Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.09.2000, Blaðsíða 8
VJ k a n 15, september tSI 2 1. september 1 11 f Í ð F. F... -T—L-B M-M-U. Ifókus Laugardagur 16/09 •Klúbbar ■ SNERTING Á THOMSEN Það er Snerting á Thomsen í kvöld eins og alltaf á laugardögum og í kjallaranum er það Frímann, betur þekktur sem Frímann Sækó, sem setur allt á annan endann. Uppi eru það meistararnir Ýmir og Andrés sem rífa mannskapinn áfram fram und- ir morgun. ■ HÚS Á SPOTTLÆT DJ Alli verður meö “hou- se of trance" og house tónlist á Spotlight í kvöld. Hvort sem þú ert samkynhneigður eða bara kynkaldur þá er alltaf gaman á Spottaran- um. •Krár ■ ÁRNI EINAR Á PRIKINU Hann Árni Einar ætlar að rokka húsið á Prikinu í kvöld. Pilturinn kann þetta svo sannarlega enda orðinn reyndur I faginu. Spurningin er bara hvort þú sért klár I slaginn? Að sjálfsögðu, máliö er bara að mæta snemma þvi síðast náði röðin út að Ara í Ögri. ■ PLÖTUSPILARAR Á SÓLONI Allt í gangi á Sóloni íslandusi þessa seinustu lífdaga hans á gamla staðnum. Á efri hæðinni í kvöld eru Steinar og Daði sem fyrr bak við spilarana. ■ 80'S Á GAUKNUM í kvöld verður 80's- stemning á Gauknum. Nú er komið að síðasta einvíginu milli aðdáenda Duran Duran eða Wham. Nú fara allir í gömlu Don Cano-gallana, vaffla á sér hárið og setja upp neongrifflurnar og djamma til sigurs sinna manna. ■ ANDRÉS Á VEGAMÓTUM Eftir smápásu er meistari Andrés mættur aftur á Vegamót þar sem hann hyggst halda uppi stuðinu. Best að mæta snemma til að fá stæði. ■ CATALINA. CATALINA Hljómsveitin Bara 2 leikur I kvöld á Catalinu í Hamraborg. ■ HAFRÓT Á PLAYERS Stórsveitin Hafrót ætl- ar að halda uppi stanslausu stuði á nýja og góða barnum í Kópavogi í kvöld, Players-Sport Bar, sem Árni, fýrrverandi Rauða Ijóns-gaur, er með. Garanterað stuð. ■ NJALLI Njáll spilar léttmeti í kvöld á Njáls- stofu, Smiðjuvegi 6, frá miðnætti til kl. 6. ■ ROKKLAND Á 22 Óli Palli, hæstráðandi til sjós og lands á Rokklandinu góða á ríkisstofnuninni Rás 2, verður brjálaður I búrinu á tuttuguogtveim- ur I kvöld. Ætli Móði láti sjá sig? ■ SKUGGA-BALDUR Á ÁLAFOSSI Já. hann er mættur í borgina eftir túr um landið I sumar. Plötusnúðurinn og diskótekið Skugga Baldur leika á Álafoss föt bezt I kvöld, frá 23, og spila að sjálfsögðu alla uppáhaldsdiskana sína. Hver vill missa af þessu? ■ STÓRSVEITIN Á RAUÐA UÓNINU Það verð- ur nóg um að vera á Rauða Ijónlnu I kvöld þeg- ar stórsveit Knattspyrnufélags Reykjavíkur heldur uppi stuðinu. Nóg af brennivíni. ■ TRÍPÓLÍ Á GRANDINU Stórgleðiþriggja mannasveitin Trípólí ætlar að spila svo að spik- ið hristist á gestum Grand Rokk. Fyrir nokkrum árum var starfrækt kvikmyndahús í Reykjavík sem kallað var Trípólíbíó. ■ SVENSEN UND HALLFUNKEL Það eru stuðkarlarnir Svensen og Halifunkel sem tæta og trylla á Gullöldinni til kl. 3 í nótt. Standandi stuð. I B ö 11 ■ STUÐ Á NÆTURGALANUM Það verður held- ur betur nóg um að vera á Næturgalanum í kvöld þegar þau skötuhjú, Anna Vilhjálmsdótt- Ir og Hilmar Sverrisson, leika fyrir dansi eins og svo oft áður. Húsið verður opnað klukkan 22 og fólk er vinsamlegast beðið að taka góða skap- ið með sér. ■ ARI OG ÚLFAR Arl Jónsson og Úlfar Sig- marsson leika í kvöld frá 23 til 3 á Kringlu- kránni. Þar myndast oft sérdeilis góð stemning og vinaleg. ■ BYLTINGARSINNAR Norðlensku piltarnir í Byltingu spila á Amsterdam í kvöld. Þeir eru þekktir fyrir skemmtilegheit og eiga víst ættir sínar að rekja til Amsterdam. Stuð og slef á Amsterdam. ■ SIXTIES Á SELFOSSI Á Inghóli í kvöld verð ur það hljóm- sveitin Sixties sem tryllir sel- fysskar meyjar og sveina. Gam- an að þessu. ■ TAXI Á FJÖRUKRÁNNI Stórdansleikur I kvöld á Fjörukránni. Þar spilar fyrir dansi stór- hljómsveitin Taxi frá Færeyjum. D j| a s s ■ CAFÉ ROMANCE Lifandi tónlist öll kvöld. Enski píanóleikarinn og söngvarinn Miles Dowley skemmtir gestum á Café Romance og Café Óperu alla daga nema mánudaga, frá kl. 20 til 1 virka daga og 21 til 3 um helgar. ©Klassík ■ KAMMERTÓNLEIKAR í GARÐABÆ Þriðju tónleikar I tónleikaröðinni "Kammertónleikar í Garðabæ" árið 2000 verða haldnir í Kirkjuhvoli í dag kl. 17.00. Þeir sem fram koma á tónleik- unum eru Cuvillés - strengjakvartettinn (áður Sinnhofer - kvartettinn) frá Munchen og Sig- urður Ingvi Snorrason klarinettuleikari. Á efnis- skrá tónleikanna eru verk eftir Haydn, Mozart og Beethoven. ■ TÓNLEIKAR í NESKIRKJU í dag, ki. 16.00, munu Sigurgeir Agnarsson sellóleikari og Andrew Paul Holman orgelleikari halda tón- leika í Neskirkju. Á efnisskránni eru sex fjöl- breytt verk fyrir selló og orgel eftir Kurt Wiklander, Kjeli Mork Karlsen, Saint-Saéns, Daniel Pinkham, Joseph Jongen og Hugo Alfvén. Tónleikarnir verða endurteknir á morg- un, kl. 16,1 Skálholtskirkju. •Sveitin ■ MEGAS í ÓLFUSI Meistari Megas verður meðö tónleika í Ingólfs-Café, Ölfusi í kvöld og hefjast þeir klukkan 22. Þetta eru fyrstu tón- leikar kappans eftir hlé og verður boðið upp á fordrykk. Aldurstakmark eru vetur og kostar 1000 kr. inn. ■ ÁFRAM MEÐ SMJÓRH)! Það ætlar hreinlega ekkert að verða úr haustfríi Buttercup, slík er eftirspurnin eftir sveitinni I sveitinni. Þau eru búin að vera að hamra saman nýja plötu til að eiga fyrír jólagiöfum og fylgja eftir gríðarlegum vinsældum síðustu plötu, “Allt á útsölu”. í kvöld ætla þau að koma fólkinu á hreyfingu í lokahófi Tindastóls, í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki. ■ EYVI SITUR ORMINN Það er margt brallað við Lagarfljót og Ormurinn tekur þátt I flestu. í kvöld ætlar Eyjólfur Kristjánsson að kirja nokkra kántríslagara fyrir ameriskan múginn. ■ GREIFARNIR í STAPANUM Keflvíkingar ættu að fara að gera sig klára fyrir kvöldið þegar Viddi og hinir vit- leysingarnir I G r e i f u n u m hyggiast taka Stapann með trompi eins og svo oft áður. Já, já þeir eru orðn- ir gamlir en virðast alltaf virka. Til hamingju strákar, þið eruð alla vega búnir að losna við ape-cuttið. ■ HAUSVERKUR OG EGILSBÚÐ Trúbadorinn Ingvar Valgeirs sem margir hafa séð í Haus- verk um helgar spilar I kvöld í Egilsbúð á Nes- kaupstað. Ókeypis inn fýrir miðnætti og 500 kr. eftir það. ■ PAPAR í VÍKINNI Papar ætla að þenja gígjurnar I Víkinni, Höfn í kvöld. Alveg verður grenjandi stuð, svoleiðis alisbert fólk út um allt. ■ RÚNAR VH> POLUNN Hljómsveit Rúnars Júlíussonar verður á Viö Pollinn á Akureyri í fantastuði fram eftir nóttu. Allir mæta og fá sér snúning, þarna verður sko ekki spilað neitt píkupopp né ballöður. €)L e i k h ú s ■ DÓTTIR SKÁLDSINS - 3. SÝNING The lcelandic Take Away Theatre er með sýningu á Dóttur skáldsins eftir Svein Einarsson í Tjarnar- bíói í kvöld. Það er gaman I leikhúsi. ■ OPH) HÚS HJÁ LEIKFÉLAGI AKUREYRAR Leikfélag Akureyrar mun kynna vetrardag- skrána í dag frá kl. 13-15 í opnu húsi I leikhús- inu. Þar verður gestum og gangandi boðið upp á atriði úr Stjörnum á morgunhimni og Sæma sírkusslöngu. Leiklesið verður úr Gleðigjöfun- um en frumsýning á þvl verki verður í lok októ- ber. Skoðunarferðir verða um leikhúsið, einnig verður þar barnahorn og andlitsmálun, Skralli verður á ferðinni o.fl. Veitingar verða I boði. Þennan sama dag hefst sala á aðgangskortum leikhússins, þau gilda á fjögur verkefni vetrar- ins og kosta aðeins 5900 krónur. ■ LANGAFl PRAKKARI Sýning er á Langafa prakkara eftir Sigrúnu Eldjárn I Möguleikhúsinu við Hlemm I dag kl. 14. Verk Sigrúnar eru sígild og alltaf skemmtileg. Helmingsafsláttur af miðaverði vegna afmælis Möguleikhússins þessa helgi. ■ SNUÐRA OG TUÐRA Lelkritlð Snuðra og Tuðra eftir Iðunni Steinsdóttur er sýnt I dag I Möguleikhúsinu við Hlemm kl. 16. Helmingsaf- sláttur af miöaverði um helgina vegna afmælis Möguleikhússins. ■ BARNAEINLEIKUR Stormur og Ormur er sýndur I Kaffileikhúsinu, Hlaðvarpanum, Vest- urgötu 3, kl. 15 I dag. Sýningin hefur fengið mjög góða dóma og áhorfandanum er haldið hugföngnum til enda. ■ EINHVER í DYRUNUM Sigurður Pálsson er höfundur að verkinu sem var frumsýnt I gær I Borgarleikhúsinu. Önnur sýning er I kvöld kl. 19. Leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir. Tak- markaður sýningafjöldi. ■ HELLISBÚINN GENGUR ENN Sýning í kvöld á Hellisbúanum í íslensku óperunni. Miðasalan opin fram að sýningu sem hefst kl. 20. Þetta getur Bjarni Haukur. •Kabarett ■ CULT POP LIVE FRÁ HELSINKI Sterio Total - Cult Pop Live er konsert sem kemur frá Helsinki og verður varpað beint á sýningartjald- ið I cafe9.net I Hafnarhúsinu. Hér er hægt að fylgjast með þvl ferskasta sem Finnar hafa upp á að bjóða frá klukkan 13-15. ■ SKÓGARGANGA í KÓPAVOGI Þriöja haust- ganga Skógræktarfélags islands, Garðyrkjufé- lags islands og Ferðafélags íslands verður I dag. Gangan, sem er létt, hefst kl. lOog tekur um tvo tíma. Mæting er við bifreiðaumboð Toyota - P Samúelsson Nýbýlavegi 8. Leiðsögu- menn verða Einar E Sæmundsen landslagsarki- tekt, Óli Valur Hanson, fyrrverandi garðyrkju- ráðunautur, og Friðrik Baldursson garðyrkju- stjóri. Gengið verður um valið hverfi I Kópavogi og m.a. leitað að hæsta trénu I Köpavogi. ■ VINNUSTOFA LISTAMANNS i tilefni af Kringludekri 14.-17. september verða lista- menn að störfum í Gallerí Fold í Kringlunni. í dag kl. 13 mun Hjördís Guðmundsdóttir renna leir. Kl. 15 mun Ágúst Bjarnason þrykkja á fýrstu grafíkpressu sem flutt var til íslands. Á sama tlma munu lifandi og léttir djasstónar óma. Kl. 16 mun svo Hrafnhildur Bernharðs- dóttir sýna ollumálun. Teiknisamkeppni fýrir börn yngri en 12 ára hefst kl. 131 samvinnu við Eymundsson. ■ KAFFISETRIÐ Á UÚFUM NÓTUM Dúettinn Kolbeinn og Sævar sér um lifandi tónlistá Ijúf- um nótum fýrir matargesti á Kaffisetrinu, Laugavegi 103, frá kl. 20 í kvöld. Kaffisetrið er vanmetinn staður sem Fókus mælir eindregið með - fjögurra stjörnu skemmtun hjá Beina og Sæva. ■ BACKGAMMON Á GRANDINU Boðið er upp á backgammon-mót á Grand Rokk I dag og eru áhugasamir hvattir til að koma og taka þátt. Grímur Grímsson mætir allavega og hver veit nema Hrafn Jökulsson sjáist. Mótið hefst klukkan 15. ■ FYLKISSTEMNING i tilefni fótboltaleiks Fylk- is og ÍA I Landssímadeildinni I dag býður B&L stuðningsmönnum og öðrum Árbæingum til upphitunar og fjölskylduskemmtunar fyrir leik- inn. Skemmtunin hefst kl. 11 og stendur til kl. 13. Boðið verður upp á gos, pylsur, Fylkisand- litsmálningu o.fl. Að sjálfsögðu verður slðan fjölmennt á leikinn á Fylkisvellinum kl. 14. ■ OUEEN Á BROADWAY Já, hún hefst I kvöld. Queen sýningin verður frumsýnd á Broadway í kvöld og er það Eiríkur Hauksson, Eric Hawk, sem bregður sér I líki Freddie Mercury en flutt verða þekktustu lög sveitarinnar. Fjöldi dansara koma fram en hljómsveitarstjóri er Gunnar Þórðarson. Gildran og Eiríkur Hauksson leika svo auðvitað fýrir dansi á eftir. Opnanir ■ PAC-MAN í GALLERÍ GEYSI i húsnæði GalP erís Geysis að Vesturgötu 2 opnar I dag kl. 16.00 myndlistarsýning þriggja ungra manna (Baldurs, Bibba og Hara) sem sam- an kalla sig Pac-Man. Pac- Man telur hina ýmsu miðla henta vel til að heiðra listagyðjuna en þeir hafa sungið henni óða slna á Netinu, I hljóðlistaverkum, skúlptúrum og innsetning- um. Samsýning þeirra I Galleri Geysi mun án efa bera þeirri sannfæringu vitni en boðið er upp á eft- irfarandi kræsingar: “Þú skait gefa tíma” sem er netlistaverk úr smiðju baldur.com. Bibbi sýnir verkið “Rock ‘n Roll” sem er hljóðinnsetning fýrir rokkara. Framlag Hara til þessarar glæsilegu sýningar eru mál- verk sem unnin eru sérstaklega fýrir rými Gall- eris Geysis. Sýningin Pac-Man stendur til 1. október næstkomandi og er opin á opnunar- tlma Hins Hússins. ■ SAMLAGH) Á AKUREYRI í dag kl. 14.00 verður Samlagið Listhús Kaupvangsstræti 12 Akureyri með kynningu á nýjum félaga I Sam- laginu, Halldóru Helgadóttur. Halldóra er Akur- eyringur og lauk námi frá Fagurlistadeild Mynd- listaskólans á Akureyri slðast liðið vor. Á kynn- ingunni verða myndir sem Halldóra hefur unnið á þessu ári, olíumálverk, vatnslitamyndir og kritarteikningar. Kynningin mun standa frá 16. september til 24. sama mánaðar og verður hún opin frá 14.00 til 18.00 alla daga nema mánu- daga. ■ SKÚLPTÚRAR I dag kl. 15.00 opnar Kristín Guðjónsdóttir sýningu á skúlptúrum úr keram- iki og steyptu gleri I Baksalnum I Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14 -16. í tilefni af sýningu Krist- Inar heldur listakonan stuttan fýrirlestur I Gall- eri Fold um verk sln og sýnir skyggnur um gerð þeirra. Fyrirlesturinn hefst kl. 16.30 opnunar- daginn og eru allir velkomnir. Opið er I Galleri Fold daglega frá kl. 10.00 til 18.00, laugardaga frá kl. 10.00 til 17.00 og sunnudaga frá kl. 14.00 til 17.00. Sýningin stendur til 1. október. ■ í VÍNGARÐINUM í kvöld kl. 20 verður opnuð sýning Þóru Þórisdóttur I gaileri@hlemmur.is Þverholti 5 Reykjavík. Sýningin nefnist I víngarðinum og samanstendur af myndbandsinnsetningu og tölvuútprentunum af myndböndum. Bakgrunnurinn er umhverfi víngeröarþorpsins Villány I suðurhluta Ungverjalands. Þóra reynir að nálgast nokkrar táknmyndir Bibllunnar og ímyndir úr víngerðarþorpinu með því að upplifa þær og skrásetja á myndband. Þetta er 7. einkasýning Þóru. í fýrri sýningum hefur hún gjarnan unnið út frá persónulegri reynslu sinni með tákn Biblíunnar. Sýningin er gerð með styrk frá NKKK og stendur til 8. okt. Galleríið er opið fimmtudaga til sunnudags frá kl. 14-18. Allir eru velkomnir, aðgangur er ókeypis. •Síöustu forvöö ■ DÓSLA í LÓNKOTI í dag lýkur sýningu Dóslu - Hjördísar Bergsdóttur -1 Gallerí Sólva Helga- sonar í Lónkoti I Skagafirði. Á sýningunni eru olíumálverk unnin á árunum 1999-2000. Dósla stundaði nám við MHÍ á árunum 1974-1979 við textíldeild skólans. Einnig var hún við nám I kennaradeild ‘85-'87 og árin '87-'88 við málaradeildina. Dósla býr á Sauö- árkróki og er myndlistarkennari við Fjölbrauta- skóla Norðurlands - Vestra og Árskóla á Sauð- árkróki. •Fundir ■ BÓKMENNTIR OG SAMFÉLAG í AFRÍKU í dag lýkur Alþjóðlegri bókmenntahátíð i Reykja- vík sem hófst 10. september. Fjórða og síð- asta hádegisspjall hátíðarinnarverður haldið kl. 12.00 I Norræna húsinu. Þar munu Tahar Ben Jelloun og André Brink ræða bókmenntir og samfélag í Afríku. Stjórnandi umræðanna verð- ur Torfi H. Tulinius. Dagskráin fer fram á ensku. Aðgangur ókeypis. ■ MÚSÍKÞERAPISTAR FUNDA Félag islenskra músíkþerapista heldur fræðslufund I dag, kl. 14, i Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Inngang- urinn er á vesturgafli. Á fundinum, sem er op- inn öllum, mun Valgerður Jónsdóttir músik- þerapisti fjalla um tóniistarkennslu nemenda með sérþarfir.Á fundinum verður einnig rædd staða fatlaðra nemenda I tónlistarskólum og erfiðleika sem nemendur með sérþarfir geta þurft að glíma við I tónlistarnámi, sem og við- horf kennara og gagnlegar kennsluaðferðir.> ■ WILLIAM HEINESEN Síðasti dagskrárliður Alþjóðlegu bókmenntahátíðarinnar í Reykjavík (sem lýkur I dag) verður fyrirlestur Jógvans Isaksen um William Heinesen. Fyrirlesturinn er haldinn I Norræna húsinu kl. 15.00. í anddyri Norræna hússins er einnig sýning á myndum Edwards Fuglö við smásögu Heinesens, Vængjað myrkur. Fyrirlesturinn fer fram á dönsku. Aðgangur ókeypis. ■ SKÍMÓ Á AKÓ Selfossgrýlan er enn á kreiki því sprelligosarnir góðkunnu I Skítamóral verða sko með góðan móral á Sjallanum, Akureyri, um kvöldbilið. Fjöllistahópurinn Bússi bei verð- ur með I för og ætlar sko ekki að vera með neinn skítamóral heldur bara almennilegt Sel- fosssprell. ■ SPÚTNIK Á HELLU Prómó kynnir hina stór- góðu Spútnik. Þeir spila I Hellubíó á Hellu þannig að maður veröur bara að passa sig að fá ekki hellu. hahahahahaha, ha, hahahahahaha. ■ SÓLBLINDA Á AKRANESI Austankaldinn að oss blésupp vér drógum faldinn trés.Aldan velti vargi Hlés... Á móti sól við Akranes. Strákarnir spila á Breiðinni I kvöld. ■ SÓLPÓGG í SJALLANUM Nú blða ísfirsku dömurnar spenntar I frystihúsinu því von er á þeim kumpán- um I Sóldögg I bæinn I kvöld. Já, það er ekk- ert annað, Beggi og félag- ar spila I Sjall- anum I kvöld og þar verður púra testósterón. ■ ÍRAFÁR OG REYNIR írafár ætla að troða upp á uppskeruhátlð Reynis I samkomuhúsinu Sandgerði. Reyni gekk nú ekkert allt of vel I sumar, sjálfsmörk og vitleysa, en það á nú samt að sletta ærlega úr klaufunum og fagna fiskveiðinni. nýtt í b í ó Fókus i / / Enn og aftur borgar sig að lesa Fókus því hér að neðan finnur þú boðsmiða á stórmyndína Dancer in the Dark, sem gildir í kvöld, en myndin er frumsýnd um næstu helgi. Þeir sem hafa áhuga á að sjá stór- myndina Dancer in the Dark þurfa ekki að örvænta þó hún verði ekki frumsýnd fyrr en um næstu helgi. Hér að neðan fínnur þú boðsmiða á myndina í kvöld og það eina sem þú þarft að gera er að klippa miðann út, koma niður í Háskólabíó í dag og framvisa honum. 300 miðar eru í boði og gamla lögmálið, fyrstir koma fyrstir fá, gildir hér en þeir sem ekki fá miða verða að bíða í viku eftir frumsýningunni. Já, það er komið að því, stjaman okkar, hún Björk er komin á hvíta tjaldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.