Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2000, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 8. ÁGÚST 2000 25 tölvu-i tíkni og vísinda MP3-tæknin: Ekki bara fýrir tónlist - nýtist einnig við genarannsóknir Ef Lars Ulrich og félögum tekst aö fá Napster lokaö gæti þaö þýtt að fleiri tengdum forritum en löglegum veröi lokaö líka Það á eftir að koma sér illa fyrir fleiri aðila en tónlistarunn- endur ef svo vill til að Napster- fyrirtækið góð- kunna verður neytt til þess að loka á skiptiforritið sitt. Það hefur kom- ið á daginn að þau forrit sem fólk notar til að skiptast á tónlist á Net- inu eru líka notað af vísindamönn- um i genarannsóknum og tölvu- vírusasérfræðingum. Eins og flestir þeir vita sem fylgst hafa með Napster-dómsmálinu í Bandaríkjunum komst Napster-fyr- irtækið hjá því að loka heimasíðu sinni. Talið er víst að málið fari fyr- ir rétt fyrr en seinna. Verði niður- staðan Napster í óhag þá hafa marg- ir áhyggjur af því að bann verði lagt við öllum hugbúnaði sem byggist á sömu lögmálum og Napsterinn, jafn- vel þá sem eru algerlega lögleg. Veraldarvefurinn í hættu Lincoln Stein, prófessor í gagna- tækni líffræði við Cold Spring Harbor rannsóknarstofnunina í New York-ríki, segist strax hafa séð möguleika fyrir vísindamenn að nýta sér þessa tækni til að skiptast á upplýsingum um genarannsóknir hver annars. Fyrst um sinn notuð- ust Stein og félagar við Napsterinn en svo komust þeir að því að Gnu- tella hentaði mun betur fyrir þá. Reyndar segir Stein að Gnutella henta til dreifingar á skjölum á hvaða formi sem er. Stein hefur miklar áhyggjur af áhrifum dóms sem væri í óhag Nap- ster og segir að þau gætu náð til fleiri þátta en tónlistarskiptiforrit- anna. „Ef taka á fullt mark á dóms- niðurstöðu sem myndi loka Napster þá gæti tónlistariðnaðurinn þess vegna farið í mál við samtökin sem standa að Veraldarvefnum því fólk notar hann til að skiptast á og stela tónlist." Vírusviðvaranir Stöðugt er að aukast breiddin í notkunarmöguleikum á þeim skipti- forritum sem til eru. Fyrirtækið MyCIO.com er um þessar mundir að prufukeyra forrit sem kallað er Rumor (orðrómur). Tilgangurinn með þessu forriti er að láta vita ef upp kemur tölvuvírus einhver stað- ar. Þá getur ein tölva sent á allar aðrar sem skráðar eru í gagnagrunn forritsins viðvörun og þannig á það að auðvelda tæknistjórum og öðrum sem þessi mál varða að bregðast við í tíma. Zach Nelson, forseti og stjómar- formaður MyCIO.com, segist ekki vera hræddur við dómsuppkvaðn- ingu tónlistariðnaðinum í hag. Að hans sögn er aðeins hægt að skiptast á upp- lýsingum sem fyrirtækið hef- ur samþykkt. Öll skjöl sem fyrirtækið á eru merkt með sérstökum lykli sem for- ritið les áður en það er flutt. Ef slíkur lykill er ekki tO stað- ar fer skjalið hvergi. „Ef taka á futlt mark á dómsniðurstöðu sem myndi loka Napster þá gæti tónlistariðnaður- inn þess vegna farið í mál við samtökin sem standa að Veraldar- vefnum því fólk notar hann til að skiptast á og stela tónlist.“ Vísindamenn hafa notað MP3-forrit til aö skiptast á upplýs- ingum. Nýtt forrit í ætt við Napster: Stefnt að litlu efna- hagssvæði á Netinu - gjaldmiðillinn mun heita Mojo Ef skemmtanaiðnaöurinn tekur þátt í Mojo-efnahagnum mun greiösluleiöin til þeirra kallast PayLars, smáskot á Napster-nöldrara númer eitt, Lars Ul- rich. Bráðlega kemur út ný gerð af for- riti sem virkar svipað og Napst- er og Gnutella skjalaskiptifor- ritin. Forritið er komið frá fyrirtæk- inu Autonomous Zone Industries, AZI, og kallast MojoNation(Mojo- þjóðin). Því er ætlað að verða nokk- urs konar afmarkað efnahagskerfi á Netinu þar sem notendur munu ákveða sín á milli upphæðir sem borga skal ef einhver sækir sér lag til annars. Gjaldmiðillinn mun heita Mojo og mun ein eining af honum samsvara um 1/1000 úr bandarísku senti. Notendur geta sent á milli tónlist, bíómyndir og klámefni, svo eitthvað sé nefnt. Jim McMoy, stofnandi AZI, segir það verða erfitt fyrir eigendur höfundarréttar efnis sem fer inn á MojoNation að kæra einn né neinn þar sem ekki er um einn miðlægan grunn að ræða. Það er hins vegar ætlun McCoy og félaga að vinna með skemmtanaiðnaðinum með því gera fólki kleift að borga með Mojo ef það vill. Hugbúnaðurinn sem gerður hefur verið fyrir greiðslum- ar er kallaður PayLars (borgaðu Lars) með skírskotun til trommu- leikara Metallicu og Napsters-óvin- ar númer eitt, Lars Ulrich. Mojo-gjaldeyrisbankar MojoNation er ekki fullklárað en ætlunin er að það gerist seinna á ár- inu. Ef allt gengur upp með þetta nýja forrit á að verða komið upp heildstætt efnahagsnet þar sem raf- rænir kaupendur, seljendur og þjón- ustuaðilar munu stunda kaup og sölu á hvers kyns skemmtivamingi með Mojo gjaldmiðilinn að vopni. Framtíðaráætlanir gera svo ráð fyr- ir því að komið verði upp „gjaldeyr- isbönkum" sem fólk getur farið i og skipt Mojonum sínum yfir í dollara. Forrítið er komið frá fyrírtækinu Autonomous Zone Industríes, AZl, og kallast MojoNationfMojoþjóð- in). Því er ætlað að verða nokkurs konar afmarkað efnahags- kerfí á Netinu þar sem notendur munu ákveða sín á milli upp- hæðir sem borga skal ef einhver sækir sér lag til annars. Ein nýjung verður í forritinu sem virkar þannig að fólk getur forgangsraðað þeim þjónusuaðil- um sem það sækir til og valið þannig þá áreiðanlegustu eftir því t.d. hvað það er að sækja. McCoy lýsir þessu sem nokkurs konar mauraþúfu þar sem hver og einn þjónustuaðili gegnir sér hlutverki, sérhæfir sig í ein- hverju ákveðnu efni. Nú er bara að sjá hvort Mojo- þjóðin fæðist og þá hvort hið kæruglaða skemmtanaiðnaðar- fólk i Hollywood notar tækifær- ið til að fá einhvern pening með samvinnu við Mojoana eða stekkur beint í dómstólana. Nýr MP3 spilari: Með 150 geisladiska í vasanum - kemur á markað í haust Með útgáfu djúkboxins er búið að yfirstíga eitt helsta vandamálið sem hefur hrjáð MP3 spil- ara hingað tit: oflítið minni. Nú er ekki langt að bíða þess að fólk geti labbað um með allt geisladiskasafn- ið sitt á sér. Þetta gerist þegar ný gerð MP3 spil- ara kemur á markað í lok ágúst. Fyrirtækið Creative Technologies, sem þekktast er fyrir að framleiða hljóðkort í tölvur, setur spilarann á markað og nefnist hann Digital Jukebox (stafrænt djúkbox). Með útgáfu djúkboxins er búið að yfirstíga eitt helsta vandamálið sem hefur hrjáð MP3 spilara hingað til: of lítið minni. Djúkboxið er með 6 I'M iiiijju'áii/ gigabæta harð- an disk og er nóg pláss til að geyma um 150 geisladiska á honum. Það er einnig hægt að geyma tónlist á öðruvísi formi en MP3 á harða diskinum. Djúkboxið er aðeins smærra en hefðbundnir ferðageislaspil- Þaö er munur á því hvort maður er meö einn geisladisk eöa arar og mun 150ásér. ganga fyrir 4 stykkjum af AA batteríum. Svona fyrir þá sem ekki vita það þá gerir MP3-tæknin fólki kleift að taka tónlist af geisladiski og geyma hana á stafrænu formi inni á tölvu eða spilara eins og djúkboxinu. Einu lagi er þjappað niður í viðráð- anlega stærð með því að taka aðeins upp þau hljóð sem mannseyrað get- ur numið. Ein mínúta af tónlist á MP3 formi tekur um eitt megabæt í minni. Við minnum enn lesendur DV-Heims á að vilji þeir koma einhverju á framfæri við umsjónarmenn blaðsins eru ailar hugmyndir, athugasemdir, ábendingar og annað vel þegið. Hægt er að senda okkur línu á netfangið dvheimur@ff.is n.!s

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.