Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 16
... sérfræðingur
í Gunter Grass
Þó að ég segi sjálfur frá eru það
fáir íslendingar sem þekkja betur
til feriis þessa merka höfundar en
einmitt ég. Giinter Grass eða
Gussi, eins og vinir hans kalla
hann, er pólskur að uppruna eins
og yfirvaraskeggið gefur til
kynna. Hann ólst upp hjá lítilli
fjölskyldu (þau voru öll dvergar)
og fór snemma að segja sögur og
yrkja ljóð. Það var samt ekki
fyrr en hann samdi Blikktromm-
una sem fólk fór að veita honum
eftirtekt að ráði. Og það er ekki
ofsagt að með Blikktrommunni,
sem er eina bókin sem liggur
eftir þennan frábæra höfund,
hafi hann ...
... breytt heiminum.
Áður en Blikktromman kom út
voru allar trommur annaðhvort
gerðar úr timbri (samanber afr-
íkutrumbuna) eða stáli sem er
auðvitað níðþungt efni. Blikk-
tromman boðaði byltingu fyrir
trommuleikara en ekki síður fyr-
ir rótara sem þurfa yfirleitt að
bera trommusettin inn og stilla
þeim upp. Það væri ekki til neitt
sem heitir Drum and Base ef
Gúnters hefði ekki notið við. Og
það má líka segja að með Blikk-
trommunni hafi hann skapað
mikinn hagvöxt í Póllandi og
skapað þarlendum blikksmiðum
ótal...
... verkefni.
Gúnter Grass er nú í heimsókn á
íslandi. Það sem kemur þeim sem
ekki þekkja hann mest á óvart
þegar þeir sjá hann í eigin per-
sónu er hvað hann er gríðarlega
hávaxinn, yfir tveir metrar sem
gerir hann að einum stærsta
núlifandi rithöfundi. Nánast ná-
kvæmlega jafnstór og Pétur Guð-
mundsson körfuboltamaður.
Hann var þvi langstærstur i sinni
fjölskyldu og líka klárastur. En
hann er ekki montinn og kýs að
sitja á gólfinu í öllum viðtölmn
sem eru tekin ...
... við hann.
Gúnter skrifaði Blikktrommuna
þegar Vietnam-stríðið var í al-
gleymingi. Sjálfur barðist hann
ekki í stríðinu og kom sér undan
herþjónustu, ekki af þvi að hann
hefði ekki viljað „drepa Ví-
etnama", eins og hann orðaði
það, heldur af því að hann hefði
aldrei getað falið sig (af því að
hann er svo hávaxinn). Hann not-
aði tímann til að skrifa, spila á
trommu og spila körfubolta en
það var einmitt körfuboltinn
sem hjálpaði honum að rífa sig
upp úr ...
... fátæktinni.
Það er mikill fengur að því að fá
merka rithöfund til lands-
einungis vegna þess hvað
er gaman að sjá hvað hann er
stór heldur líka vegna þess að það
er svo gaman að lieyra hann tala
útlensku en hann hefur ekki náð
neinum tökum á íslensku þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. Hann
hefur mikið álit á íslandi og is-
lenskri menningu og lét hafa það
eftir sér á Bókmenntahátíðinni að
ísland væri eitt merkilegasta
landið sem hann hefur nokkru
sinni heimsótt. Hér væru nánast
allar konur bæði fallegar og
lauslátar, öfugt viö pólskar konur sem eru bara ...
... lauslátar.
L
Hvernig væri að fara loksins á dansnámskeiðið, vera duglegri í vinnunni eða læra að búa
til jafning eins og þú ert svo lengi búin(n) að ætla að gera? Haustiði er einmitt tíminn til að
söðla um og gera eitthvað nýtt; leggjast undir feld og hugsa um st<öðu sína og lífsstefnu í
stóískri ró. Fókus hafði samband við nokkra valinkunna andans me nn og þekkt andlit úr
íslensku menningarlífi og tók af þeim loforð um að borða skyr og vera góð við dýrin og
mömmu. Hér koma haustheitastrengingarnar miklu...
I—l\/or+ QK
nVCI L v3?l
hausth e i
„Núna er gífurlegt námsátak í
gangi. Ég er í guðfræði og markmið-
ið er að lesa eins mikið og ég get svo
ég fái meiri innsýn í guðfræðina og
betri skilning á lifinu i heild. Svo er
ég búin að lofa mér því að fara ekki
út í meiri félagsstarfsemi en ég er
komin í þegar því ég á það til að of-
hlaða stundaskrána. Ég ætla ekki að
leika í fleiri leikritum í bili. Ég er
núna að leika í Með fullri reisn og
reyni að standast þá freistingu að
fara ekki í Stúdentaleikhúsið sem
er mjög skemmtileg starfsemi innan
háskólans. í staðinn ætla ég að
draga kærastann minn með á sem
flestar leiksýningar og tónleika í
vetur.
Þegar ég set mér markmið hef ég
þau háleit svo ég nái að standa við
i i i
eitthvað af þeim. Áramótaheitið er
alltaf það sama, að skrifa dagbók.
Það er heit sem rennur aldrei úr
gildi því ég er alltaf jafnpirruð yfir
að skrifa ekki nógu mikið. Ég heiti
því líka að vera í góðum tengslum
við allt það góða fólk sem er í kring-
um mig og ætla að reyna að vera í
sem bestum tengslum við fólkið inn-
an háskólans sem vonandi skilar sér
í góðum þætti. Maður þarf alltaf að
vera gagnrýninn og endurskoða
sjálfan sig, það er markmið hvers
einasta dags og ekkert sérstakt
haustátak. Svo reyni ég bara að hafa
gaman af því að lifa og þroskast og
fá sem mest út úr núinu.“
Þóra Karitas Árnadóttir,
annar umsjónarmanna
Pensúms á Skjá einum
„Ég ætla ekki að láta skammdegið
fara í taugamar á mér og svo ætla ég
að vera jafngóð söngkona og Ragga
Gísla. Ég ætla ekki að vinna of mikið
og ekki að segja já við öllu. Svo ætla ég
að kaupa fot í staðinn fyrir að borga
ég geri það svolítið á haustin þegar ég
er að koma úr frfi og er fersk. Þá yflr-
fer maður stöðuna og reynir að
skemma ekki í sér fríið alveg strax.
Heitin mín eru á meðan þau eru. Ég vil
ekki hafa um það of stór orð.“
„Mitt haustheit er að vera skipulögð, borða meira skyr og fara í
haustlistaferð. Þá ætla ég líka að klæða mig eftir veðri. Svo segi ég ekk>
meir því ég ætla ekki að lofa upp í ermina á mér strax að haustLArfn-
ars strengi ég nú bara heit þegar mér dettur i hug og reyni a^-úfgreiða
allt strax. Það er mjög gott að fara í leikfimi á morgnan æhtírða oft, lít-
ið og í hófi. Allt í hófi er setning sem á við margt í Ufrfíu. Svo ætla ég
að halda mínu striki. Ég vil ekki valda sjálfri mjjpÁxinbrigðum og segi
því bara það sem ég get staðið við. Ég held revndar að við ættum ekki að
taka upp haustheit heldur bara að njótahatístsins.“
-Jmda Björg Eyjólfsdóttir leikkona.
„Ég ætla að láta mér vera heitt
i vetur. Svo ætla ég að klára
námið sem ég er í, arkitektúr,
en ég er í íslenska arkitektaskól-
anum. Mér finnst alltaf að maður
eigi ekki að heita of miklu. Ég er
líka sæmilega góður maður
þannig að ég held það yrði ofauk-
ið ef ég ætlaði að fara að bæta
mig. Ég strengi ekki oft heit
nema kannski ómeðvitað. Ég
strengi aldrei áramótaheit og
heiti frekar einhverju á óhefð-
bundnum tímum. En þetta er
mjög snjall tími til þess.“
Magnús Leifur Sveinsson,
söngvari Úlpu.
momr
„Ég ætla ekki að lofa neinu, frekar baf
að gera eitthvað án þess að blaðra. Yfirlei'
strengi ég engin heit en það fer eftir því
hvemig skapi ég er. Ég ætla ekki að látfi
mér verða kalt og svo ætla ég að veray
góður við mömmu mína og dýrin.“ I
Vilhjálmur Goði Friöriksson, tónlist- II
ar- og dagskrárgeröarmaöur.
heimasíöa vikunnar
y““ *>•*• ,
Ö L A C K 0 U 'j'
Á Blackout.com má finna
ógrynni símahrekkja til niður-
hleðslu. Hrekkimir eru úrval úr
útvarpsþættinum BIackout¥s
Box sem hefur verið á bandarísk-
um öldum ljósvakans í nokkur ár
og er að verða að vinsælum sjón-
varpsþætti. Símaöt þykja hin besta
skemmtun eins og sést á best á því
að 9 af 10 útvarpsþáttum, sem
heita eiga sniðugir, ná hámarki
sinu i þessum ómissandi dagskrár-
lið. í Blackout¥s Box em fagmenn
að verki sem leika hina ýmsu
karaktera af list. Hægt er að úr-
skurða fólk húmorslaust ef ekki
slaknar vel á hringvöðvanum og
hláturtaugamar taka ekki kipp
við það að heyra þykjustuind-
verja hella sér yfir fjölskyldu-
mann fyrir þær sakir að dóttir
mannsins hafi lumbrað á hundi,
eða sjötuga gleðikonu með i
áfengisvandamál bjóða forstjóra I
blíðu sína símleiðis.
wm
•*** t* **, w, Um..... , • , **.#■*
Þ».« w .4 ** '*’•* **>*fa*,
'„.rrr
wmm
- .
hlutverkaleikií
Munngælur á báða bóga
Ungfruin göða og rúmið
firtí-f tii r>norr,) í Fiotol I jó'.mymlir fró loooriflimi M-rO fullri rohn Moirrmr '.jomi.i
ÞJÚÐSKÁLDAISIIMA
f Ó k U S 15. september 2000
15. september 2000
17