Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 4
A þessum síðustu og verstu dögum þurfa allir að leggj- ast á eitt til þess að stöðva glæpi út um borg og by. En hvað getur hinn al- menni, löghlýOni borgari gert? I 97. grein laaa um meðfero opinberra mála má komast að sannleikanum um þessi mál. „Borgurum er rétt að handtaka mann ef rökstuddur grunur er um að hann hafi framið brot sem sætt getur ákæru og varðað getur fangelsi, enda sé handtaka nauðsynleg tii að koma í veg fyrir áframhaldandi brot, tryggja návist hans og öryggi eða koma í veg fyrir að hann spilli sönnunargögn- um. Afhenda skal hinn handtekna lög- reglunni tafarlaust ásamt upplýsing- um um ástæðu handtökunnar og hvenær hún fór fram,“ segir í fyrstu og annarri grein 97. greinar laga um opinber mál. „Þetta þýðir hins vegar ekki að þú getir handsamað einhvem einstakling og skelit honum niður i geymslu hjá þér,“ segir Jónas Hafsteinsson hjá lögreglunni í Kópavogi. „Hins vegar geta komið upp þær að- stæður að ekki er hægt að koma ein- staklingnum til lögreglu „tafarlaust" eins og um getur í lagagreininni. Segj- um að þú sért staddur/stödd uppi á há- lendinu og þú sérð einhvem drepa mann. Þú þarft óneitanlega að halda manninum fóngnum á meðan þú kall- ar til lögreglu - og það getur aÚt tekið sinn tíma.“ Jónas man ekki til þess að komið hafi til borgaralegrar handtöku á hans vakt en útilokar ekki að það hafi gerst einhvem tima. Hann vildi þó hvetja fólk til þess að reyna að komast hjá þvi aö handsama fólk og kalla heldur til lögreglu ef verið er að brjóta lögin. „Ef eitthvað gerist innan höfuðborg- arsvæðisins tekur það lögreglu yfir- leitt ekki nema örfáar mínútur að komast á staðinn. Þá er líklega vissara að bíða sé það hættulaust og ef það spillir ekki sönnunargögnum," bætti Jónas við. Salem Karím er íraki sem búið hefur á íslandi í tæpt ár. Árið 1991 þegar Salem var nítján ára var hann kvaddur í herinn og barðist í Persaflóastríðinu. Eftir tvo mánuði lenti hann í fangabúðum Bandaríkjamanna þar sem hann dvaldi næstu tvö árin en með hjálp Sameinuðu þjóðanna fékk hann loks pólitískt hæli í Svíþjóð þangað sem hann komst árið 1993. Nú er Salem búinn að koma sér vel fyrir hér á landi og starfar við dyravörslu og steypuvinnu. í Svíþjóð hitti hann íslensku yng- ismeyna Söndru Björk Jóhanns- dóttur og i dag búa þau í Reykja- vík og eiga saman sjö vikna son, Ómar Frey. Salem hefur sem sagt reynt ýmislegt sem er ansi fjarri ís- lenskum veruleika. Hann missti tvo bræður í stríðinu og pabba sinn og getur ekki snúið aftur til heimalands síns. Saddam Hussein er enn við völd og líklegt þykir að annar sona hans taki við stjóminn- ni þegar sá gamli fellur frá. í borg- inni Babýlon í írak á Salem sjö systur og fjóra bræður en öllum er þeim meinað fara úr landi. Salem getur þvi ekki hitt neina úr fjöl- skyldu sinni og raimar býst hann ekki við að komast til heimalands síns nokkum tímann. Reyni haxm það mim hann stofna fjölskyldu sinni í hættu. Fordómar kvenna Sandra kynntist Salem árið 1997 þegar hann rak sina eigin búð í Malmö en hún vann á McDonald’s. Bæði segja þau mun þægilegra að búa á íslandi en í Svíþjóð. Þar er meira atvinnuleysi og fordómar en á íslandi. Þó þau hafi orðið vör við einhverja fordóma hér á landi seg- ir Salem að sér hafi verið tekið frá- bærlega hér, allir séu mjög áhuga- samir og vingjamlegir. „Fólk hefur reyndar mjög miklar ranghug- myndir um arabalönd og múslíma sem stafa einna helst af einhæfum og neikvæðum fréttaflutningi," segja þau bæði. Þeir fordómar sem þau hafa fundiö fyrir hafa ekki sist beinst að Söndru fyrir að vera með erlendum manni. „Ég fæ mest að finna fyrir því hjá íslensku kven- fólki. Þetta kemur allt frá eldra fólki því unga fólkið er mjög opið.“ Sandra og Salem eru bæði múslímar en Sandra tók íslamska trú nýlega. „Eftir að ég kynntist þessu fór ég að líta hlutina í öðru ljósi og taka eftir nýjum. Maður fer að pæla mun meira,“ segir Sandra. Sedem stundar ekki trúna eins og hann hefði annars gert í heima- landi sínu. Gestsaugað og vinnualkar Salem vinnur nú í Steypustöð- inni og um helgar í dyravörslu á nokkrum skemmtistöðum borgar- innar. Það er einmitt þaðan sem margir íslendingar kannast eflaust við hann. Salem segist eiga félög- um sínum í Steypustöðinni margt að þakka og að þeir hafi hjálpað sér á margan hátt. „írakar vinna mik- ið en íslendingar þó enn meira,“ segir Salem. í fyrstu var hann undrandi á allri drykkjunni um helgar en segist skilja það betur eft- ir að hafa kynnst íslensku vinnu- vikunni af eigin raun og finnst fólk eiga upplyftinguna skilið. „Ég brosi bara að fullum íslendingum sem ég hitti í dyravörslunni um helgar," segir Salem. Að sjálfsögðu er margt sem kemur honum spánskt fyrir sjónir hér á landi enda ólikir menningarheimar á ís- landi og i trak. „íslendingar eru án allra vandamála og geta alltaf grln- ast, það reddast alltaf allt. Svona er þetta ekki í írak,“ segir Salem. Honum fmnst dýrt að lifa hér og fmnst einkennilegt að hægt sé að labba inn í bílaumboð rétt sisona og kaupa bíl út á greiðslukort. Þannig er ísland í dag. bankamálafulltrúi Regnbogans og Stjömubíós, því þetta eru sömu fyrirtækin." Aðspuröur um hvort Halldór sjái flestar kvikmyndirnai- sem sýndar eru í Regnboganum segir hann svo vera. Hann hefur lika gaman af þvi að gefa kvikmynd- unum sem hann sér sljömur. The Patriot gefur hann þrjár stjömur og Me, Myself and Irene einnig. „Svo bíð ég spenntur eft- ir að sjá myndina X-Men sem frumsýnd verður í kvöld,“ segir Halldór að lokum, hress í bragði. „Búningurinn er sérsaumaöur af Hexa - Sauinastofunni Sól- inni," segir Halldór stoltur. Hann bætir við að nýja „uniformið" komi sér vel fyrir Regnbogann sjálfan, „ég er jú andlit fyrirtæk- isins út á við og vil vera þvi til sóma“. Halldór er sannfæröur um að Regnboginn eigi eftir aö dafna enn frekar eftir þessa ánægjulegu breytingu. Eins og áður sagði er Halldór fram- kvæmdastjóri móttökusvið Regn- bogans. En hann sér einnig um ýmis bankamál. „Ég er líka Halldór Ómar Slgurösson, framkvæmdastjórl móttökusvlfts Regnbogans. Halldór Ómar Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri móttökusviðs Regnbog- ans, sem talað var við í síðustu viku hefur fengið í hendurnar langþráðan nýjan einkennisbúning. f 6 k U S 18. ágúst 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.