Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Qupperneq 6
6 Viðskipti ^ Hagnaður Hlutabréfasjóðs íslands hækkar um tæp 67% Afkoma sjó&sins er í takt viö þær aöstæöur sem hafa ríkt á fjármálamark- a&i en á tímabillnu lækka&l Úrvalsvísitala Íslandsbanki-FBA tekur upp árang- urstengt launa- og kaupréttarkerfi Umsjón: Vi&skiptablaöiö Afkoma Héöins hf. 67% lakari en í fýrra Rekstrarhagnaður Héöins hf. samkvæmt rekstrarreikningi fyrstu 6 mánuði ársins nam 11 milljónum króna sem er 22 milljónum króna lægra en á sama tíma árið áður. Tekjusamdráttur var 41% en rekstr- arkostnaður lækkaði um 40%. í frétt frá Héðni hf. segir að samdráttur rekstrartekna skýrist af fækkun verkefna fyrir fiskimjölsiðnaðinn. Þjónusta við fiskiskipaflotann hefur haldist nær óbreytt frá sama tíma- bili fyrra árs. Eigið fé í lok júní nam 408 miUj- ónum króna að meðtöldu hlutafé að nafnvirði 100 milljónir króna og hef- ur eigið fé hækkað um 4% á einu ári. Á tímabilinu var greiddur arð- ur 10 milljónir króna. Skuldir voru 149 milljónir í lok júní og hafa lækkað um 18% á milli ára. í byrjun árs keypti Héðinn 73% hiut í norska félaginu Peder Halvor- sen AS, sem framleiðir einkum vatns- og gufukatla fyrir norskan markað. Félagið fékk eignarhlutann afhentan um miðjan maí þannig að ekki þykir rétt að taka hlutdeild í rekstrarafkomu dótturfélagsins inn i þennan árshlutareikning Héðins. Gert er ráð fyrir taprekstri hjá Peder Halvorsen AS á árinu 2000 en þær aðhaldsaðgerðir sem gripið hef- ur verið til leiða væntanlega tii hagnaðar á árinu 2001. Hlutabréfasjóður íslands hf. var rekinn með 59 milljóna króna hagn- aði fyrir skatta fyrri hluta árs 2000. Hagnaöur eftir skatta nam 44 millj- ónum króna en var 27 milljónir króna árið áður. Eignir sjóðsins voru 828 milljónir í lok tímabilsins og eigið fé 700 milljónir króna. Óinnleystur gengishagnaður var 115 milljónir króna. Á tímabilinu var Sjávarútvegs- sjóður íslands hf. sameinaður Hlutabréfasjóði Norðurlands hf. og nafni sjóðsins breytt í Hlutabréfa- sjóð íslands hf. Á aðalfundi var enn fremur ákveðið að greiða hluthöfum 10% arð. Afkoma sjóðsins er í takt við þær aðstæður sem hafa ríkt á fjármála- markaði en á tímabilinu lækkaði Úrvalsvísitala Aðallista um 4,8% auk þess sem verögildi skuldabréfa lækkaði töluvert. Fjárfestingarstefna Hlutabréfa- sjóðs íslands hf. var tekin til endur- skoöunar í kjölfarið á aðalfundi fé- lagins og gerir nú ráð fyrir að um 40-70% af eignum félagsins séu bundin í innlendum hlutabréfum, innlend skuldabréf séu 10-20% og erlend verðbréf á bilinu 20-40%. Stærstu einstöku félögin í eigu sjóðsins þ. 30. júní sl. voru Baugur, Marel, Íslandsbanki-FBA, ÚA og Þormóður rammi-Sæberg. Hlutabréfasjóður íslands hf. er í vörslu íslenskra verðbréfa. Bankaráö Islandsbanka-FBA hef- ur ákveðið að starfskjör starfs- manna fyrirtækisins verði árang- urstengd. Um er aö ræða tvíþætta tengingu: Annars vegar með árang- urstengingu launa og hins vegar með tilboði til starfsmanna um kaupréttarsamninga. Árangursteng- ing launa felur í sér að verði arð- semi Íslandsbanka-FBA jafn góð á þessu ári og hún var samanlagt hjá forverum hans á síðasta ári, eða 23%, mun hver starfsmaður fá greiddar 100.000 krónur í mars á næsta ári. Verði arðsemin minni lækkar greiðslan um 10.000 krónur fyrir hvert prósent sem arðsemin er lægri, en verði hún meiri hækkar greiðslan á sama hátt um 10.000 krónur fyrir hvert prósent. Þessi regla mun einnig gilda árin 2001 og 2002. Fram kemur i frétt frá bankanum að öllum starfsmönnum íslands- banka-FBA verður jafnframt boðið að gera kaupréttarsamninga til þriggja ára í samræmi við lög sem Alþingi hefur nýlega samþykkt. Verður hámarkskaupréttur hvers starfsmanns 600 þúsund krónur á ári að markaðsvirði. Kaupréttur vegna ársins 2000 verður óháður af- komu bankans en stærð kaupréttar vegna áranna 2001 og 2002 verður arðsemistengd með sama hætti og launin. Starfsmenn geta nýtt kaup- réttinn ári eftir að hann verður til og skilyrði er að þeir eigi hlutabréf sín í tvö ár í samræmi við ákvæði laganna. Íslandsbanki-FBA hefur nú, fyrst íslenskra fjármálafyrir- tækja, fengið staðfestingu ríkis- skattstjóra á áætlunum sínum um kaupréttarsamninga við starfs- menn. Auk þess verður komið á fót sér- stakri árangurstengingu fyrir stjómendur og þá starfsmenn bank- ans sem skila umtalsverðu framlagi til afkomu hans. Unnið er aö út- færslu þess. Með árangurstengingu launa og kaupréttarsamningum vill banka- ráðið stuðla enn frekar að því að starfsmenn fyrirtækisins séu jafn- framt eigendur þess og að afkoma þeirra tengist í ríkari mæli við af- komu fyrirtækisins. Þannig fá starfsmenn greitt i samræmi við ár- angur og tengslin milli hagsmuna starfsmanna, bankans og hluthafa eflast. Jafnframt telur bankaráðið að árangurstenging launa sé mikil- vægur þáttur í því að halda góðu starfsfólki og gera bankann að eftir- sóttum vinnustað. Sparidagar Skýr og tær tilboð, beint heim í stofu SHARR . VCM-330 Tilboðs verð, myndbandstæki o 14.900 kr. stgr. YAMAHA Tilboðs verð. 34.900 Heimabíó magnari AC-3 o kr. stgr. Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000 I>V Þetta helst HEILDARVIÐSKiPTI 2.483 m.kr. Hlutabréf 89 m.kr. Húsbréf 1.209 m.kr. MEST VIÐSKIPTI . | Íslandsbanki-FBA 23 m.kr. } Pharmaco 18 m.kr. ; íslenski hugbúnaöarsjó. MESTA HÆKKUN 10 m.kr. 0 Pharmaco 10,9% 0 Lyfjaverslun íslands 7,5% 0 Íslandsbanki-FBA 5,4% MESTA LÆKKUN Q Fiskiöjusamlag Húsavíkur 5,9% Q Kögun 3,6% Q Hlutabréfasjóöur Vesturlands 3,5%ÚRVALSVÍSITALAN1.544 stig - Breyting Q 1,15% Símaleyfin halda áfram að hækka í Þýskalandi Tilboð í símaleyfm í Þýskalandi eru núna komin í 42 milljarða dollara eða rúmlega 3,2 billjónir íslenskra króna sem eru um áttföld fjárlög íslenska ríkisins og talið er að þau muni halda áfram að hækka. Bjóðendurnir hafa farið i gegnum 157 tilboðsumferðir. Bjóðendumir eru Deutsche Telekom’s T-Mobil, Vodafone’s Mannesmann Mobilfúnk, France Telecom-backed Mobilcom, Viag Interkom, sem er styrkt af British Telecommunications, og Group 3G, sem er hópur frá Spain’s Telefónica og Sonera frá Finnlandi. Debitel, sem var styrkt frá Sviss, hætti þátttöku í leiknum. rrjEfflpmaL- síðastliöna 30 daga ‘ Össur 350.806 ■ Marel 340.440 , Landsbanki 334.703 Íslandsbanki-FBA 272.469 Eimskip 267.144 B | i:\ fci; hH ’A’A 1] i £3 síöastliöna 30 daga 0 Olíufélagiö 11% ; 0 Jarðboranir 10% : 0 Rugleiöir 9% i Q Pharmaco 8% 0 Þróunarfélagiö 8% .iflMtilllna 30 daga 0 ísl. járnblendifélagiö -29 % i 0 Loönuvinnslan hf. -20% 0 Vaki fiskeldiskerfi hf. -17 % 0 Hraöf. Eskifjarðar © -9% Spilling kostar Bosníu 500 milUónir dala árlega Bosnía verður af 500 milljónum dollara vegna spillingar ár hvert, en það er vegna spillingar hjá undir- mönnum í kerfinu, segir Peter van Walsum, fulltrúi Sameinuöu þjóðanna í HoUandi. Mest af peningum er kom- ið undan í gegnum smygl á sígarett- um. Hann bætti við að ef Bosnía fengi þessar tekjur í kassann myndi landið vera laust við viðskiptahalla. E3jZHSnS»n!EI 11008,39 16161,03 1479,85 3861,20 6378,40 7291,82 6665,92 17.08.2000 kl. 9.1S KAUP SALA ®^JDollar 79,470 79,870 SSsPund 119,110 119,720 1*1 Kan. dollar 53,810 54,140 Dönsk kr. 9,7270 9,7800 i+*3 Norsk kr 8,9580 9,0070 BJSSœnsk kr. 8,6140 8,6610 Fl. mark 12,2039 12,2772 K Fra. franki 11,0618 11,1283 B iBolfcfrankl 1,7987 1,8095 ; Sviss. franki 46,4200 46,6800 C3hoII. gyllini 32,9267 33,1245 "-iÞýskt mark 37,0998 37,3227 B Btt líra 0,03747 0,03770 QQausL sch. 5,2732 5,3049 RflPort. escudo 0,3619 0,3641 i[T Ispá. peseti 0,4361 0,4387 t |l • |Jap. yen 0,73180 0,73620 | jírskt pund 92,133 92,686 SDR 104,1800 104,8000 EIecu 72,5609 72,9969

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.