Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.07.2000, Page 15
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ 2000 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun hf. Stjórnarformaöur og útgáfustjórí: Sveinn R. Eyjólfsson Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjórar: Jónas Kristjánsson og Óli Björn Kárason Aöstoöarrítstjóri: Jónas Maraldsson Auglýsingastjóri: Páll Þorsteinsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáaugiýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Vfsir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiölunar: http://www.visir.is Rltstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is Akureyri: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: Frjáls fjölmiðlun hf. Filmu- og plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. Áskriftarverö á mánuöi 1950 kr. m. vsk. Lausasöluverð 180 kr. m. vsk., Helgarblað 250 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmælendum fyrir viðtól við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. íslenzkur sjarmör Norðurlandamenn hafa smám saman misst fyrri áhuga á íslandi og því, sem þar kann að vera að gerast. í bolta- og söngvakeppni heldur fólk með nágrönnum sínum, þar á meðal íslendingum, þegar eigin þjóð sleppir, en gömlu íslandsvinimir safnast smám saman til feðra sinna. í staðinn hefur risið nýr hópur fólks, sem tengist ís- landi órjúfanlegum böndum. Það eru eigendur íslenzkra hesta, sem flykkjast hingað þúsundum saman á tveggja ára fresti til að fylgjast með landsmóti hestamanna og hitt- ast hitt árið á heimsleikum íslenzkra hesta. Margt af þessu fólki kemur sér fyrir í áhorfenda- brekkunni með regngalla sína og teppi, kaffibrúsa og mótaskrá og er þar dag eftir dag frá morgni til kvölds í sex keppnisdaga samfleytt. Þetta er um fjórðungur fjöldans, sem við sjáum á myndum af áhorfendabrekkunni. Áhugamenn um íslandshesta gera margt fleira. Þeir kaupa reiðtygi og annan búnað í hestavöruverzlunum, þeir fara í reiðtúra og hestaferðir um byggðir og óbyggðir landsins, kaupa gúmmískó í kaupfélaginu og þeir leita að draumahestinum til að taka með sér heim. Um aflan heim, en mest í Evrópu, snýst líf tugþúsimda fjölskyldna um íslenzka hestinn. Hann er þungamiðjan í lífi þeirra, ræður frístundum þess og vinaböndum. ís- lenzki hesturinn er áhugamál, sem heltekur fólk og ryður öllu öðru til hliðar. íslenzki hesturinn er sjarmör. Það er ekki nóg með, að hann hafi varðveitt fornan góð- gang, sem horfinn er víðast annars staðar, heldur er hann mannelskur umfram aðra hesta, ljúfur og hlaupaglaður, svo sem bezt kemur fram í frjálsum rekstri um fjöll og firnindi, ósnortin viðerni þessa strjálbýla lands. Þótt íslendingar séu sjálfir aukahjól í þessu innilega sambandi, fer ekki hjá því, að sameiginlegt áhugamál framkafli vinabönd. í fristundum ferðast sumir íslenzkir hrossabændur í góðu yfirlæti milli góðbúa vina sinna í út- löndum til að endurgjalda heimsóknir tfl íslands. Fjármagn og atvinna flæðir umhverfis þetta áhugamál. Þótt dæmi séu um, að hrossakaupin sjálf séu undir borð- um, er meirihluti heildarviðskiptanna uppi á borði, verzl- un með búnað og gögn, hestaflutningar innanlands og til útlanda, þjálfun og kennsla, ferðalög og gisting. Hundruð ungra íslendinga starfa tímabundið á þessu sviði í útlöndum, aðrir hafa komið sér þar fyrir og tugir þeirra hafa keypt sér þar jarðir. Hér á landi starfa hundr- uð erlendra ungmenna við þjálfun og umgengni við hesta. Samanlagt er gífurleg seðlavelta í greininni. Stjómvöld hafa fengið síðbúinn áhuga, mest að frum- kvæði Guðna Ágústssonar landbúnaðarráðherra og Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Risið hefur frá- bært móts- og æfingasvæði í Víðidal við EUiðaár og sjóð- ir hafa verið stofnaðir til framgangs greininni. Mesta landsmót sögunnar hefur verið haldið við beztu aðstæður í Viðidal og verður drifQöður enn frekari vina- tengsla og viðskipta. íslenzki hesturinn mun áfram auka kyn sitt og vinna ný lönd um allan heim, þar sem honum verður hvarvetna tekið sem heimflisvini. Hvort sem hestamir em fæddir í útlöndum eða í víking frá íslandi, þá bera þeir nánast undantekningarlaust ís- lenzk nöfn, enda er það eitt af markmiðum alþjóðasam- bands eigenda íslenzkra hesta. Sörlar og Blesar, Vanadís- ir og Freyjur em að breiðast út um heim. íslenzki hesturinn heima og erlendis er sendiherra og sjarmör landsins, sívirk auglýsing islenzkrar framleiðslu og þjónustu, verðmæt auðlind, sem ekki þverr. Jónas Kristjánsson I>V ______27 Skoðun* Skynsemi biskups í öllu þvarginu að undan- förnu vegna kristnitökuhá- tíðarinnar var biskupinn sá eini sem sýndi skynsemi. Hann veit að fjöldi og fé skiptir trúna engu máli. Aðrir virtust hugsa um sætanýtinguna að nútímas- ið, eins og Þjóðkirkjan og Þingvellir væru Þjóðleik- húsið með eintóm kassa- stykki fyrir alla fjölskyld- una. Þakklæti og ásökun Trú er tengd því innsta í kjama manns en á svo blendinn hátt að hún er sjaldan hrein nema hjá hræsnurum. í henni fer saman þakk- læti til skaparans fyrir lífið en jafn- framt ásökun vegna dauðans sem vekur þó vonina um framhaldslíf í faðmi guðs, sem trúaðir sætta sig ekki við að sé mótsagnakenndur í verki sínu. Páfmn í Róm fyllir ekki Péturs- torgið nema einu sinni á ævinni, með forvitnum við andlátið, annars er það hálftómt, þótt það sé minna en Þingvellir. Svo lifandi lútherskur Gudbergur Bergsson rithöfundur biskup í Reykjavik má ima vel við aðsóknina enda sýndi hann stillingu þrátt fyrir ágang ijölmiðlafólks sem miðar allt við fjöl- menni á popphátíðum. Barið af miskunnarleysi Ekki sýndu réttlátir sömu stillingu og bisk- upinn, þeir sem þykjast alltaf hugsa um hag fjöld- ans. Lætin voru svo gífur- leg í þessum faríseum og talnabjánum að halda mætti að á íslandi hafi aldrei verið sóað fé af minna tilefni, þótt það sé gert á þúsund ára fresti. Kannski skiptir meira máli hátíðir æskunnar fyrir utan kristnitökuhá- tiðina, þótt þar gerðist það venju- lega: Unglingar að láta berja sig og berja aðra undir berum himni. Vegna þess að þeir eru ekki barðir heima. En lífið á eftir að berja flesta af meira miskunnarleysi en foreldr- arnir myndu nokkurn tímann gera. Þá geta þau annað hvort ekkert gert eða eru laus allra mála. „Sem dæmi báru stúlkur krans til að varpa í Drekking- arhyl og minna þannig á misskilning kristninnar á sœmdinni. Sú kristna alvara bitnaði líka á karlmönn- um, konum var drekkt, karlar höggnir. - En hvaða krans fengu þeir frá Jafnréttisráði sagnfræðinga ? “ Stóriðjumat án leiðsagnar Ekki er ein báran stök í stóriðju- klúðri stjórnvalda. Á elieftu stundu voru í vor afgreidd á Alþingi lög um mat á umhverfisáhrifum. Mikill þrýstingur var frá ýmsum fram- kvæmdaraðilum að einfalda máls- meðferð við mat á umhverfisáhrif- um. Sett voru í lögin ákvæði um svo- nefnda matsáætlun sem undanfara matsskýrslu. Á móti kom að ferlið var stytt í hinn endann með því að felld voru niður ákvæði um að Skipulagsstofn- un geti úrskurðað framkvæmd í frekara mat. Samkvæmt nýju lögun- um verður stofnunin annaðhvort að segja já eða nei að lokinni at- hugun matsskýrslu. Ekkert bólar á reglugerð Um margt eru nýju lögin óljós og þvi er kveðið á um það í 19. grein laganna að umhverfisráð- herra setji í reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd þeirra. Eru sérstaklega talin upp 10 svið þar sem reglugerðar þurfi við, þar á meðal um framsetningu matsáætlunar og matsskýrslu, samráðsferlið, aðgang almenn- ings að gögnum og kynningu á framkvæmd og úrskurðum. í bráðabirgðaákvæði er kveðið á um að reglugerðin skuli sett eigi síðar en 1. október 2000. Sá er gallinn á þessu öliu saman, að ekkert bólar á reglugerðinni, og ekki er einu sinni byrjað að vinna að und- irbúningi hennar. Umhverfisráðherra hefur nýlega skipað starfshóp í málið, en hann hafði ekki komið saman nú í júlíbyrjun. Mat þeirra sem til svona vinnu þekkja er að erfltt muni reyn- ast að ganga frá reglugerðinni fyrir haustið innan lögboðinna tímamarka. Reyöarál og Landsvirkjun byrjuö matsferli Stærstu framkvæmdaáform ís- landssögunnar eru á þungu skriði, borin fram af Reyðaráli hf. og Lands- virkjun. Bæði fyrirtækin voru farin að vinna eftir lögunum daginn sem þau tóku gildi, málþola að kemba fjöll og firði austanlands og standa við NORAL-dagskrána. í júní síðast- liðnum hófu þau að kynna tillögur sinar að matsáætlun og ætla innan skamms að skila þeim formlega til Skipulagsstofnunar. Þar á bæ hafa menn 4 vikur til að skoða tillögum- ar, samþykkja áætlim- ina eða vísa henni til foðurhúsanna í frekari vinnslu. Það er hér sem vand- ræðin byrja. Lögin em afar óljós um það hvem- ig með tillögu að matsá- ætlun skuli farið, bæði gagnvart almenningi og milli framkvæmdarað- ila og Skipulagsstofnun- ar. Hvaða rétt hefur al- menningur til athuga- semda á þessu stigi? Hvað um aðgang að gögnum og hvemig á að leiða ágrein- ing á þessu stigi ferlisins til lykta? Framhaldið er með svipuðum hætti varðað óvissu á meðan reglugerð er ekki til staðar. Bíða þess að Siv vakni Umhverfisráðherrann skrifaði grein um nýju lögin í Morgunblaðið 27. júní og var harla ánægð með þau. Hún minntist hins vegar ekki einu orði á það sem við á að éta, þ.e. lög- boðna viðamikla reglugerð sem hennar er að setja. Alit mat á um- hverfisáhrifum er i uppnámi á með- an þá leiðsögn vantar og réttaróviss- an blasir við. Hér eiga allir sitt undir, almenn- ingur í landinu og þeir sem undir- búa framkvæmdir. Stóriðjumáiin vega þar þyngst um þessar mundir og öllu stappinu er stefnt í óvissu eins og málum er komið. Það eitt að ferlið er byrjað án þess vegvísarnir séu til staðar skapar óvissu fyrir allt framhaldið. Ef reyndi á dómskerfið á síðari stigum gætu formgallar sem þessir orðið þúfan sem veltir hlassi. Hjörleifur Guttormsson „Sá er gallinn á þessu öllu saman, að ekkert bólar á reglu- gerðinni, og ekki er einu sinni byrjað að vinna að undir- búningi hennar. Umhverfisráðherra hefur nýlega skipað starfshóp í málið, en hann hafði ekki komið saman nú í júlíbyrjun. “ - Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra. Með og á móti inaráták borgarinnar sem skyldi? Betur hugsað um ketti Ógeðfellt af borginni A Það var farið í JÉL . þetta átak í kjölfar pl mikilla kvartana borgarbúa yfir ágangi katta og borgaryfirvöld urðu auðvitað að bregðast við því. Árangur- inn af átakinu var fyrst og fremst sá að nú er betur hugsað um kettina i borg- inni, kattaeigendur eru sér betur meðvitandi um bæöi réttindi sín og skyldur. Menn eru sammála um að bæði hafi skrán- ing á köttum batnað til muna og Hrannar B. Arnarson formaöur umhverf- is- og heiibrigöis- nefndar. bólusetningar og annað slíkt þannig að segja má að þetta hafi skilað sér í betri um- hirðu og betri meðvitund kattaeigenda um skyldur sín- ar við dýrin. Vera má að þessum árangri hefði mátt ná með öðrum aðferðum og hugsanlega kostnaðarminni hins vegar fór stór hluti af kostnaðinum í auglýsingar og annað slíkt en forsendur okkar fyrir því að fara i átak- ið voru einmitt þær að standa al- mennilega að kynningu. Það er alveg sérstakiega ógeð- fellt að Reykjavík- urborg skuli standa fyrir því að fanga ketti, sem í flestum til- fellum eru heimiliskettir, og rukka síðan eigendur katt- anna fyrir að koma og sækja Júlíus VíflH veg fyrir að útigangskettir þessa ketti sem í mörgum til- Ingvarsson gengju lausir í Reykjavík og fellum hafa verið fangaðir á borgarfuiitrúi Sjáif- sem ekki myndi skila ár- næstu grösum við heimili stæöisfiokksms angrj paö að villikettir séu sin. Köttum er nauðsynlegt vandamál í Reykjavík er þar að vera frjálsir og geta hreyft sig um fyrir utan stórlega orðum aukið. og skoðað umhverfi sitt. Það er nátt- úrlega fáránlegt að Reykja- víkurborg skuli vera að fanga svokallaða villiketti fyrir himdrað þúsund krónur stykkið með þessu átaki sem margir vöruðu Reykjavíkur- borg við að ekki væri skyn- samleg leið til þess að koma í U ú Reykjavíkurborg stóð fyrir fáeinum mánuöum fyrir kattahreinsunarátaki í borginni í þeim tilgangi aö fækka villiköttum. k Frelsi til afskiptaleysis Yfirleitt stafar ógæfan ekki af því að við erum ung aðeins í vissan ára- fjölda, ekki ævilangt, heldur af rangri, þægilegri vestrænni hugsun: Enginn má lengur hafa vit fyrir öðr- um. Það er afskiptasemi. Á því bygg- ist frelsi til ábyrgðarleysis og dýrk- unar á fiflalátum, hafa ekki trú á neinu, taka ekkert hátíðlegt, hvorki menn né málefni. Talsvert var af slíku á kristnitöku- hátíðinni. Sem dæmi báru stúlkur krans tii að varpa í Drekkingarhyl og minna þannig á misskilning kristninnar á sæmdinni. Sú kristna alvara bitnaði líka á karlmönnum, konum var drekkt, karlar höggnir. - En hvaða krans fengu þeir frá Jafn- réttisráði sagnfræðinga? Hlógu þær sem báru kransinn þess vegna, eða álpuðust þær á rang- an stað? Tóku þær ekkert mark á al- vörunni og hefðu heldur átt að vera í djöfulskapnum á Húsafelli? Kirkjan hefði ekki drekkt þeim vegna afleið- inganna og strákamir getað hengt höfuðið og liminn með góðri sam- visku á heimleiðinni til pabba og mömmu. Guðbergur Bergsson Ríkissjónvarpið og skylduáskriftin Eiður Guðnason sendiherra ræðir um Sjónvarpið í Rabbi Mbl. sl. laugardag og segir m.a.: „Undirritaður leyfir sér í framhaldi af þessu að halda því fram í allri einlægni að for- sendan fyrir nauðungaráskrift að Rík- issjónvarpinu sé nú endanlega brostin. Enn um sinn má réttlæta það að greiða rekstur hljópvarpsins með skylduá- skrift eða beint úr sameiginlegum sjóð- um sem örugglega er hagkvæmara." Eiður Guðnason I Rabbi Lesbðkar Mbl. 8. júli. Endurskoðun lífsgilda „Það er mikil þörf á að styrkja nýjar víddir í íslenskri þjóðmálaum- ræðu og íslenskum hugsunarhætti yfirleitt og til að gera það þarf að fara fram gagnrýnin endurskoðun á lífsgild- um. Það er auðvitað fráleitt að láta eins og efnisleg gæði séu aukaatriði, það verða þau aldrei. Hins vegar er fleira matur en feitt kjöt.... Og þó svo að gildismat efnislegra gæða sé áber- andi í samfélaginu almennt og hjá stofnunum ríkisins, þá virðist oft stutt í spurningar og efasemdir hjá okkur sjálfum um hversu réttmætt þetta gild- ismat er.“ Birgir Guðmundsson í Degi 8. júlí. Fósturlaunin greidd „Undanfarin ár hefur það komið æ oft- ar fyrir, að einstaklingar hafa varið eig- um sínum eða hluta þeirra til að láta gott af sér leiða fyrir samferðafólk sitt, upp- rennandi kynslóðir og þar með að sjálf- sögðu fyrir þjóðfélagið í heild.... íslend- ingar standa í þakkarskuld við allt það fólk, sem af miklum eða litlum efhum vill greiða landi sínu fósturlaunin og stuðla þannig að betra og fegurra mannlífi. - Framlag Jónínu S. Gísladóttur er gott dæmi um hug og rausn þessa fólks.“ Úr forystugreinum Mbl. 8. júlí. Skattkerfi Péturs Blöndal „Ég vil skoða kosti þess og galla að ein- falda skattkerfið þannig að allir borgi 20% stað- greiðslu af tekjum sín- um og vaxtabætur, bamabætur óg sjó- mannaafsláttur verði felld niður. Meginhugsunin er sú, að aðgreina skattkerfiö annars vegar og bótakerfið hins vegar og hafa skattkerf- ið það einfalt og skattprósentuna það lága, að fólk geti hvorki né vilji standa í því að svindla undan skatti." Pétur Blöndal alþm. í viötali í Toyotablaöinu. Vanvitar á vegunum Umferðarmálin eru óþrjótandi umræðuefni. Á þeim eru nokkrar hliðar aðrar en tæknilegar, svo sem félagslegar og efnahagslegar eins og nýlega hefir komið í ljós. Markmið okkar í efnahagsmálum hefir verið að varðveita stöðugleikann með ráð- um og dáð. Skorin hefir verið upp herör gegn verðhækkunum af inn- lendum toga spunnum. Árangurinn er misjafn Hvergi virðist mega slaka á klónni. Deilt er um hvemig á því standi að á sama tíma og gengi krónu styrkist þrátt fyrir atlögu að henni sem hafi veikti hana um skeið og að innflutningsverð hafi farið lækkandi í innlendri mynt hækkar verð innfluttra matvara á innlend- um markarði. Sýnt er að við ramm- an reip er að draga. Á vissum svið- um er þó svigrúm til lækkunar kostnaðar ef almennur vilji væri fyr- ir hendi. Það svið snýr að ábyrgðar- tryggingum bifreiða. Nýleg tilkynning tryggingarfélags um hækkun iðgjalda bifreiðatrygg- inga hefir vakið ugg í brjósti margra um að sú hækkun sé kornið sem fyllti mælinn og leiði til uppsagnar nýgerðum kjarasamningum, skriðu kauphækkana í ljósi kostnaðar- hækkana með afleiðingum sem öll- um ættu að vera kunnar. Hinn margrómaði stöðugleiki yrði þá fyrir bí og orðið eitt goðsögn ein. Veldisfall Neytendum ætti að vera i lófa lag- Kristjón Koibeins viöskiptafræöingur ið að hafa nokkur áhrif á hækkun vöruverðs og þjónustu með eftirspurn sinni og framferði. Nær það framferði ekki síst til ábyrgða og húftrygg- inga bifreiða og annarra farartækja. Þeim rökum var beitt gegn hækkun iðgjalda bifreiðatrygg- inga að þótt tjón hafi aukist hljóti iðgjalda- greiðslur að hafa aukist að sama skapi vegna fiölgunar bifreiða. Virð- “ ist slíkt liggja i augum uppi. Gagn- rök málsins eru hins vegar þau að aukning tjóns sé i raun meiri en sem nemur greiddum iðgjöldum að óbreyttri gjaldskrá, bæði vegna þess að bifreiðar séu nýrri og dýrari í viðgerð og fiölgun tjóna umfram aukna bifreiðaeign. Þannig virðist sem á milli tjóna- tíðni og fiölda bifreiða sé ekki beint samband heldur veldisfall. Hafi því fiölgun bifreiða um tíu af hundraði hugsanlega í for með sér fiölgun tjóna er nemur fimmtán eða tuttugu af hundraði. Reynsla þeirra sem gera við tjónbifreiðir er sú að einmitt á þessum tíma árs verði árekstrar til muna harðari vegna hraðaksturs en í ófærð og hálku vetrar. Spurningar vakna Leiddar eru líkur að því að með vaxandi bifreiðaeign séu-nú þau tæki komin í hendur manna eða unglinga sem kunna lítt með þau að fara, telji sig vera færa í flestan sjó en lenda síðan utan vegar eftir nokkra hringi eða í hrúgaldi inni á vegi og megi teljast hólpnir að halda lifi og limum þegar haft er í huga að ýmsir öku- menn virðast telja að hraða>- takmarkanir á íslandi miðist við mílur en ekki kílómetra. Á hvern hátt annan verður það skýrt að árekstur verði milli tveggja bifreiða beggja á leið í vesturátt með þeim hættti, að önnur bifreiðin stór- skemmist en hin lendi utan vegar eftir að hafa farið heilan hring og fiórðungi betur? Líkar spurningar vakna við akst- ur á nýlagðri klæðningu þar sem brýnt er fyrir ökumönnum að aka ekki hraðar en á 50 kilómetra hraða - vegna þess að sá hraði þjappi klæðningunni niður en meiri hraði spæni hana upp þegar þeir verða fyrir því að fá yfir sig grjóthrfð frá bifreiðum sem koma á ofsahraða úr -r gagnstæðri átt eða geysast fram úr eins og ef ökumenn þeirra ættu lifið að leysa. Ástæðulaust ætti að vera að lækka '-Jxjgbundinn hámarkshraða ökutækja en full þörf hlýtur að vera að kanna hverju aukið umferðareft- irlit getur komið til leiðar til að fækka tjónum og þar með spoma gegn frekari hækkun iðgjalda bif- reiðatrygginga. Kristjón Kolbeins hlýtur að vera að kanna hverju aukið umferðareftirlit getur komið til leiðar til að fækka tjónum og þar með spoma gegn frekari hækkun iðgjdlda bifreiðatrygginga. “ r

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.