Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Viðskipti________________ Umsjón: Vidskiptablaðiö Chase Manhattan kaupir J.P. Morgan Samkvæmt upplýsingum Wall Street Journal Internet hefur Chase Manhattan Corp. samþykkt að kaupa J.P. Morgan fyrir um 36 milljarða dollara. Miðað við það er hver hlutur keyptur á rúma 195 dollara en lokagengi gærdagsins var tæpir 178 dollarar. Hér eru á ferðinni tveir af elstu bönkum í Bandaríkjunum. Talað var um að í skiptum fyrir hvert hlutabréf í J.P. Morgan fengist 3,7 bréf í Chase. Sameinaður banki verður með 675 milljarða dollara heildareignir og þar með þriðju stærstu fjármálaþjónustufyrir- tæki í heiminum á eftir Citigroup og Bank of America. J.P Morgan þykir falla vel að starfsemi Chase þar sem fjárfest- ingarbankastarfsemi Chase, Ham- brecth & Quist, sérhæfir sig í tæknifyrirtækjum, þar sem J.P. Morgan er veikur fyrir. ELFA P. LEMMENS HITABLÁSARAR Fyrir verslanir - iðnað - lagera Fyrir heitt vatn. Afköst 10 - 150 kw Öflugustu blásararnir á markaðnum, búnir miðflóttaaflviftum og ryksíum. Betri hitadreifing - minni uppsetningarkostnaður, lægri rekstrarkostnaður. Hagstætt verð UP Einar Farestvett & Co.hf. BotRanimi28 1T 562 2901 Oí 562 2900 Landsbréf opnuð á Vesturlandi - eiga að sinna þjónustu fyrir einstaklinga á sviði verðbréfaviðskipta Landsbréf hf. opna í dag útibú á Vesturlandi sem er í Stjómsýslu- húsinu á Akranesi. Fyrir eru Landsbréf með starfsemi á Norð- urlandi, Suðumesjum, Suðurlandi og Austurlandi auk Reykjavíkur. Landsbréf á Vesturlandi munu sinna þjónustu fyrir einstaklinga á sviði verðbréfaviðskipta. Meðal helstu þjónustuþátta er almenn ráðgjöf á sviði verðbréfaviðskipta, lífeyrissparnaður og íjárvarsla. Áhersla verður lögð á rafræn verð- bréfaviðskipti í gegnum Kauphöll Landsbréfa á Vefnum. Fram kemur í frétt frá Lands- bréfum og Landsbankanum að úti- bú Landsbankans á Akranesi var stofnað árið 1964 með yfirtöku á Sparisjóði Akraness sem hafði þá starfað um árabil í bænum. Útibú- ið á Akranesi er eitt af svæðisúti- búum Landsbankans og nær starfssviðið frá Akranesi í suðri til Króksfjarðarness í norðri. AIls em á svæðinu starfandi 6 afgreiðslu- staðir bankans sem þjónusta um 14.500 íbúa Vesturlands. Opnun Landsbréfa Vesturlands er liður í stóraukinni áherslu Landsbankasamstæðunnar í þjón- ustu á sviði verðbréfaviðskipta. Lögð verður áhersla á að öll útibú- in á svæðinu geti veitt sem besta verðbréfaþjónustu í samstarfl við Landsbréf á Vesturlandi. anqSSSS Utibú á Vesturlandi Landsbréfhf. opna í dag útibú á Vesturlandi sem er í Stjórnsýsluhúsinu á Akra- nesi. Myndin er tekin á skrifstofu Landsbréfa í Reykjavík. Munur innlendra og erlendra vaxta minnkar - minnkar aöhaldsstig peningamála Vaxtamunur við útlönd hefur minnkað töluvert undanfarið. í Morgunkomi FBA í gær segir að ástæðuna megi bæði rekja til vaxta- hækkana erlendis og þess að vextir á millibankamarkaði hér á landi (REIBOR) hafa lækkað nokkuð und- anfama daga. í Morgunkorni FBA segir að millibankavextir hérlendis hafi lækkað um 30-60 punkta i upphafi þessa mánaðar. Má líta svo á að sú lækkun hafi orðið þar sem milli- bankavextirnir voru komnir langt yflr vexti í endurhverfum viðskipt- um Seðlabankans. Með þessum breytingum hefur aðhaldsstig pen- ingamála minnkað nokkuð. Starfsfólki fækkað hjá Járnblendinu íslenska jámblendifélagið hf. hef- ur ákveðiö að fækka starfsmönnum um sextán en starfsmannafjöldi er 172. Fækkun starfsmanna er einn liður í margþættum aðgerðum sem nú er unnið að til að lækka rekstr- arkostnaö félagsins við afar erfiðar markaðsaðstæður og í kjölfar taps á fyrri hluta ársins. í frétt frá íslenska járnblendifé- laginu segir að leitast verði við að fækka starfsfólki á þann hátt að framleiðslugeta félagsins haldist óskert. Ofnar félagsins era reknir á fullum afköstum enda er eftirspurn eftir kísiljárni góö. Þróun á heims- markaðsverði er enn óljós og ekki er búist við hækkunum á næstunni. til Dublin ¥kUr m0l %tln/ Allar konur sem kaupa verðlaunabílinn Matiz fá flug og gistingu fyrir sig og bestu vinkonu sína til Dublin í haust með Samvinnuferðum Landsýn. Samvinnuferöir Landsýn yvs^stiz -hannaöur utan um pig Vagnhöfða 23 • Sími 587 O 587 Akureyri: Bílasalan Ós - Hjalteyrargötu 10 - Sími 462 1430 Opið: Vagnhöfða 09 - 18 virka daga og 10-16 laugardaga • Kringlunni fimmtudaga til 21, laugardaga 10-18 og sunnudaga 13-17 I>V Þetta helst MllMl UCII nADWIHCUIDTI 1 HEILDARVIÐSKIPTI 1653 m.kr. Hlutabréf 296 m.kr. Húsnæöisbréf 367 m.kr. MEST VIÐSKIPTI | ©Íslandsbanki-FBA 110 m.kr. :©Eimskip 52 m.kr. © Nýherji 39 m.kr. MESTA HÆKKUN © Grandi 4,0% © Flugleiöir 2,0% ©Opin Kerfi 1,9% MESTA LÆKKUN © Samheiji 5,6% © Nýherji 5,0% © Landsbankinn 4,2% ÚRVALSVÍSITALAN 1456 stig - Breyting © 1,28% Minnsta atvinnuleysi í Bretlandi í 20 ár Atvinnulausum fækkaði um 18.000, árstíðarleiðrétt, í ágúst og náði fjöldi atvinnulausra 20 ára lág- marki, eða 1,051 milljón. Atvinnu- lausum fækkaði um 23.000 í júlí. At- vinnuleysi i ágúst minnkaði meira en vænst hafði verið en búist hafði verið við að atvinnulausum myndi fækka um 15.000. Atvinnuleysi í ágúst var 3,6% og hefur iækkað um 0,1% frá fyrri mánuði og 0,6% frá því á sama tímabili í fyrra. MESTU VKJSKIPTI 0 Íslandsbanki-FBA 857.297 © Marel 516.774 © Össur 480.049 ©Isl. hugb.sjóðurinn 260.516 Q Eimskip 257.875 MESTA HÆKKUN A © Delta hf. 33 % | © Vaxtarsjóðurinn 16 % © Skeljungur 14 % © Samvinnuf. Landsýn 7 % : o k'il4-W:¥K lUIUwrfBAna an/faga © Þormóður Rammi -24 % © SÍF -18 % © SR-Mjöl -18 % © SH -15 % © ísl. hugb.sjóðurinn -15 % Hagvöxtur í Ástralíu veldur vonbrigðum Landsframleiðslan óx um 0,7% á öðrum ársfjóröungi sem gerir 4,7% vöxt yfir allt árið. Þar sem vænting- ar höfðu verið um 1,3% vöxt fór ástralski dollarinn gagnvart þeim bandaríska í lægsta gildi sem hann hefur náð, eða 0,5525 bandarískum dollar. Sérfræðingar telja líklegt að ástralski seðlabankinn muni hækka vexti í október og hífa gengið upp aftur. HELSTU HUJT AVISITOLUR DOWJONES 11182,18 16213,28 1484,91 3893,89 6378,40 7018,81 6601,09 O 0,45% O 0,14% O 0,20% O 1,15% O 1,40% O 0,18% O 0,49% JM Jl il. M 14.09.2000 kl. 9.15 KAUP SALA Dollar 83,000 83,420 jPund 117,560 118,160 1 Kan. dollar 55,760 56,110 Dónsk kr. 9,6500 9,7030 -Norsk kr 8,9840 9,0340 " Sænsk kr. 8,5650 8,6130 -jfi. mark 12,1161 12,1889 "jFra. franki 10,9823 11,0483 iBelg. franki 1,7858 1,7965 Sviss. franki 47,2900 47,5500 jHolL gyllini 32,6900 32,8864 ' Þýskt mark 36,8331 37,0544 jtt. líra 0,037210 0,037430 Aust. sch. 5,2353 5,2668 7 Port. escudo 0,3593 0,3615 Spá. poseti 0,4330 0,4356 Jap. yen 0,775300 0,780000 írskt pund 91,471 92,020 SDR 107,070000 107,710000 |ECU 72,0393 72,4722

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.