Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2000, Blaðsíða 24
44
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2000
Tilvera I>V
lí f iö
Einar Már og
Tómas R kynna
geisladisk
Á Súfistanum, Laugavegi 18,
ætla Einar Már Guðmundsson
rithöfundur og Tómas R. Einars-
son tónskáld að kynna nýjan
geisladisk þar sem Einar Már les
ljóð sin við undirleik hljómsveit-
ar Tómasar. Sveitina skipa þeir
Tómas, á kontrabassa, Óskar
Guðjónsson, á tenór- og sópran-
saxófón, Eyþór Gunnarsson, á
píanó og slagverk, og Matthías
Hemstock, á trommur og slag-
verk. Tónleikamir hefjast kl. 20
og er aðgangur ókeypis.
Krár
■ DONAR A PUNKTINUM Biarni
Tryggvason verður með dónakvöld í
kvöld til 1. Vá, það verður örugglega
gaman!
Myndlist
1 ARNA í KOMPUNNI Nú stendur
yfir sýning á verkum Ornu Valsdóttur
í Kompunni á Akureyri. Sýningin er á
vegum Listasumars á Akureyri.
■ TORG OG TÓMIR KASSAR
nefnist myndlistarsýning Borghildar
Óskarsdóttur I Listasafni ASI,
Ásmundarsal og Gryfju. Sýningin
sem opnuö verður núna heitir Torg
og tómir kassar og mætti einnig
hafa undirtitilinn Hver er þessi
hnöttur Jörð? því sú spurning var
kveikjan að því verki sem Borghildur
sýnir nú í Ásmundarsal. Á meðan
Borghildur var að hugsa og forma
verkið lagði hún spurningar, tengdar
verkefninu, inn á Vísindavef Háskól-
ans og hefur nú fengið þaðan svör
við nokkrum spurningum sínum.
Sýningin stendur til 10. september
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14.00-18.00.
■ ÁRSETH í MÍR Nprski myndlistar-
maðurinn Sigmund Arseth sýnir
myndir sínar í MÍR, Vatnsstíg 10.
Á sýningunni eru nær 40 myndverk,
flest máluð á síðustu misserum.
Landslagsmyndir eru áberandi á,
sýningunni og nokkrar þeirra frá 1s-
landi en listamaðurinn dvaldist hér á
landi um skeið í fyrrasumar, ferðaö-
ist um landið og festi landslag á lé-
reft. Sýningin stendur til 10. sept-
ember og er opin daglega frá kl. 15
til 18.
Opnanir
■ GIL í GALLERI REYKJAVIKUR
Javier Gll myndlistarmaður frá
Montevldeo í Úrúgvæ opnar sýningu
í sýningarsal Gallerí Reykjavíkur,
Skólavórðustíg 16, í dag klukkan
18.00. Javier Gil sýnir kolateikningar
og er myndefnið að stórum hluta
sótt í fslenska náttúru og norrænar
goðsagnir. Þessi áhrif blandast svo
hans eigin stíl sem einkennist af
draumkenndu töfraraunsæi þar sem
mætast stórbrotin byggingarlist og
fegurð mannslíkamans. Enn fremur
er á sýningunni röð Reykjavíkur-
mynda þar sem óhamið ímyndunar-
afl listamannsins fær aö njóta sfn.
Sýningin er opin frá 10-18 virka-
daga og 11-16 laugardaga. Aðgang-
ur er ókeypis.
Síðustu forvöð
■ LISTAKONUR I ASI Sýningu lista
kvennanna Kristínar Geirsdóttur og
Ásu Ólafsdóttur á málverkum og
myndvefnaði í Ásmundarsal og í
Gryfjunni lýkur í dag.
Sjá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is
DV-MYND INGÓ
Rugmaðurinn Björn Bragi Björnsson
Fyrsti íslendingurinn sem nær bóklegu atvinnuflugmannsprófi eftir nýjum evrópskum reglum:
Björn Bragi Björnsson náði glæsilegum árangri í atvinnuflugmannsprófi:
/
Fyrstur Islendinga
til að ná prófinu
Tvítugur menntaskólanemi,
Björn Bragi Björnsson, náði þeim
árangri fyrir skömmu að verða
fyrsti íslendingurinn sem nær bók-
legu atvinnuflugmannsprófi eftir
reglum Samtaka flugmálayfirvalda í
Evrópu í fyrstu tilraun. Björn Bragi
er nemandi í Flugskóla Islands og
var meðaleinkunn hans í prófinu
8,63. Það er meðal hæstu einkunna
sem náðst hafa í prófinu í Evrópu
en mikið fall hefur verið í því þar
sem það hefur verið tekið.
Reglurnar sem prófað var eftir
núna eru nýjar en þær eru settar af
Samtökum flugmálayflrvalda í Evr-
ópu sem hafa það markmið að sam-
ræma staðla i flugi innan Evrópu.
Þetta var því í fyrsta skipti sem
prófað er eftir sömu reglunum í
allri Evrópu í bóklegu atvinnuflug-
mannsprófi. Um 44 nemendur hafa
stundað bóklegt flugmannsnám hjá
Flugskóla íslands í vetur og tók
hluti þeirra prófið núna. Björn
Bragi var sá eini sem náði prófmu
hér á landi en hinir fá annað tæki-
færi til að reyna við það.
Fjórtán próf á hálfum
mánuði
Að sögn Björns Braga var um að
ræða fjórtán próf sem tekin voru á
hálfum mánuði i lok júlí og byrjun
ágúst. Siglingafræði, veðurfræði,
eðlisfræði og flugreglur voru meðal
greina sem prófað var i. „Sum próf-
in voru nokkuð strembin," segir
Björn Bragi og bætir við að þegar
meiri reynsla verði komin á prófin
muni þau að öllum líkindum verða
léttari. í prófunum núna vissu nem-
endur til að mynda ekki um áhersl-
ur í því námsefni sem prófað var í.
Sumarið fór í að lesa undir prófið
og tók próflesturinn svo mikinn
tíma að Björn Bragi gat ekki unnið
með náminu í sumar. Hann stefnir
á að ljúka verklegum hluta atvinnu-
flugmannsprófsins eftir sex mánuði
en hann hefur stundað atvinnuflug-
mannsnámið í eitt ár. Bjöm Bragi
kann vel við sig í háloftunum og
segir það ákveðna áskorun að stýra
flugvél. Draumurinn er því að
starfa sem atvinnuflugmaður í
framtíðinni. „Ég hef haft áhuga á
flugvélum frá barnsaldri,“ segir
Björn Bragi. Hann byrjaði að læra
flug árið 1997 og lauk einkaflug-
mannsprófinu ári seinna, þegar
hann var átján ára.
Þrátt fyrir að Bjöm Bragi sé bú-
inn með bóklega hlutann er hann
ekki hættur öllu bóklegu námi því
hann er sestur aftur á skólabekk í
Menntaskólanum í Hamrahlíð. Þar
stundar hann nám á eðlisfræðibraut
og ætlar að ljúka stúdentspróflnu i
vetur því hann á mjög lítið eftir, að
eigin sögn. -MÓ
Kötturinn Búi og hundurinn Babú eru einstakir félagar
Kötturinn reyndi að ala upp hundinn
Það getur stundum verið erfitt
að vera köttur, sérstaklega þegar
besti vinur manns er hundur.
Kötturinn Búi hefur upplifað þetta
því hann er alinn upp með hund-
inum Babú og er ekki hreint ekki
ánægður með að fá ekki að fara
með Babú þegar Jenný Guðmunds-
dóttir eigandi þeirra fer með
hundinn í gönguferðir. Hann læt-
ur sér samt ekki segjast og eltir
þau einfaldlega. „Ég hef reynt að
stinga hann af en hann finnur okk-
ur alltaf,“ segir Jenný. Hún segir
að á meðan hún og hundurinn
rölti um á gangstígum hoppi kött-
urinn oftast um í nærliggjandi
görðum og fylgist grannt með ferð-
um þeirra.
Þeir félagar eru næstum jafn-
gamlir því þeir eru báðir fæddir í
mars i fyrra en Jenný fékk þá um
vorið, fyrst hundinn í maí en kött-
inn í júni. „Þegar kötturinn kom
fór hann strax að reyna að ala
hvolpinn upp,“ segir Jenný. Að
sögn Jennýjar var það mikil hjálp
að kötturinn skyldi taka þátt í
uppeldi hundsins því það gerði
það að verkum að hún þurfti ekki
sjálf eins mikið að sjá um að leika
við hundinn. Kötturinn og hund-
urinn urðu fljótlega perluvinir.
Þegar kötturinn var orðin leiður á
Jenný Guðmundsdóttir með Babú og Búa
„Ég held stundum aö kötturinn haldi aö hann sé hundur.
að leika við hundinn hoppaði
hann upp á næsta stól. Þessi sam-
vera þeirra hefur gert það að verk-
um að hundurinn er farinn að þvo
sér eins og köttur.
Hún segir þá félaga hafa fundið
upp á ýmsu. „Ég held stundum að
kötturinn haldi að hann sé hund-
ur,“ segir
Jenný. Köttur-
inn hefur fengið
að vera laus úti
eftir að hann
varð sex mán-
aða en vill samt
oft vera í garð-
inum þegar
hundurinn er
bundinn þar og
leika við hann.
„Kötturinn er
stundum að
hoppa í kring-
um hann og er
meira að striða
hundinum því
hann er frjáls,"
segir Jenný.
Þeir félagar eru
orðnir vanir að
hafa hvor ann-
an en núna er
kominn nýr
kettlingur á
dv-mynd heimilið sem
vill örugglega fá
að vera með.
Jenný segir að
hann muni þó ekki fara með í
gönguferðimar því hann sé ein-
göngu inniköttur. -MÓ