Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Síða 11
11 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 py___________________^ZZZ~ZZZZZZZZ^^ZZ^ útiönd Byggingaverktakar - Járnabindingamenn. Hundraða enn saknað eftir aurskriður á Filippseyjum: Ezer Weizman. Forseti ísraels var grunaöur um mútuþægni. Forseti ísraels segir af sér vegna þrýstings Ezer Weizman, forseti ísraels, lét í gær undan þrýstingi og sagði af sér vegna peningahneykslis. Sendi Weizman, sem er orðinn 76 ára, af- sagnarbréf sitt til forseta þingsins þremur árum áður en kjörtímabil hans rennur út. Weizman var nýlega yfirheyrður af lögreglunni vegna gruns um að hann hefði þegið hundruð þúsunda dollara frá franska auðkýfingnum Edouard Saroussi á árunum 1988 til 1993 þegar hann var þingmaður og ráöherra. Weizman var þó ekki ákærður. Árið 1979 var Weizmann einn höf- unda friðarsamkomulags ísraela og Egypta. Var það fyrsta friðarsam- komulag ísraela við arabaland. Ári seinna sagði hann af sér ráöherra- embætti í stjórn Begins vegna þess hversu hægt friðarviðræðumar við Pcilestínumenn gengu. Þakkarvottur Jóhannes Páll páfi II tekur hér viö málverki aö gjöf, máluöu af föngum, og táknar þaö páfa og kirkju sem verndara mannkyns á erfiöum tímum á undangenginni öld. Athöfnin fór fram í Regina Coeli-fangelsinu í Róm. Einkaumboð á íslandi: Herinn horfði á morð á bændum Grímuklæddir byssumenn, sem taldir eru félagar í hægri sinnaðri dauðasveit í Kólumbíu, myrtu á laugardaginn sex bændur, nálægt þorpinu San Jose de Apartado, á meðan herþyrla sveimaði yfir. Hermenn voru einnig á göngu í nágrenninu, að því er kirkjusamtök greindu frá. KYNNUM „U-TIER“ SJÁLFVIRKA JÁRNBINDIVÉL FRÁ J.A.M. í JAPAN. • Auðveld í notkun. • Hraðvirk. • Vegur aðeins 2,5 kg. • Tvær gerðir (styttri og lengri gerð). Vélin hleður, vindur vírinn um jámið og klippir, allt í sömu aðgerðinni sem tekur aðeins 2 sekúndur. EHF. 71 lík grafið undan ruslahaugum í Manila Hermenn og björgunarmenn sem hafa leitað að fólki í ruslahaugun- um í Manila á Filippseyjum sem skriðu fram segjast hafa fundið 71 lík og eygja litla von um að fmna einhverja fleiri á lífi. Ruslahaugarn- ir ganga undir nafninu „Fyrir- heitna landið". Hundraða manna er enn saknað og óttast að þeir liggi einhvers stað- ar undir tonnum af rusli og drullu sem hrundi á mánudagmorgun á fá- tækraþorp sem er í og við rusla- hauginn. „Þar til síðdegis í gær gátum við enn heyrt í fólki sem var að kalla á hjálp, en í gærkvöld heyrðum við ekkert meir,“ sagði yfirmaður í björgunarsveitunum, Adela Pamat. „Meira að segja ættingjarnir eru á því að allir séu látnir. Ég er einnig á því að allir séu látnir,“ sagði Pa- mat enn fremur. Einum íbúanna viö ruslahauginn bjargaö eftir aö hundruö grófust undir rusli. Um 100 manns slösuðust þegar um einn hektari af 10 hektara rusla- haug í úthverfl Manila féll saman eftir að hafa verið gegnsósa af rign- ingarvatni en undanfarna daga hef- ur fellibylurinn Kai-Tak riðið yfir eyjarnar. Meira en hundrað kofar og íbúð- arhús sem standa fyrir neðan rusla- hauginn sem gnæfir yfir þeim urðu undir rusli og eðju þegar rigningar- vatn orsakaði aurskriðu sem féll á þorpið. Hundruð björgunarmanna og hermanna leituðu í alla nótt að fólki sem kynni að vera á lífi undir ruslinu og notaði rafstöðvar og vasaljós til að lýsa sér leið um leið og þeir grófu ofan í rulsið. „Við fundum bara látið fólk,“ sagði ónefndur liðsstjóri í hernum. „Við höfum enn sem komið er eng- ar nákvæmar tölur yfir þá sem eru týndir." Watson rekinn úr höfninni í Færeyjum Hvalavinurinn Paul Watson og áhöfn hans um borð í flaggskipi Sea Shepherdsamtakanna, Oce- an Warrior, sigldu í gær- kvöld inn að höfninni í Þórshöfn í Færeyjum. Skip- ið sneri hins vegar við þeg- ar tveir gúmmíbátar og hraðbátur, frá færeysku strandgæslunni og lögregl- unni, að því er talið er, stefndu að hinum óboðna gesti. Annar gúmmíbátanna sigldi við hlið skips hvalavinanna á leið út. Lögreglan og fjöldi íbúa Þórshafnar fylgdist með atburðun- um á hafi úti. Fyrr um daginn hafði þyrla danska sjóhersins flogið mörgum sinnum yfir Ocean Warrior en það var ekki fyrr en skipið var komið í hafnarmynnið sem látið var til skarar skríða. Færeyingar hafa verið hvattir til að sýna stillingu og láta Paul Watson að mestu afskiptalausan. Fær- eyingar líta svo á að þó að hann segist kominn til Fær- eyja til að stöðva grinda- dráp sé hann fyrst og fremst að auglýsa sjálfan sig. MikiU viðbúnaður er þó vegna mögulegra átaka. Eru læknar í Dan- mörku reiðubúnir til að veita þjón- ustu í Færeyjum komi til alvarlegra átaka milli lögregluyfirvalda og her- skárra umhverfisvemdarsinna um borð í Ocean Warrior. Mannekla er á sjúkrahúsinu í Færeyjum vegna sumarfría. Lækn- ar hafa þó verið beðnir um að vera viðbúnir útkalli. „Við vitum um dvalarstað þeirra lækna sem eru í fríi. Þeir læknar sem eru i fríi i Færeyjum eiga á hættu að vera boðaðir á vettvang reynist það nauðsynlegt," segir Hans Jacob Simonsen, yfirlæknir á sjúkrahúsinu, í viðtali við Ritzaufréttastofuna. Færeyska sjónvarpið, sem venju- lega sendir ekki út fréttir um helg- ar, var með sérstaka útsendingu að- faranótt mánudags frá stöðu mála. Paul Watson. Rekinn úr höfninni í Færeyjum. VIÐGERÐIROGVIÐHALD. fnmMVirkjaw.okliar.fagll Húsaklæðningj notar MCI/VCI | !,viðgerðarefnin frá rCortecsememy ■iso^ooifl gæðavöttuð; ISÖ9001 er fSértiœfð] [vinnubrögð'íi \sprungu^iekam ogj finúrviðgefðum] alþjóðlegur staðall um gæðakerfi sem tryggir þér fyrsta flokks vöru. HÚSAKLÆÐNING ? S 555 1947 • F 555 4277 • 894 0217

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.