Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Qupperneq 6
Tvítug að aldri er Gisele Biindchen á toppnum, fullskapað tískufyrirbrigði. Síðustu 18 mánuði hefur hún
komið sér upp föstu aðsetri á forsíðum tískublaðanna og á sýningarpöllum. Svo mikið er æðið kringum
hana að þegar er talað um hana sem helstu fyrírsætu áratugarins. Karlmenn standa á öndinni þegar
þeir sjá hana og þótt ótrúlegt megi virðast kunna konur einnig að meta hana.
í janúar birtist Gisele á forsíðum
bresku og bandarísku útgáfnanna
af Vogue, auk þess að hafa þegar
prýtt forsíður Vogue í Brasilíu,
Rússlandi, Þýskalandi, Japan, á
Spáni og í Austurríki. Þetta er ansi
mikið af Vogue en ekki allt þvi í
desember var hún kosin módel árs-
ins hjá Vogue og VHl og þótti þar
stela senunni frá Madonnu,
Jennifer Lopez og fleiri slikum
stjömum.
Eins og móðir Guðs
Gisele hefur birst á auglýsinga-
spjöldum um allan heim fyrir öll
helstu tiskufyrirtækin og auk þess
að hafa setið fyrir á forsíðum helstu
tískublaðanna hefur hún m.a. birst
á forsíðu George, bandaríska stjóm-
málatímaritsins sem John Kenn-
edy Jr. kom á fót. Og fólk virðist
einfaldlega standa á öndinni þegar
það sér hana.
„Allar konur langar til að líkjast
Gisele og alla karl-
menn langar til að
sofa hjá henni,“ seg-
ir Francesca Martin,
ritstjóri breska
Vogue. „Hún er með
fallegt andlit, stór
brjóst, ótrúlega mjótt
mitti og langa leggi.
Hún er sett í hvaða
fot sem er og hún lítur
ótrúlega út. Ég meina, stór brjóst
og mjóir handleggir - hvað gæti
kona farið fram á meira?“
Gisele var
uppgötvuð þeg-
ar hún var ein-
ungis 14 ára á
MacDonald’s-
stað í Sáo
Paulo í Brasil-
íu í skóla-
ferðalagi.
Þann dag seg-
ir sagan að
öll söfn hafi verið lokuð og eiga ör-
lögin víst að hafa tekið völdin í stað-
inn. Þetta var fyrsta ferðalag Gisele
til stórborgar, en hún ólst upp í smá-
bæ á stærð við Akureyri, og tveim-
ur árum seinna var Elite 'búið að
koma auga á hana. Fulltrúi Elite
lýsti henni strax þannig að hún
hefði litið út eins og móðir Guðs.
Alltaf jafn rólegir í yfirlýsingunum,
þessir vitleysingar í tískuheiminum.
Gisele er ein sex dætra kaupsýslu-
manns í Brasilíu, þriðju kynslóðar
innflytjenda frá Þýskalandi. Allar
systur hennar fimm þykja mjög fal-
legar þó engin slái systur sína beint
út. Hún flutti til New York árið 1997,
17 ára gömul, ákveðin í því að meika
það sem módel. Timasetningin var
þó ekki sú besta því heróínlúkkið
var í hámarki. „Enginn vildi ráða
mig ... ég var venjuleg og gat ekki
breyst, þeir urðu bara að taka mér
eins og ég er,“ segir hún. í byrjun
síðasta árs var þetta hins vegar allt
breytt, heróínlúkkið var úti og
Gisele var orðin eftirsóttasta fyrir-
sæta í heimi. Bandaríska Vogue hef-
ur einmitt nefnt hana holdgerving
þess sem þar á bæ kallast endur-
koma línanna.
Finnst óþægilegt að fólk
sjái geirvörturnar
Og línumar eru svo sannarlega til
staðar. Það sem flestir taka auðvitað
eftir eru bijóstin, sem eiga víst að
vera ekta, en hún er ekki mjög hrif-
in af þvi að sýna þau. Fyrir svona
mjóa stúlku þykja brjóstin víst afar
stór og hefur gula pressan í Banda-
rikjunum uppnefnt
hana Brjóstin frá
Brasilíu. Hafa pirrað-
ir ljósmyndarar jafn-
vel gengið svo langt
að stofna þrýstihóp
sem er víst kallaður
Frelsum tvennuna
hennar Gisele, í afar
slæmri íslenskri þýð-
ingu. Miklar umræður
hafa einmitt spunnist
um það hvort brjóst
hennar séu ekta en
fræðimenn í bransanum
segja engan vafa leika á
þvi að þau séu ekta, þau
einfaldlega hreyfist
ekki þegar hún gengur
niður „catwalkið".
Gisele sjáif lætur sér
hins vegar fátt um finn-
ast þegar umræður
beinast að brjóstum
hennar. „Ég veit að ég
er með stór brjóst ... og ég veit að
þeir vilja allir sjá þau en það er lít-
ið sem ég get gert í því. Ég vil ekki
losna við þau og það er ekki eins og
ég geti falið þau.“
Það er heldur ekki eins og Gisele
sé sú eina sem verður vör við at-
hyglina sem vöxtur hennar fær því
hin módelin eru ekki alltaf sátt við
það. „Allar hinar stelpumar hafa
verið að spyija mig af hveiju ég fái
alltaf öll sexí fotin. En ég held að
það sé ekki málið. Ef sumar af hin-
um stelpunum, sem eru með minni
brjóst, ættu að fara í fotin sem ég
fer í myndu þau líklega ekki verða
eins kynþokkafull."
„Þetta er minn líkami og ég er
ánægð með hann, ég er ánægð
manneskja. Þetta er líka mitt starf,
þetta er það sem ég geri. Ég er ekk-
ert voðalega hrifin af því að klæð-
tvífarar
Gabríela Friöriksdóttir. Robbie Williams.
Tvífararnir að þessu sinni eru listamenn. Annar þeirra er íslenskur
listamaður, hinn er breskt poppgoð sem getið hefur sér gott orð fyrir að
vera feitur m.a. Gabríela Friðriksdóttir er samt ekkert feit. Þau deila
hins vegar þessum hörkulega andlitssvip: fínum hrukkum í kringum
augun, hvössu augnaráði og nettum brosviprum um þunnar varimar.
Svo halla þau líka svo skemmtilega undir flatt. Robbie er mikið ólík-
indatól og er þekktur fyrir að láta ófriðlega á tónleikum; berar t.a.m. á
sér bossann i tíma og ótíma. Gabríela er reyndar líka til alls likleg, þó
hún sé ekkert alltaf að múna, en hún er ákaflega hæf listakona. Við eig-
um Gabrielu, Bretar eiga Robbie.
ast svona mörgum bikiníum þegar
ég er að sýna en ég fer venjulega í
allt sem þeir biðja mig um - nema
það sé gegnsætt ... mér finnst
óþægilegt að fólk sjái á mér geir-
vörturnar." Og hún tekur þar af öll
tvímæli því við einn blaðamann
sagði hún: „Elskan, ég fer aldrei úr
að ofan. Ég fer bara úr að ofan þeg-
ar ég fer í sturtu - ég þarf auðvitað
að þvo þau, ekki satt?“
í sambandi með
DiCaprio?
Það er ekki bara bakgnmnur
Gisele eða brjóst hennar sem vekja
athygli á henni því áberandi
kærastar hennar hafa fengið sinn
skerf af athyglinni undanfarið.
Lengsta sambandi hennar fram til
þessa, við myndarlega módelið
Scott Barnhill, lauk fyrr á þessu
ári. í mars viðurkenndi hún að
sambandinu væri lokið en sagði
um leið að hún væri ekki ein af því
furðulega fólki sem þyrfti alltaf að
vera í sambandi. Þessi orð hennar
komu þó ekki í veg fyrir getgátur
fjölmiöla um samband hennar við
Jáo-Paolo Diniz, 36 ára erfmgja að
keðju stórmarkaða 1 Brasilíu, eða
Vikram Chatwal, 29 ára auðkýf-
ing af indverskum ættum sem rek-
ur hótel, fjölmiðla og bar og á auk
þess piparsveinaibúð i Trump-tum-
inum í New York. Náðu paparazzi-
ljósmyndarar m.a. myndum af par-
inu á körfuboltaleik með New York
Knicks. Þar með er þó ekki allt
talið því leikaramir eru eftir. Ge-
orge Clooney á víst að hafa fallið
fyrir henni eftir að hafa séð mynd-
ir af henni og hið sama gerði ungi
leikarinn Josh Hartnett sem ís-
lendingar sjá væntanlega í kvik-
myndinni Virgin Suicides á næst-
unni. Þá er ótalið imgstimið Leon-
ardo DiCaprio sem sást ansi oft
með Giselu okkar röltandi á
ströndinni í Malibu, auk þess að
þræða næturklúbbana með henni.
Fjölmiðlafulltrúar beggja neita því
þó harðlega að eitthvað annað en
vinskapur hafi verið á milli þeirra.
Naomi er sjáifselsk
Fyrstu kynni Gisele af neikvæðri
hlið fyrirsætubransans komu í
september í fyrra þegar umboðs-
maður hennar færði sig frá Elite
yfir til IMG og tók Giselu með sér.
Aðalmaðurinn hjá Elite, John
Casablancas, var ekki par hrifinn
og réðst með fúkyrðum á Gisele,
kailað.i hana sjálfselskt skrímsli og
klykkti út með því að hefja 9,5
milljóna punda lögsókn á hendur
IMG og umboðsmanninum. Gisele
gefur þó lítið fyrir svona yfirlýsing-
ar: „Ég er ekki sjáifselsk eins og
eldri stelpumar, eins og Naomi.
Hún er mjög sjáifselsk. Þær em
ekki vinkonur mínar.“
í raun virðist hún vera algjör
andstæða glamúrsins sem fylgir
þeim módelum sem hún hefur tek-
ið við af. „Ég nota ekki eiturlyf og
drekk ekki áfengi vegna þess að ég
vil lifa lífinu og njóta þess. Ég vil
ekki búa I Los Angeles og vera
alltaf í partíum, ég vil ekki deyja
ung. Þess í stað vil ég lifa rólegu,
góðu lífi.“ Þeir sem hafa eitthvert
vit á tísku eru sammála um að
Gisele hafi í sér eitthvað gott frá
öllum tiskustraumum síðustu ára-
tuga. Tími hennar er án alls efa
runninn upp og má hiklaust kynna
hana hér með sem stúlku næsta
áratugar.
6
f ÓktlS 8. september 2000