Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Page 6
3 haf
Dó á Hinsegin
tónleikum
Þegar hljómsveitin Bellatrix
hljóðprófaði sig fyrir Hinsegin
tónleika á Ingólfstorgi síðasta
laugardag hné maður úr áhorf-
endaskaranum niður. Maðurinn
féll til jarðar þegar sveitin lék
alldramatískan kafla í laginu
„Jediwannabe". Sem betur fer er
Sigrún, hljómborðsleikari Bellat-
rix, lærð hjúkrunarkona. Hún
stakk sér af sviðinu og hugðist
koma manninnum til bjargar
með skyndihjálp en það var um
seinan. Meðlimir Bellatrix voru
í uppnámi þegar tónleikar þeirra
áttu að hefjast en hörkuðu af sér
og skiluðu sínu og vel það. Ekki
er vitað um dánarorsök.
Perrastrik.is
Á spjallþráðum strik.is má
finna ýmsa undirflokka og efni
fyrir umræður netverja. Meðal
annars er þar spjallþráður
stefnumótaþáttarins Djúpa laug-
in sem sýndur er á SkjáEinum.
Fæst bera skilaboðin sem um
þráðinn fara þess merki að vera
pikkuð inn af vitsmunaverum,
en þar kennir ýmissa grasa.
Meðal þess sem skoða má eru
auglýsingar frá fólki sem lofar
ungum stelpum og strákum
skjótfengnum gróða. Við nánari
athugun kemur í ljós að þetta
eru örþrifaráð sveittra karl-
manna sem eru komnir á
fremsta hlunn með að nauðga
einhverjum og eru tilbúnir að
greiða fyrir samfarir.
Úps, reyndu aftur
Hver græðir á því að kíkja í
hálfkláraða kókflösku? Kíktu í
Coke leikur Vífilfells er alveg
hættur að vera fyndinn. Ár eftir
ár kynnir fyrirtækið þennan
bjánalega sumarleik og það eina
sem fréttist af vinningum eru
óljósar frásagnir kunningja, sem
eiga vini, sem eiga skyldmenni,
sem „græddu“ geisladisk með
Landi & Sonum þegar þau voru
rúmlega hálfnuð með fjórtándu 2
1 kippu sumarsins. Og hvað er
grínið með þessa vinninga? Bíla-
vinningurinn hvarf út í góðærið
og var skipt út fyrir einsmanns-
flugferð til Balí. Vissulega er
kókið óumdeilanlegur þjóðar-
drykkur landsmanna, eftir að
framleiðslu hvannarótarbrenns-
ans var hætt, en það er spurning
hvort er sorglegra leikurinn
sjálfur eða fávitarnir sem auka
kókneyslu sína í von um að
græða aðra kókflösku. Líklega er
þetta sama hyskið og fer á vöru-
sýningar i Perlunni til þess að fá
pulsur og ... hvað annað en kók.
Ingvar Magnússon leigubílstjóri
Popph
Túlipkanarnir'
Húsvíkingamir Siggi Bluga og
Oddur Bjarni leika og syngja
frumsamin lög kl. 15.15 i Ráðhús-
inu. Þeir eru víst voða hressir!
Magga Stína og Hr.
Ingi.R
Brjálað stuð og polki í nýja
Borgarbókasafninu í Grófarhús-
inu, Tryggvagötu 15, kl. 19.00.
Jagúar
Kl. 20.30 munu piltarnir í Jagú-
ar spila í lítinn hálftíma á Ingólfs-
torgi og svo aftur í annan lítinn
hálftíma kl. 22.00. Hvað gera þeir á
milli „gigganna"?
Hér er leiðarvísir fyrir þá sem vilja skemmta sér án mikillar
áreynslu og forðast „hámenningu" á Menningarnótt. Fyrir
þá sem hinsvegar hafa taugar í „hámenninguna" er tilvalið
að kíkja á dagskrá Menningarnætur á visir.is á netinu.
nningarnætur
Ragga Gísla og Stórsveit
Reykjavíkur
Líklega svakalegt „show'
hafnarbakkanum kl. 22.45.
Djammdúettinn Kókaím
Á Kaffl Gróf kl. 21.00 spilar
Djammdúettinn Kókaín, snuff,
snuff, og svo snýta!
Geirfuglarnir
Tjútta og tralla eftir flugelda-
sýninguna (sem er kl. 23.00) fyrir
utan veitingastaðinn Tvo fiska,
Miðbakkamegin. Með bandinu
kemur fram hinn þjóðkunni sjón-
varpsmaður Egill Helgason.
200.000 naglbítar
í gargandi stuði á þaki Músíkur
og mynda í Austurstrætinu kl.
20.00.
Kanada
Kanada jafn sætir og skemmti-
legir og alltaf á þaki Músíkur og
mynda í Austurstræti kl. 21.00.
;inu á
Súfistanum einhvern timann á
milli 20.00 og 23.30. Úlfur er líka í
Kanada og Svasil og því verður
mikið að gera hjá drengnum þetta
kvöldið!
Svasil _____
Á milli 20.30 og 24.00 mun hin
mjög svo fjölmenna hljómsveit
Svasil (13-17 meðlimir!) halda
uppi fjörinu fyrir SPRON á Skóla-
vörðustíg. Afrisk stemning.
Rafmagnssveitin á.
Hlemmi
Band skipað myndlistarmönn-
um og því líklega þokkalega
steikt. Ætla að spila tilrauna-
kennda tónlist frá kl. 19.15 til 21.00
á Hlemmi.
Ampop
Rafdúettinn (voða vinsælir þess-
ir dúettar!) Ampop spilar kl. 22.00
í bakgarði Meistara Jakobs, list-
húss, Skólavörðustíg 5. Dúettinn
skipa Birgir Hilmarsson og Kjart-
an Friðrik Ólafsson.
Ingvar Magnússon, leigubílstjóri á Hreyfli, hefur til umráða vinsælan
vinsældanna eru öflugar hljómflutningsgræjur, vídeó og DVD-tæki sem
spila bæði tónlist og kvikmyndir í
Ingvar hefur lent í ýmsum
skemmtilegum uppákomum í
tengslum við starfið.
„Fyrirtæki nýta sér oft vídeó-
tækið til að sýna kynningarmynd-
ir. Þetta er vinsælt þegar ég næ í
kúnna út á flugvöll. Þeir nota þá
tímann á leiðinni af Vellinum inn í
Reykjavík til að horfa á kynningar-
myndband þess fyrirtækis sem
þeir eru hér til að heimsækja," seg-
ir Ingvar.
Vegna þess hversu geggjaður
kraftur er í hljómflutningsgræjim-
um hefur Ingvar einnig lent í hin-
um og þessum ævintýrum. „Vinur
minn, Guðmundur í Nes-radíói, á
nú stóran þátt í vinsælduniun. Það
var hann sem setti upp hljómflutn-
ingsgræjumar í bílnum."
En hvað er beðið um? „Ég hef
haldið ball að lokinni ökuferð upp
í sumarbústað með græjunum í
bílnum." Ingvar hætir við: „Einu
sinni fór ég líka með hóp fólks upp
á Snæfellsnes og annan norður til
Akureyrar og aftur til baka. Það
munar vist einhverjum tugum þús-
unda að taka leigubíl og að fljúga
norður fyrir 8 manns.“
Ingvar og bíllinn eru einnig
mjög vinsælir í steggja- og gæsa-
partí. Það er jú alltaf jafn hryllilega
gaman að öskra úr sér lungun í
kapp við græjumar í bílnum á leið-
inni í djammið.
Tvífaramir að þessu sinni eru varla tvífarar. Þeir eru einn og sami maður-
inn. Nefnilega Jón Magnússon, varaformaður Neytendasamtakanna, krafta-
verkapredikari og lögfræðingur. Það hefur sýnilega ruglað marga i riminu að
Jón hefur tekið sér nafnið Benny Hinn og notar það í predikunarstólnum. Á
báðum sviðum er hann umboðsmaður litla maimsins, ýmist gagnvart kaup-
manninum á hominu eða guði almáttugum. Margir muna eftir því, árið ‘95,
þegar Jón spreyjaði i toppinn með „Elnette" og fyllti Laugardalshöll af öryrkj-
um, „krossurum" og heilögum anda í þrumuræðu sinni um betra líf með
Kristi. Blindir fengu sýn og lamaðir dönsuðu heim á hótel, enda allir úr fylgd-
arliði predikarans. Nýlega steig Jón svo fram fyrir skjöldu og sagðist vilja birta
svartan lista yfir okurkaupmenn landsins, á vegum Neytendasamtakanna.
Þeim sem vilja berja kappann augum í gervi Hinn er bent á þáttinn „This is
your day“ á Omega. „Dú æ hir ann Eyyyyyyyméeeeeeeen?"
Jón Magnússon, varaformaöur Neyt-
endasamtakanna og lögfræðingur.
Benny Hinn, sjónvarpshermaður
Krists.
6
f Ó k U S 18. ágúst 2000