með góðu skoti utarlega í vítateignum. Páll felldur innan vítateigs í síðari hálfleik héldu Þróttarar uppteknum hætti, voru mun meira með boltann en vöm Þróttara með Kristján HaUdórsson í broddi fylkingar varðist vel. Eftir því sem á leikinn leið gerðust Þróttarar æ ágengari og markið virtist liggja í loftinu. Þegar þrjár mínútur lifðu af leiktímanum var Páll Einarsson Dean Martin, KA, sýnir hér skemmti- lega takta fyrir framan Valsmaninn Guðmund Brynjólfsson. Leikur Vals og KA lauk með sigri fyrmefnda liðsins sem með sigrinum skaust á topp 1. deildarinnar. DV-mynd Hilmar Þór óaðfinnanlegan leik í markinu. Auk þeirra var Matthías Guðmundsson mjög friskur. Valsliðið er nú búið að taka inn 13 stig af síðustu flmmtán og er á góðri leið með að vinna sér aftur sæti meðal þeirra bestu á ný. KA-liðið er aftur á móti að hiksta og þetta var þriðji leikurinn í röð án sig- urs. Slobodan MUisic kom nú inn í vörnina og Þorvaldur Örlygsson þjálf- ari fór inn á miðjuna en vandamálin liggja enn hjá fremstu mönnum sem hreinlega sáust ekki í þessum leik. KA er enn í efri hlutanum en það er orðið stutt í botninn lagist málin fyrir norð- an ekki á næstunni. Maður leiksins: Brian Welch, Val. -ÓÓJ \ ZÍ- 1. DEILD KARLA FH 8 5 3 0 18-7 18 Valur 8 6 1 1 20-7 19 Víkingur 8 4 3 1 17-13 15 KA 8 3 2 3 13-10 11 Dalvík 8 3 2 3 16-14 11 ÍR 8 3 2 3 11-11 11 Þróttur, R. 8 3 2 3 10-14 11 Sindri 8 0 5 3 2-8 5 Skallagr. 7 1 0 6 5-20 3 Tindastóll 7 0 2 5 4-12 2 Markahæstir: Sumarliöi Árnason, Víkingi .... 11 Hörður Magnússon, FH.........10 Arnór Guðjohnsen, Val...........8 Atli Viðar Bjömsson, Dalvík.....6 Jóhann Hreiðarsson, Dalvik......6 Pétur Bjöm Jónsson, KA .........6 Skallagrimur fœr Tindastól í heimsókn i lokaleik 8. umferðar á morgun, 11. júlí. -ÓÓJ felldur innan vítateigs og dæmdi dómari leiksins umsvifalaust vítaspymu. Páll tók spyrnuna sjálfur og skoraði af öryggi. Síðustu mínúturnar sóttu ÍR- ingar nokkuð en Þróttarar voru fastir fyrir, ákveðnir að halda fengnum hlut sem gekk síðan eftir. Nokkrar breytingar voru á liði ÍR frá síðasta leik. Fimm leikmenn sem þá voru með voru fjarri góðu gamni, ýmist vegna leikbanns, meiðsla eða veikinda. Þetta veikti liðið óneitanlega og bar liöið þess merki í leik sínum. Batamerki á liöinu „Ég var mjög ánægður með leik liðsins í þessum leik. Það eru mikil batamerki á liðinu og óhætt að segja að það sé góð stígand, i þessu hjá okkur. Við vorum betra liðið og sigurinn því fyUilega sanngjarn," sagði Ásgeir Elíasson með bros á vör í leikslok. -JKS Maður leiksins: Páll Einarsson, Þrótti. Sindri-FH Dauft Leikur Sindra og FH á Hornaflrði í gær var ekki mikið fyrir augað, gestimir voru þó heldur sterkari og hefðu auð- veldlega getað unnið leikinn en heimamenn stóðust áhlaupið og niðurstaða 0-0 jafntefli og enn stríða Sindramenn stóru liðunum í fyrstu deildinni. Hvorugt liðið sýndi nokkra yfirburði í hálfdaufum fyrri hálfleik, meöalmennskan var i fyrirrúmi og fá marktækifæri litu dagsins ljós. Skásta færi hálfleiksins áttu þó heimamenn þegar Almir Mestevic lék vörn FH-inga grátt en ágætur mark- vörður FH-inga Guðjón Skúli Sveinsson varöi máttlaust skot hans vel. Seinni hálfleikur var nokkuð líflegri og skiptust liðin á um að sækja enda þótt fátt kæmi út úr því sem liðin voru að gera framan af hálfleiknum líkt og í þeim fyrri. FH-ingar komust í sitt besta færi í leiknum þegar markahrókurinn Hörður Magn- úson komst einn inn fyrir vöm Sindra en stóð ekki undir nafni og skaut í hliðametið. Sindramenn misstu mann út af á 73. minútu þegar Almir Mestevic braut á Jóni Gunnari Gunnarssyni. Eftir þetta jókst pressa FH sem sótti látlaust það sem eftir lifði leiks en án árang- urs. -EE Maður leiksins: Nihad Hasecis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.