Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2000
24
rsr^
tölvun takni og vísinda
^ Gamall óvinur til hjálpar:
Utfjólubláir geislar
hreinsa drykkjarvatn
Ósonlagiö verndar okkur gegn útfjólubláum geislum sólar en saman vinna óson og útfjólubláir geislar gegn meng
un í drykkjarvatni
Hingað til hafa
útfjólubláir geisl-
ar verið taldir til
óvina mannkyns
þar sem þeir eru
taldir helsta
lameinstilfella í
heiminum. Nú hefur hins vegar kom-
ið á daginn að þeir eru ekki alslæm-
ir heldur geta þjónað góðum tilgangi.
Samkvæmt rannsóknum sem nú fara
fram í Bandaríkjunum er hægt að
nota útfjólubláa geisla til að sótt-
hreinsa drykkjarvatn. Þetta er talin
mjög hentug leið þar sem hún er til-
tölulega ódýr og skilur ekki eftir sig
neinar efnaleifar líkt og þegar klór er
notaður.
Þótt íslendingar hafi lítið þurft að
hafa áhyggjur af menguðu drykkjar-
vatni, með undantekningum þó, þá
er það vandamál víða úti í heimi, sér-
Nokkur illdrepanleg
sníkjudýr og örverur,
skaðleg heilsu manna,
hafa átt það til að
komast í vatnsból og
hafa þá valdið miklum
sýkingum og jafnvel
dauða. Arið 1993 létust
tæplega 100 manns
vegna mengaðs
drykkjarvatns í
Milwaukee
staklega í stórum borgum. Nokkur
illdrepanleg sníkjudýr og örverur,
skaðleg heilsu manna, hafa átt það til
að komast í vatnsból og þá valdið
miklum sýkingum og jafnvel dauða.
Árið 1993 létust tæplega 100 manns
vegna mengaðs drykkjarvatns í
Milwaukee. Helstu vamirnar gegn
þessum vágestum hafa verið þær að
sía vatnið eða loka vatnsbólum
þannig að kvikindin komist ekki inn.
Óson einnig gott
gegn örverum
í Bandaríkjunum hefur klór og
öðrum eitruðum efnum einnig
verið blandað saman við vatn.
Vandamálið við þannig aðgerðir
er að leifar efnanna hafa viljað
sitja eftir og eru þau talin geta
valdið krabbameini.
Ein aðferð er til sem talin er
virka vel á illdrepanlegar örverur
en það er óson. Það er mikið not-
að i Evrópu þar sem menn þurfa
litla hreinsun á vatni og vilja
ekki nota eiturefni. Það er hins
vegar afar dýrt og hafa Banda-
ríkjamenn því ekki notað það
mikið. Þar gjóa menn því augun-
um í átt til útfjólublárra geisla
sem ódýrrar og öruggrar lausnar
gegn menguðu vatni.
ástæða húðkrab
Grannar mýs gefa
offitusjúklingum von
- framleiða ofgnótt af sérstöku prótíni
Að sögn dr. Johns Claphams,
stjórnanda rannsóknarinnar, fram-
leiða mýsnar mikið magn af ótengdu
prótíni 3 í hvatberum vöðvafrumna.
Hvatberar, sem oft eru kallaðir vél-
ar frumna, hafa þann starfa að
breyta fæðu í orku með því að um-
breyta henni i efni sem kallast ATP
sem síðan er geymt sem fita ef of
mikil orka er framleidd. Aukafram-
leiðsla af prótini 3 veldur þvi hins
vegar að ATP myndast ekki heldur
breytist orkan í hita sem veldur því
að grunnefnahvörf líkamans aukast
og hægt er að borða meira en samt
léttast i leiðinni. Þetta virkar eins
og að gefa bil inn sem er í hlutlaus-
um. Hann eyöir bensíni en orkan
losnar sem hiti í stað þess að knýja
bílinn áfram.
Vonir eru bundnar við það að
þessi uppgötvun geri mönnum kleift
að finna upp lyf fyrir offitusjúk-
linga. Dr. Clapham lagði þó áherslu
á það að heilsusamlegt mataræði og
góð hreyfmg væru alltaf fyrsti og
besti kosturinn til að grenna sig.
Baráttan við aukakílóin:
Það er Ittið grín að þurfa burðast
með allan þennan aukaforöa og ekki
slæmt ef hægt væri að komast al-
veg hjá því.
mmmmmmmmmmmmmmwsssssssrnssss
Vísindamönn-
um frá lyfja-
fyrirtækinu
Smith Kline
Beecham og
Cambridge-háskóla hefur tekist
að rækta erfðabreyttar mýs sem
þyngjast ekki þótt þær borði
meira en venjulegar mýs. Mýsnar of-
framleiða mennskt prótín sem brenn-
ir fæðunni sem hita í stað þess að
geyma hana sem fitu. Þeir segja þetta
geta verið lykilinn að þvi að frnna upp
lyf gegn offitu hjá marmfólkinu.
'TjújjjiJj
Heyrnartæki notuð í bootleg-upptökur
- gefur miklu betri hljóm en áður þekktist
því er átt við að fólk tekur ólöglega
upp tónleika og gefur upptökumar
út á geisladiskum. Gæðin hafa alltaf
verið misjöfn á slíkum upptökum
en nú er breyting á þvi.
Samkvæmt nýlegum lögum í
Bandaríkjunum þurfa allir tónleika-
staðir að vera með sérstök heyrnar-
tæki fyrir fólk með takmarkaða
heyrn. Nú hefur komið í ljós að
óprúttnir skálkar nota þau til að
taka upp tónleikana. Upptökurnar
eru miklu betri með þessu móti því
tónlistin er send beint í tólin og þar
með er lítil truflun af áhorfendaó-
hljóðum eða bergmál og brenglun í
tónlistinni.
Endurkomutónleikar Bruce
Springsteen og E Street-bandsins í
fyrra voru teknir upp á þennan hátt
og hafa aðdáendur verið að dásama
hljóminn á hinum ólöglegu upptök-
um á heimasíðum, tileinkuðum ell-
irokkaranum.
Risaeðlurnar prumpuðu sig í hel
- samkvæmt nýjustu kenningunni
ar dóu út. Það er mat eins fransks
vísindamanns að það hafl hvorki
verið loftsteinn né neinar aðrar
náttúruhamfarir sem voru ástæðan
heldur einungis yfirgengilegur
vindgangur hjá risaeðlunum sjálf-
um.
Viðrekstur risaeðla innihélt hátt
hlutfall metangass sem var nógu öfl-
ugt til að rjúfa gat á ósonlagið. Dýr-
in voru 89-100 tonn á þyngd og borð-
uðu um 130-260 kíló á dag. Þetta olli
því samkvæmt kenningunni að dýr-
in hafi verið sírekandi við. Með tím-
anum fylltist andrúmsloftið af
metangasi sem að lokum gerði stórt
gat á ósonlagið. Útfjólubláir geislar
ollu miklum breytingum á gróður-
fari sem gerði það að verkum að
matarskortur myndaðist og risaeðl-
urnar dóu út.
Ekki fylgdi nafn hins fróma
franska vísindamanns með þessari
sérstöku frétt.
Löngu áður en tón-
listariðnaðurinn
ÍIÍUJÍÍÚÍIÍ þurfti að takast á við
lagastuld á Netinu
var hann í stöðugum
vandræðum með fólk sem stundaði
svokallaðar bootleg-upptökur. Með
Bruce Springsteðn er einn þeirra
tónlistarmanna sem teknir hafa
verið upp meö heyrnartækjunum.
Samkvæmt frétt i
kínverska dagblað-
inu China Youth
Daily er búið að
setja fram nýja kenn-
ingu um ástæðu þess að risaeðlurn-
Ertu með vindgang, elskan?
F“
ammmmmm
C
l'jlvhii
Þráölaus samvinna
tveggja risa
Talsmenn Er-
icssons til-
kynntu í sein-
ustu viku að
áætlað væri aö
setja á markað
búnað fyrir GSM-síma sem
hægt verður að senda tölvu-
póst á. Búnaðurinn verður
hannaður í samvinnu við
Microsoft og mun nota
Mobile Explorer-vafra. Með
honum verður hægt að tengj-
ast hvers kyns stýribúnaði
sem byggður er á Bluetooth-
tækninni og horfa Svíarnir
sérstaklega til EPOC-stýri-
búnaðarins sem þeir eru að
hanna ásamt Nokia,
Motorola og Matsushita. Það
er mat manna hjá Ericsson
að internettengdir GSM-sim-
ar verði notaðir af um 500
milljónum manna árið 2003.
Netiö bjargar lífi mínu
Eftir að Gra-
ham Tarling,
45 ára Breta,
var sagt að
hann ætti að-
eins fáa mán-
uði ólifaða vegna ólæknandi
krabbameins í nýra fór hann
á Netið í leit að bandarískum
lækni sem gæti bjargað hon-
um. Eftir tveggja vikna leit á
Netinu komst hann í sam-
band við dr. Andrew Novick.
Eftir að Graham hafði sent
sjúkraskýrslur sínar og farið
í vikulanga rannsókn féllst
dr. Andrew á að framkvæma
aðgerðina. Hún tók 13
klukkutíma og voru bæði
æxlið og nýrað fjarlægð. Nú
er Graham í lyfjameðferð en
er kominn úr allri hættu.
Graham hafði þetta að segja:
„Internetið bjargaði lífi
mínu!“
Ráögjöf fyrir netfíkla
Á heimasíð-
unni
www.virtual-
addiction.com
geta langt
leiddir neftflklar leitað ráð-
gjafar með vandamál sin. Það
er sálfræðingurinn David
Greenfield sem er upphafs-
maðurinn að síðunni og seg-
ist hann sérhæfa sig í með-
höndlun netfikla. Meðal ann-
ars getur maður tekið lítið
próf sem segir til um hvort
maður eigi við vandamál að
stríða. Meðal þess sem boðið
er upp á er hjónabandsráð-
gjöf þar sem annar aðilinn
hefur gerst sekur netsam-
bönd við annað fólk í gegn-
um spjallrásir eða eytt heilu
og hálfu tímunum á hinum
óteljandi klámsíðum Verald-
arvefsins. Margir sálfræðing-
ar hafa gagnrýnt dr. Greenfi-
eld og segja hann ekki vinna
á vísindalegan hátt og hafa
þar að auki léleg rök fyrir
því að netfikn sé til i raun og
veru.