Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 6
F F T T P V T M M I Vikan 15. seotember til 21. seotember lí f ið Ífókus Föstudagur 15/09 •K1úbbar ■ FÓZZ Á THOMSEN Dj. Rampage & Árni E. fagna komu Fözz til jarðarinnar á Thomsen í kvöld. Fözz verður I heimsókn einu sinni í mán- uði á Thomsen og færir með sér það nýjasta og besta í hip-tripgeim-hoppi og annarri geöveiki. I kjaliaranum gerír Bjössi tilraunir á fólki með miklum bassa. ■ ALU Á SPOTTARANUM DJ Alli verður með “house of trance" og house tónlist á Spotlight í kvöld. Hvort sem þú ert samkynhneigður eða bara kynhneigður þá er alltaf gaman á Spottar- anum. •Krár ■ KÁRI Á PRIKINU Það er meistarinn sjálfur, Kári, sem heldur uppi stanslausu stuöi á Prik- inu í kvöld og ættu gestir og gangandi ekki að láta sig dreyma um annað en að piltur skaffi það sem fólk vill, nefnilega góða tónlist. Þó að Kári sé búinn að klippa dreddana kann hann enn að kreista góða músík af twodeckinu og það gerir hann svo sannarlega I kvöld. ■ KÓKAÍN Á 22 Djammdúettinn Kókaín treður upp á tuttuguogtveimur i kvöld og ætlar aö búa til einhvern skemmtilegan bræðing fyrir lessur og homma og streitara, feitt fólk og mjótt, fallegt og Ijótt. Og ekki sakar nú að fá sér brreeeeeeeenivín með Kókaíninu. mira.is SJÁÐU Á NETINU BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI Sími: 554 6300 • Fax: 554 6303 ■ SEINUSTU HELGAR SÓLONS Allt í gangi á Sóloni íslandusi þessa seinustu lífdaga hans á gamla staðnum. Á efri hæðinni í kvöld eru Steinar og Daði sem fyrr bak viö spilarana. ■ BARA 2 Á CATAUNU Hljómsveitin Bara 2 leikur í kvöld á Catalinu í Hamraborg. ■ HAFRÓT Á PLAYERS Stórsveitin Hafrót ætl ar að halda uppi stanslausu stuði á nýja og góða barnum f Kóþavogi í kvöld, Players-Sport Bar, sem Árni, fyrrverandi Rauða Ijóns gaur, er með. Garanteraö stuð. ■ LAND OG SYNIR Á GAUKNUM Und og syn- ir ætla að búa til alvöru-sveitaballastemningu á Gauki á Stöng í kvöld. Ef þú ert staddur f Reykjavfk, en ert úr sveit, á leiðinni f sveit eða bara svona mikill sveita- maður f þér þá er þetta eitthvað fyrir þig. ■ NJÁLL Á NJÁLSSTOFU Njáll spilar léttmeti f kvöld á NJálsstofu, Smiðjuvegi 6, frá miðnætti til kl. 6. ■ RADÍUS OG TRÍPOU Helgin er klár á Grand Rokk. Radíusbræður Davfð og Steinn ætla að henda gaman að þvi sem þeim dettur í hug á fyrsta Radfuskvöldi haustsins. Þeir byrja klukk- an 22 og aðgangseyrir er eitt kíló króna. Dúnd- urtrfóið Tripóli, með Ghadaffi f fararbroddi og 3 bestu söngvara ætlar að bösta rímur að grfni loknu. ■ STÓRSVEITIN Á RAUÐA UÓNINU Það verð- ur nóg um að vera á Rauða Ijóninu f kvöld þeg- ar stórsveit Knattspyrnufélags Reykjavíkur heldur uppi stuðinu. Nóg af brennivíni. ■ ÝMIR Á VEGAMÓTUM Ýmir ætlar að mæta með bongótrommurnar sínar á Vegamót f kvöld þar sem hann hyggst trylla lýðinn eins og hann er hvað þekktastur fyrir. Einnig grfpur hann til vinýlsins, þ.e. þeirra sem hann á eftir sfðan hann var rændur. ■ SVSNSEN OG HALLFUNKEL_HVAÐ? Það eru stuökarlarnir Svensen og Halifunkel sem tæta og trylla á Gullöldinni til ki. 3 f nótt. Þiö munið eftir tilboðinu á öli til kl. 23.30, félagar? Bestu kveðjur frá Gullöldinni. ®B ö 11 ■ STUÐ Á NÆTURGAL- ANUM Það verður heldur betur nóg um að vera á Næturgalanum f kvöld þegar þau skötuhjú, Anna Vilhjálmsdóttir og Hilmar Sverrisson, leika fyrir dansi eins og svo oft áður. Frítt er inn til 23.30 og fólk vinsamlegast beö- ið aö taka góða skapið með sér. ■ FÆREYSKUR TAXI Stórdansleikur í kvöld á Fjörukránnl. Þar spilar fyrir dansi stórhljóm- sveitin Taxi frá Færeyjum. ■ BYLTING Á AMSTERPAM Norðlensku pilt- arnir f Byltingu spila á Amsterdam f kvöld. Þeir eru þekktir fýrir skemmtilegheit og eiga víst ættir sínar að rekja til Amsterdam. Stuð og slef á Amsterdam. D j ass ■ ARI OG ÚLFUR Á KRINGLUKRÁNNI Ari Jónsson og Úlfar Sigmarsson leika í kvöld frá 23 til 3 á Kringlukránni. Þar myndast oft sér- deilis góð stemning og vinaleg. ■ KAFFI NAUTHÓLL Berglind Björk og Pálmi Sigurhjartarson leika af fingrum fram í kvöld á Kaffi Nauthóli frá kl. 22 til miðnættis. •Sveitin ■ TÆKNITIL SIGURS1 dag efnir Nýherji til ráð- stefnu undir yfirskriftinni “Tækni til sigurs” á Hótel Örk f Hverageröi. Þar geta viðskiptavinir Nýherja kynnt sér lausnir og nýjungar til aö efla samkeppnishæfni og auka árangur. Á annan tug erlendra fyrirlesara mun ásamt sérfræðing- um Nýherja flytja yfir 30 fyrirlestra um óifk efni. í boði veröa kynningar á flestu þvf sem er að gerast f hagnýtingu upplýsingatækni f upphafi nýs árþúsunds. Upplýsingar og skráning á heimasfðu Nýherja, www.nyherji.is, með tölvu- pósti orkin@nyherji.is eða í sfma 569 7891. ■ RÚNI Á AKUREYRI Hljómsveit Rúnars Júlíussonar verður á Við Pollinn á Akureyri f fantastuði fram eftir nóttu. Allir mæta ogfá sér snúning, þarna verður sko ekki spilað neitt pfkupopp né ballööur. ■ JASON Á ORMINUM Hægt er að hlusta á hljóðblöndun Dj. Jay Harden (jason) á Orminum, Egilsstööum, í kvöld. Það eru amerískir dagar þar um helgina og miðaverðið 5.99$. ■ PAPAR í HEIMALANDI Paparnir rauðhæröu ætla að bregða hljóöfærum við belgina á sér og öskra sig hása á Ijóðaflutnigi milli þess sem þeir drekka smá jameson. Þeir verða f Heimalandi f dag. ■ STÚKAN ( EGILSBÚÐ Stúkan á Neskaupstað er opin til kl. 3 f nótt. Lff og fjör f Egilsbúð. ■ SMJÓRDALLURINN Á FLÚÐUM Á þessum tfma ársins er rólegt hjá flestum hljómsveitum en því er ekki að heilsa hjá Buttercup. Síminn hjá umboðsmanninum hefur hreinlega ekki stoppað og þess vegna spilar sveitin á réttarballi Hrunamanna á Fiúðum en allar þekktustu sveitir landsins hafa leikið þarna, að sögn smjördallarliða. úLeikhús ■ EINHVER í PYRUNUM I kvöld kl. 19.00 frumsýnir Leikfélag Reykjavíkur nýtt íslenskt leikrit, “Einhver f dyrunum”, eftir Sigurð Páls- son. Þetta er fyrsta frumsýning leikársins f Borgarleikhúsinu. Leikritið fjallar um hysteríska stórleikkonu sem hefur lokað sig af á heimili sínu og neitar að fara út á meðal fólks. Einóð- ur maður hennar, sem vinnur í eftirlitsiðnaðin- um, er fastur f sinni þráhyggju. I dyrnar koma óboðnir gestir, m.a. ungur maður, sem dáð hef- ur leikkonuna frá barnsaldri. Móðir hans kemur einnig viö sögu, og ennfremur fyrirsæta, sem minnir hana óþægilega á fortíðina. Einhver f dyrunum er á dagskrá Reykjavíkur menningar- borgar Evrópu árið 2000. Leikarar f “Einhver f dyrunum’ eru Björn Ingi Hilmarsson, Edda Björgvinsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson, Kristbjörg Kjeld og Sigurður Karlsson. ■ SJEIKSPÍR KOMINN ÚR FRÍI í kvöld hefjast að nýju sýningar á Sjeikspír eins og hann legg- ur sig eftir sumarfrí. Það er Leikfélag íslands sem sýnir í Loftkastalanum, Seljavegi 2, og sýningar hefjast kl. 20.Sjeikspfr er fluttur á 97 mínútum og er hresssari en nokkru sinni fyrr. Það er nú eða aldrei. ■ NÖRDINN JÓN Jón Gnarr með Ég var einu sinni nörd í Iðnó ! kvöld kl. 20. ■ MEÐ STANDPÍNU í TJARNARBÍÓI Með fuliri reisn gengur fyrir fullu húsi í Tjarnarbíói. Sýning er I kvöld og hefst hún kl. 20.30. Miðasölusfm- inn er opinn alla daga frá kl. 12 tii 19. Sjá Mar- gréti Eir og beru strákana. •Kabarett ■ PÚETT Á KAFFISETRINU Dúettinn Kolbeinn og Sævar sér um lifandi tónlistá Ijúfum nótum fyrir matargesti á Kaffisetrinu, Laugavegi 103, frá kl. 20 í kvöld. Kaffisetrið ervanmetinn stað- ur sem Fókus mælir eindregið með - flögurra stjörnu skemmtun hjá Beina og Sæva. ■ USTAMENN AP STÓRFUM I tilefni af Kringiudekri 14.-17. september verða lista- menn að störfum i Gallerí Fold í Kringlunni. I dag kl. 15 mun Daði Guðbjörnsson þrykkja á fyrstu grafíkpressuna sem flutt var til íslands. Kl. 16 mun Guðbjörn Guðbjörnsson óperu- söngvari flytja nokkur lög, Guðbjörg Káradóttir renna leir og Gunnella sýna oliumálun. Teikni- samkeppni fyrir börn yngri en 12 ára hefst kl. 151 samvinnu við Eymundsson. ■ STÚPENTADAGURINN í HÍ í dag fá háskóla- stúdentar frf frá ki. 11 og mega leika sér á skólalóðinni eins lengi og þeir vilja. Boðiö verð- ur upp á pylsur, kók og fjölda skemmtiatriða. ( svörtum fötum spila og Palli rektor spjallar. Hin fðilfagra Helga Braga lætur sjá sig og keppt verður f hinum ýmsu keppnisgreinum. Dagskrá frá 11 til 16 og í kvöld er ball f svörtum fötum á Astro.> •Opnanir ■ BJARNI ÞÓR í GERÐUBERGI í dag kl. 14.00 opnar Bjarnl Þór Þorvaldsson (Thor) myndlist- arsýningu f Geröubergi. Bjarni skilgreinir sig sem sjálfmenntaðan súrrealista. Hann skapar myndir af innsæi sfnu, þ.e.a.s. hann sér, skynj- ar og skapar. Myndirnar á sýningunni eru unnar með blekpenna, vatnslitum, olfulitum og akrýl- málningu. Vinabandið leikur og syngur við opn- unina. Sýningunni lýkur 29. október. ■ MÁLVERK ( GLUGGANUM í dag opnar Hildur Margrétardóttir sýningu sina á mál- verki af 2. ættlið meö fleiru í Glugganum hjá Gallerí Hnossi, Skólavöröustfg 3. Málverkiö færist stöðugt útávið, þaö krefst stuðnings af hinu áþreifanlega og veraldlega. Til þess aö skynjun almennings á verkinu sé f samræmi viö upplifun listamannsins er þörf á leiösögn inn í máiverkið. Takmörk túlkunarinnar getur átt sér staö vegna þekkingarleysis en meö vísun í daglegt líf hins almenna borgara er hægt aö ná fram þeirri virkni sem listamaöur- inn vill koma til skila. Hildur útskrifaðist úr málaradeild Myndlista- og Handföaskóla Is- lands 1999. Sýningin stendurtil föstudagsins 13. október. Gallerf Hnoss er rekið af hópi handverks- og listamanna og munu þau halda mánaðarlegar sýningar f Glugganum, Skóla- vörðustíg 3, yfir vetrartimann. Opiö er 12.00- 18.00 alla virka daga en 11.00-16.00 á laug- ardögum. •Síöustu forvöö ■ UST HJÁ LANDSVIRKJUN Listsýningar hafa staðið yfir f tveimur orkustöðvum Landsvirkjun- ar; Ljósafossi við Sogið og Laxárstöð í Aðal- dal. Þeim lýkur f dag. •Fundir ■ BÓKMENNTAKVÖLD í IÐNÓ í kvöld, kl. 20.30, verður í Iðnó síöasti upplestur Alþjóð- legu bókmenntahátíðarinnar I Reykjavík sem lýkur á morgun. Upplesarar veröa: Tahar Ben Jelloun, Id Michael, Magnus Mills, Einar Bragi og Þórarinn Eldjárn. Erlendu rithöfund- arnir lesa upp á eigin tungumáli. Þýöing á fs- lensku verður sýnd samtímis á tjaldi. Aögang- ur ókeypis. ■ EDWARD BUNKER Kl. 12.00 í dag verður f Norræna húsinu þriöja hádegisspjall Alþjóð- legu bókmenntahátíðarinnar i Reykjavik sem lýkur á morgun. Óttarr Proppé mun spjalla við Edward Bunker. Dagskráin fer fram á ensku. Aögangur ókeypis. ■ KYNNING Á ÍSLENSKUM NÚTÍMABÓK- MENNTUM Kl. 10.00 í dag munu íslenskir út- gefendur kynna íslenskar nútímabókmenntir f Norræna húsinu. Dagskráin fer fram á ensku. Aðgangur ókeypis. ■ FYRIRLESTUR UM UMHVERFISMÁL í dag kl 12.00 mun William Cronon flytja opinberan fyrirlestur á vegum Mannfræðistofnunar Há- skóla íslands og Stofnunar Vilhjálms Stef- ánssonar. Fyrirlestur sinn nefnir Cronon: Leit- Ina að náttúrunni. 1 fyrirlestri sínum mun Cronon fjalla um leit mannsins að hinu villta og breyttar hugmyndir um stööu mannsins í náttúrunni. Fyrirlestur Cronons er hluti af röö opinberra fyrirlestra á vegum Mannfræöistofn- unar Háskóla Islands um Markalínur náttúru og samfélags. Fyrirlesturinn fer fram f stofú 101 f Odda. ■ KÚLT EÐA KLASSÍK? I dag kl. 15.00 verða siöustu pallborðsumræður Alþjóðlegu bók- menntahátíðarinnar haldnar f Norræna húslnu. Umræðuefnið verður: Kúlt eða klassík? Ungir evrópskir höfundar ræða verk sín. Þátttakend- ur eru Ingo Schulze, Erlend Loe og Huldar Breiðfjörð. Stjórnandi umræðanna er Úlfhildur Dagsdóttir. Dagskráin fer fram á ensku. Að gangur ókeypis. Draumur unmn Ef á þig sækir svefn við akstur skaltu leggja bílnum á öruggum stað og fá þér blund UMFERÐAR RAÐ .'•www.uni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.