Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2000, Page 7
Árni Pétur Reynis- son er einn af þessum ungu leik- urum sem hafa ver- ið að feta sín fyrstu spor á leikhússvið- inu síðustu misseri. Um þessar mundir leikur hann Egil Skallagrímsson í ► Dóttur skáldsins eftir Svein Einars- son með The lcelandic Take- away Theatre. og ge pr íinnalinn i fnthnltn- Árni Pétur er uppalinn í fótbolta bænum Akranesi. Hann lauk fjöl- braut þar en síöan lá leiðin til Reykjavíkur í Háskólann, þar sem hann lagði stund á almenna bók- menntafræði. Með fram náminu vann hann einnig með Leiksmiðju Reykjavikur og Rúnari Guðbrands- syni leikstjóra í sýningum eins og: „:0g þeir settu handjárn á blómin" eftir Femando Arabal. „Eftir það fór ég beint í masters- nám í leiklist í Goldsmiths Uni- versity í London og kláraði meira að segja BA-ritgerðina úti - átti einmitt í skemmtilegu email-sam- bandi við leiðbeinanda minn að rit- gerðinni sem sjálfur var staddur í Portúgal." Árni Pétur er lika stoltur faðir. Hann á lítinn strák sem heitir Reynir ími (sem beygist eins og sími). Hvernig var námiö úti í London? „Það var alveg eðal og hentaði mér rosalega vel. Námið sem ég fór í var intensivt eins árs nám. Sam- setning námsins var „50-50“ bóklegt og verklegt. Þetta hentaði mér mjög vel. Ég hef nefnilega mjög gam- an bæði af öllu grúski en líka af sviðsvinnunni. Verklega námið samanstóð af „workshops", styttri námskeiðum og sýningum. Fyrst var til dæmis farið í samtímaleikrit og í framhaldi af því sett upp stykki eftir Harold Pinter. Ég var heppinn og fékk mjög mikið að gera i öllum sýningum." Út fyrir hið hefðbundna Með Árna í náminu var fólk hvaðanæva úr heiminum. „Þama var til dæmis fullorðin leikkona frá Bras- ilíu sem komin var til að bæta við sig. Þegar maður kynnist leiklistarfólki frá ólíkum löndum gerir maður sér grein fyrir hvað það er rosalega margt að gerast i leiklistarheiminum í dag. Það er líka svo margt sem þrifst. Friðrik Karlsson tónlistarmaður sagði einmitt í einhverju viðtali um músík- ina sem hann er að búa til að ef hann hefði verið að dunda í þessu héma á íslandi þá hefði hann kannski náð að gera 10 stykki! í Bretlandi er þetta allt annað. Þama er svo fjöl- breyttur markaður og svo margt fólk. í svona stórum samfélögum gengur miklu betur að fara út fyrir hið hefð- bundna því þar er fleira fólk sem hef- ur áhuga á slíku. Tilraunimar skila sér svo aftur inn í þetta hefðbundna. Þetta er hins vegar allt saman miklu erfiðara hér heima því við erum svo fá og sérhæfðar greinar þrífast því illa.“ Lokaverkefni hópsins var söngleik- ur sem saminn var sérstaklega fyrir hópinn. Þar fór Árni með aðalhlut- verkið. „Svo þegar það var að klárast fór ég í prufu úti i London fyrir þetta stykki sem ég er í núna, Dóttir skálds- ins. Þetta var nefnilega sýnt fyrst úti í London vorið ‘97 á vegum The Iceland- ic Take-away Theatre." Þegar Ámi var að klára námið fór hann á Edinborgarhátíðina, til Strat- ford, þar sem er Royal Shakespeare Company, og til Dublin á leiklistar- festival. Þar segir hann margt forvitni- legt hcifa verið að sjá. Ríkt leikhús Sástu einhver stykki úti sem þú síðan sást hér heima? „Ég sá til dæmis Fegurðar- drottninguna af Línakri úti í Dublin með írskum leikurum með hreim. Ég sá svo Fegurðardrottninguna hér heima og það var fm uppsetn- ing. Sýningin úti hafði þó meiri klær út af tungumálinu og orginal- inu. Ég sá líka Rent úti og svo aft- ur hér heima. Mér fannst það svona og svona. í raun fannst mér efnið ekki koma okkur við frekar en úti í London. Þetta var mjög vinsælt úti í Ameríku og á kannski meira erindi þar en hér. Svo sá ég líka eina mjög hefð- bundna sýningu, Guys and Dolls. Þarna áttaði ég mig á því hvað leik- húsfrömuðurinn frægi, Jerzy Grotowski, á við þegar hann talar um „Rich Theater". Þetta var alveg rosa- legt „show“. í hléi lá nærri að maður skammaðist sín fyrir að hafa verið þama inni í öllum glamúmum. Eftir hlé sá ég svo hvað þetta var allt sam- an vel gert, svo fagmannlegt. Sem dæmi man ég eftir einni senu þar sem maður hoppar og djöflast og verður alveg löðursveittur - svaklegt söngnúmer. Svo klöppuðu auðvitað all- ir alveg eins og vitlausir. Eftir klappið var bara byrjað aftur á endinum og hann leikinn í annað sinn til enda. Svo var klappað aftur rosalega og enn var endirinn endurtekinn! Það var alveg frábært. Allur hópurinn var viðbúinn uppklappi og tilbúinn að endurtaka at- riðið um leið. Þetta var allt saman mjög hefðbundið og flott. En fólk þarf líka að þora að gera afbrigðilega hluti ef það langar til þess. Annars verður leikhús- flóran einsleit og lúin.“ Ferðalag Amlóða Á meðan á náminu stóð vann Ámi líka með Rúnari Guðbrandssyni leik- stjóra í Ferðalagi Amlóða (Amlóðis Jo- umey). Amlóði er betur þekktur sem Hamlet Shakespeares. „í leikritinu lék ég eilífðarfígúruna Hamlet. ímyndaðu þér að á öllum Hamletsýningum í heiminum hefði verið settur hattur á þann sem lék Hamlet í það skiptið. 1 Fýsískt leikhús Varstu þá ordinn löggildur leikari hér heima eftir mastersnámið? „Nei, ég þurfti að vinna aðeins áður en ég fékk það í gegn. Námið var met- ið og svo vann ég aftur með Sveini Einarssyni í Pétri Gauti norður á Ak- ureyri. Þar fékk ég þá reynslu sem vantaði upp á til að fá inni í leikarafé- laginu." Veturinn eftir tók Ámi þátt í upp- færslu á Klukkustrengjum Jökuls Jak- obssonar, einnig á Akureyri. „Ég var á sifelldu ferðalagi, konan fyrir sunnan, ólétt fyrri veturinn og einstæð þann næsta. Svo skellti ég mér í máiningar- vinnu til að taka aðeins þátt í brauð- stritinu. Ég hef reyndar líka aðeins verið í að þýða teiknimyndir fyrir Hljóðsetningu." Hvernig frnnst Árna ástandið í ís- lenskum leikhúsum? „Þeir komast að sem geta og vilja. Ég tel mig geta það alveg en það er ailtaf spuming með viljann. Hvað vill maður leggja á sig og sína til að kom- ast að og áfram, það er alltaf spuming- in. Ég er hins vegar alveg á því að þeir sem geta og vilja komast að. En um leið verður það svo að þeir sem geta verða kannski ansi víða. Eins og þetta er orðið núna þá geta þeir sem búnir em að sanna sig farið á frjálsan samn- ing og það er mjög fínt. Svo er þaö ann- að mál hvort áhorfendur verða leiðir á að sjá sömu andlitin alls staðar.“ „Fýsískt“ leikhús Ertu með einhver önnur verkefni í gangi núna? „Já. Ég er til dæmis að vinna uppi í Útvarpi. Svo er ég lika að vinna með hattinn hefði síðan verið safnað saman öllum Hamletum, allra tima, á öllum sýningum í heiminum. Ég leik þann Hamlet sem hefur þurft að ganga í gegnum allar þessar sýningar og öll þessi tímabil. Og hann er orðinn hund- leiður og nennir þessu ekki. Hamlet dröslast þama með Amlóða og reynir að sýna honum hvemig hann eigi að haga sér í hinum ýmsu útgáftun örlaga sinna. En Amlóði fríkar út og drepur sig með því að stinga sverði í rassgat- ið á sér,“ segir Árni og hlær dátt. Dansleikhúsi með ekka. Það finnst mér merkilegt. Stelpurnar sem eru með þetta hafa verið mjög duglegar. Þær vom til dæmis á Expo í Hannover mn daginn. Það er hugsun í þessu hjá þeim og þær eru óragar við að gera hlutina." Hvaö gerir þú í sýningunni? „Ég dansa með stelpunum. Þetta er það sem kallast „fýsískt" leikhús. Þetta er líklega það merkilegasta sem er að gerast í jaðarleikhúsunum i dag. Verk- ið sem við erum að æfa heitir Tilvist. Það er um samskipti, samskipti fólks við sjálft sig, umhverfi sitt og hvað annað. Samskipti í öllum myndum.“ Þetta er sem sagt ekki bara dans hjá þeim: „Nei, nei. Þama er talað og leikið eins og í flestum öðmm leikhúsum. Verkið er auk þess unnið í samvinnu. Það er ákveðið þema sem unnið er út frá. Það er komið með hugmyndir og brainstormað og rætt fram og til baka. Svo er dottið niður á eitthvað og unnið úr því.“ Egill syngur Hvað með verkið sem þú ert í núna, Dóttir skáldsins, geturðu sagt aöeins frá því? „Þetta verk var fyrst sýnt úti í London ‘97 en er nú sýnt héma heima í tengslum við leiklistarhátíð sjálf- stæðu leikhúsanna. Leikritið er eftir Svein Einarsson og unnið upp úr Eg- ilssögu og Laxdælu. Þetta er tilraun til að láta Þorgerði Egilsdóttm-, dóttur Egils Skallagrímssonar, segja sína sögu. Nálgunin sem slik er brota- kennd. Það er jú lítið um hana sagt í þessum sögum. Mest er það í tengslum við föður hennar, Egil, eiginmann hennar, Ólaf pá, og son hennar, Kjart- an Ólafsson.“ Samin hefur verið músík við bæði frumsamin kvæði Sveins og svo kvæði Egils, Sonatorrek. „Það er magnað kvæði. Ég er svo heppinn að fá að syngja Sonatorrek því ég leik Egil. Hann er stórbrotinn karakter. Egill er skáld og fyllibytta en líka svona Hannibal Lecter-týpa, ofurgreindur, með mikla drápsþörf. Hann spilar stöðugt á fólk í kringum sig með mælsku sinni.“ Svo mörg voru þau orð. 8. september 2000 f ÓktlS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.