Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2000, Blaðsíða 5
21 ______ FIMMTUDAGUR 14. SEPTEMBER 2000 Ragnhildur Óskarsdóttir - Róska Haldin veröur sýning á verkum hennar í Nýlistasafninu í október. Róska var mjög pólitísk í sinni list og bera máiverk hennar og kvikmyndir því glöggt vitni. Brothætt list Rósku Fjórtánda október verður opnuð sýn- ing í Nýlistasafoinu á verkum listakon- unnar Rósku sem lést fyrir aldur fram árið 1996. Ráðgert er að einnig komi út bók hjá Máli og menningu um ævi og störf Rósku - bók sem ef til vill mætti kalla veglega sýningarskrá. Hjálmar Sveinsson er sýningarstjóri og ritstjóri bókarinnar en auk hans hafa setið í undir- búningsnefhd Ragnheiður Ragnarsdóttir, Borghildur Óskarsdóttir og Bima Þórðar- dóttir. Hjálmar segir í samtali við Menningar- blað að sýningin hafi verið lengi í bígerð. „Rósku hafði verið boðið að halda yfir- litssýningu í Nýlistasafhinu árið 1996 og var að öllum líkindum að undirbúa hana þegar hún lést snögglega. Tveimur vikum áður hafði hún flutt súrrealískan gjöming í safhinu sem mörgum er enn í fersku minni.“ Hjálmar, fjölskylda Rósku og stjóm Nýlistasafnsins fóru að ræða sýninguna eftir dauða listakonunnar og sótt var um styrk til menningarborgarinnar til þess að hún mætti verða að veruleika. Styrkurinn fékkst og þá hófst vinnan við sýninguna. Verk notuð sem gluggahlerar „Vinnan hefur verið fólgin í því að leita uppi verk Rósku,“ segir Hjálmar. „Þau liggja víðs vegar um heiminn og við höfum m.a. þurft að senda mann tvisvar til Rómar þeirra erinda að safha þeim saman. Mörg verkanna lágu líka undir skemmdum og höföu til dæmis verið not- uð sem gluggahlerar á einum stað hér á landi. Nú hefur þeim verið bjargað." Hjálmar segir að nú hafi tekist að safna heilmörgum verkum: málverkum, ljós- myndum og kvikmyndum og sýningin því griðarlega fjölbreytt. Einnig verði á sýningunni hin frægu pólitísku vegg- spjöld sem Róska gerði m.a. fýrir Æsku- lýðsfylkinguna, það verði endurgerðir pólitískir skúlptúrar og komið upp póli- tísku kaffihúsi í ítölskum stíl. „Róska tilheyrði þeirri kynslóð lista- manna sem vildi afmá mörkin á milli lífs og listar og við reynum að vera þeirri hugsun trú,“ segir Hjálmar. „Annars hef- ur Róska verið ótrúlega afkastamikill og magnaður listamaður. Hún tók þátt í mörgum af stórviðburðum sögunnar og sem dæmi um það má nefna stúdentaó- eirðimar á Spáni og tengsl hennar við Rauðu herdeildimar. Þetta speglaðist vitaskuld í hennar list.“ Hjálmar segir enn fremur að hann haldi því fram að Róska hafi árið 1969 gert einn fyrsta femíníska gjöminginn, þó að sjálf hafi hún ekki lit- ið á sig sem femínista. Listakonan um- breytti þá þvottavé! í eldflaugapall á Skólavörðuholtinu. Pólitík og póetík Róska var einnig þekkt sem kvik- myndagerðarmaður og muna eflaust margir eftir kvikmyndinni Sóley sem hún gerði ásamt félaga sínum Manrico. í tengslum við sýninguna í Nýló verða haldin kvikmyndakvöid og meðal ann- ars frumsýnd kvikmynd sem Róska lék sjálf aðalhlutverkið í; Ómöguleiki þess að sviðsetja Elektru, sem gerð var 1969, og enn fremur átta heimildarþætt- ir um Island sem Róska og Manrico gerðu fyrir spænska sjónvarpið en feng- ust aldrei sýndir hér á landi. Einnig verður haldið málþing um pólitíska list. Þegar Hjálmar er beðinn að lýsa Rósku sem listamanni koma orðin póli- tík og póetik strax upp í huga hans. „Þau hugtök eru sterk í hennar verkum þar sem pólitíkin í list Rósku hafði alltaf skáldlega vídd. Hún var var brot- hætt sál og málverkin hennar eru ex- pressjónísk og bera vott um við- kvæmni. Það er líka eins og þær fígúrur sem hún teiknaði séu alltaf að falla. Lífshlaup Rósku var heldur ekki neinn dans á rósum og við reynum að taka á því á heiðarlegan máta í sýningunni." -þhs Síðasti bærinn á myndband íslensk böm geta farið að hlakka til því Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóður og Háðvör ætlar að gefa Síðasta bæinn í dalnum út á myndbandi fyrir jólin. Sýn- ingin var afar vinsæl á sínum tíma enda einstaklega hugmyndarik og skemmtileg - og frábær brella að gera leiksýningu upp úr bíómynd! Gleymum við nokkurn tima þegar kistan flaug upp af sviðinu? Hermóður og Háðvör æfa nú af kappi Vitleysingana, nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem verður á hátiðinni Á mörkunum i október. Samhliða því eru þau skötuhjú svo að vinna að leikgerð að Grettissögu og munu æfíngar hefjast eftir áramót. Kannski fara þau jafhvel á nám- skeið hjá Jóni Böðvarssyni um Grettis- sögu hjá Endurmcnntunarstofnun - það hefst mánudaginn 2. október! Að sjá dögg á vatni Þorvaldur Þor- steinsson mynd- listarmaður og rithöfundur verður með námskeið fyrir almenning við Opna Listaháskólann í Skipholti 1 sem hann kallar „Að sjá dögg á vatni“ (eða listin að sýna það augljósa. Það hefst 24. október og fjallar um nokkra helstu strauma i samtímalist. Einkum ætlar Þorvaldur að dvelja við afstöðu og efhistök listamanna sem ganga út ffá því að hversdagsleikinn og klisjan sé mesta undrið. Einfaldar tilraunir verða gerðar með myndbönd, hljóð og gjöminga. STULKAN IVITANUM eftir Porkel Sigurbjörnsson við texta eftir Böðvar Guðmundsson Opera fynr börn 9 ara og eldri Hljómsveitarstjóri: Þorkell Sigurbjörnsson Leikstjóri: Hlín Agnarsdóttir . Samstarfsverkefni Islensku óperunnar, Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur og Reykjavíkur, menningarborgar 2000 Frumsýmng 15. október 2000 REYKiAVfK ■*■<>*>< *■“ >•“ OPERAN PPFÆRSLUR h € rr>e La Bohéme eftir Giacomo Puccini við texta eftir Giuseppe Giacosa og Luigi lllica Frumsýning um miðjan febrúar 2001 ~ÍSLENSKA ÓPERAN Miðapantanir 511 4200

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.