Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2000, Side 12
« « » > en af einhverjum óskiljanlegum orsökum gleymdist að bjóða mér á Futurice-sýninguna síðustu helgi. Það þýðir samt ekki að ég hafi ekki mætt. Það þýðir bara það að ég þurfti að drekka mig fulla til þess að telja í mig kjark og þora að mæta (soldið lágt sjálfsmat hjá minni). Ég hef alltaf fylgst með tískunni frá því að ég var lítil stelpa og það var mér að þakka að íslendingar misstu ekki gersamlega af axlapúðunum á sínum tíma. Þannig að ef það er einhver sem átti skilið að vera boðið á Fut- urice þá er það ... ■■■ 69* Það tók mig langan tíma að finna réttu fötin til þess að fara í. Mig langaði ekki að vera eins og hinir en samt alls ekki að vera neitt allt of mikið öðruvísi (þetta er nú gald- urinn við að vera stílisti elskan). Ég vildi vera smá drusluleg eins og Björk ólétt, ógeðslega evil eins og Páll Óskar í latexi og rosalega virðuleg eins og Vigdís fyrrver- andi forsetafrú. Og þó ég segi sjálf frá þá tókst það fullkomlega. Ég var viðbjóðslega vel... ... heppnuð. Ég slurkaði í mig nokkrum sterkum sjússum og sagði við sjálfa mig í spegilinn: „Þú ert æðis- leg, þú ert ógeðslega sterkur karakt- er, þú átt heima í tískubransanum.“ Þetta eru svona styrkjandi æfingar sem ég gæti ekki lifað án. Svo tók ég leigubíl út í Bláa lónið. Ég hló rosalega mikið og notaði hásu röddina mína þegar ég steig út úr leigubílnum (Magga Vilhjálms meets svarthærða stelpan í Djúpu lauginni). Það bregst aldrei, fólk heldur alltaf að maður sé í rosafíl- ing ef maður er ... ... hás. Svo reyndi ég bara að troða mér inn í hóp af stílistum sem voru á leiðinni inn (allt topphð, engir lúserar). Og þegar dyravörðurinn stopp- aði mig þá feikaði ég þvílíkt hláturskast yfir því að hafa gleymt miðan- um þangað til að hann hleypti mér inn. Soldið niðurlægjandi en hvað gerir maður ekki fyrir tískuna? Ég fann það reyndar þegar ég var kom- in þama inn að ég var aðeins of full. Ég flýtti mér þess vegna inn í bún- ingsklefann, klæddi mig í sundbolinn, bleytti hárið til þess að sýnast hafa farið í sturtu og hoppaöi út i... ... lónið. En þá rann af mér og ég fatt- aði að sýningin var ekki úti í hvernum sjálfum heldur i mat- salnum (smá vonbrigði) þannig að ég fór aftur inn og klæddi mig aftur í (lyktandi af kísilgúr eins og sóreasissjúklingur). Ég var dá- lítið að missa mig af drykkju en náði samt að horfa á næstum því alla tískusýninguna og hlæja með sjálfri mér. Viðbjóðslega hallæris- legt drasl og alls ekki þess virði að vera boðin. En ég hitti þó fullt af frægu fólki. Það er alltaf ógeðs- lega næs. Mér líður eins og heima hjá mér þegar ég sé frægt fólk tala saman eins og ekkert væri ... eðlilegra. Ég blandaði ógeðslega miklu geði og ég veit að það á eftir að skila sér í atvinnutækifærum seinna. Ég gaf líka mikið af ókeyp- is ráðleggingum (sagði Dóru Takefusa hvernig hún gæti náð krullunum úr hárinu), ég skálaði við mikilmenni og ljósmyndarana á Séð og heyrt, ég náði í kampavín handa frænda hans Egils Ólafssonar sem ég held að sé hommi, togaði í gríni í geirvörtumar á Móu en svo var mér hent út þegar ég reyndi að fara í sleik við Vigdísi. En þá var mér alveg sama af því að ég var búin að sanna að ég ætti heima í þessum hópi, bless minnimáttarkennd! f Ó k U S 18. ágúst 2000 í hverjum mánuði deyja í kringum 120 Reykvíking- ar og nærsv/eitarmenn., Öllu þessu fólki er síðan holað niður-éinh.vers staðar og til þess að ein- falda ættingjum eftirleik- inn set'ti Fókus saman nokkrar skotheldar leiðir fyrir hvern og einn um hvernig á að jarða sig. Þér verður Þetta er að sjálfsögðu ekkert gamanmál. Dauðinn er alltaf ákaf- lega sorglegur og erfiður fyrir þá sem eftir lifa. Væri það ekki yndis- legt fyrir eftirlifendur ef þeir gætu gengið að því vísu að þessi jarðar- for væri akkúrat sú sem þú mund- ir vilja fá? Útfararstofa Það fyrsta sem þú þarft að gera er að velja þér útfararstofu. Þetta er ekkert sérstaklega flókið fyrir- bæri - bara að fara I símaskrána og leita uppi stafinn Ú og áður en þú veist af ertu runninn á bragðið. Síðan er bara að hafa samband við útfararstjórann og reyna að mæla þér mót við hann/hana. Nokkra hluti þarftu samt að hafa á hreinu áður en þú ferð. Kostnaður Hvað eiga mamma og pabbi mik- inn pening? Ertu líftryggð(ur)? Þykir einhverjum vænt um þig? Ef svarið við öllum þessum spurning- um var ,já“ getur þú sleppt fram af þér beislinu. Samkvæmt upplýsing- um frá Útfararstofu íslands kost- ar jarðarfor á bilinu 70 til 250 þús- und. Segðu við útfararstjórann að þú viljir láta jarða þig í fotum frá Chanel eða Gucci, að Karlakór Reykjavíkur eigi að syngja í jarð- arförinni þinni með Kristján Jó- hannsson og Diddú sem einsöngv- ara. Sé svarið hins vegar „nei“ þarftu ekki að hafa áhyggjur af því að velja organista - þú hefur ekki efni á því. Tónlist Þú getur látið syngja hvað sem er í jarðarforinni þinni. Loksins, loksins er fólk komið saman til þess að hugsa bara um þig og þá er kominn tími til þess að það hlusti á tónlistina sem það bað þig i sí- fellu að lækka. Éinhverjir munu líklega vilja að Kristján Jóhanns- son spreyti sig á „My Way“ eftir Sinatra og eins er hægt að láta organistann vinna fyrir kaupinu sínu með því að heimta einhvem slagarann eftir Metallica. Staður Ef þú ert ekki þegar búinn að láta taka frá pláss handa þér í Fossvogskirkjugarði verður þú að velja á milli kirkjugarðsins í Hafnarfirði eða í Grafarvogi. Þó áttu færi á að láta hola þér niður í Fossvogi ef þú ert til í að láta brenna þig - sem er víst að komast í tísku - um 15 prósent allra sem hrökkva upp af láta kveikja i sér á indverskan máta. Líkkistan Hvernig væri að finna sér ein- hverja lofttæmda kistu svo að þú verðir ekki maðkétinn eftir fimm mánuði? Reyndu síðan að velja þér svarta kistu (hvítt verður svo skitugt í moldinni), helst með gyllingum á alla kanta og NMT-síma hendi það þig að þú værir jörðuð/jarðaður lif- andi. Þegar þessu er öllu lokið er bara að setjast á grafarbakkann og bíða - ef þú ert heppinn gæti biðin tekið dálítinn tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.