Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2000, Qupperneq 23
27
FIMMTUDAGUR 17. ÁGÚST 2000
DV
■BSB
Robert
De Niro
57 ára
Stórleikarinn Robert
de Niro fæddist í ítaiska
hverfmu í New York fyrir 57 árum í dag.
Hann var feimið bam og gekk undir nafn-
inu Bobby Milk, sökum fólleika og ófram-
fæmi. Fyrsta hlutverk hans var í leikrit-
inu Galdrakarlinum í Oz þar sem hann lék
huglausa Ijónið en síðar hefur hann fyrst
og fremst tekið á sig myndir geðsjúklinga
og glæpamanna. Af helstu kvikmyndum
kappans má nefna Taxi Driver, Raging
Bidl og Godfather n en upp á síðkastið hef-
ur hann látið sjá sig i mýkri hlutverkum í
myndunum Analyze This og Flawless.
Gildir fyrir föstudaginn 18. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.l:
_ 1 k Leitaðu aðstoðar ef þú
^ þarft að fást við mjög
sérhæft verkefiii. Sam-
vinna skilar miklu
meiri árangri en að hver sé að
pukrast einn úti í sínu homi.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars);
Þér gengur best að
I vinna í dag ef þú getur
verið í félagsskap fólks
sem þér likar vel við.
Samképpni á ekki við þig þessa
dagana.
Hrúturinn (21. mars-19. aoríii:
Þú ert viðkvæmur í dag
1 hvort sem það er vegna
einhvers sem sagt var
við þig eða þú heyrðir
sagt um Fig- Þú þarft hvatningu til
að byija á einhverju nýju.
Nautið Í20. aDrfl-20. maí):
Þú helgar þig fjöl-
skyldunni og átt með
henni góðar stundir.
Það er mikið sem á eft-
ir að gera á heimiiinu og ekki
seinna vænna en að byija verkið.
Tvíburarnir (21. mat-21. iúnT);
Hversu mikið sem er að
' gera hjá þér þessa dagana
skaltu gefa þér tima til að
setjast niður öðru hvoru
og látalrér hða vel. Lífiö er til þess að
njóta þess en ekki bara strita og strita.
Krabblnn (22. iúní-22. iúiíl:
Þú finnur fyrir öfúnd í
| kringum þig. Það eru
1 ekki allir jafnánægðir
með frama þinn í
l máli. Þú kynnist ákveð-
inni persónu á nýjan hátt.
Llónlð (23. iúlí- 22. áeústl:
Þú ert bjartsýnn og
það kemur sér vel f
starfi þínu. Ekki láta
það angra þig þó að
hlutimir taki örlítið lengri tíma
en þú ætlaðir.
Mevlan (23. áeúst-22. sept.l:
Þér leiðist að þurfa að
sinna sömu skyldum
'lk.alla daga og ættir að
* r reyna eitthvað nýtt.
Oft getur verið gott að fá hug-
myndir hjá öðrum.
Vogln (23. sept-23. okt.l:
Smávægilegt vandamál
kemur upp fyrri hluta
dagsins og þú þarft að-
stoð við að leysa það.
Kvöldið lofar góðu.
Vogln (23. se
É
Sporðdrekl (24. okt,-21. nóv.):
M skalt forðast til-
finningasemi og þó að
ýmislegt komi upp á
skaltu ekki láta skapið
hlaupa með þig í gönur.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
Þú ættir að forðast
mikla eyðslu. Þér
gengur illa að sann-
færa fólk en hugmynd-
ir þínar vekja þó athygli.
Stelngeltln (22. des.-l9. ian.):
Það verður eitthvað
ánægjulegt um að vera
hjá fjölskyldunni í
dag. Ættingjar þínar
hafa mikil áhrif á þig þessa dag-
ana og er það af hinu góða.
Tilvera
Vatnið í heitum pottum í Stykkishólmi lokar sárum psoriasissjúklinga:
Kraftaverkavatn
í Hólminum
- heilsutengd ferðaþjónusta í
DV-MYND KRISTÍN BENEDIKTSDÓTTLR
Baden-Baden í Stykkishólmi
Vignir Sveinsson, forstööumaöur íþróttamiöstöövarinnar í
Stykkishólmi, segir vatniö í heitu pottunum á staönum jafn-
ast á viö heilsuparadísina í Baden-Baden í Þýskalandi.
Orðspor borholuvatnsins í
heitu pottunum í Stykkishólmi
hefur farið víða síöan þeir voru
opnaðir fyrir ári. Vatnið hefur
þau áhrif að húðin verður mýkri
og halda margir því fram að það
hafi einnig mýkjandi áhrif á hár.
Auk þess hafa psoriasissjúkling-
ar heimsótt bæinn sérstaklega
til að dýfa sér ofan í heilsuvatn-
ið.
„Margir psoriasissjúklingar
sem hafa komið hingað segja að
sárin hafi lokast eftir 2-3 skipti í
pottunum hjá okkur. Svo koma
hingað gigtarsjúklingar daglega
sem segjast lagast til muna eftir
baðið. Hins vegar er erfiðara að
sanna það því það sést ekki utan
á þeim eins og psoriasissjúklingun-
um,“ segir Vignir Sveinsson, for-
stöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar
í Stykkishólmi.
Vatnið er salt og inniheldur mik-
ið af uppleystum efnum sem gera
húðina mjúka viökomu eftir böð.
Efnasamsetningin er svipuð og
vatnsins í Baden-Baden sem er
frægasti heilsubaðstaður Þýska-
lands. Þá er pH-gildi vatnsins mjög
lágt miðað við annað hitaveituvatn,
eða 8,45. Það veldur því að húðin
verður mjúk viðkomu eftir böðin í
vatninu því hátt pH-gildi leysir húð-
fitu og veldur húðþurrki. Hitaveitu-
deiglunni
vatn í Reykjavík
hefur til dæmis
pH-gildi í kring-
um 10.
Vignir tekur
fram að ekki sé
ráðlegt fyrir
psoriasissjúkling-
ana eða aðra sem
leita bót meina
sinna að fara í
sund eða sturtu
eftir veruna í
pottunum.
„Efnin skolast
af og virka ekki
eins vel ef farið er
í sturtu. Fólk er
alveg hreint þegar
það kemur upp úr pottunum því
flæðið er svo mikið að það skiptir
um vatn á hálftíma fresti,“ segir
hann.
Vatnið í sundlauginni er ólíkt
pottvatninu. Það er upphitað kalt
vatn sem fær varma frá borholu-
vatninu með svokölluðum varma-
skiptum og hefur því ekki hina
læknandi eiginleika vatnsins í heitu
pottunum.
Ásthildur Sturludóttir, hjá At-
vinnuráðgjöf Vesturlands, segir all-
ar aðstæður vera til þess að stunda
heilsutengda ferðamannaþjónustu í
Stykkishólmi.
„Hér er mjög þróuð ferðamanna-
þjónusta og allt innra skipulag bæj-
arins í góðu standi sem er eitt af
gnmdvallaratriðum í þessu máli,“
segir hún.
Vignir Sveinsson, forstöðumaður
íþróttamiðstöðvarinnar, hvetur fólk
til að prófa pottana í Hólminum.
„Það er þess virði aö prófa vatnið
þótt ekki fái allir bót meina sinna.
Hvort sem fólk er með húðsjúkdóm
eða ekki veldur borholuvatnið þvi
að húðin verður mýkri og líðanin
verður ólíkt betri á eftir,“ segir
Vignir Sveinsson um heitu pottana
í Stykkishólmi sem lokað hafa sár-
um psoriasissjúklinga og mýkja húð
þeirra sem í þá fara.
jtr
Kraftaverkavatnið í Hólminum slær við Bláa lóninu:
Sár mín lokuðust
- segir Ágústína Guðmundsdóttir sem trúði vart sínum eigin augum
„Eftir eitt til tvö skipti tók ég eft-
ir því að hrúðrið fór og síðan fóru
sárin að lokast,“ segir Ágústína
Guðmundsdóttir, kennari í Stykk-
ishólmi, sem heldur nú psoriasis-
sjúkdómi sínum í lágmarki með
reglulegum böðum í heilsupottun-
um.
Talið er að um 2-4 prósent jarð-
arbúa séu haldin psoriasis og ekki
minna en 6000 manns munu vera
með sjúkdóminn hér á landi. Psori-
asis er bagalegur og sársaukafullur
sjúkdómur sem veldur jafnvel
blæðandi sárum og gerir líf sjúk-
lingsins afar erfitt á köflum.
„Þetta var þannig að ef ég fór á
skíði komu blæðandi sár á
ökklana. Húðin súmar upp og þaö
koma hrúður og sár sem leggjast á
alla liði. Ég reyndi Eills kyns áburð
og allt var vaðandi í smyrslum og
drullu í rúmfotunum. Nú fer ég í
heitu pottana og nota einungis
mýkingarkrem og spara talsverðan
kostnað við hin og þessi krem sem
virkuðu aldrei eins vel og heilsu-
vatnið," segir Ágústína.
Orðspor borholuvatnsins heilsu-
samlega náði fyrst til Ágústínu fyr-
ir rúmu hálfu öðru ári þegar Heim-
ir Kristinsson kom að máli við
hana. Heimir er einnig haldinn
psoriasissjúkdómnum sem áður
var mjög sýnilegur á honum og var
hann þá nýlega byrjaður að baða
sig i borholuvatninu í fiskikari í
sveitinni við Stykkishólm.
„Ég bara trúði þessu ekki. Sárin
höfðu öll lokast og hann leit miklu
betur út heldur en áður,“ segir
Ágústína. Eftir samtal sitt við
Heimi fór hún einnig að baða sig í
karinu og sá strax mun.
Hún tekur undir orð Vignis
Sveinssonar, forstöðumanns
íþróttamiðstöðvarinnar í Stykkis-
hólmi, að ekki sé ráðlegt að fara í
sund með fram heilsubótarsetu í
heitu pottunum. Ágústína baðar
sig annan hvem dag i heilsupott-
unum og segir þá slá öðrum pott-
um við.
„Þetta hefur gjörbreytt lífi mínu.
Ég hef prófað heita potta víða, til
Kraftaverk í Hólminum
Ágústína Guömundsdóttir, kennari í Stykkishólmi, og Heimir Kristinsson byrjuöu aö baöa sig í
heilsuvatninu í fiskikörum í sveitinni viö Hólminn. Sár þeirra beggja hafa lokast og eru áhrif
vatnsins kraftaverki iíkust.
dæmis í
Reykjavík, og
svo hef ég far-
ið í Bláa lónið.
Ég hef aldrei
fundið fyrir
öðru eins og í
pottunum
héma en það
fæst líka með
því að ég
stunda þá
reglulega og
sleppi ekki úr.
Geri ég það þá
taka sárin og
hrúðrið sig
upp aftur,“
segir Ágústína
Guðmunds-
dóttir kennari
um heilsu-
paradísina í
Stykkishólmi.
-jtr