Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Side 3
Grímur Grímsson er formaður Backgammonfélagsins og eyðir drjúgum tíma í spilamennsku á Grand Rokk.
„Spilið er fljótlært, það tekur
ekki nema um tvo tíma eða svo, og
þegar maður er búinn að ná tök-
um á því er alveg eins hægt að
vinna einn leik af tíu við heims-
meistarann. En þó að þú stúderað-
ir skák í tíu ár þá gætirðu ekki
unnið eina skák af hundrað við
Kasparov," segir Grímur Gríms-
son , formaður Backgammonfé-
lags Reykjavíkur. Grímur lýsir
leiknum sem samblandi af lúdó,
skák og póker. „Það hefur einfald-
leikann frá lúdó, stöðubaráttuna
og orrustuna eins og í skák og
svipar loks til pókers í sambandi
við að hækka það sem spilað er
um,“ segir hann.
Kotra á Litla-Hrauni
Backgammon hefur verið spilað
i 5000 ár. Það var mjög vinsælt í
Grikklandi til forna og heimspek-
ingurinn Sókrates vitnar í það og
ber greinilega mikla virðingu fyr-
ir því, að sögn Gríms. Nú nýtur
Backgammon
er mikið spilað í
Reykjavík um
þessar mundir. í
Backgammonfélagi
Reykjavíkur eru
rúmlega 100
manns og það
ætlar að standa
fyrir vikulegum-
mótum á Grand
Rokk í vetur.
leikurinn mikilla vinsælda um all-
an heim. í Danmörku er spilað á
öllum kaffihúsum og í arabalönd-
um sleppir fólk varla teningunum
nema rétt til að ræða við Allah. Að
sjálfsögðu hefur Netið orðið aðal-
vettvangur spilamennskunnar.
Grímur segir að þar sé að finna
fjölda ókeypis backgammonrása
þar sem hægt er að etja kappi við
allra þjóða kvikindi. Á íslandi er
rík hefð fyrir leiknum því hið
foma spil kotra er eitt afbrigði af
Backgammon. „Það virðist enginn
kunna kotru lengur, nema
kannski einhverjar ömmur, og því
eru deildar meiningar um hvort
eigi ekki bara að nota kotrunafnið
yfir þetta.“ Til eru ótal afbrigði af
backgammon en eitt þeirra er
langútbreiddast og er leikið á mót-
um og í netleikjum. „Hér á landi
er önnur gerð mjög vinsæl og er
oft kölluð Litla-Hraunsafbrigðið,
innan gæsalappa. Aðspurður um
þetta sérstaka nafn segist Grímur
hafa heyrt af því að Backgammon
sé vinsælt á Hrauninu en þekkir
það þó ekki af eigin raun.
Bjór eða kaffi
Áhugamenn um Backgammon
halda mest til á öldurhúsinu Grand
Rokk og mætti kalla það þeirra fé-
lagsheimili. En er þá spilamennsk-
an ekki bara afsökun til þess að fá
sér bjór? „Ég veit nú ekki hvort
maður þarf nokkra afsökun til
þess,“ segir Grímur en þykir þessi
svo sem ekki verri en hver önnur.
„Sumir koma nú bara og fá sér
kaffi," bætir hann við. „Þetta er
mjög afslappað spil og hægt að
spjalla saman yfír því, öfugt við
skákina, þó að mönnum takist það
nú svo sem á Grand Rokk. Margir
skákmenn hafa gaman af Back-
gammon. Hannes Hlífar og Róbert
Harðarson taka þátt í íslandsmeist-
aramótinu og Karpov, fyrrverandi
heimsmeistari, spilar mikið.“ Laug-
ardaginn 21. september fer fram úr-
slitaumferð íslandsmeistaramótsins
og brátt hefst nýtt stigamót. Áhuga-
samir geta skráð sig í félagið á
Grand Rokk.
Hlynur Páll Pálsson, formaður Stúdentaleikhússins og Stefán Hallur Stefáns-
son framkvæmdastjóri leikhússins.
„Þetta byrjaði allt í vor í kúrs í bók-
menntafræðinni. Terry Gunnell var
þar að kenna leiklistarfræði og við
sem vorum í kúrsinum settum upp
Tartuffe eftir Moliére með styrk frá
Stúdentasjóði. Ég hafði verið formaður
Torfhildar, félags bókmenntafræði-
nema, og varð þess vegna í forsvari
fyrir þetta. Þetta var svo skemmtiiegt
að okkur fannst við verða að halda
áfram. Við töluðum því við rektor og
hann var til í að styrkja okkur við end-
urlifgun Stúdentaleikhússins. Hann
hefur verið mjög hjálplegur síðan.“
„1 vor hóuðum við saman 20 manns
á fund tO að starta Stúdentaleikhúsinu
á nýjan leik. í gær byrjaði svo 4 daga
undirbúningsnámskeið sem leikstjór-
inn okkar, Elfar Logi Hannesson,
stjómar. Elfar er mjög sniðugur,
menntaður sem trúður frá Kaup-
mannahöfn. Við höfum hins vegar
ekki enn komið okkur saman um
hvaða verk verður fyrir valinu nú í
haust.“
í vor mun Stúdentaleikhúsið hins
vegar setja upp leikrit sem valið verð-
ur úr hópi annarra í leikritasam-
keppni sem leikhúsið stendur fyrir í
haust. „Öllum háskólaborgurum er
leyfdegt að taka þátt í henni. Það
verða peninga- og ferðaverðlaun í boði
fyrir vinningshafann. Skilafresturinn
rennur svo út á nýársdag.“
Þótt skilyrðið fyrir að senda leikrit í
keppnina sé að vera háskólaborgari
eru skilyrðin fyrir inngöngu í Stúd-
entaleikhúsið ekki þau sömu. Það
stendur í reglum Stúdentaleikhússins
að þar sé öllum frjálst að starfa, hvort
sem viðkomandi er í Háskólanum eða
ekki, og þar hafið þið það.
Stúdentaleik-
húsið hefur risið
upp frá dauð-
urn. Að þessu
sínni verða sett
upp tvö verk.
Hlynur Páll Páls-
son er formaður
leikhússins og
horfir bjartur
fram á veg.
Hlynur segir Stúdentaleikhúsið
hafa verið óvirkt í 2 til 3 ár. „Þess
vegna voru flestir ráðamenn fegnir
þegar ég og félagar mínir sýndu
áhuga á að endurlífga það.“
Arnar ívarsson:
Safnar myndum af
skrýtnu fólki
■|
4
Fyrirsætan Gisele:
Tékur við af Naomi
Campbell
Árni Pétur
Reynisson
leikari:
Snýr heim
frá
London
Jón Gnarr:
Er Andrés
önd í
Andabæ
Robbie Williams:
Alltaf sömu
stælarnir
Hljómsveitin A
Perfect Circle:
Orðin að
sjálfstæðu
bandi
Þorsteinn
Guðmundsson:
Er kínverskur
fjöldamorðingi
Shotgun-reglurnar:
Loksins settar
á blað
69 ástæður
fyrir því að
þú ættir að
stunda sjálfsfróun
Á
1* £ • V
1 T 1 0
fónleikar i Cafe9.net Ampop,
GusGus oa Plastik saman
Gene Hackman er arunaður
Steipur oa strákar í bíómvnd
f ókus
fylgir DV á
föstudögum
Forsíðumyndina tók E.ÓI.
af Árna Reynissyni
8. september 2000 f ÓkllS
3