Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2000, Síða 14
30 MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2000 Sport__________________r>v Orri er höföingji Það er margsannað mál að Orri frá Þúfu er mestur allra núlifandi stóðhesta og mikill foðurbetrungur. Það eitt að hesturinn skuli eiga af- kvæmi sem vinna bæði A-flokk og B-flokk gæðinga á landsmótinu seg- ir allt sem segja þarf. Orri frá Þúfu hlaut æðstu verð- laun sem nokkurt kynbótahross get- ur fengið, Sleipnisbikarinn, sem veittur var á fyrsta landsmótinu á Þingvöllum 1950. Heildarfjöldi skráðra hrossa undan höfðingjan- um Orra eru 357 og af þeim eru 137 með kynbótadóm. Öryggi matsins er 99%. Það var eftirminnileg stund þegar Orri sjálfur var leiddur inn á Brekkuvöllinn við tvítaum og fékk að spranga innan um afkvæmin sín sem hvert er öðru glæsilegra. Þetta var hápunktur landsmótsins sem margir biðu eftir. Fyrir marga út- lendinga sem voru tæplega helming- ur mótsgesta að þessu sinni fann maður fyrir hve mikilvægt var fyr- ir þá að sjá klárinn berum augum og margir voru að sjá hann í fyrsta og síðasta skiptið. Orri frá Þúfu var sýndur við tvítaum af ungu og efnilegu reiöfólki. Á myndinni til hægri eru 10 afkvæmi Orra sem sýnd voru á afkvæmasýningu á sunnudaginn. Framtíðar- reiðmenn Það var umtalað á LM 2000 hvað börn og unglingar voru með góðar sýningar og hesta. Reiðmennskan var upp til hópa fyrsta flokks og ár- angur góðs ungmennastarfs hjá þeim félögum sem sinna því skilar sér í keppni eins og á landsmóti. Camilla Petra Sigurðardóttir náði sigrinum af Heklu Katharinu Krist- insdóttur sem hafði verið efst fyrir úrslitin. Camilla, sem keppti fyrir Hestamannafélagið Mána, reið sitt prógram af mikilli festu og uppskar sigur. Annars var erfitt að greina á milli þeirra keppenda sem voru í fyrstu þremur sætunum, svo jöfn var keppnin og spennandi. Hesta- kosturinn sem var í bamaflokki var einnig eftirtektarverður og gátu þeir hestar sómt sér vel meðal reyndari knapa. Börnin eiga hrós skilið fyrir faglega reiðmennsku og vel þjálfaða hesta. Freyja Gísladóttir sigraði í unglingaflokki á Muggi. Enaurfæddur Kolfinnur Afkvæmasýning Kolflnns frá Kjarnholtum var í einu orði sagt frábær. Kolfinnur, sem hefur átt sínar lægðir sem kynbótahestur, sannaði það svo rækilega að hann er hestur sem gefur fjölhæf ganghross, af- kastahross i fremstu röð. Tilburð- imir í afkvæmum hans og Kolfinni sjáifum voru þvílíkir að sumir höfðu það á orði að hafa tárast yfir hæfileikum þeirra og kostum. Kolfinnur var tekinn úr haga daginn áður en hann var sýndur og jámaður upp. Hann lét sér ekki muna um að skeiða eins og gammur þrátt fyrir nán- ast enga þjálfun. Það var snill- ingsknapinn og heimsmeistarinn, hún 010 Amble, sem sýndi höfðingjann, og var það vel við hæfi því hún tamdi hestinn á sínum tíma og sýndi. Eitt af afkvæmun Kolfinns frá Kjarnholtum, Þula frá Holum, sem stóð efst í flokki 7 v. hryssna og eldri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.